Morgunblaðið - 30.08.1977, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. AGUST 1977
23
Óskar Jakobsson vann einna eztu afrekin I keppninni. Hann
varpaði kúlu 17.09 metra, spjðti 75.06 metra og kringlu 57.50
metra.
ert eftir og tókst að vinna sigur
með góðum endaspretti.
Sem fyrr greinir lá styrkur
IR-Iiðsins fyrst og fremst I því
hversu jafnt það var, því ef
sigurvegari var ekki úr IR var
keppandi félagsins jafnan í
fremstu röð. Gagnstætt þessu
var t.d. KR, sem nánast virtist
grípa menn upp af götunni til
að keppa, einkum þó í kvenna-
greinunum. Var lítt til fyrir-
myndar að sjá gjörsamlega
óþjálfað fólk þarna meðal kepp-
enda, og sennilega væri ekki úr
vegi að FRl setti reglur um
ákveðið lágmark sem þyrfti til
þess að fá stig.
ÍR-ingar hlutu alls 62 stig í
kvennakeppninni, en þar urðu
Armannsstúlkurnar i öðru sæti
með 57 stig og UMSK í þriðja
sæti með 42 stig. HSÞ hlaut svo
39 stig, FH 34 stig og KR.aðeins
18 stig.
I karlakeppninni hlaut IR
98.5 stig, KR varð i öðru sæti
með 78,5 stig, UMSK í þriðja
sæti með 68 stig, FH í fjórða
sæti með 58 stig, Armann hlaut
55 stig og HSÞ 41 stig. Saman-
lagt urðu því úrslitin þessi: 1)
IR 160,5 stig, 2) Armann 112
stig, 3) UMSK 110 stig, 4) KR
96.5 stig, 5) FH 92 stig og 6)
HSÞ 80 stig.
Stighæstu einstaklingar í
mótinu voru þau Vilmundur
Vilhjálmsson, KR sem hlaut 26
stig í karlakeppninni og Ingunn
Einarsdóttir úr IR sem hlaut
hvorki fleiri né færri en 29 stig
í kvennakeppninni. Var það því
Ingunn ein sem hlaut nærri
helming þeirra stiga sem IR
Framhald á bls. 47
Hafsteinn Jóhannesson,
UMSK 36,53
GuSni Sigfússon. Á 36,03
Jóhann Sigurðsson, HSÞ 34,43
ÞRfSTÖKK:
Friðrik Þór Óskarsson. ÍR 14.50
Helgi Hauksson, UMSK 14.34
Vilmundur Vilhjálmsson, KR 13.52
Kristján Þráinsson. HSÞ 13.32
Stefán Jóhannsson. Á 12.35
Einar Guðmundsson, FH 11.44
110 METRA GRINDAHLAUP:
Þorvaldur Þórsson. ÍR 14,9
Elias Sveinsson, KR 15.4
KRINGLUKAST KVENNA:
Hulda Halldórsd. ÍR 34.03
Sólveig Þráinsd. HSÞ 30.35
Arndls Björnsd. UMSK 29.12
Hildur Harðard. FH 29.12
Ólöf Óskarsd. Á 28.03
Emilia Sigurðard. KR 23.58
400 METRA HLAUP:
Vilmundur Vilhjálmss. KR 51.4
Gunnar P. Jóakimss. ÍR 51.7
Jón Þ. Sverriss. UMSK 52.6
Einar P. Guðmundss. FH 53.0
Kristján Þráinss. HSÞ 54.3
Ólafur Óskarss. Á 55.4
Hafsteinn
UMSK
Guðmundur R.
FH
Jóhannesson,
16,1
Guðmundsson,
16.3
Jón Benónýsson, HSÞ
Halldór Matthiasson. Á
16.3
20.8
LANGSTÖKKKVENNA:
Lára Sveinsd. Á 5.63
Ingunn Einarsd. ÍR 5.56
Hafdis Ingimarsd. UMSK 5.36
Ragna Erlingsd. HSÞ 5.09
RutÓlafsd. FH 4.75
1500 METRA HLAUP KARLA Helga Halldórsd. KR 4.43
Agúst Asgeirsson, IR 4:18,1 5000 METRA HLAUP:
GunnarÞ. Sigurðsson, FH 4:21,7 Sigurður P. Sigmundss.
Gunnar Snorrason, UMSK 4:33,5 FH 16:27.5
Stefán Ö. Sigurðsson, KR 4:35.6 Hafsteinn Óskarss. ÍR 16:45.0
Jðn lllugason, HSÞ 4:37,3 Ágúst Gunnarss. UMSK 17:04.2
Jóhann GarSarson. Á 4:57,0 Halldór Matthíass. Á 18:05.3
100 METRA HLAUP: Jón lllugason HSÞ 19:07.5
Vilmundur Vilhjálmsson, KR 10,3 Úlfar Aðalsteinss. KR 20:21.8
Magnús Jónasson, Á 10,8 200 METRA HLAUP KVENNA:
Jón Þ. Sverrisson, UMSK 11.0 Ingunn Einarsd. ÍR 25.2
Jón S. Þórðarson, ÍR 11.1 Sigrún Sveinsd. Á 26.2
Kristinn Arnbjömsson. FH 11.2 Rut Ólafsdóttir FH 26.5
Jón Benónýsson, HSÞ 15.1 Ragna Erlingsd. HSÞ 26.9
800 METRA HLAUP KVENNA: Björg Eysteinsd. UMSK 29.1
Sigurborg Guðmundsdóttir, Hjálmfriður Jóhannsd. KR 29 6
A 2:39,0 1000 METRA BOÐHLAUP
Thelma Björnsdóttir, KARLA:
UMSK 2:39,1 Sveit ÍR 2:03.9
Guðrún Ámadóttir, FH 2:41.3 Sveit KR 2:04 3
Bryndís Hólm, ÍR 2:52.5 Sveit Ármanns 2:07.4
Ragna Erlingsdóttir. HSÞ 2:52.7 Sveit FH 2:07.5
Þorbjörg Hólmgeirsdóttir. Sveit HSÞ 2:08.3
KR 3:17.4 SveitUMSK 2:08.8
ÍSLANDSMÓTIÐ 2. DEILD:
Haukar enn með í toppbaráttunni
eftir óvæntan sigur á Akureyri
ÓVÆNTUR stórsigur Hauka yfir
KA f 2. deildar keppni tslands-
mótsins, f leik sem fram' fór á
Akureyri á laugardaginn, galopn-
ar að nýju keppnina 1 2. deild, en
fyrir helgina leit helzt út fyrir að
Þróttur og KA væru að stinga
andstæðinga sfna af f deildinni.
Eftir þennan sigur eiga Haukar
enn góða möguleika á 1. deildar
sæti. Þeir eiga tiltölulega létta
leiki eftir, en KA á hins vegar
eftir að leika við Þrótt f Reykja-
vfk og er ekki ótrúlegt að úrslit
þess leiks skipti sköpum í mót-
inu.
Það var auðséð strax og leikur-
in á Akureyri hófst á laugardag-
inn, röskum tveimur timum á eft-
ir áætlun, að Haukar voru
ákveðnir að selja sig dýrt í leikn-
um. Þeir fengu líka sannkallaða
óskabyrjun, þar sem knötturinn
lá í marki KA þegar á 3. minútu.
Dæmd var hornspyrna á KA og
upp úr henni var knötturinn
sendur fyrir markið, þar sem Guð-
jón Sveinsson stökk manna hæst
og skallaði í KA-markið.
Þessi forysta Haukaliðsins virt-
ist setja KA-liðið mjög út af lag-
inu. Það náði aldrei verulega vel
saman, og þótt leikmenn liðsins
5—1 sigur
Húsavfkurliðið Völsungar
ætlar greinilega að eiga góðan
endasprett f 2. deildar keppn-
inni f knattspyrnu að þessu
sinni og bjarga með honum
sæti sfnu í deildinni. A laugar-
daginn vann liðið stórsigur,
5—1, yfir grannliði sínu frá Ar-
skógsströnd í leik sem fram fór
á Húsavfk. Með þessu tapi var
Ifka cndanlegur falldómur
kveðinn upp yfir Reynismönn-
um. Þeir munu leika f 3. deild
að ári.
Fyrri hálfleikur leiksins á
laugardaginn var heldur þóf-
kenndur og líflítill. Völsungar
voru þó lengst af heldur virk-
ari, en leikur þeirra engan veg-
inn til fyrirmyndar. Eina mark
hálfleiksins kom á 41. mfnútu',
en þá fékk Helgi Helgason,
unglingalandsliðsmaður, send-
ingu út á vinstri kant. Lék hann
í átt að Reynismarkinu, og
sendi þar á Hermann Jónasson,
sem tókst að snúa á varnarleik-
menn Reynis og skora af stuttu
færi.
Fyrstu 15. mínútur seinni
hálfleiks voru keimlikar fyrri
hálfleiknum, en þá varð líka
veruleg breyting á. Hafþóri
Helgasyni var skipt inn á hjá
Völsungum og átti hann eftir að
koma mikið við sögu i leiknum.
Var hann ekki búinn að vera
inn á nema þrjár mínútur er
hann hafði skorað, eftir að hafa
fengið góða sendingu inn i vita-
teig Reynismanna frá Aðal-
steini Óskarssyni.
Nokkrum mínútum eftir
mark þetta breyttist staðan i
3:0. Kristján Olgeirsson sendi
þá góða sendingu á Hafþór sem
átti skot á Reynismarkið. Mark-
vörður hálfvarði, en Hermann
Jónasson náði knettinum og
skoraði.
A 35. minútu hálfleiksins
skoraði Völsungur svo sitt
væru heldur meira með knöttinn
úti á vellinum, gekk erfiðlega að
skapa sér færi. Af og til áttu
Haukar svo skyndisóknir sem
voru margar hverjar hættulegar
vegna sofandaháttar KA-
varnarinnar. Kom þar á 30. mín-
útu að Haukar bættu öðru marki
við og var það þannig, að Andrés
Kristjánsson lék upp kantinn og
sendi siðan góða stungusendingu
inn á Sigurð Aðalsteinsson, sem
lék nær KA markinu og skoraði
siðan með góðu skoti. Var staðan
þannig 2:0 fyrir Hauka í hálfleik.
Strax á 2. mínútu seinni hálf-
leiks tókst KA að minnka mun-
inn. Sigbjörn Gunnarsson fékk þá
knöttinn á vallarmiðjunni og lék
upp að vitateig, þar sem hann
skaut góðu skoti sem Haukamark-
vörðurinn réð ekki við. Með
marki þessu lifnaði verulega yfir
KA-liðinu. Samleikur þess batn-
aði og meiri ógnun varð í sóknar-
leiknum. Komst Armann Sverris-
son tvívegis i mjög góð færi á
næstu mínútum, en í fyrra skiptið
skaut hann i þverslá, en lét
Haukamarkvörðinn verja frá sér í
seinna skiptið.
A 29. minútu hálfleiksins sneru
Haukar vörn í sókn og tókst þá
yfir Reyni
fjórða mark. Sigurður Gunnars-
son sendi þá knöttinn inn i
eyðu á Hafþór sem gat gefið sér
góðan tíma, og skoraði hann
með fallegu skoti. A sömu mín-
útu skoraði Reynir svö sitt eina
mark i leiknum. Einn Reynis-
manna átti þá skot á Völsunga-
markið. Sigurður Pétursson
markvörður varði, en féll við,
ásamt einum Reynismanna.
Hélt Sigurður honum föstum og
dæmdi Rafn Hjaltalín víta-
spyrnu. Magnús Jónatansson
tók vítaspyrnuna en Sigurður
varði. Hélt hann ekki knettin-
um sem hrökk út í teiginn, þar
sem Magnús náði til hans og gat
rennt honum i markið.
5. mínútum fyrir leikslok
kom svo siðasta mark leiksins,
og var Hafþór Helgason þar
enn á ferðinni og skoraði eftir
góðan undirbúning þeirra
Kristjáns Olgeirssonar og Sig-
urðar Gunnarssonar.
Beztu menn Völsungaliðsins i
leik þessum voru þeir Magnús
Hreiðarsson, Aðalsteinn Ósk-
arsson og Guðlaugur Bessason,
en auk þeirra áttu bræðurnir
Hafþór og Helgi ágætan leik. 1
liði Reynismanna var það helzt
Gunnlaugur Gunnarsson sem
upp úr stóð.
Leikinn dæmdi Rafn Hjalta-
lín vel að öðru leyti en þvi að
hann var full smámunasamur.
—if
STAÐAN I 2. deildar keppni íslands-
mótsins I knattspyrnu er nú þessi:
Þróttur R 15 11 2 2 34— 14 24
KA 15 11 1 3 46— 23 23
Haukar 15 7 7 1 26— 13 21
Ármann 4 7 3 4 23— 17 17
ísafjörður 15 5 5 5 16— 19 15
Reynir S 15 5 4 5 21 — 23 14
Völsungur 15 4 4 7 19— 23 12
Þróttur N 14 3 3 8 17— -26 9
Selfoss 14 2 2 10 10- -31 6
Reynir Á 15 1 3 11 14— -36 5
Ólafi Sveinssyni að leika i gegn-
um staða KA-vörnina og skora
þriðja mark Hauka og nokkru sið-
ar gerðu Haukarnir svo endan-
lega út um leikinn. Ólafur Torfa-
son var þá kominn f færi innan
vitateigs KA, en var brugðið og
dæmd var vítaspyrna sem Ólafur
Jóhannesson skoraði örugglega
úr.
5 mínútum fyrir leikslok skor-
uðu Haukar svo enn, — en að
þessu sinni i eigið mark. Sigbjörn
Gunnarsson tók þá góða horn-
spyrnu og sendi knöttinn inn í
þvögu leikmanna fyrir framan
Haukamarkið. Hrökk knötturinn
þar i einn leikmanna Hauka og af
honum í markið.
Bezti maður KA í leik þessum
var Þormóður Einarsson, en í
heild var liðið dauft í dálkinn og
náði sér ekki á strik nema á tfma-
bilinu frá þvi að það skoraði
fyrsta mark sitt unz Haukarnir
bættu þriðja marki sínu við.
Aberandi bezti maður Hauka-
liðsips i leik þessum var Ólafur
Jóhannesson, sem var bókstaflega
allt í öllu hjá liðinu. Þá átti
Andrés Kristjánsson einnig ágæt-
an leik.
—gg
Þróttur
sótti tvö
, stig til
ísafjarðar
IREV KJAVlKUR-ÞRÓTTUR
hélt til Isafjarðar á laugardag-
inn og keppti þar við heima-
menn f 2. deildinni í knatt-
spyrnu. Fóru Þróttarar með
bæði stigin heim með sér og
halda þvf forystunni í 2. deild-
ar keppninni, þegar þeir eiga
aðeins þrjá leiki eftir.
Leikurinn á Isafirði fór fram
við heldur erfiðar aðstæður,
þar sem rok og rigning var
meðan á leiknum stóð. Lék
Þróttur undan verðrinu í fyrri
hálfleik og hafði þá betur.
Skoraði liðið tvivegis. Fyrra
markið kom á 15. minútu. Eftir
hornspyrnu náði Sverrir
Brynjólfsson knettinum úti í
vitateig Isfirðinga og skaut
þrumuskoti sem rataði rétta
leið í markið. A 30. minútu
bætti svo Þorgeir Þorgeirsson
öðru marki við, eftir mistök i
vörn heimaliðsins.
Isfirðingar byrjuðu seinni
hálfleikinn af ítliklum krafti
og strax á fyrstu minútu hálf-
leiksins átti Ölafur Torfason
skot í stöng Þróttarmarksins.
En þrátt fyrir að Isfirðingar
sæktu nteira i hálfleiknum og
sköpuðu sér allgóð tækifæri
sem ekki tókst að nýta.
Leikurinn var annars frem-
ur lélegur og virtust leikmenn
beggja liða hafa takmarkaðan
áhuga á honum. Er greinilegt
að hálfgerður leikleiði er að
koma upp hjá sumum liðunum
i 2. deild, sérstaklega þó þeirn
sem hvorki eru að berjast á
| toppnum eða botninum, enda
„próggrammið" mjög stíft —
leikið urn hverja helgi.
Dómari i leiknum á Isafirði
var Hreiðar Jónsson og voru
menn heldur óánægðir með
frammistöðu hans — senmlega
hefur hann verið jafnleiður á
^eiknunM^eikmennirnii^)!^
Völsungar úr mestu
fallhættunni eftir