Morgunblaðið - 15.09.1977, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 15.09.1977, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15, SEPTEMBER 1977 Hvemig væri að gefa ganmað Eftir Jóhönnu Kristjónsdóttur Fréttir frá Portú(>al oru ekki jafn rúmfrekar á síúum ís- lenzkra blaða og fyrir 2—3 ár- um þegar hver atburðurinn rak annan og við höfðum varla und- an að meðtaka þá, hvað þá held- ur að fá botn í það sem var að gerast. Nú hefur kyrrðin færzt fyri. Alténd er það sem gerist í landinu ekki fréttnæmt á heimsmælikvarðanum, nerna ef einhverjar umfangsmiklar efnahagsráðstafanir eru gerð- ar. Það var auðfundið að þorri manna fylgdist af miklum áhugá með framvindu mála í Portúgal eftir að byltingin var gerð i apríl 1974. Slíkt var um margt eðlilegt enda meiri hátt- ar mál hvernig Portúgal myndi reiða af, pólitísk séð. Að margra dómi er stjórn Mario Soares of veik. Hefur hikað við að grípa til óvinsælla aðgerða. Vegna þess að svo mjög hafa vandamál efnahags og atvinnulífs herjað á þetta land, að þar kemur ekkert hálf- kák að gagni. Stjórn Soares er vissulega vorkunn, hún er minnihlutastjórn sem verður í öllum meiriháttar málum að treysta á stuðning kommúnista, sósialdemókrata eða mið- demókrata. Það er hins vegar áreiðanlegt að enginn þessara þriggja stjórnarandstöðuflokka er sólginn i að eiga aðild að ríkisstjórn meðan ástand efna- hagsmála er jafn slæmt og nú. Þetta er enda Soares Ijóst og hann hefur sýnt rneiri dirfsku i aðgerðum sínum, eftir því sem stjórn hans hefur lengur setið. En Portúgal er ekki hara fréttaland. Það er eitt helzta og bezta viðskiptaland íslendinga og umfram allt eitt af örfáum löndum sem kaupir meira af okkur en við af því. Um salt- fisksölu okkar til Protúgals vita margir, en sjálfsagt hugsa fæst- ir út i það hversu alvarlegt áfall það væri fyrir okkur ef drægi skyndilega úr þessari sölu. Portúgalir hafa á síðustu ár- um reynt eftir megni að vekja athygli Islendinga á því að nauðsynlegt sé að reyna að jafna ögn þennan mikla mun. Viðleitni þessi hefur ekki borið umtalsverðan árangur. Vegna þess hve efnahagsvandi Portúgala er mikill hafa þeir farið út i það í auknum mæli að beina viðskiptum til landa sem kaupa af þeim og hafa dregið úr viðskiptum við aðra í stað- inn. Þetta er fjarska eðlilegt og sjálfsagt en gæti haft varhuga- verðar afleiðingar fyrir okkur. Benda má á að munurinn á viðskiptum landanna hefur far- ið vaxandi Viðskiptahalli Portúgala jókst gríðarlega á s.l. ári og má meðal annars rekja það til aukinna saltfiskkaupa, og samdráttar í útflutningi hjá þeint sjálfum. Þá hafa Portú- galar þurft að flytja inn mikið af matvælum, endá þótt á stefnuskránni sé að verða sjálf- um sér nógir, til dæmis með landbúnaðarvörur. Vegna pólitískra deilna i landinu kom stöðnun í framleiðsluna i hart- nær tvö ár og því tekur sinn tíma að rétta úr kútnum. Ýmis sólarmerki benda til að það hafi nú tekizt og Portúgalir geti verulega hert á sér víð fram- leiðslu til útflutnings miðað við undanfarin 2—3 ár. NU MÆTTI DRAGA þá ályktun af því hversu tregir ís- lendingar eru til að efla við- skiptin við Protúgali, að þar séu búnar til vörur sem ekki séu bjóðandi nokkrum manni. Svo er reyndar aldeilis ekki: vöruvöndun er mjög mikil og almenn vörugæði útflutnings- vara eru að verða með því sem það bezt gerist i Evrópu. Meðal þess sem Portúgalir telja sig geta boðið íslending- um á samkeppnisfæru verði eru til dæmis skór, veiðarfæri hvers konar, vefnaðarvörur og vín svo að nokkuð sé nefnt, sem kemur fyrst upp i hugann. Geta ber og þess að nokkuð er nú þegar flutt inn af skóm frá Portúgal, einkum barnaskóm og hafa þeir þótt hin mesta gæðavara. Allmargar tegundir portúgalskra vína eru fluttar inn. En einhverra hluta vegna eru þessi vín lítt áberandi. Til dæmis er hreinasta undantekn- ing ef veitingahús hér í bæ hafa protúgölsk vín á vinlista sínum, að undanteknu einni eða tveim- ur rósavínstegundum. Sama er uppi á teningnum i útsölum áfengisverzlunar. Þar virðist stundum djúpt á protúgölskum vínum, enda eru Islendingar litlir vínþekkjarar og kaupa yfirleitt ekki vín til að njóta bragðs og gæða heldur til að sturta í sig einhverju sem renn- ur nótu fljótt niður og vekur nógu fljótt mikil áhrif. Portú- galir framieiða reyndar fleira en protvínin og borðvínin. Þar er einnig að fá bæði vodka og koníak sem er ágætis fram- leiðsla. Hvort skýringa er að leita I framtaksleysi umboðs- manna þessara víntegunda í sumum tilvikum er ekki fjarri lagi og er þó kyndugt, þar sem þeir hagnast á því að vintegund seljist hressilega. Textilvörur Portúgala eru að verða frægar fyrir gæði og smekkvisi. Er reyndar með ólíkindum hversu lítið hefur náð fótfestu af þeim hér. Bæði er þar um að ræða dúka, gluggatjaldaefni, handklæði, ábreiður, rúmfatnað og hvað- eina. í að þróa þessa fram- leiðslu hefur verið lagður mik- ill metnaður af hálfu Portúgala enda árangurinn orðið eftir þvi myndarlegur. Mér er hins veg- ar tjáð af ýmsum sem hafa haft samband við fyrirtæki í Portú- gal, meðal annars í textiliðnaði, og þau venjulega smá, að þar vilji stundum verða bið á svari. Það kemur sem sagt upp ú dúrnum að það sama hrjáir Portúgala og íslendinga: eru tregir að svara bréfum. Skýring á þessu kann og að vera sú, að verzlunarbréf héðan eru eðli- lega skrifuð á ensku og stund- um er einfaldlega enginn í fyr- irtækjunum sem skilur það tungumál. Mér er i minni að í Frá Estoril Vfnberjatfnsla ferð til Portúgal i fyrra, þegar ég heimsótti aragrúa iðnfyrir- tækja, var undantekning ef framkvæmdastjórar, hvað þá heldur undirmenn voru mæl- andi á ensku. Hins vegar verða Portúgalir sjálfir að sjá um að kippa þessu í lag, því að í okkar augum lítur það dálítið sér- kennilega út að fyrirtæki, sem vili framleiða vörur til útflutn- ings og afla vörunum markaða, skuli ekki hafa einhverja aðila á sínum snærum sem geta séð um bréfaskriftir á tungumálum eins og t.d. ensku. Auk þeirra vara sem hér hafa verið taldar vinna Portúgalir að því öllum árum að gera útflutn- ingsframleiðslu sína fjölbreytt- ari. Þeir hafa hug á að selja okkur grænmeti og ávexti, gull og silfurvörur, tómatkraft, hús- gögn og fatnað og er þá aðeins fátt eitt nefnt. Þá er einn möguleiki ónefnd- ur til að freista þess að ná meiri jöfnuði i viðskiptunum og það eru ferðalög. Nú eru Islending- ar ferðaglaðir með afbrigðum, en gallinn bara sá að þeir virð- ast helzt alltaf vilja fara á sömu staðina og vera á sömu hótelun- um. Langbezt væri kannski ef þeir fengju alltaf sama her- bergið. Og Portúgal hefur ein- hverra hluta vegna ekki orðið fjöldaferðamannaland Islend- inga. En þeir Islendingar sem hafa farið til Portúgals eiga þaðan góðar endurminningar og leita þangað gjarnan á ný. Algarve, sólarströnd Portú- gals, er fjölsóttastur ferða- mannastaður bæði útlendinga og Portúgala sjálfra. I Algarve er fallegt og hlýlegt og þar er upp á margt að bjóða fyrir ferðamenn, en umfram allt er það staður sem gott er að leita á til afslöppunar og almennrar hvíldar. Lissabonsvæðið er aft- ur á móti skemmtilegra að min- um dómi. Þar er upp á flest að bjóða sem hugurinn girnist. Borgin sjálf er framúrskarandi sjarmerandi. Þar er margt að sjá og þaðan er hægt að fara í skoðunaferðir til allra helztu staðanna í kring. Strandlíf er einnig á boðstólum, rétt fyrir utan Lissabon, í Cascais og Est- oril. Meira að segja heimsvanir íslenzkir túristar ættu að gera sætt sig við það sem þarna er í boði. h.k. Borðbúnaður er framleíddur úr leir og postulínu Rúmteppi og dúkar af sömu gerð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.