Morgunblaðið - 24.01.1978, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 24.01.1978, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. JANUAR 1978 15 Greinargerð Arna Benediktssonar; Milljarðaheimt og mælikvarðar hprrar rannsóknar Ilm hádppis- Svar við skrifum Þjóðviljans um fisksölumál í Bandaríkjunum Það var ekki átakalaust að afla| markaða fyrir hraðfrystar fisk-i afurðir á fyrstu árum og áratug-j um hraðfrystingar hér á landi. Framan af hugðust menn hasla sér völl á markaði í Evrópu og gekk þar á ýmsu. Fyrstu tilraunir til þess að opna bandaríska markaðinn misheppnuðust algjör- lega. Það var ekki fyrr en það gæfuspor var stigið að reisa eigin verksmiðjur og koma upp sjálf- stæðu sölukerfi i Bandaríkjunum að verulega fór að rætast úr i markaðsmálum og nauðsynleg festa skapaðist i sölumálum. Þessi fyrirtæki voru í upphafi reist af miklum vanefnum, en hafa smátt og smátt getað byggt sig upp og hafa nú orðið viðunandi aðstöðu. Þau hafa núorðið viðunandi af- komu fjárhagslega, eru langt i komin með að byggja upp fram- leiðsluaðstöðu sina á þann hátt að ekki gerist betra hjá öðrum fyrir- tækjum i sömu grein og þau hafa byggt upp sölukerfi, sem fullnæg- ir itrustu þörfum. Að sjálfsögðu hefur þessi starf-' semi orðið fyrir áföllum öðru hvoru. Bandariski markaðurinn er harður samkeþpnismarkaður, þar sem lítið má út af bera. Það eru ekki fátiðar fréttir frá Banda- rikjunum að fyrirtæki i fiskiðnaði og fisksölu verði gjaldþrota. ís- lensku fyrirtækin hafa sem betur fer ekki lent i slíkum áföllum og er þess að vænta að þeim hafi nú báðum vaxið svo fiskur um hrygg að ekki þurfi að óttast um hag þeirra héðan í frá. Ekki er þó réttlætanlegt að fyllast óeðlilegri bjartsýni, mistök verða gerð eins og alltaf hefur verið í þessum heimi og mun væntanlega alltaf verða, og skiptir þá miklu máli aðundirstaðan sé trygg. Tilgangur og starfsemi íslensku fisksölufyrir- tækjanna í Bandaríkjunum Islensku fisksölufyrirtækin í Bandaríkjunum eru stofnuð með það meginhlutverk í huga að skila hæsta fáanlegu verði fyrir fisk- afurðir hingað heim. Þetta hafa þau gert svikalaust og með því er stöðugt fylgst af viðskiptaráðu- neytinu og að sjálfsögðu fylgist Gjaldeyriseftirlit Seðlabankans með þvi að peningarnir komi hingað heim og er þar ekkert undanfæri. Vitaskuld hafa fisk- sölufyrirtækin orðið að lúta bandarískum lögum. Bandarikja- menn hafa að sjálfsögðu lög og reglur um starfsemi erlendra fyrirtækja eins og allar aðrar þjóðir, þar á meðal við íslending- ar. Það hefur borið nokkuð á því hjá mönnum af þrælakyni að gera ætti kröfur um að sérstakar bón- bjargarreglur ættu að gilda fyrir okkur Islendinga i samskiptum við Bandarikjamenn. Fram á slíkt hefur ekki verið farið né verður farið í sambandi við fiskviðskipti, og munum við því una þvi að um okkar viðskipti gildi sömu reglur og fyrir aðra. Annar mikilvægur þáttur i starfsemi fisksölufyrirtækjanna er sú þekking, sem fæst af ástandi og horfum í markaðsmálum hverju sinni, en það er þekking, sem aldrei næst úr fjarlægð. Þetta verður til þess að hægt er að þróa framleiðsluvörur með tilliti til markaðsástands á hverjum tima og oft er hægt að sjá þróun- ina fyrir og vera viðbúinn breytingunum. Einnig gefur þetta dýrmæt tækifæri til þess að kanna stöðugt möguleika á sölu nýrra framleiðslutegunda. 1 þriðja lagi kemur svo sú starf- semi, sem ekki er sist mikilvæg, en það er að vinna markað fyrir þær vörutegundir, sem við hér heima viljum framleiða en markaðurinn hefur ekki áhuga á að taka á móti. A þessu sviði hef- ur verið unnið gífurlegt starf og ég held að fullyrða megi að lang- mestur hluti starfstima sölu- manna okkar vestra hafi farið i það. Oft og tíðum er um vöruteg- undir að ræða sem alls ekki seld- ust ef við hefðum' ekki okkar eig- in sölufyrirtæki í Bandaríkjun- um, sem gegna þessu sérstaka hlutverki. í fjórða lagi er svo þess að geta að vegna fyrirtækja okkar í Bandaríkjunum er sölukostnaður við fiskafurðir okkar aðeins brot af því sem annars væri. Sölu- kostnaður freðfisks frá íslandi er löngum á bilinu frá einu að einu og hálfu prósenti af verðmæti og er það langt undir þvi, sem ann- ars staðar þekkist. Og þó er inn í þeim kostnaði falin ýmisleg þjón- usta, sem ekki heyrir beint undir sölukostnað, og er óviða annars staðar í heiminum innt af hendi af söluaðilum. Má þar til nefna ýmsa tækniþjónustu. Ekki veit ég berrar rannsóknar. Um hádegis- bilið tísti svo Vísir undir með grein, sem bar höfundarnafnið Svarthöfði. Þó að þær blekkingar, sem fram eru settar í frétt Þjóðviljans og leiðara, séu neðan við allt vel- sæmi, verður ekki hjá þvi komist að fara um þær nokkrum orðum, þar sem augljóst er að þær eru ekki settar fram af þekkingar- skorti, heldur eru þær þraut- hugsaðar bæði að efni og samsetn- ingu, tilreiddar vitandi vits sem beita ástriðuveiðimannsins, sem fiskar á gruggugu vatni. Ég segi vitandi vits vegna þess að allar réttar upplýsingar um þetta til- búna mál eru fyrir hendi á rit- stjórn Þjóðviljans, i opinberúm gögnum frá Þjóðhagsstofnun, Hagstofu og Seðlabanka. Gögn- um, sem send eru jafnharðan til allra fjölmiðla á tslandi. Um grein Svarthöfða i Visi gegnir öðru máli. Á hana þarf ekki að eyða orðum. Hún er gjörsamlega vitvana og þar að auki tilfinninga- snauð, fyrir utan illgirnina, sem er þó sennilega upplogin. 1 rosafrétt Þjóðviljans segir: „Fyrir þremur árum seldu þessi fyrirtæki fyrir 24—25 milljarða króna. og hefur því heildarsölu- um, en ekki i hrapandi islenskum krónum." „Hvað varð um alla þessa peninga? Það væri fróðlegt að fá ítarlega skýrslu um það.“ Tilvitnunum í Þjóðviljann lýkur hér með. Það er rétt að sala íslensku fyr- irtækjanna í Bandaríkjunum hef- ur rúmlega tvöfaldast i dollurum frá 1974 til 1977. Um dollarann sem raunverulegt verðmæti kann að orka meira tvímælis og er langt siðan dollarinn hefur fengið jafn afdráttarlausa traustsyfirlýsingu og vonandi endist dollarnum traust Þjóðviljans til þess að hætta að falla. Þessi söluaukning á sér eftirfarandi orsakir: í fyrsta lagi hefur meðalverð á einingu hækkað um 59% frá meðaltali ársins 1974 til meðaltals ársins 1977, reiknað i dollurum. Sé aftur á móti reiknað frá ársbyrjun 1974 til ársloka 1977 hefur hækkunin orðið rúm 35%. í raun og veru hefur hækkunin verið verulega minni en þetta vegna þess að þær einingar, sem nú eru seldar á Bandaríkjamarkað, eru í sjálfu sér verðmætari nú, lögð hefur verið meiri áhersla á framleiðslu flaka og annarra verðmætari pakkninga en áður var. Þessi þró- un hefur að sjálfsögðu komið fram i hærra verði á framleiðsl- unni og meiri vinnu hér heima, og þar með hærri launagreiðslum. Einnig hefur þa& komið fram i hráefnisverði hér innanlands. Verðhækkanir miðaðar við sam- bærilegar pakkningar eru yfir- leitt um það 10% lægri en fram- angreindar tölur. 1 öðru lagi hefur orðið fram- leiðsluaukning á þessu tímabili. Framleiðslan 1977 er um 20% meiri en framleiðslan 1974. Sú framleiðsluaukning kemur óhjá- kvæmilega fram í aukinni sölu hvað kann að vera meðaltal sölu- kostnaðar i heiminum. Um það hef ég engar staðfestar upplýsing- ar. Hins vegar eru þær tölur, sem ég hef upplýsingar um, yfirleitt á bilinu frá fimm til sex prósent og hæst tíu prósent, en nokkru lægri hjá þeim þjóðum, sem hafa valið svipað sölufyrirkomulag og við, en þó verulega hærra en hér. Meginástæðan fyrir þessum lága sölukostnaði er sú, að jafnframt þvi að sölumenn okkar vestra eru sölumenn fyrirtækjanna í Banda- rikjunum ög taka laun hjá þeim, eru þeir í reynd sölumenn okkar hér heima. Með öðrum orðum, með þessu skipulagi sleppum við úr einum millilið. Árásir á sölustarfsemina f Bandaríkjunum Þess hefur gætt að undanförnu að ýmsir hafi fundið hjá sér hvöt til þess að hnýta í þessa starfsemi, og keyrir um þverbak sl. föstu- dag, en þá um morguninn birtist á forsiðu Þjóðviljans rosafrétt: „Hvað varð um milljarðana 26?“, þar sem gefið er í skyn að sölu- ( fyrirtækin vestra hafi ekki skilað hingað heim 26—27 milljörðum króna, eða að sú fjárhæð hafi að minnsta kosti ekki komið fram. Þessari frétt er svo fylgt eftir í leiðara, þar sem krafist er opin- verðmætið meira en tvöfaldast á þremur árum, og á siðasta ári fékkst 26—27 milljörðum króna meira fyrir fiskinn, sem fór á Bandaríkjamarkað, heldur en 1974. Er þá mæft i dollurum í báðum tilvikum miðað við núver- andi gengi krónunnar.“ Ennfrem- ur segir: „Svo gifurleg hefur hækkunin verið, og hér er ekki um neina marklausa krónutölu að ræða, heldur hækkun i dollurum, sem flokka má til raunverulegra verðmæta. Mest stafar þessi hækkun af hækkun söluverðs á hverja einingu, en einnig er um nokkra magnaukningu að ræða. Það er furðulegt til þess að hugsa, að þrátt fyrir þessa gifurlegu hækkun heildarsöluverðmætis á aðalútflutningsmarkaði okkar, þá skuli laun fólksins, sem hér vinn- ur við framleiðsluna hafa verið alls ekkert hærri 1977 en 1974, jafnvel heldur lægri, eins og opin- berar tölur sýna. Þess vegna er spurt: Hvað varð um allt þetta fjármagn? Um þessi mál er fjall- að i leiðara Þjóðviljans í dag, og þar er borin fram krafa um opin- bera rannsókn." í leiðaranum er svo að sjálf- sögðu hnykkt á öllu saman, enda á að lesa það upp í útvarpinu: „Þessar auknu sölutekjur hafa að sjálfsögðu verið greiddar í dollur- um, i raunverulegum verðmæt- sölufyrirtækjanna fyrir vestan, þvi að vist þarf að selja fram- leiðsluna. í þriðja lagi var veruleg sölu- tregða árið 1974, einkum framan af árinu, eða þangað til verðið féll. Þetta varð til þess að minni hluti framleiðslu þess árs eldist á því sama ári, heldur en æskilegt hefði verið, t.d. voru 9 mánaða birgðir af flökum þess árs óseldar hjá Iceland Products í árslok, og vafalaust hafa birgðir einnig auk- ist hjá Coldwater þetta ár. Þessi sölutregða hefur siðan komið fram í aukningu á sölu á þeim árum sem síðan eru liðin og um síðustu áramót eru birgðir í lág- marki. í fjórða lagi hefur svo verið lögð meiri áhersla á Bandaríkja- markað en áður. Arið 1977 var framleitt og útflutt til Bandaríkj- anna verulegt magn af karfa, sem áður fór næstum eingöngu á ann- an markað, og einnig hefur verið lögð meiri áhersla á framleiðslu ufsa á Bandarikjamarkað en áður var, og kemur þetta að sjálfsögðu fram í hækkuðum sölutölum fyrirtækjanna fyrir vestan. Þar að auki eru sölutölur fyrir- tækjanna i Bandaríkjunum ekki að fullu sambærilegar við fram- leiðslutölur frá íslandi, þar sem bæði fyrirtækin annast sölu á öðr- um vörum. Coldwater annast sölu á færeyskum fiski og Iceland Products framleiðir önnur vöru- merki en íslensk í þeim vöru- tegundum þar sem íslensk fram- leiðsla er ekki nægileg til þess að halda uppi eðlilegri markaðsstarf- semi, og ég hygg að Coldwater geri slíkt hið sama. Og hvar eru þá milljarðarnir? Að mati þessarar fréttar og leið- ara Þjóðviljans er dollarinn „raunverulegt verðmæti“. Ég segi þessarar fréttar og leiðara vegna þess að Þjóðviljinn notar ekki alltaf þennan mælikvarða, heldur aðeins þegar það hentar honum. Hann skiptir um mælikvarða þegar jafnvægislist blekkinganna býður. Laun í almennasta taxta fiskvinnslu var 1.1. 1974 1.93 dollarar á klst. en var um síðustu áramót 3.13 dollarar, eða hafa hækkað um 62% í dollurum, „raunverulegum verðmætum", samkvæmt einum mælikvarða Þjóðviljans. En nú hentar þessi mælikvarði ekki lengur og Þjóð- viljinn skiptir um fót. Á þann mælikvarða sem nú hentar að mæla hljóðar þetta svo i Þjóð- viljanum: „Eitt er víst: ekkert, alls ekkert af þeim (þ.e. milljörð- unum) kom í hlut þess fólks, sem vinnur I hraðfrystihúsunum hringinn t kringum ísland." Laun starfsfólks í fiskiiðnaði hafa eins og áður er sagt hækkað um 62% i dollurum á þessu tímabili, þar að auki hefur vinnumagnið i hrað- frystihúsunum aukist vegna framleiðsluaukningar og einnig vegna vinnufrekari pakkninga, þannig að frystihúsin greiða nú i laun yfir 90% meira í dollurum „raunverulegum verðmætum", heldur en i ársbyrjun 1974. Hráefnisverð á fiski hér innan- lands hefur hækkað frá ársmeðal- tali 1974 umreiknað i dollara mið- að við meðalútflutningsgengi 1974 og gengis um síðustu áramót, um 57%. Þegar við bætist hráefn- isaukning greiða frystihúsin nú á milli 80 og 90% meira fyrir hrá- efni en þau gerðu árið 1974. Þannig hafa allir kostnaðarliðir hraðfrystihúsanna hækkað um eitthvað svipað og tekjurnar, neraa' vextir hafa hækkað miklu meira. Enda er heildarniðurstað- an sú að rekstur hraðfrystihúsa er nú ennþá vonlausari nú en hann var árið 1974, og var þó nógu svart i álinn þá. Sem sagt, eins og Þjóðviljinn veit mætavel, og þarf ekki annað en að líta í sinar eigin skrifborðs- skúffur til þess að fullvissa sig um, að söluaukning íslensku sölu- fyrirtækjanna í Bandaríkjunum hefur öll komið til skila, og hefur öll og meira til komið til greiðslu hér innanlands. Það þarf þvi ekki frekari leit að þessum 26 milljörð- um og hefur aldrei þurft. En ekki veit ég hvers vegna Þjóðviljinn snýr að þessu sinni geiri sínum að islensku sölufyrirtækjunum i Bandarikjunum, en til þess hlýtur að vera einhver sérstök ástæða. Það var nefnilega alveg eins hægt að snúa þessum talnablekkingum upp á ýmsa aðila i þjóðfélaginu, t.d. Flugleiðir, Alverið í Straums- vik, Kisiliðjuna, alveg eftir þvi hverjum þótti henta að ná sér niðri á. Það var meira að segja hægt að reikna út sams konar dæmi fyrir Þjóðviljann, en þess var varla að vænta að hann gerði það. En hin raunverulega ástæða á væntanlega eftir að koma i ljós. Milljarðarnir, sem hafa týnst. Annað mál er svo það, að við höfum týnt mörgum milljörðum á undanförnum árum. Innflutning- ur okkar á sl, ári var um 40 millj- örðum dýrari en hann hefði orðið á síðasta verðlagi fyrir olíu- kreppu. Allir þeir, sem hafa verið með einhverju lifi nú siðustu árin vita mætavel hvað hefur verið að gerast í verðlagi í heiminum nú síðustu árin. Stórhækkun hefur orðið á olíu, náttúrugæði verða sífellt torsóttari og kostnaðarsam- ara að :fla þeirra, náttúurvernd- arsjónarmið þau sem hafa verið að festa rætur að undanförnu hafa valdið verðhækkunum og munu valda ennþá meiri verð- hækkunum, sama er að segja um megnunarvarnir nema að þær hafa fram til þessa valdið ennþá meiri verðhækkunum.Og siðast Framhald á bls. 31

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.