Morgunblaðið - 30.08.1977, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. AGUST 1977
27
Green vann
í írlandi
Bandaríkjamaðurinn Hubert
Green sigraði i opna írska meist-
aramótinu í golfi sem lauk i Port-
marnock i Irlandi um helgina.
Lék Green á 283 höggum og hlaut
hann 8000 pund i verðlaun. Ann-
ar í keppninni varð landi hans
Ben Crenshaw sem lék á 284
höggum en þriðja sætinu deildu
þeir Greg Norman, Ástralíu,
Peter Dawson, Bandarikjunum,
og Jimmy Kinsella frá írlandi
sem allir léku á 285 höggum.
Sovétmenn hlutu flest verö-
laun á heimsleikum stúdenta
Austurríkismaðurinn Nicki
Lauda steig enn eitt mikilvægt
skref f átt að heimsmeistaratitlin-
um f kappakstri á sunnudaginn er
hann bar sigur úr býtum f Grand
Prix kappakstrinum f Zandvoort f
Hollandi. Eftir þennan sigur
hefur Lauda hlotið 63 stig f stiga-
keppninni, 21 stigi meira en
næsti maður, þannig að erfitt
verður að hnekkja veldi hans f ár.
Eftir keppnina sagði Lauda, að
hann teldi sig þó engan veginn
vera orðinn heimsmeistara enn
— það eru of mörg mót eftir til
þess, sagði hann — en bætti þvf
sfðan við að hann teldi sigurlfkur
sínar góðar, ef ekkert óvænt
kæmi fyrir. — En það kemur allt-
af margt óvænt fyrir f kappakstr-
inum, sagði svo Lauda eftir stund-
arkorn.
Það var auðséð þegar í undan-
keppninni sem fór fram á laugar-
daginn að baráttan í Zandvoort
yrði geysihörð og að keppinautar
Lauda myndu gera sitt til þess að
koma í veg fyrir að hann hreppti
sigur og þar með mikið forskot I
stigakeppninni. Beztum tíma í
æfingakeppninni náði Mario
Andretti frá Bandaríkjunum, en
Frakkinn Lafitte ók mjög vel og
náði öðrum bezta tímanum. 1
þriðja sæti varð svo núverandi
heimsmeistari, James Hunt frá
Bretlandi, og Lauda var f fjórða
sæti.
Þegar að keppninni á sunnu-
daginn kom tók Andretti þegar
forystuna og fór mikinn. James
Hunt fylgdi honum fast á eftir, en
Lauda dróst strax aftur úr og virt-
ist fara nokkuð varlega. Þegar á
fyrsta hring varð fyrsta óhappið í
keppninni, en þá missti Vestur-
Þjóðverjinn Jochen Mass stjórn á
bifreið sinni. Fór hún út af braut-
inni og hafnaði á girðingu við
hana. Slapp Mass við meiðsli, en
var úr leik. Annar frægur kappi
varð einnig úr leik í fyrsta hring,
John Watson frá Irlandi, en bif-
reið hans bilaði.
Eftir fjóra hringi var Hunt
kominn með forystuna, en þá bil-
aði einnig bifreið hans og hann
varð að hætta og um svipað leyti
fór Andretti að eiga f erfiðleikum
með bifreið sína. Varð hann að
stanza meðan reynt var að gera
við hana, komst af stað aftur, en
varð að hætta eftir 14 hringi. Þá
tók Frakkinn Jacques Lafitte for-
ystuna, en Lauda skauzt fljótlega
upp f annað sætið og fylgdi
Frakkanum sem skuggi. Á 20.
hring lét Lauda svo til skarar
skríða, og tók forystuna. Ök hann
stórkostlega vel og eftir að hann
hafði náð forystunni varð sigri
hans ekki ógnað. Undir lokin var
þó auðséð að Frakkinn gerði ör-
væntingarfullar tilraunir til þess
að sigra, og þótt hann þá aka
nokkuð óvarlega. En það var
sama hvað hann reyndi. Lauda
bætti alltaf við og kom f markið
sem öruggur sigurvegari á Ferr-
ari-bifreið sinni. Tími hans i
keppninni var 1:41.45,93 klst., en
Lafitte sem ók Ligier-bifreið fékk
leikur og blak og urðu Banda-
rfkjamenn mjög sigursælir f sund-
greinunum, jafnvel þótt flest af
bezta sundfólki þeirra væri ekki
meðal keppenda. 1 blaki karla
sigraði Búlgaria Tékkóslóvakíu í
úrslitaleik 3—1 og Sovétstúlkur
sigruðu í kvennaflokki. Kepptu
þær til úrslita við Kúbu og unnu
3—2. Þá sigruðu Bandaríkjamenn
í úrslitaleik sínum í körfuknatt-
leik karla við Sovétmenn 87—68
en í körfuknattleik kvenna sner-
ist dæmið við, Sovétríkin unnu
Bandaríkin með sömu stigatölu
87—68.
Eftir að leikunum lauk á laug-
ardaginn lýstu talsmenn þeirra
yfir mikilli ánægju með fram-
kvæmd mótsins, en töldu líklegt
að þetta yrði í síðasta sinn sem
heimsleikar stúdenta yrðu haldn-
ir með þessu sniði. Sögðu þeir að
mótið væri að verða of viðamikið
og stefndi um of í þá átt að verða
eins og Ölympíuleikar. Þá kom
fram að næsta heimsmót verður
haldið í Mexikó 1979, og líklegt er
að mótið 1981 fari fram í Kanada.
timann 1:41.47,82 klst og Jody
Scheckter frá Suður-Afríku sem
varð þriðji á Wolf-bifreið kom þar
skammt á eftir. Meðalhraði Lauda
f keppninni var 118,181 mílur á
klukkustund, og er þar um að
ræða nýtt brautarmet f Zand-
voort.
Rösklega 70 þúsund manns
fylgdust með keppninni á; sunnu-
daginn og var Lauda gffurlega
fagnað eftir sigurinn. Þetta var
þriðji sigur Lauda í Grand Prix
keppni í ár og i öllum mótunum
hefur hann sýnt mikið öryggi og
keppnishörku, og að auki verið
heppinn, þar sem bifreið hans
hefur sjaldan bilað.
Fjórði i keppninni á sunnudag-
inn varð Brasiliumaðurinn Emer-
son Fittipaldi, fyrrverandi heims-
meistari, fimmti varð Patrick
Tambay, Frakklandi, sjötti Carlos
Reutemann, Argentínu, sjöundi
Hans Joachim, V-Þýzkaandi, og
áttundi varð Hans Binder frá
Austurríki.
Sem fyrr segir hefur L:uda nú
náð góðri forystu í stigakeppninni
og má mikið vera ef heimsmeist-
aratitillinn verður ekki hans í ár.
Fjögur mót eru nú eftir, og þarf
Lauda ekki að fá mörg stig i þeim
til þess að tryggja sér titilinn.
Hann hefur nú hlotið 63 stig, Jody
Scheckter er í öðru sæti með 42
stig en síðan koma Carlos Reute-
menn, Argentfnu, með 35 stig,
Mario Andretti, Bandarikjunum,
með 32 stig, James Hunt, Bret-
landi, með 22 stig og Gunnar Nils-
son frá Sviþjóð með 20 stig.
Nik) Lauda býr sig undir keppnina og fer I nýjan búning sem kappaksturs-
menn klæðast nú yfirleitt. Búningur þessi er eldtraustur og þykir af þvi mikiS
öryggi.
SOVÉTMENN hlutu mestan verð-
launafeng á heimsleikum stú-
denta sem lauk f Sofia um helg-
ina. Mót þetta stóð I 12 daga og
var svo viðamikið að þvf verður
helzt jafnað við Olympfuleika.
Keppendur á mótinu voru um
5.000 talsins frá 34 löndum, og er
þetta lang mesta þátttaka f slfku
heimsmóti frá upphafi, en fyrsta
mótið af þessu tagi fór fram árið
1959.
Sovétmenn hlutu alls 30 gull-
verðlaun, 37 silfurverðlaun og 30
bronsverðlaun á mótinu. Banda-
ríkjamenn urðu í öðru sæti með
19 gullverðlaun 10 silfurverðlaun
og 30 bronsverðlaun, en síðan
kom Búlgarfa með 15 gull, 10 silf-
ur og 12 brons og Rúmenía með 11
gull, 10 silfur og 14 brons. Mikla
athygli vakti að Austur-
Þjóðverjar, sem jafnan láta mikið
til sfn taka á slíkum mótum,
gengu með mjög skarðan hlut frá
borði, hlutu aðeins þrenn silfur-
verðlaun og þrenn bronsverðlaun.
Það afrek á þessu heimsmóti
sem mesta athygli vakti var tvf-
mælalaust heimsmet Kúbumanns-
ins Alberto Juantorena í 800
metra hlaupi, en það hljóp hann á
1:43,4 mín. — nýtt heimsmet.
Einnig vakti mikla athygli heims-
metið sem landi Juantorena,
Alejandro Casanas, setti f 110
metra grindahlaupi, sem hann
hljóp á 13.21 sek.
Siðustu keppnisgreinar heims-
leikanna voru sund, körfuknatt-
Frjálsfþróttaheimsmet Kúbumanna voru helztu afrek stúdentaleik-
anna. Efri myndin sýnir Alberto Juantorena koma f mark eftir að hafa
sett heimsmet f 800 metra hlaupi, en á neðri myndinni má sjá landa
hans, Alejandro Casanas, hafa tekið forystuna f 110 metra grinda-
hlaupi, þar sem hann setti heimsmet.
Rmm glæsíleg sundheimsmet er
Bandaríkin sigruðu A-Þýzkaland
NOKKUR ný sundheimsmet
litu dagsins Ijós f sundlands-
keppni Austur-Þjóðverja og
Bandarfkjamanna sem fram
fór f Berlfn um helgina. Lauk
keppninni með sigri Banda-
rfkjamanna sem hlutu 176 stig
gegn 168 stigum Austur-
Þjóðverja. Voru það karlmenn-
irnir sem tryggðu Bandarfkjun-
um sigur, en þeir hlutu 114 stig
gegn 66 stigum Þjóðverja. 1
kvennakeppninni höfðu Þjóð-
verjarnir hins vegar yfirburði,
hlutu 102 stig gegn 62 stigum
Bandarfkjamanna.
Það heimsmet sem vakti
mesta athygli var frækilegt af-
rek 15 ára austur-þýzkrar
stúlku, Christiane Knacke, i
100 metra flugsundi sem hún
synti á 59,78 sek. Varð Knacke
fyrst kvenna til þess að synda
þessa vegalengd á betri tíma en
1 minútu, en gamla heimsmetið
var 1:00,13 min. og átti það
sunddrottningin Kornelia End-
er.
I 100 metra flugsundi karla
var einnig sett heimsmet. Þar
var að verki Bandarikjamaður-
inn Joe Bottom sem synti á
54,18 sek. og tók hann metið af
hinum fræga kappa Mark Spitz,
sem synt hafði á 54,27 sek. á
Ólympfuleikunum f Múnchen
1972. Bottom átti einnig hlut-
deild f öðru heimsmeti i keppni
þessari — hann var í sveit
Bandarikjanna sem synti 4x100
metra skriðsund á 3:21,11 min.
Gamla heimsmetið í þeirri
grein átti bandarísk sveit og
var það 3:24,85, sett í Kaliforn-
íu árið 1975.
Brian Goodell setti svo nýtt
heimsmet í 400 metra skrið-
sundi. Synti hann á 3:51,56
mín., en gamla metið átti hann
sjálfur. Var það 3:51,93 min.
sett á Ólympiuleikunum f
Montreal í fyrra.
Fimmta heimsmetið setti svo
þýzka stúlkan Ulrike Tauber
sem synti 200 metra fjórsund á
2:15,85 mfn. og bætti eigið
heimsmet um 1/10 úr sekúndu.
Gífurlegur áhugi var á
keppninni f Berlín og fylgdust
um 7000 áhorfendur með
henni. Þetta var þriðja sund-
landskeppni Austur-Þjóðverja
og Bandaríkjamanna. Fyrst
mættust liðin árið 1971 í Leip-
zig og siðan 1974 i Concord i
Kaliforníu og unnu Bandaríkja-
menn einnig sigur þá, en með
meiri mun en að þessu sinni.
Lauda sigraði í Zandvoort og
heimsmeistaratitillinn blasir við