Morgunblaðið - 30.08.1977, Qupperneq 25
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. AGUST 1977
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 1977
25
AKURNESINGAR VORU
VEL AÐ SIGRIKOMNIR
Akranes
Þótt felstir hafi ugglaust gert ráð fyrir
því að Akurnesingar myndu blanda sér
alvarlega í baráttuna á toppnum í sumar,
hafa þeir sennilega verið færri sem spáðu
liðinu sigri Það varð í þriðja sæti i
mótinu í fyrra, og við bættist svo að þeir
tveir leikmenn sem jafnan höfðu verið
atkvæðamestir í framlínu Akranes,
Matthías Hallgrímsson og Teitur Þórðar
son, voru báðir orðnir atvinnumenn í
Svíþjóð Var það Akurnesingum mikil
sárabót að fá tvo sterka leikmenn til liðs
við sig í upphafi keppnistímabilsins, þá
Jón Þorbjörnsson markvörð úr Þrótti og
Kristin Björnsson úr Val Mesta happ
Skagamanna á þessu keppnistímabili var
þó að fá George Kirby aftur til starfa sem
þjálfara, en um hæfileika Kirbys þarf nú
enginn lengur að efast Hann er fremstur
þeirra brezku þjálfara sem starfað hafa
hérlendis á undanförnum árum Sýndi
Kirby mikla skipulagshæfileika með Akra-
nesliðið í sumar og fljótlega sást á þvi sá
skemmtilegi bragur er einkenndi liðið á
árunum 1 974 og 1975 Liðið lék létta og
skemmtilega knattspyrnu — stundum
dálítið opna og framlínumennirmr oneð
hinn unga markakóng, Pétur Pétursson. í
fararbroddi, kunnu að notfæra sér tæki-
færi er buðust
Alls léku 1 5 leikmenn með Skagaliðinu
í sumar, þar af fimm leikmenn alla leikma
18 — þeir Jón Þorbjörnsson. Björn
Lárusson, Jón Gunnlaugsson, Karl Þórð-
arson og Árni Sveinsson
Alls gerðu Skagamenn 35 mörk i deild-
inni, en fengu á sig 13 Mörkin voru
skoruð af sjö leikmönnum og eitt markið
var sjálfsmark andstæðingsins Skiptust
mörkin þannig millimarkskoraranna
Pétur Pétursson 16
Kristinn Björnsson 6
Karl Þórðarson 5
Hörður Jóhannesson 3
Árni Sveinsson 2
Jón Gunnlaugsson 1
Jón Alf reðsson 1
Einkunnagjöfin: í einkunnagjöf Morg-
unblaðsins hlutu Skagamenn alls 479
stig eða 26,61 stig að meðaltali fyrir leik
Eftirtaldir leikmenn hlutu hæsta meðal-
einkunn hjá Morgunblaðsmönnum
Jón Gunnlaugsson 50 (1 8). 2,77
Pétur Pétursson 44 (1 7). 2.58
Karl Þórðarson 46 (1 8). 2,55
Jón Alfreðsson 43 (1 7). 2,52
Jón Þorbjörnss 44 (18). 2.44
Jóhannes Guðjónss 36 (1 5). 2.40
Valur
Eftir glæsilegan sigur Vals í íslands-
mótinu og bikarkeppnmni í fyrra, var það
álit flestra að Valsmenn ættu mjög góða
möguleika á að halda titlum sinum i
sumar Liðið hafði sama þjálfara og i
fyrra, og sömu leikmenn. með þeirri und-
antekningu að Kristinn Björnsson og Her-
mann Gunnarsson hættu með liðinu, en í
staðinn fékk það Hörð Hilmarsson frá
Akureyri, traustan leikmann og heima-
vanan i Valshögunum Valsmenn gátu þó
tæpast byrjað mótið verr en þeir gerðu,
þar sem þeir töðuðu tveimur fyrstu leikj-
um sinum En siðan tók Valur flugið og
sigurganga liðsins hófst. Það náði aftur
upp mjög beittu og vel útfærðu sóknar-
spili, en það var öðru fremur það sem
færði liðinu góðan sigur í mótinu i fyrra
Var oft unun af því að horfa á Valsmenn-
ma leika knattspyrnu, og þegar komið var
fram i mótið virtist fátt geta hindrað sigur
Valsmanna Einkum og sér i lagi virtust
miklar líkur á að bikarinn héldist á Hliðar-
enda er Valsmenn flengdu Akurnesinga á
heimavelli þeirra, sigruðu 4— 1
17 leikmenn: í leikjum sínum í sumar
notaði Valur alls 17 leikmenn Þeir
Bergsveinn Alfonsson, Dýri
Guðmundsson, Magnús Bergs. Ingi
Björn Albertsson og Atli Eðvaldsson léku
alla leikina með liðinú Voru þeir ásamt
Sigurði Dagssyni og Guðmundi
Þorbjörnssyni helztu máttarstólpar þess,
en Valur reyndi nokkra nýja og
athyglisverða leikmenn í sumar Má þar
sérstaklega nefna Jón Einarsson, sem
vafalaust á eftir að láta verulega að sér
kveða í framtíðinm
Mörkin: í mótinu skoruðu Valsmenn
alls 38 mörk en fengu á sig 16 Átta
leikmenn skoruðu mörkin 38 og skiptust
þau þannig milli leikmanna
Ingi Björn Albertsson 1 5
Atli Eðvaldsson 7
Guðmundur Þorbjörnsson 5
Albert Guðmundsson 4
Magnús Bergs 4
Bergsveinn Alfonsson 1
Jón Einarsson 1
Óttar Sveinsson 1
Einkunnagjöfin: Valsmenn hluti alls
494 stig í einkunnagjöf Morgunblaðsins,
eða 27,44 stig að meðaltali í leik, og var
ekkert lið sem hlaut eins góðu útkomu
Eftirtaldir leikmenn
meðaleinkunn í
Morgunblaðsmanna
Albert Guðmundss.
Guðm. Þorbjörnss.
Atli Eðvaldsson
Ingi Bj. Albertss.
Dýri Guðmundss.
Sigurður Dagsson
hluti hæsta
einkunnagjöf
48 (17).
42 (15).
50(18).
47(18),
46 (18).
2,82
2,80
2.77
2.61
2,55
33(14), 2.35
Vestmannaeyjar
Ekkert lið getur eins vel við sinn hlut
unað I 1 deildar keppninni í sumar og
Vestmannaeyingar Þeir léku í 2 deild í
fyrra, en koma nú, sjá og hreppa þriðja
sætið í mótinu, og hefðu þeir með
smáheppni jafnvel getað orðið enn ofar
Undirrituðum er til efs að Eyjamenn hafi
nokkru sinni átt betra og skemmtilegra
liði á að skipa og má það heita hreint
undur hversu vel hefur tekizt til með
knattspyrnustrafið i Eyjum. en ætla mátti
að það myndi hljóta slíka hnekki á
Eyjagosinu að erfitt væri að ná því á strik
aftur og staðfesti fall Eyjamanna í 2. deild
þetta raunar En greinilega hefur síðasta
sumar verið notað vel til þess að
undirbúa jarðveginn í Eyjum, og mikið
má vera ef þetta lið á ekki eftir að setja
enn stærra strik i reikninginn þegar
næsta sumar en það gerði i ár
Baráttu- og leikgleði var einkenni
Eyjamanna í sumar, og þvi verður heldur
ekki á móti mælt að liðið lék beitta og
skemmtilega knattspyrnu lengst af i
leikjum sinum Um tima gekk því þó
herfilega að skora mörk — lék fjóra leiki i
röð í upphafi mótsins án þess að skora,
en slíkt hrökk i liðinn þegar Sigurlás
Þorleifsson hafði jafnað sig af meiðslum
sem hann hlaut í fyrsta leik vorsins Átti
Sigurlás oft eftir að koma við sögu i
leikjum Eyjamanna í sumar, og var einn
athuglisverðasti leikmaður þessa
íslandsmóts Maður sem á eftir að
heyrast oft frá í framtiðinni, ef að líkum
lætur Hið sama má segja um Karl
Sveinsson, sem óx ótrúlega mikið í
leikjum sinum Þessir tveir leikmenn
fylltu betur i það skarð sem markakóngur
Eyjamanna, Örn Óskarsson, skildi eftir
sig er hann gekk í KR i vor en nokkurn
hafði grunað
Mörkin: Eyjamenn skoruðu alls 27
mörk i leikjum sínum í sumar, en fengu á
sig 18 mörk Mesti sigur liðsins var
4—0 sigur yfir Akureyrarliðinu Þór, en
mesti ósigur liðsins var 0—3 tap fyrir
Akurnesingum á Akranesi.
Það voru aðeins fimm leikmenn sem
skoruðu öll mörk Vestmannaeyja
Sigurlás Þorleifsson
Tómas Pálsson
Sveinn Sveinsson
Karl Sveinsson
Snorri Rútsson
Einkunnagjöfin:
Morgunblaðsins
I
12
8
3
3
1
einkunnagjöf,
hlaut
Vestmannaeyjaliðið alls 475 stig, eða
26,38 að meðaltali fyrir lei Eftirtaldir
leikmenn liðsins hluti hæsta
meðaleinkunn hjá Morgunblaðinu
Tómas Pálsson
Óskar Valtýss.
Þórður Hallgrímss
Sigurlás Þorleifss.
Karl Sveinsson
Ólafur Sigurvinss.
51 (18), 2,83
48(18), 2.66
32(12), 2,66
37(14). 2,64
46(18), 2,55
41 (17), 2,41
Alls léku 19 leikmenn með IBV-liðinu í
sumar og þai af sex leikmenn alla leikina
18, þeir Einar Friðþjófsson, Friðfinnur
Finnbogason, Valþór Sigþórsson, Sveinn
Sveinsson, Tómas Pálsson og Óskar
Valtýsson.
Víkingur
Sama sagan endurtók sig hjá Vikingum
í sumar og erði í fyrrasumar, — þeir
byrjuðu mótið mjög vel. en síðan týndist
botninn uppi í Borgarfirði Leikir Víkings í
sumar voru mjög mismunandi. Þegar
bezt lét lék liðið framúrskarandi góða
knattspyrnu og nægir þar að nefna
frammistöðu liðsins í síðasta leik mótsins,
er það mætti Val sem dæmi, en þess á
milli datt það svo niður á stig
meðalmennskunnar eða vel það Voru
Víkingar heldur óheppnir í sumar, þar
sem þeir misstu nokkra af sínum beztu
mönnum frá í lengri eða skemmri tíma
vegna meiðsla í þeim hópi var Róbert
Agnarsson, hinn geysilega efnilegi
miðvörður liðsins, og er ekki ólíklegt að
fjarvera hans hafi gert útslagið á að
Víkingar voru ekki nær toppnum er raun
bar vitni
Oft heyrðust þær raddir í sumar að
^Víkingar lékju leiðinlega knattspyrnu, en
víst er að lið þetta hefur alla burði til þess
að gera þar bragarbót á og það jafnvel
strax næsta sumar En frumskilyrðið er
auðvitað að leikmenn missi ekki móðinn,
þegar erfiðlega fer að ganga, heldur rifi
sig upp. eins og t d Skagamenn gerðu,
þegar mest á reið
Með Víkingsliðinu léku alls 1 7
leikmenn i sumar og náðu sex þeirra að
leika alla leikiria 18, þeir Diðrik Ólafsson,
Kári Kaaber, Magnús Þorvaldsson,
Eiríkur Þorsteinsson. Gunnar Örn
Kristjánsson og Jóhannes Bárðarson
Mörkin. í 1 deildar keppninni skoruðu
Víkingar 22 mörk en fengu á sig 23
mörk Mörkin skiptust þannig milli 8
leikmanna:
Eiríkur Þorsteinsson 5
Hannes Lárusson 4
Viðar Elíasson 3
Kári Kaaber 3
Gunnar Örn Kristjánsson 3
Síðasta mark 1. deildar keppninnar 1977. Ingi Björn Albertsson, fyrirliði Valsliðsins skorar úr vítaspyrnu f leik liðs síns við Víkinga og þar
með var staðan í leiknum iöfn 3:3. Valsmenn þurftu að vinna þennan leik til þess að fá úrslitaleik um íslandsmeistaratitilinn við Akurnesinga.
f ------N
Knattspyrnan með bezta móti
Vióburðarfku ok skfmmti-
Ifgu krppnistfmabili I. deildar-
innar f knattspyrnu 1977 er lok-
ið. bað eina sem er eftir er að
krýna Islandsmeistara Akra-
ncss og afhenda þeim sigur-
launin, og mun það verða gert í
leikhléi úrslitaleiks bikar-
keppni KSt, sem fram á að fara
11. september n.k. Þá munu
Akurnesingar taka við fslands-
bikarnum f tfunda sinn, flytja
hann heim með sér upp á Akra-
nes þar sem hann verður
geymdur fram til sama tfma
næsta sumar — f það minnsta.
Allir geta verið sammála um
að Akurnesingar séu vel að bik-
arnum og titlinum komnir að
þessu sinni, þótt vitanlega
hefðu flestir knattspyrnuunn-
endur átt þá ósk heitasta að fá
hreinan úrslitaleik miili þeirra
og Valsmanna, en þessi tvö lið
sköruðu nokkuð fram úr keppi-
nautum sfnum f 1. deildar
keppninni f sumar, og úrslita-
leikur milli þeirra hefði vafa-
laust orðið hápunktur tslands-
mótsins.
Þegar á heild tslandsmótsins
í sumar er litið verður ekki
annað sagt en að mótið hafi
verið hið skemmtilegasta og
boðið upp á betri knattspyrnu
en oftast áður. Leikir liðanna
voru að vfsu mjiig mismunandi.
Stundum var boðið upp á leiki
sem voru f ætt við það sem hér
gerðist fyrir svo sem áratug,
þcgar það var aðalsmerki leik-
manna að geta sparkað hátt og
langt, en aðrir leikir buðu upp
á knattspyrnu sem fullyrða má
að sé fyllilega á borð við það
sem gerist vfða be/.t hjá grann-
þjóðum okkar t.d. á Norður-
löndunum, og þessir leikir stað-
festu að fslenzk knattsp.vrna
hefur verulega sótt á. Vonandi
staðfesta Evrópubikarleikir
þeir sem Vaiur, Akranes og
Fram eiga nú framundan þetta
einnig, en öll liðin þrjú eiga
góða möguleika á að komast f
það minnsta f aðra umferð
þeirra móta að þessu sinni.
1. deildar keppnin var nú f
fyrsta sinn með nýju smiði. Tíu
lið léku f deildinni og nú féllu f
fyrsta sinn tvö lið niður f aðra
deild. Erfitt er að segja á þessu
stigi málsins hvaða áhrif fjolg-
un liða f deildinni og breytt
fyrirkomulag kann að hafa. úm
það mun tfminn skera úr en
augljóslega komu þó í sumar
fram ýmsir vankantar, sem
væntanlega verða íhugaðir vel
á næsta knattspyrnuþingi. Það
hlýtur t.d. að verða umhugsun-
arefni að áhorfendafjöldi á
hyerjum leik er minni en áður
og jafnvel þýðingarmestu leik-
ir eins og t.d. viðureign Vals og
Vfkings s.l. fimmtudagskvöld
draga ekki til sfn nema rösk-
lega þrjú þúsund áhorfendur.
Þvf verður ekki á móti mælt,
að mikill mismunur var á getu
liðanna sem léku f 1. deildinni f
sumar, og úrslit f sumum Ieikj-
um lágu næstum fyrir áður en
þeir hófust. Valsmenn og Akur-
nesingar áttu he/tu liðin, og
sýndu yfirleitt jafna og góða
leiki. Meiri tröppugangur var á
frammístöðu annarra liða.
| Þannig byrjuðu t.d. Vfkingar
mótið mjög vel og voru lengi
með f baráttunni, en sfðan datt
botninn algjörlega úr hjá þeim
— gagnstætt gerðist hjá Vest-
mannaey ingum. Eftirtekja
þeirra í fyrstu leikjum mótsins
var heldur rýr, en síðan sótti
liðið f sig veðrið svo um munaði
og þegar á mótið leið er fullvfst
að þeir stóðu ekki langt að baki
Val og Akranesi.
i þessu móti bar það Ifka við
sem vafalaust verður fest á
spjöld knattspyrnusögunnar á
tslandi. KK féll f aðra deild f
fyrsta sinn. Er Valur nú eina
liðið sem ekki hcfur hlotið þau
örlög að gista aðra deild f
lengri eða skemmri tfma og
eins og nú horfir er ekkert útlit
á öðru en að Valur haldi stöðu
sinni a.m.k. fyrst um sinn. Ef
tekið er svo mið af leikjum f
bikarkeppni KSt má ætla að
mikill munur sé á getu liðanna
sem leika í 2. deild og þeirra
sem eru f 1. deild. Þvf er ekki
ástæða til að ætla að KR-ingar
dvelji lengi f 2. deild og ætla
má einnig aó lið Þórs frá Akur-
eyri eigi góða möguleika á að
vinna sig strax upp aftur. Kann
svo að fara, ef ekki verður á
breyting til batnaðar f 2. deild
að sömu liðin verði á ferðalagi
milli deilda á hverju ári.
Morgunblaðið gerir nú lftils-
háttar úttekt á 1. deildar
keppninni f sumar gerir grein
fyrir markaskorun og útkomu
hvers liðs fyrir sig, og kynnir
helztu niðurstöðu f einkunna-
gjöf blaðsins, en sem kunnugt
er gáfu fréttamenn blaðsins
leikmönnum allra 1. deildar
liðanna einkunn eða stig fyrir
frammistöðu þeirra f leikjum
sumarsins.
Jóhannes Bárðarson 2
Óskar Tómasson 1
Róbert Agnarsson 1
Einkunnagjofin Blaðamenn
Morgunblaðsins gáfu liði Vikings alls
417 stig fyrir leiki sina í mótinu í sumar,
eða 23,1 6 stig að meðaltali fyrir leik Þeir
leikmenn liðsins sem fengu hæstu
meðaleinkunn voru eftirtaldir
Róbert Agnarsson
Diðrik Ólafsson
Magnús Þorvaldss.
Eirfkur Þorsteinss
Helgi Helgason
Kári Kaaber
31(12). 2.58
42(18). 2,33
42(18). 2.33
40(18). 2,22
34(16). 2.12
36(18). 2.00
Keflavík
Keflavíkurliðið kom tvimælalaust mjög
á óvárt i mótinu í sumar Þegar sýnt var
að þeir þrir leikmenn sem verið hafa
burðarásar Keflavíkurliðsins áförnum
árum: Guðni Kjartansson, Einar
Gunnarsson og Þorsteinn Ólafsson,
myndu ekki leika með liðinu i sumar, áttu
felstir von á þvi að róðurinn yrði þungur
fyrir ungu mennina er taka skyldu upp
merki þeirra En strax i fyrstu leikjum
sínum í mótinu afsönnuðu Keflvlkingarnir
allar hrakspár og sýndu að 'þeir áttu
sterku liði á að skipa, — að þeir áttu ekki
aðeins nokkra framtiðarmenn i
knattspyrnunni, heldur marga og það
jafnvel svo marga að nokkrir leikmenn
sem vissulega hefðu verðskuldað að fá
sin tækifæri stóðu meira eða minna fvrir
LOKASTAÐAN í I. DEILD
Akranes 18 7 1 1 2(1- -8 6 1 2 15- -5 28
Valur 18 6 2 1 19- -8 5 3 1 19- -10 27
Vestmannaeyjar 18 5 2 2 16—8 4 1 4 11- -10 21
Keflavfk 18 5 2 2 17- -14 3 2 4 12- -14 20
Víkingur 18 3 4 2 10- -10 3 4 2 12—13 20
Breiðablik 18 4 3 2 14- -11 3 1 5 12- -14 18
FH 18 3 2 4 15- -18 2 4 3 11 — 12 16
Fram 18 2 2 5 10- -17 2 4 3 14—18 14
KK 18 2 2 5 12- -15 1 2 6 12—19 10
Þór 18 1 2 6 10- -19 1 0 8 11- -29 6
v> /
utan liðið Kom þetta t d tram er
Keflvíkingar tefldu nánast varaliði sínu
fram í leik við toppliðið í 2 deild, KA, í
bikarkeppninni, en vann samt þar
öruggan sigur
Þóit ungu mennirnir í Keflavikurliðinu
stæðu sig mun betur en fyrirfram mátti
ætla fer ekki á milli mála að
Keflavíkurliðið á velgengni sína i sumar
að verulegu leyti einum manni að þakka,
og er sá Gísli Torfason Gísli hefur
sennilega aldrei verið betri en i sumar og
átti hvern leikmn öðrum betri Það var
hann sem oftast stjórnaði leik liðsins, var
alls staðar á vellinum og dreif aðra
leikmenn áfram með krafti sinúm Þá er
vert að nefna markvörð liðsins, Þorstein
Bjarnason, sérstaklega, en Þorsteinn hóf
merki nafna sins Ólafssonar raákilega á
loft Þar er á ferðinni piltur sem vafalaust
á eftir að heyrast mikið frá, og þá
sennilega jafnt sem landsliðsmanni og
leikmanni Keflavikurliðsins
Alls lék 21 leikmaður með liði ÍBK i
sumar, þar af þrir alla leiki liðsins:
Sigurður Björgvinsson, Óskar Færseth og
Þorsteinn Bjarnason
Mörkin: Keflvikingar skoruðu 29 mörk
í 1 deildinni í sumar og fengu á sig 28
Það voru hvorki fleiri né færri en 12
leikmenn sem skoruðu þessi 29 mörk og
skiptust þau þannig á milli þeirra:
Ólafur Júlíusson 6
Gísli Torfason 4
Ómar Ingvarsson 4
Þórður Karlsson 3
Einar Ólafsson 2
Hilmar Hjálmarsson 2
Sigurður Björgvinsson 2
Þórir Sigfússon 2
Friðrik Ragnarsson 1
Karl Hermannsson 1
Kári Gunnlaugsson 1
Steinar Jóhannsson 1
Einkunnagjöfin: Keflvíkingar hlutu.alls
442 stig í einkunnagjöf Morgunblaðsins
eða 24,55 stig að meðaltali fyrir leik í
þeirra hópi var sá leikmaður sem hlaut
bezta meðaleinkunn allra leikmenna í
mótinu ..Leikmaður íslandsmótsins
1977" Gisli Torfason, en hæstu menn i
ÍBK urðu:
Gísli Torfason 47(16), 2,93
Þorsteinn Bjamas. 47(18), 2,61
Sig. Björgvinsson 46(18), 2,55
ÓskarFærseth 40(18), 2,22
Ólafur Júlfuss. 35(16), 2,18
Gísli Grétsrss. 36(17), 2,11
Breiðablik
Eftir að Breiðablik hafði sigrað Val
4—3 i mjög skemmtilegum leik í fyrstu
umferð mótsins, mátti ætla að liðið fengi
byr undir vængi og fylgdi þessum góða
sigri sínum eftir En einhvern veginn var
það þannig að Breiðabliksliðið náði sér
aldrei á strik i sumar Það náði reyndar
ágætum leikjum öðru hverju, eins og t d
er það sigraði Fram á Laugardalsvellinum
4—1, en oftar var það þó að hálfgerð
meðalmennska var ráðandi ríkjum hjá
liðinu Ekki vantar mannvalið hjá
Kópavogsbúunum, og á undanförnum
árum hefur ekkert félag átt eins sterkum
yngri flokkum yfir að ráða Spruningin
hlýtur fyrst og fremst að vera sú hvenær
þetta lið blómstrar, ekki hvort það gerir
það Breiðabliksliðið er enn í mótun og
hefur átt við hálfgert aðstöðuleysi að
stríða allt fram á þetta sumar, er það fékk
til afnota hinn geysigóða og skemmtilega
grasvöll í Kópavogi, sem hlýtur að
gjörbreyta aðstöðu liðsins.
1 7 leikmenn léku fleiri eða færri leiki
með Breiðabliksliðinu í sumar, en aðeins
þrír leikmenn léku alla leiki þess: Einar
Þórhallsson, Ólafur Friðriksson og
Valdimar Valdimarsson. Vakti sá
síðastnefndi einna mesta athygli allra
Breiðabliksmanna í sumar Þar er mjög
efnilegur piltur á ferðinni.og hið sama má
raunar segja um nokkra aðra unga
leikmenn liðsins, t d Jón Orra
Guðmundsson og Vigni Baldursson.
Mörkin: Breiðablik skoraði 2 7 mörk í
deildinni I sumar, en fékk á sig 26
Stærstu sigra sína unnu Breiðabliksmenn
yfir Frömurum sem þeir unnu tvívegis
4—1, en mesti ósgiur Breiðabliks í
sumar var 0—3 tap fyrir Val Níu
leikmenn skoruðu fyrir liðið og eitt marka
þess var sjálfsmark andstæðingsins
Mörk UBK skoruðu:
Olafur Friðríksson 6
Þór Hreiðarsson 5
Heiðar Breiðfjörð 4
Jón Orri Guðmundsson 3
Valdimar Valdimarsson 3
Sigurjón Rannversson 2
Vignir Baldursson 1
Einar Þórhallsson 1
Hinrik Þórhallsson 1
Einkunnagjöfin: Breiðablik hlaut alls
441 stig i einkunnagjöf Mrogunblaðsins,
eða 24,50 að meðaltali fyrir leik
Eftirtaldir leikmenn liðsins hluti hæstu
meðaleinkunn fyrir leiki sina:
Valdim. Valdimarss. 46(18), 2,55
Einar Þórhallss. 45(18), 2,50
Þór Hreiðarsson 42(17), 2,47
Ólafur Hákonars. 21(11), 1,90
Bjami Bjarnas. 32(17), 1,88
Ólafur Friðrikss. 34(18), 1,88
FH
Það má furðulegt heita að lið FH skyldi
ekki hljóta nema 16 stig i mótinu að
þessu sinni Liðið lék í sumar mjög
skemmtilega kanttspyrnu, —
knattspyrnu eins og hún gerist bezt
hérlendis, þegar það átti sina beztu daga
Oft var það sem herzlumuninn skorti hjá
FH-ingum, hvort sem slik má flokka undir
óheppni eða klaufaskap
Oft hefur það verið sagt um FH-inga að
þeir eigi efnilegu liði á að skipa, og
verður að undirstrika það að þessu sinni.
jafnframt þvi sem vonast verður eftir því
að senn komi að því að liðið nái því að
verða meira en efnilegt Það hefur alla
burði til þess að vera i fremstu röð og
undirritaður spáir þvi að það muni gerast
næsta sumar.
FH-ingar léku í sumar dálitið öðruvisi
knattspyrnu en flest önnur islenzk lið
Liðið byggði töluvert upp á framtaki
einstaklinga i liðinu, sérstaklega þó
framtaki Ólafs Danivalssonar, en hann er
leikmaður sem minnir í mörgu á hina
„gömlu góðu" íslenzku
knattspyrnumenn eins og t.d Rikharð
Jónsson. Leikmaður sem er óragur að
reyna hlutina upp á eigin spýtur, og hefur
harða og góða knattmeðferð Ólafur
ásamt þeim Janusi og Viðari voru þeir
leikmenn FH-liðsins sem upp úr stóðu s.l
sumar Alls léku 20 leikmenn leiki fyrir
FH i 1. deildar keppninni, þar af aðeins
tveir alla leikina 18, þeir Viðar
Halldórsson og J : nus Guðlaugsson.
Mörkin: FH-ingar skoruðu 26 mörk i
mótinu, en fengu 30 á sig Átta leikmenn
skoruðu mörkin, en tvö af mörkum FH
voru sjálfsmörk andstæðinganna Þeir
sem skoruðu mörkin voru:
Janus Guðlaugsson 6
Ólafur Danivalsson 6
Asgeir Arnbjörnsson 3
Andrés Kristjánsson 3
Viðar Halldórsson 3
ÞórirJónsson 1
Helgi Ragnarsson 1
Magnús Teitsson 1
Einkunnagjöfin: í einkunnagjöf
Morgunblaðsins hlutu FH-ingar alls 467
stig, eða 25,94 að meðaltali fyrir leik
Eftirtaldir leikmenn voru stigahæstir:
Janus Guðlaugss. 48(18), 2,66
Ólafur Danivalss. 42(17), 2,47
Gunnar Bjarnason 41(17). 2,41
Viðar Halldórss. 41(17). 2.27
Pálmi Jónsson 38(17), 2,23
ÞórirJónsson 33(15), 2,20
Fram
Lið Fram var það lið i 1 deildinni sem
olli mestum vonbrigðum á
keppnistímabilinu Framarar byrjuðu
keppnistímabilið á því að sigra í
Reykjavíkurmeistaramótinu, og virtust
þeir til alls líklegir í 1. deildar keppninni,
og nær allir spáðu þvi að liðið myndi
verða í toppbaráttunni. En annað kom á
daginn Framliðið lék nú mun slakari
knattspyrnu en það gerði i fyrrasumar, og
einkum og sér i lagi var vörn þess, sem
löngum hefur verið sterkasti hluti liðsins,
óörugg og gaf oft færi á sér. Munaði þar
örugglega miklu að Jón Pétursson gat
ekki leikið með vegna meiðsla, en bæði
var Jón mjög duglegur varnarleikmaður
og eins góður stjórnandi Framvarnarinnar
eftir að Marteinn Geirsson fór frá liðinu
Hefur fjarvera Jóns i sumar örugglega
verið stærra skarð fyrir skildi í Framliðinu
en flesta grunar
Það segir ef til vill mesta söguna um
frammistöðu varnar Framliðsins að liðið
fékk á sig fjögur mörk i eigi færri en
fjórum leikjum Af og til náði Framliðið
hins vegar góðum leikjum, og verður þar
efst i huga frammistaða þess i leik á móti
Val i mótslok, er það gerði jafntefli 3—3
i skemmtilegum leik
21 leikmaður reyndi sig í Framliðinu i
sumar, en aðeins tveir léku alla leiki
liðsins, þeir Sigurbergur Sigsteinsson og
Rafn Rafnsson
Mörkin: í mótinu skoruðu Framarar 24
mörk en fengu á sig 35. Mörk Fram í
mótinu skoruðu eftirtaldir leikmann:
Sumariiði Guðbjartsson 8
Kristinn Jörundsson 7
Eggert Steingrfmsson 3
PéturOrmslev 3
Isgurbergur Sigsteinsson 2
Rúnar Gíslason 1
Einkunnagjöfin: í einkunnagjöf
blaðamanna Morgunblaðsins hlutu
Framaar alls 431 stig, eða 23,94 stig að
meðaltali fyrir leik Eftirtaldir leikmenn
hlutu hæsta meðaleinkunn
Pétur Ormslev 29(12), 2.41
Ásgeir Eliasson 36(15), 2,40
Ámi Stefánsson
Gunnar Guðmundss.
Sigurbergur
Sigsteinsson
Ágúst Guðmundss.
KR
34(15). 2.26
38(17), 2.23
38(18), 2.11
27(13). 2.07
Á undanförnum árum hefur KR-ingum
oft tekizt að bjarga sér fyrir horn \
fallbaráttunni á siðustu stundu, en I
sumar kom að því að liðið hafði
vistaskipti Ætla má þó að vera KR-inga i
2. deildinni verði ekki löng, og er
vonandi að liðinu takist þar að byggja sig
upp á svipaðan hátt og t d Akurnesingar
og Vestmannaeyingar gerðu árin sem
þessi lið léku i 2. deild
í sumar má segja að óhamingju
KRinga hafi orðið flest að vopni Einkum
og sér í lagi komu meiðsli nokkurra
lykilmanna liðsins sér illa fyrir það
Þannig áttu KR-ingar við hið mesta
markvarðarvandræði að etja eftir að
Magnús Guðmundsson meiddist
snemma á leiktimabilinu. Þá varð
framlína liðsins mun bitminni eftir að
Hálfdán Örlygsson meiddist og var úr leik
og um tima átti Örn Óskarsson einnig við
meiðsli að stríða Örn gekk i raðir
KRinga s.l vor, en einhvern veginn var
það þannig að þessi raikli markaskorari úr
Vestmannaeyjum náði sé aldrei á strik
með hinu nýja félagi sinu, og var i allt
sumar aðeins skuggi af því sem hann var
með Eyjaliðinu
22 leikmenn léku fleiri eða færri leiki
með KR í sumar. þar af tveir leikmenn
alla leikina, þeir Sigurður Indriðason og
Stefán Örn Sigurðsson
Mörkin: í mótinu skoruðu KR-ingar 24
mörk, en fengu á sig 34 9 leikmenn
skoruðu mörkin og voru þeii eftirtaldir
Öm Óskarsson 6
Vilhelm Fredriksen 5
Börkur Ingvarsson 4
Hálfdán Örlygsson 2
Ottó Guðmundsson 2
Sverrir Herbertsson 2
Guðmundur Yngvason 1
Magnús Jónsson 1
Stefán Örn Sigurðsson 1
Einkunnagjöfin: KR-ingar hluti alls
412 stig i einkunnagjöf Morgunblaðsins
eða 22,80 stig að meðaltali fyrir leik
Voru eftirtaldir leikmenn með hæsta
meðaltal:
Börkur Ingvarss. 37(16), 2,31
Ottó Guðmundss. 39(17), 2,29
Stefán Sigurðss. 38(18), 2,11
Sig. Indriðason 37(18), 2,05
Haukur Ottesen 22(11), 2,00
ÖmÓskarsson 32(17), 1,88
Sá leikmaður sem hæsta meðaleinkunn
fékk og ekki lék 10 leiki var Hálfdán
Örlygsson en hann var með 20 stig úr 7
leikjum eða 2,85 að meðaltali.
Þór
Það fór eins og flestir áttu von á að
Akureyrarliðið Þór átti erfitt uppdráttar i
1 deildar keppninni i sumar Við öðru
var lika varla að búast Sú uppstokkun
sem gerð var á Akureyri fyrir tveimur
árur, er ÍBA-liðið var lagt niður og
leikmenn á Akureyri tóku að leika undir
merkjum Þórs og KA, hefur ekki enn
fullmótazt, og má raunar furðu gegna
hversu langt knattspyrnumenn Akureyrar
hafa náð Sumarið i sumar verður
Þórsurum örugglega dýrmæt reynsla og
verður fróðlegt að fylgjast með hvernig
liðinu tekst að nýta hana næsta sumar
23 leikmenn léku með Þórsliðinu i
sumar, en enginn leikmanna þess náði
þvf að leika alla leikina
Mörkin: Þór skoraði alls 21 mark í
mótinu i sumar, en fékk 48 á sig
Eftirtaldir leikmenn skrouðu fyrir liðið
Sigþór Ómarsson 8
Jón Lárusson 5
Ámi Gunnarsson 4
Aðalsteinn Sigurgeirsson 2
Sigurður Lárusson 2
Einkunnagjöfin: Þórsliðið hlaut alls
370 stig í einkunnagjöf Morgunblaðsins,
eða 20,55 að meðaltali fyrir leik Voru
eftirtaldir leikmenn með hæsta
meðaleinkunn
Sigþór Ómarsson 42(17), 2,47
Sigurður Láruss. 38(16), 2,37
Gunnar Austfjörð 25(11), 2,27
Ragnar Þorvaldss. 27(14), 1,92
Sævar Jónatanss 29(16), 1,81
Aðalsteinn
Sigurgeirsson 21(12), 1,75
KR HEFUR VARLA LANGA
VIÐDVÖL í 2. DEILD