Morgunblaðið - 30.08.1977, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. AGÚST 1977
35
— Soares
Framhald af bls. 1
Þing landsins er nú í sumar-
leyfi og kemur ekki aftur sam-
an fyrr en í október.
Soares sagði að kommúnist-
ar hefðu lýst yfir stríði á hend-
ur minnihlutastjórninni eftir
að þingið samþykkti í sumar
ný landbúnaðarlög, sem
kommúnistar segja að sé eftir-
gjöf til kapitalisma. Stjórn-
málafréttaritarar f Portúgal
hafa sagt að Soares eigi á
hættu að vantrauststillaga á
stjórn hans verði samþykkt er
þing kemur saman á ný ef hon-
um takist ekki að komast að
samkomulagi við kommúnista.
— Ólöf vann
Framhald af bls. 2
heimsmeistarinn Karpov verð-
ur meðal þátttakenda.
Við þessa breytingu mun þvi
Guðmundur Sigurjónsson
keppa á 1. borði, Ingi R. Jó-
hannsson á öðru, Helgi Ölafs-
son á þriðja borði, Ingvar As-
mundsson á 4. borði, Ólöf á
kvennaborðinu og Jónas P. Er-
Iingsson á borði unglinga,
enda verður þá Jón L. Arnason
að keppa á heimsmeistaramóti
unglinga og Margeir Pétursson
aðstoðarmaður hans þar.
— Aðalfundur
Framhald af bls. 2
skuli við þeim mikla vanda, sem
blasir við eftir verðhækkunina 1.
spetember n.k. — Enda þótt við
sjáum ekki langt fram í tímann er
það óraunsæi að loka augunum
fyrir þeirri hættu að ennþá erfið-
ara verði á næsta ári að láta enda
ná saman, sagði Jón.
Jón sagði nauðsynlegt að gera
allar framkvæmanlegar ráðstaf-
anir til að auka sölu á búvörum
innanlands og leitast þyrfti við að
fá sem allra bezt verð á erlendum
mörkuðum. Bændur þyrftu einn-
ig á íhuga að halda framleiðslu-
kostnaði i lágmarki án þess þó að
skerða kaup sitt. — Ég tel það
mjög áríðandi fyrir bændastétt-
ina að vera samtaka um að leysa
þann vanda, sem nú er við að
glíma og við vonum að sé aðeins
tímabundinn. Ef hún gerir það
sjálf, er það bezta tryggingin fyrir
því að tekið verði tillit til hennar
hagsmuna og sjónarmiða, sagði
Jón.
Halldór E. Sigurðsson ávarpaði
fundinn og ræddi m.a. itarlega
um fjárhags- og lánamál landbún-
aðarins. Erfið greiðslustaða ríkis-
sjóðs hefði skapað vissa erfiðleika
á greiðslum á framlögum ríkisins,
en með ýmsum hætti hefði verið
reynt að rétta’við hlut landbúnað-
arins í lánamálum. A sama tíma
og hlutfallsleg verðbreyting hefði
verið 25,5% hefði raungildi
rekstrarlána til landbúnaðarins
hækkað um fimmtung. Land-
búnaðarráðuneytið hefði, sagði
Halldór, hafið viðræður við stjórn
Seðlabankans um afurðalán á
hausti komandi og væri í þeim af
hálfu ráðuneytisins lögð á það
megináherzla að siáturleyfishöf-
um verði gert kleift að greiða
bændum að lokinni sláturtíð 90%
af haustgrundvallarverði. Halldór
sagði að bændum væri tíðrætt um
versnandi lánakjör, en þeir yrðu
þó að vera þess minnugir að
bændur byggju nú við hagkvæm-
ustu vaxtakjör miðað við aðra at-
vinnuvegi.
Fjölmörg önnur mál bar á góma
í ávarpi ráðherrans og sagði hann
m.a. að framleiðslu- og markaðs-
mál væru nú og í næstu framtíð
stærstu mál bændastéttarinnar að
fást við. Vmsar blikur væru á lofti
í þeim efnum og tæknin stuðlaði
að aukinni framleiðslu og því
þyrfti að leita nýrra ráða í sölu-
málum.
— Þing
Framhald af bls. 2
ráðuneytisstjóri i norska um-
hverfismálaráðuneytinu. Þriðja
mál á dagskrá i gær áður en hald-
ið var i kvöldverðarboð borgar-
stjórnar að Höfða, var fjölmiðlun
með gervihnöttum. Framsögu-
maður var Klas Olofsson, for-
stöðumaður norrænu menningar-
málaskrifstofunnar.
Þingið hófst að nýju klukkan
9.30 i morgun og var fyrsta mál á
dagskrá, framtíðarhorfur í nor-
rænni samvinnu. Framsögumað-
ur þar var Per Olof Sumdman,
sænski rithöfundurinn og rikis-
þingmaður.
Annað mál á dagskrá í dag áður
en haldið verður til Þingvalla, þar
sem snæddur verður hádegisverð-
ur í boði alþingis, er framtíðar-
störf norrænu ráðherranefndar-
innar. Framsögumaður þar er Olli
Bergman, framkvæmdastjóri
skrifstofu norrænu ráðherra-
nefndarinnar í Osló. Þinginu lýk-
ur í kvöld með kvöldverðarboði
samstarfsráðherra, Geirs Hall-
grimssonar forsætisráðherra.
— Umferðar-
óhöpp
Framhald af bls. 2
eyrar niður snarbratta brekku
og ytöðvaðist á skátaheimilinu
Hvammi, sem stendur við
brekkurótina. Jeppinn
skemmdist mikið en húsið lítil-
lega.
Kl. tæplega 8 i kvöld lenti
fólksbíll ofan í ný'grafinn hita-
veituskurð í Norðurbyggð og
fór á hvolf. Ein kona var i
bílnum, og mun ekki hafa
meiðzt neitt teljandi.
—Sv.P.
— Benny
Goodman
Framhald af bls. 13
hafi einhvers staöar heyrt, að hann
hafi með þvi að taka blakka menn
i hljómsveit sina lyft jazzinum yfir
hindrun, sem að öðrum kosti hefði
ef til vill orðið honum um megn.
„Já. Ég hef heyrt þetta. Og
vissulega hjálpaði þetta mikið. En
eins og ég sagði: Þetta var mér
bara eðlilegasti hluturinn að gera.
Margir hafa spurt mig, hvort
þessi blöndun á hljómsveitinni
hafi ekki valdið okkur erfiðleik-
um. Þetta olli mér engum
vandræðum. Við leituðum ekki
uppi vandræði. Við sögðum bara:
„Þetta erum við“ og ef ólk var
eitthvað að fitja upp á trýnið út af
litarhættinum, þá fórum við ekki.
Við höföum nóg að gera. Spiluð-
um á beztu stöðunum svo það var
engin ástæöa til að leita uppi fólk,
sem heyrði ekki tónlistina fyrir
litarhættinum."
Og Benny Goodman spilar enn?
„Já. Ég geri töluvert af þvi að
spila ennþá. Ég lifi á tónlistinni
meðan ég get dregið andann!
Ég held tónleika og ég spila inn
á plötur. Það er ein plata að koma
út á næstunni og nú er ég að
undirbúa tónleika i Camegie Hall.
Þaö eiga að vera afmælistónleikar
tónleikanna miklu i Camegie Hail
1938. Reyndar fengum við ekki
höllina sama daginn, sem er 16.
janúar, en við fengum hana dag-
inn eftir; þann sautjánda. Við ætl-
um svona að koma saman og gera
sina ögnina af hverju. Count
Basie, ég og ... Nei annars. Mér er
hoilast að vera ekki að telja upp
nein nöfn. Þá verður þetta allt svo
langt siðan.“
Hvað með nœstu Listahdtíð d
Islandi?
„Ég vona að ég geti komið þvi
viö aö koma hingað og spila á
næstu Listahátið. Ég meina það.
fsland er gott land. Það er komið
eitthvað af þessu landi i mig. Og
ég er staðráðinn i að halda þvi
við.“
— 0 —
Hann litur inn i verzlunina, þeg-
ar við göngum þar framhjá aftur.
Sýnir mér það, sem þar er á boð-
stólunum og lýsir flikinni, sem
hann hefur keypt. „Flottar
græjur“, segir hann. Og þegar af-
greiðslukonan hefur fullvissað
hann um, aö hann geti komið og
skipt, ef hann vilji, þá göngum við
að lyftunni og kveöjumst. „Well,
Johnsy. Sé þig á næstu Lista-
hátið.“ Svo lokast lyftudymar i
milli okkar. fi■
Nýjung:
Sovéska verslunar- og iönaðarráðið opnar upplýsinga-
deild á sýningunni ,,Heimilið 77“ í Reykjavík
26. ágúst - 11. september.
Upplýsingadeildin
- hjálpar fyrirtækjum og hvers konar aðilum sem hafa
áhuga á að komast í samband við sovésk útflutnings-
fyrirtæki.
- kynnir nýjar staðreyndir um þróun sovéskra
efnahagsmála og útflutningsverslunar, starfsemi
útflutningsfyrirtækjanna og framleiðsluvörur þeirra.
Veríö velkomin
fUpplýsingadeild
Sovéska verslunar- og
iðnaðarráðsins.
það er leikur
að læra...
VÉLRITUN Á abc 2002 SKÓLARITVÉLINA
SKRIFSTOFUVELAR H.F.
% + Hverfisgötu 33
Simi 20560