Morgunblaðið - 30.08.1977, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. AGUST 1977
29
Iðnþingi lokið á Akureyri:
Sigurður Kristinsson endur-
kjörinn formaður Lands-
sambands iðnaðarmanna
IÐNÞINGI fslendinga — hinu 37.
lauk á laugardag á Akureyri. Sfð-
asta mál á dagskrá þess var að
vanda stjórnarkjör, og var forseti
Landssambandsins endurkjörinn
Sigurður Kristinsson málara-
meistari en varaforseti Þórður
Gröndal verkfræðingur.
Aðrir f framkvæmdastjórn sam-
bandsins til næstu tveggja ára eru
tilnefndir af aðildarfélögum sam-
bandsins, en þeir eru Gunnar S.
Björnsson húsasmiðameistari,
Haraldur Sumarliðason húsa-
smíðameistari, Sveinn A. Sæ-
mundsson blikksmiðameistari,
Gunnar Guðmundsson rafverk-
taki, Karl Maack húsasmíðameist-
ari, Arnfríður ísaksdóttir hár-
greiðslumeistari og Árni Guð-
mundsson vélvirkjameistari. Þá
var einnig kosin 20 manna sam-
bandsstjórn til tveggja ára.
Þingið samþykkti að gera Ing-
ólf Finnbogason byggingameist-
ara og fyrrverandi forseta sam-
bandsins, að heiðursfélaga og
veita Ola Frost, fyrrverandi for-
manni Norges Hándverkerfor-
bund, æðsta heiðursmerki Lands,-
sambands iðnaðarmanna.
Þingið gerði ályktanir um
fræðslumál, iðnlöggjöfina, verð-
tryggingu fjárskuldbindinga og
eflingu skipaiðnaðarins i landinu.
Frá sýningu a batavélunum í Reykjavfkurhöfn. Ljósm. Ól.K.M.
Yfir 1000 manns
sáu bátavélasýning-
una í Reykiavíkurhöfn
FYRIRTÆKIÐ P. Stefánsson hélt
sfðastliðinn sunnudag sýnigu á
dieselbátavélum í Re.vkjavíkur-
höfn. Þá var einnig sýndur
reynslubátur frá fyrirtækinu
Mótun í Hafnarfirði með diesel-
bátavél frá Leyland Thornycroft
fyrirtækinu brezka, en þær báta-
vélar flytur P.Stefánsson inn.
Að þvi er Valgarður Bjarnason
sölustjóri hjá P. Stefánsson áætl-
ar komu yfir þúsund manns til að
sjá bátavélasýninguna. Fyrirtæk-
ið hóf að flytja þessar bátavélar
inn um s.l. áramót og hefur selt
um 20 vélar i trillubáta og rækju-
báta.
Sagði Valgarður að þeir hjá P.
Stefánsson teldu íslenzka trillu-
markaðinn það sérstakan að til-
valið hefði verið að halda sýnigu
sem þessa. Sagði hann að ætlunin
væri að útvega kaupendum Ley-
land dieselbátavéla skrúfubúnað
og annað tilheyrandi með vélun-
um. Leylandbátavélarnar eru eft-
ir því sem Valgarður segir þýð-
gengar, hljóðlátar og kraftmiklar.
Þær eru framleiddar í stærðunum
29 til 164 hestöfl.
Frá þvi að fyrirtækið P.
Stefánsson var stofnað árið 1972
hefur það eingöngu flutt inn
fólksbíla og jeppa, en um s.l. ára-
mót var stofnuð sérdeild innan
fyrirtækisins frá „Leyland special
product" sem sér um sölu á
þungavinnuvélum grjótmulnings-
tækjum lyfturum og umræddum
bátavélum.
Fjórðungsþing Vestfírðinga;
Harmað hve litlu fé
skal verja til vegamála
ÞINGI Fjórðungssambands Vest-
firðinga lauk á sunnudag, en þá
hafði það staðið i tvo daga.
Jóhann T. Bjarnason, fram-
kvWmdastjóri Fjórðungssam-
bandsins, tjáði Morgunblaðinu að
aðalmálaflokkar á dagskrá þings-
ins hefðu verið heilhrigðismál og
fræðslumál. Matthfas Bjarnason
heilbrigðismálaráðherra flutti
framsögu um heilbrigðismál en
framsögumenn um fræðslumál
voru Vilhjálmur Hjálmarsson
menntamálaráðherra og Hörður
Lárusson, dcildarstjóri í mennta-
málaráðuneytinu.
A þinginu voru gerðar ályktan-
ir um áðurnefnda málaflokka.
Þá voru einnig umræður um
strandferðaþjónustu á Vestfjörð-
um, skipaútgerð rikisins og vænt-
anlega endurskipulagningu henn-
ar. Gerðar voru ályktanir um sam-
göngumál, þá fyrst og fremst
vegamál, og í þeirri ályktun var
harmað hve litlu fé ætti að verja
til vegamála á Vestfjörðum sam-
kvæmt þeirri þriggja ára áætlun,
sem samþykkt var á síðasta al-
þingi.
Þannig var umhorfs f Elliðaárvogi eftir að veðrinu slotaði.
GeysUegt óveður gekk
yf ir landið á laugardag
1 ÓVEÐRINU sem gekk yf-
ir landið á laugardag
munu hafa orðið ýmsar
skemmdir á húsum og
byggingum, bátar lentu í
vandræðum, vegir spilltust
vegna skriðufalla og mikl-
ar tafir urðu á öllu flugi.
Á ísafirði og Hnifsdal munu
hvað mestar skemmdir hafa orðið
vegna skriðufalla. Atta skriður
féllu á Hnífsdalsveg milli Isa-
fjarðar og Hnifsdals. Féll ein
þeirra á yzta húsið við götuna og
skemmdi það töluvert mikið.
Þetta var gamalt timburhús sem
einhleypur maður bjó i, en hann
var fjarverandi þegar skriðan
féll. Þá féllu mjög margar skriður
í fjöllum i kringum ísafjörð án
þess þó að valda teljandi skemmd-
um. Þá urðu töluverðar skemmdir
á húsum og innbúi vegna vatns-
flaums sem rann inn í nokkur hús
á ísafirði.
Miklar tafír urðu á öllu flugi,
margar flugvélar uðru frá að
hverfa bæði í Reykjavik og Kefla-
vik og á Akureyri lentu þrjár þot-
ur og ein Fokkervél vegna veður-
hamsins.
Hjá Slysavarnafélaginu fékk
Mbl. þær upplýsingar að þrir bát-
ar hefðu lent í vandræðum. Ut af
Kópanesi lenti Sleipnir frá
Patreksfirði í vandræðum með
bilaða vél en bátar komu honum
fljótlega til aðstoðar. Út af mynni
Hvalfjarðar lenti Mummi SK 6 i
véiarbilun, viidi Mummi fá annan
smábát sér til aðstoðar en sá lenti
einnig i vandræðum og fann
Mumma ekki. Það var síðan
Arnþór GK sem loks fann
Mumma út af Þormóðsskeri en
hann hafði þá rekið töluvert.
Út af Garðsskaga var Skúmur
með bilaða vél. Jón Gunnlaugsson
var sendur honum til aðstoðar og
fann hann eftir töluverða leit og
dróg hann til hafnar í Sandgerði.
Þá lentu smábátaeigendur i
Reykjavík i miklum vandræðum
með báta sína i Elliðarvogi er þeir
slitnuðu upp hver af öðrum. Einn
bátur gjöreyðilagðist en aðrir átta
urðu fyrir ýmiskonar skemmdum.
Þetta tjón mun nema milljónum
króna. Þess má geta að einn
þeirra manna sem unnu að björg-
un þessara báta slasaðist lítillega
á fæti.
Hjá vegagerðinni fengust þær
upplýsingar að frekar litlar
skemmdir hefðu verið á vegum,
vegna óveðursins sem gekk yfir
landið á laugardag, þó hefðu
skriður fallið á nokkrum stööum á
Vestfjörðum. Vegirnir í Patreks-
firði og Arnarfirði hefðu lokast
um stundarsakir. Þá hefði vegur-
inn milli Hnífsdals og isafjarðar
lokast en fljótlega tekist að opna
hann aftur. Aðaltjónið á vegum
þessum samfara eru öll sú vinna
sem fer í að hreinsa vegina alveg
aftur, en það hefðu aðeins verið
gerðar bráðabirðahreinsanir á
þeim um helgina.
Húsið við Hnífsdalsveg sem varð fyrir mestum skemmdum þar vestra.
(Ljósmynd MBL: Olafur Þórðar.)