Morgunblaðið - 30.08.1977, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30, AGÚST 1977
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
r\y if
Franska opinbera
málið í Quebeck
umgengist meira og minna á
starfsferli mínum á Keflavíkur-
flugvelli, hafa reynst mér meö
ágætum vel og ég hefi margsinnis
orðið þess var, hver hugur þeirra
er til Islendinga og íslenzku þjóð-
arinnar, enda hefur varnarliðið í
heild á svo margvislegan hátt sýnt
hug sinn til fólksins sem byggir
þetta land með alls konar hjálp
við sjúka og þá sem í nauðir hafa
ratað.
Halldór Fjalldal,
Túngötu 12,
Keflavík.
0 Hraðbréf til
hraðbátamanna
— Það var áberandi í
fréttaflutningi ríkisfjölmiðlanna,
sérstaklega sjónvarpsins, af
óveðrinu fyrir helgina hversu
mikill gaumur var gefinn
skemmdum á hraðbátum í Elliða-
árvoginum. Öll tilhneiging i þess-
um fréttaflutningi var í þá veru
að allri ábyrgð á skemmdunum
var velt yfir á Reykjavíkurborg,
og stjórnendum hennar kennt um
að vera ekki búnir að koma upp
aðstöðu fyrir harðbáta i Reykja-
vík. Ekki vil ég leggja mikið út af
fréttaflutningnum sem slíkum,
sem reyndar getur alls ekki talist
hlutlaus, en hvernig er það eigin-
lega, halda menn að borgarstjór-
inn sé með peninga i kistlim und-
ir rúminu sinu? Það er eins og
menn ímyndi sér að hægt sé :ð
reisa hér hafnir og sundbaðstaði á
færibandi.
Og hvernig er það með þessa
menn, sjónvarpsmenn, sem eiga
þessa hraðbáta? Vantar þá alla
siðferðilega skyldu gagnvart bát-
um þessum? Vaka þeir ekki yfir
hraðbátum sinum i slæmum veðr-
um til að bjarga þeim frá
skemmdum? Þessir menn þekkja
lítið til sjósóknar íslenzku þjóðar-
innar ef það eru þeim nýjar frétt-
ir að menn vöktu og vaka enn yfir
bátum sinum, smáum og stórum, í
höfnum og hafnleysum landsins,
þegar veðrátta var likleg til að
valda á þeim tjóni. Ég held að
hraðbátamenn, og sjónvarps-
menn, ættu að spyrja svo sem
nokkra gamla Eyrbekkinga og
Stokkseyringa um þessi mál, en
þá er ég hræddur um að það sýn-
ist lítilræði sem átti sér stað við
sundin blá.
Það má vera að það sé aðstöðu-
leysi fyrir hraðbáta hér í Reykja-
vlk. En hvað hefur félag hrað-
bátaeigenda (ef það er til) lagt af
mörkum til að það geti talið sig
eiga einhverja hönk upp i bakið á
borginni? Kröfupólitikin á hend-
um öðrum er orðin svo óstjórnleg,
að skattborgarinn ,er hættur að
þola það.
Gamall sjómaður
% Grjótaþorps-
búar skrifa:
Það er gleðiefni að það á að
varðveita gömlu húsin í Grjóta-
þorpi, — en steinhússkriflið efst í
Fischerssundi ( með kolryðgað
þak og spítur fyrir gluggum) þarf
að jafna við jörðu. Það er alltof
lengi búið að „tróna“ þarna til
skammar, svo að segja í hjarta
borgarinnar. Eða hefur það eitt-
hvert menningarsögulegt gildi!?
Hvað segir formaður Umhverf-
ismálaráðs og Fegrunarfélagið
(svoþkallaða) umþað?
Þessir hringdu . . .
0 Enn um
kartöflurnar
Forsvarsmaður hjá Græn-
metisverzlun landbúnaðarins
hringdi og sagðist vilja leiðrétta
hugsanlegan misskilning sem
kynni að hljótast af skrifum um
kartöfluverð hér í dálknum s.l.
föstudag. Sagði starfsmaður
Grænmetisverzlunarinnar að
verðið á kílóinu af kartöflum í 5
kg pakkningu væri frá Grænmet-
isverzluninni krónur 143.60.
Sagði hann þar inni vera rýnrun,
pökkun, vinnu og útkeyrslu, en
sama kiló kaúpir Grænmetisverzl-
unin á um 120 krónur frá
kartöflubóndanum. Sagði starfs-
maðurinn þá mismuninn á þeirra álagningu verzlunarinnar og
söluverðu (143.60) og útsöluverði kæmi Grænmetisverzluninni ekk-
úr búö (um 163 krónur) vera ert við.
A alþjóðlega skákmótinu í Bala-
sikhe i Sovétríkjunum, fyrr á
þessu ári, kom þessi staða upp í
skák þeirra Lane, Tékkóslóvakiu,
sem hafði hvítt og átti leik gegn
landa sinum Nickar.
42. Dxa6+! (42. bxc5 — Bc8, skap-
ar enga hættu) — Bb6, 43. c4 —
Df6 (Eftir 43 .. dxc4, 44. Hxe6!
— Hxe6, 45. d5+! vinnur hvítur)
44. c5 — Dxd4 + , 45. Ka2 — Dxb4,
46. Hxe6 — Hxe6, 47. Hxe6 —
Kxc5, 48. Ba3+ og svartur gafst
upp. Sigurvegari á mótinu varð
A-Þjóðverjinn Knaak.
HOGNI HREKKVISI
■ 1 DAG ‘
Honum verður alltaf á að tárfella þegar ný
fiskbúð er opnuð!
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Quebeckborg 27. ágúst.
Reuter — AP.
AÐSKILNAÐARSTJÖRN Rene
Levesque í Quebeck vann í dag
verulegan sigur, er þingið í Que-
beck samþykkti eftir 3 vikna
stormasamar umræður að franska
skyldi hér eftir verða hið opin-
bera tungumál fylkisins. Var
frumvarpið samþykkt með 54 at-
kvæðum gegn 34. Af hálfu að-
skilnaðarsinna var litið á þetta
frumvarp sem hornstein i lang-
tímaáætlun flokksins um að binda
enda á yfirráð enskumælandi
Kanadamanna yfir 6 milijón
frönskumælandi íbúum Quebeck.
Nýju lögin kveða svo á um, að
franska skuli verða hið opinbera
mál i skólum, við dómstóla og
opinberar stofnanir i Quebeck.
Meira
ljósmagn
Betrí birta
O S R A M -L
40W/25
AthugiS kosti OSRAM flúrptpunnar með
lit 25. Litur 25, Universal-White, hetur
víðara litarsvið, betri litarendurgjöf, og
hlýlegri birtu. Þrátt fyrir sama verð og
á venjulegum flúrpípum, nýtist OSRAM
Universal-White með lit 25 betur. Aðeins
OSRAM framleiðir Universal-White
með lit 25.
OSRAM gefur betri birtu.
OSRAM nýtist betur.
:053SH
OSRAM
vegna gæðanna
Cliavnt’
Glæsilegu hertogahúsgögnin
Nútíma tækni — antik
Á hertogatímabilinu voru engin stereotæki til, og
því þurftu gömlu hertogarnir ekki að hafa áhyggjur
hvar þeir ættu að geyma stereotækin sín, en í dag er
þetta höfuðverkur margra Þessir skápar eru góð
lausn, þeir sameina nútíðina og fortíðina á hagan-
legan hátt
Hertogalínan leysir vandann.
Við erum í deild númer 4 _
mnuyiDUNA
Síðumula 23 - Sími 84200