Morgunblaðið - 01.10.1977, Side 13
13
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1977
Balzac
Það var kysstst í Boulogne-
skóginum um aldamótin ekki
síður en í dag.
Salur I hinu merkilega Cluny-
safni frá annarri af byggingu
þriðju aldar
Napoleon Bonaparti í
konungsskrúða — Er í vopnasafn-
inu í Invalidhöllinni
Frá Gustave Moreau-safninu
mínútum og seint og ljóskan
fagra farin. Beið í klukkustund i
þeirri von að hún kæmi aftur,
beið, beið, beið, og beið með
hangikjöt i plasti! En ekki kom
daman og þurfti ég að rogast með
kjötið á milli safna það sem eftir
vár dagsins ásam niðþungum
sýningarskrám. — En af þvi að ég
var nú einu sinni staddur á Mont-
matre var sjálfsagt að lita á söfnin
þar, en Montmatre var Mekka
listamanna þar til þeir fluttust
yfir á Montparnasse. Fyrst hélt ég
á Montmatre-safnið, sem er safn
minja frá blómaskeiði hverfisins.
Skemmtilegt safn en gæti þó
verið mun betra og yfirgrips-
meira. Þar var þá sýning á
verkum hins fræga teiknara og
brautryðjanda í gerð veggspjalda
(plakata) Alexandre Théopile
Steinlein. Frábær sýning.. . Siðan
hélt ég á Rue Ravignan en þar
stóð hin nafntogaða bygging
„Bateau Lavoir" þ.e. Vatnsbátur-
inn. Dró húsið nafn af þvi að hinir
mörgu íbúar hússins þurftu að
sækja vatn í lítinn brunn skammt
frá — nafnið er því komiskt öfug-
mæli. Þarna við brunninn sá
Pieasso hina fögru Fernando
Olivier i fyrsta skipti, með sín
möndlubrúnu augu og heillandi
yfirbragð. Astir þeirra og fórnfýsi
Fernande er nú sérstakur kafli i
listasögu tuttugustu aldar.
Húsið var lengi í niðurniðslu en
þegar loks átti að hefjast handa
um endurbyggingu þess árið
1970, þá brann það (líkt og Bern-
höftstorfan), en ég sá ekki betur
en að nú væri hafist handa við
endurbyggingu en ein hliðin
stendur uppi þótt allt annað sé
brunnið. Hverfið allt um kring er
unaðslega maleriskt og mannlífið
litrikt.. .
Hélt áfram niður Rue Ravignan
og sveigði á hliðargötu er ber
nafnið Rue Houdon, var þá komin
í hið alræmda hverfi „Pigalle",
þar sem holdlegar gerviþarfir eru
best ræktaðar i Parisarborg og
með yfirgengilegustu tilþrifum,
þannig að freistingar eru i hverju
fótmáli. En ég er sem betur fer
ónæmur fyrir slíku, svo sem allir
vita, og þrammaði hiklaust áfram
framhjá „beinleitum fljóðum og
brúnaþungum hölum" — niður
Pigallegötu og að 14 Rue de
Rochefoucauld þar sem Gustave
Moreau-safnið er til húsa. Sá hélt
frægan skóla og voru kempur likt
og Rouault og Matisse o.m.fl.
frægir myndlistarmenn
nemendur hans. Segja má að
þessi frábæri hæfileikamaður
hafi um margt tekið skakka
stefnu á hæðina — þótt nú sé
verið að endurreisa hann, ekki
sist vegna þess að í kjallara
fundust myndir sem eru nauða-
líkar nútímapoppi! — Þær eru
ekki til sýnis, en méð þvi að vikja
að safnverðinum nokkrum
frönkum opnast allar dyr. Þetta
er gríðarmikið safn sem illa er
búið að. En hann formaði það að
öllu leyti sjálfur og er Parísar-
borg eða franska ríkið tók við
gjöfinni skuldbatt það sig að
breyta engu. Hér mætti gera úr
eitt albesta safn Parísarborgar af
úrvali bestu teikninga, vatnslita-
mynda og málverka meistarans.
Hann var virtuos sem teiknari og
frábær sem kennari, — skilur
niaður nú betur snilldina hjá
Rouaull og Matisse því að hér var
uppruninn! . . .
Fyrir utan þetta hef ég skoðað á
milli 20—30 gallerí en þar eru
frekar daufar sumarsýningar þótt
sjá mái einstök frábær verk
innanum og morð af góðri grafik
og listaverkabókum, Hér eru og
búðir er selja stórkostlega
fallegar brúður, gamlar og
fágætar en þvi miður fokdýrar,
enda aðallega fyrir ríka safnara.
Ég mun skrifa sérstaka grein
um Parisarbiennalinn og
Pompideusafnið við fyrsta tæki-
færi, hef púnktað heilmikið
niður. En mér þykir sem mynd-
listar- og lífsnautnarmanni frekar
hart að sitja yfir skrifum og rit-
vélarpikki við verstu hugsanlegar
aðstæður með mannlífið brúsandi
allt um kring og ótal söfn óskoð-
uð. En ég ætla sannarlega ekki að
éta yfir mig af list — þvi að slíkt
hefur jafnan hinar örlagarikustu
afleiðingar.
I bitið i fyrramálið held ég til
Antwerpen á vit Helenar
Fournemont, einnar fegurstu
konu er lifað hefur og mannsins,
sem gekk að eiga hana og málaði i
ótal útgáfum Pieter Paul Rubens.
Þar hitti ég Erró i anddyrinu á
hádegi, en hann þurfti í skottúr
til Amsterdam.
Bragi Asgeirsson.
Fermingar
á morgun
Fermingarbörn í Háteigskirkju 2.
október, kl. 10.30 árd.
Stúlkur
Anna (iuðrún Viðarsdóttir
Hólmgarói 2(». R.
Arnhjörg Sverrisdóttir Strandasoli 11. R.
Aslaug Þóröardóttir Kríuhóluin 2. R.
Dagný Haróardóttir Lyngbrekku 22. Kóp.
(iuöriöur Kristin Jónsdóttir
Drápuhlíö 45. R.
Hrefna Steinarsdóttir Skipholti 42. R.
Inga Margrét Róhertsdóttin-
Rólstaöarhlíö 50. R.
Jónína Olesen Rarniahlíö .'»5. R.
Kristfn Sverrisdóttir Strandaseli 11. R.
Ólöf Hafdís (>uölaugsdóttir
Skiphholti 20. R.
Sigui laug Margrét Jónasdóttir
Kskihliö 10. R
Svanfríöur Anna Lárusdóttir
Suöurlandshraiit 05. R.
Vigdfs (iunnarsdóttir Stigahlíö 24. R.
Piltar:
Raldur Rorgþórsson (inoöavogi 20. R.
Ky jólfur Sveinsson Skaftahliö 2. R.
(tunnar (íi*org Smith Rólstaöarhlíó 10. R.
Jónas Valdimarsson Rláskóguni 2. R.
Markús (íunnarsson Stigahliö 24. R.
Orri Snorrason l lhlíö 15. R.
Siguröur Rjarni (iuömiindsson
Rárugötu 0 R.
Stefán Jón Stefánsson DrápuhlíöK. R.
Prestarnir.
Asprestakall: Ferming í Laugar-
neskirkju kl. 2 síðd. sunnudaginn
2. október. I’restur sr. Grímur
Grímsson.
Stúlkur:
Klsa Firíksdóttir. Kamhsvegi 7.
Sæunn (iísladöttír. Sa*\ iöarsundi 22.
Drengir:
Atli (iuómundsson. Skipasundi 54.
Rernódus Kristinsson.
La*kjarfit 5. (iaröaha*
(iuömundur (iiiömundsson. Kleppsvegi 70
Kjartan Jónsson. Austurhrún 0
Jón Lárus (iuömundsson. Kleppsvegi 70
Óskardiiöni (iunnarsson. Skipasundi 40.
Ferming í Fríkirkjunni í Re.vkja-
vík 2. október. Prestur: Séra
Þorsteinn Bjórnsson
Stúlkur:
Aldís Siguróardóttir (inoöarvogi 7(»
Fjóla Ilólm Ólafsdóttir. Stifluseli 1
Ilanna (iiióríóur Daníelsdóttir.
Meistaravöllum 22
llelga Magnúsdóttir. Ilólmgarói 4(>
Kristín Rreiófjörö. Réttarholtsvegi 80
Regína Krist jánsdóttir. Torfufelli 48
Sigríöur Jakohsdóttir. Oldugötii 40
Piltar:
llilniar Sigurbjörnsson. Reynimel 28
Jóhannes Þorgeirsson,
Meístaravöllum 20
Krist ján Krist jánsson. Torfufelli 48
Olafur Þór Aðalsteinsson.
Sólvallagötu 27
Ragnar Ragnarsson. Smyrilsvegi 20
EF ÞAÐ ER
FRÉTTNÆMT
ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU