Morgunblaðið - 30.08.1977, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 1977
Athyglis-
verðar
upplýsing-
ar í nýrri
bók dansks
sagn-
fræðings
Friðrik og Margrft
Bandaríkjamenn
vildu kaupa Grænland
Kaupmannahörn, 29. á«. — Reulor.
DANSKUR sagnfræðingur,
Tage Kaarsted að nafni, er að
senda frá sér bðk um samskipti
sín við hirðina og almennt um
stjórnmál á tímabilinu 1929 —
1953. Er birt úr ýmsum áður
óþekktum leyniskjölum. Hann
segir meðal annars að Banda-
ríkjamenn hafi viljað kaupa
Grænland árið E946. Segir
Kaarsted að James F. Byrnes,
þáverandi utanrfkisráðherra
Bandaríkjanna, hafi rætt þetta
við utanrfkisráðherra I)an-
merkur, Rasmundsen, f New
York árið 1946, þegar sá sfðar-
nefndi kom þangað á þing Sam-
einuðu þjóðanna.
Kaarsted segir að Byrnes hafi
sagt Rasmundsen að Grænland
væri ekkert annað en stór ís-
klumpur, en það vildi svo til að
lega þessa klumps hefði hern-
aðarlega þýðingu fyrir Banda-
ríkin og gæti aldrei orðið Dan-
mörku nema byrði. Verð var
ekki rætt, og danska stjórnin
íhugaði aldrei í fullri alvöru að
selja, að sögn höfundar, sem
telur að Bandaríkjamönnum
hafi hins vegar verið full al-
vara.
Þá skýrir Kaarsted frá því
sem reyndar hefur áður verið á
vörum manna í Danmörku að
Aksel Larsen, foringi kommún-
Aksel Larsen
istaflokksins, hafi gefið CIA
upplýsingar um starfssemi
flokksins og stefnu árið 1958 til
að ná sér niðri á þeim forystu-
mönnum innan flokksins sem
ásökuðu hann fyrir endurskoð-
unarstefnu og vfsuðu honum á
braut, en Larsen hafði mótmælt
árás Sovétmanna inn á Ung-
verjaland tveimur árum áður.
Það sem vekur svo mesta at-
hygli meðal þorra manna í Dan-
mörku er sú upplýsing Kaar-
sted að Friðrik konungur hafi
verið hikandi að samþykkja þá
breytingu sem gerð var á
stjórnarskránni og miðaði að
þvi að Margrét dóttir hans tæki
við ríki eftir hann, en ekki
Knútur bróðir hans. Segir að
Friðrik hafi verið uggandi um
að dóttir hans fengi ekki risið
undir þeim skyldum sem þjóð-
höfðingjaembætti krefðist.
Hins vegar hafi þá verið uppi
mikil jafnréttisalda og margir
orðið til aðfjalla um málið við
konung og hafi loks tekizt að
telja honum hughvarf.
Hætt er við að sam-
eina Volvo og Saab
Tyrkland
á hausnum
New York, 29. ágúst. — Reuler.
VIKURITIÐ Time sagði frá þvi
um helgina að Tyrklandsstjórn
teldi landið vera á barmi gjald-
þrots. Time segir að Tyrkir hafi
ekki getað staðið í skiluni með
vexti og afborganir af erlendum
lánum og að ástandið væri orðið
svo slæmt að landinu væri fleytt
áfram á óhagstæðum skammtíma-
lánum, og væri sú lánsupphæð
orðin um þrír milljarðar dollara.
Flest þessara lána eru frá banda-
rískum bankastofnunum, svo og
svissneskum og vesturþýzkum. Þá
kemur fram að gjaldeyrisforði sé
aðeins um 700 milljónir dollara og
rýrni með hverjum degi.
Þá segir að erfitt muni verða
fyrir Tyrki að halda þessum láns-
búskap áfram öllu lengur, enda
lánstraustið að verða þorrið hvar-
vetna.
Uppstökkur
bílstjóri
Osaka, 29. ágúst.— Router
ARGUR og uppstökkur bflstjóri
þaut út úr hflnum sfnum f um-
ferðarþröng f Osaka, dró skamm-
byssu úr vasa sfnum og skaut til
bana óþolinmóðan ökumann
næstu bifreiðar fyrir aftan. Hafði
sá maður flautað stazlaust á
fremri bflinn. Um leið og hann
hleypti af æpti hann: „Hættu
bannsettu flautinu! Þú ert fffl!“
Og síðan sté hann upp f bflinn
sinn og ók á braut!
VEÐUR
víða um
heim
stig
Amsterdam 19 sól
Aþena 33 bjart
Barcelona 25 skýjað
Berlin 25 skýjaS
Brússel 24 sól
Chicago 33 skýjað
Frankfurt 23 skýjað
Genf 1 8 rigning
Helsinki 18 rigning
Lissabon 25 sól
London 22 sól
Los Angeles 28 bjart
Madrid 23 sól
Majorka 23 léttskýjað
Málaga 23 léttskýjað
Kaupmannah. 19 sól
Miami 29 skýjað
Montreal 31 bjart
Moskva 22 skýjað
New York 32 bjart
Osló 15 bjart
Paris 21 sól
Róm 32 skýjað
San Fransisco 28 bjart
Stokkhólmur 16 skýjað
Toronto 31 bjart
Vancouver 17
Danmörk: Ekki linnir síma-
sprengjumaðurinn látunum
DANIR gerast nú verulega ugg-
andi vegna sprengja þeirra sem
settar hafa verið f sfmaklefa og
lögreglan hefur enn ekki haft
upp á sökudólgnum. Að vfsu hafa
enn ekki orðið slys á fólki, en
mjóu hefur munað f nokkur
skipti. Frystu sprengjurnar voru
settar f sfmaklefa f Gladsaxe, og
alltaf á fimmtudögum. Sfðan
skildi sprengjumaðurinn eftir
bréf, þar sem hann lýsti þvf að nú
myndi hann breyta um háttu,
koma sprengjum fyrir hvar og
hvenær sem sér hentaði. Síðast
gerðist þetta í Uttersloe og á
myndinni sést sprengjan við sím-
tólið. Hún hafði verið falin undir
hillunni og það sem varð til að
vekja grun þes's sem ætlaði að
hringja var örmjór þráður, sem lá
frá sfmtólinu og undir hilluna,
þar sem allur útbúnaðurinn var.
Moskva:
Sérfræðingar kanna
Gautaborg, 29. ágúst.
Reuter—AP.
EKKERT verður úr sam-
einingu Volvo og Saab
fyrirtækjanna í Svfþjóð, að
því er aðaiforstjóri Volvos,
Per Gyilenhatnmar, til-
kynnti um helgina. Hann
sagði frá þessu á blaða-
mannafundi sem haldinn
var sérstaklega vegna
málsins. Hann sagði að
Volvo hefði borið fram ósk
um sameiningu við Saab-
fyrirtækið í maí sl. og
hefðu fundir verið haldnir
milli aðila og nú síðast um
helgina. Stjórn Saabverk-
smiðjanna, sem eru minni
en Volvos en framleiða
einnig flugvélar, hefur
verið treg til samruna við
Volvo. Volvo verksmiðj-
urnar eru eitt voldugasta
fyrirtæki Svíþjóðar og
myndi verða stjórnandi
aðilinn í samvinnu félag-
anna.
Gyllenhammar sagði að sala á
Volvobilum fyrstu sex mánuði
þessa árs hefði aukizt um 3%
miðað við sama tíma í fyrra, en
samt sem áður hefði halli aukizt
um 41% á sama tima. Volvo hefur
átt t nokkrum erfiðleikum vegna
sölutregðu á Volvo á þessu ári. Nú
hafa verið seldir um 134 þús. bíl-
ar á þessu ári og er aukning engin
frá fyrra ári.
Ef Volvo og Saabfyrirtækin
hefðu sameinazt hefði það orðið
langstærsta fyrirtæki landsins.
Hjá Volvo verksmiðjunum vinna
um sextiu þúsund starfsmenn og
velta fyrirtækisins var 15.7
milljarðar sænskra króna á sl. ári.
Saab hefur i vinnu um 40 þúsund
manns og heildarvelta var 9.6
milljarðar sænskra króna.
ummerkin í
Moskva, 29. ágúst —
Reuter.
BANDARlSKIR sérfræðingar
unnu að þvf í dag að kanna
skemmdir f bandarfska sendiráð-
inu f Moskvu, eftir brunann þar
um helgina. Starfsmenn sendi-
ráðsins tóku og þátt f verkinu
undir stjórn sérstakrar nefndar
sem kom fljúgandi til Moskvu frá
Washington um helgina.
í fréttum segir að ekki hafi
tekizt fyrr en snemma á sunnudag
að kæfa til fullnustu eld á milli
níundu og tiundu hæðar, og enn
sé mikill viðbúnaður við bygging-
una, færi svo að eldur gysi upp
enn á ný.
Þá segir enn fremur að ekki liti
út fyrir að nein skjöl eða merk
tæki hafi farið forgörðum í brun-
anum, þar sem allt það sem máli
skipti hafi verið geymt í rammleg-
um geymslum, sem ekki hafi
skemmzt í brunanum.
Búizt er við að sérfræðingarnir
verði við störf fram eftir vikunni
og ekki er ljóst hvort niðurstöður
sendiráðinu
þeirra verða gerðar opinberar.
Hins vegar er talið vist að elds-
upptökin hafi verið frá rafmagni
eins og skýrt var frá á laugardag-
inn.
5 andófs-
mönnum
var sleppt
Vestur-Berlín,
28. ágúst — Reuter.
AUSTUR-þýzka stjórnin hefur
leyst úr haldi fimm andófsmenn
og leyft þeim að flytjast búferl-
um til Vestur-Þýzkalands, að því
er þýzka mannréttindanefndin
greindi frá f dag. Einn þessara
fimin hefur setið f varöhaldi i
Framhald á bls. 30.