Morgunblaðið - 30.08.1977, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. AGUST 1977
15
Tönllst
eftir JÓN
ÁSGEIRSSON
Anna Rögnvaldsdóttir
„debúteraði" s.l. föstudag í
Norræna húsinu, en hún hef-
ur undanfarin ár stundað
nám í Englandi.
Efnisskráin, samsett af
verkum eftir Corelli, Bach,
Mozart og César Franck, var
glæsileg og spannar yfir stórt
svið, hvað snertir fiðlutækni
og þróun i tónsmíði og tón-
stíl. Corelli var einn af fyrstu
stórsnillingum í fiðluleik og
eru verk hans glæsileg og
heillandi eins og itölsk bygg-
ingarlist, sem tónstill ítala er
talinn hafa mótast af vegna
mikilla dvergmála er ein-
kenndu hús þar um slóðir.
Fiðluverk Bachs, eins og
reyndar öll tónlist hans,
gleymist vegna mikilla breyt-
inga, sem áttu sér stað er
hann var að Ijúka lífsstarfi
sínu. Þá var italska fiðlan
tekin fram yfir gömlu fjóluna
og verk rituð fyrir það hljóð-
færi þess vegna meira og
minna óhæf til flutnings.
Menelssohn gerði mikið til að
vekja athygli á Bach en
löngu seinna voru einleiks-
verkin fyrir fiðlu og celló tek-
in til athugunar og þykja enn
einhver erfiðustu verkefni
fyrir strengjaleikara. Innan
um alla þessa tækni er Moz-
art eins og fallegt ævintýri,
sem býr yfir töfrum, er aldrei
dofna og helst mætti likja við
óspillta náttúrufegurð. í fiðlu-
sónötunni eftir César Franck
nær skrúðmælgi og ástríðu-
hiti suðumarki, en á þeim
tíma eru listamenn teknir að
keppir að því. Löngunin og
þörfin geta verið svo sterkar
að ekkert annað skiptir máli
og gagnrýni til þess eins að
espa, svo að i staðinn fyrir að
vita takmörk sín, verður þörf-
in fyrir lausn erfiðustu verk-
efna brýnni, beinlínis til að
afsanna raungildi gagnrýn-
innar.
Að halda sína fyrstu tón-
leika er erfið þraut, þar sem
margra ára þjálfun er saman-
þjöppuð í örfáum viðfangs-
efnum og niðurstöðunni end-
anlega fyrirkomið i örfáum
orðum hlustandans, rétt eins
og ekkert hafi gerst Þannig
er ævistarf listamanna, með
sárafáum undantekningum,
dæmt til að mistakast. Þrátt
fyrir þessa áhættu er sífellt
verið að hvetja fólk til átaka
við erfið viðfangsefni. Um
tónleika Önnu Rögnvalds-
dóttur er það helst að segja
að sum verkefnin, eins og
t.d. Partítuna eftir Bach,
hefði hún átt að geyma til
betri tíma. Þeim sem þreytir
sína frumraun er nauðsyn-
legt að geta leitað til ráðgef-
andi tónlistarmanna, sem
bæði hafa reynslu og þekk-
ingu til að miðla og ef vel
tekst til má ætla, að slik
umfjöllun geti verið gagnleg
varðandi verkefnaval og hve-
nær sé viturlegt að láta til
skarar skríða. Kapp er best
með forsjá þeim sem í fyrsta
sinn standa á pallinum má
fyrirgefa margt. Anna hefur
margt til brunns að bera en á
lika margt ólært.
Agnes Löve lék á píanóið
og átti auðheyrilega ekki
margra kosta völ, en leysti
sitt verk vel af hendi miðað
við aðstæður.
í sónötum Mózarts og
Francks er um að ræða sam-
spil og var oft áberandi hve
fiðluleikarinn var ógætinn
Fiðluleikur
snúast gegn rómantíkinni og
endaði sú barátta með upp-
hafi nútimatónlistar. Sónatan
er stórfengleg tónsmíð,
meistaraverk, sem stendur á
mörkum tveggja andstæðra
listastefna. Sá sem setur
markið hátt, sér hilla i það í
átökum við stór verkefni en
þannig fer ekki ávallt saman
markmiðið og geta þess sem
bæði í tóntaki og blæmótun á
viðkvæmum stöðum og inn-
komum og gerði samspil oft
á tíðum marklaust. Frumraun
er ekki að öllu leyti marktæk
til að staðhæfa nokkuð um
hæfileika til að sigrast á erfið-
leikum Það er oft sá, sem
lætur ekki segjast, er að lok-
um sigrar.
Jón Ásgeirsson.
Það var stundum farið í loftinu í vélhjólakeppninni.
300 manns fylgdust
með véUijólakeppnínni
S.L. SUNNUDAG stóð vél-
hjóladeiL B.Í.K.R. fyrir vél-
hjólakeppni úndir Sand-
felli við Þrengslaveg.
Keppnin fór fram á braut
sem F.Í.B. lét gera á s.l. ári
og var ætluð bifreiðum.
Eknar voru tvær umferðir,
10 hringir hvor á stórum
mótorhjólum. Einnig var
keppt á litlum vélhjólum
50cc og var ekin ein um-
ferð, 10 hringir, á braut-
inni, sem er 900 m löng.
1 frétt frá Félagi ísl. bif-
reiðaeigenda segir, að í
fyrsta sæti i báðum um-
ferðum í opnum flokki hafi
sigurvegari verið Jón
Magnússon á Suzuki RM
370 á samanlögðum tíma 23
mín. 36 sek. í 50cc flokki
sigraði Guðmundur
Magnússon á Yamaha
MR50 á 15 mín. 54 sek.
Rúmlega 300 áhorfendur
voru á mótssvseðinu er
keppt var.
mwnmm
Marvell
frá
Qster
Á sýningunni
bjóðum við með sérstökum
kynningarafslætti potta og
pönnur frá hinu heimsþekkta
,,™“ Qster
Pottarnir og pönnurnar eru með
Marvell húð sem þolir meira en
áður hefur þekkst.
Komið og skoðið —
Sjón er sögu ríkari.
Sýningarverð Rétt verð
Panna án loks 9"
Panna án loks 11"
Panna án loks 1 2"
Panna með loki 22"
Pottur m. skafti og loki 1 stk.
Pottur m. skafti og loki 2 stk.
Pottur m skafti og loki 3 stk
Stór pottur
3.900 - (4.300.-)
4.800 - (5.300.-)
5.800 - (6.500.-)
9.900,- (1 1.000.-)
4.400 - (4.900.-)
5.400.- (6.000.-)
6.000 - (6 700.-)
6.900 - (7.700 -)
Vörumarkaðurinn hi.
Armúla 1a