Morgunblaðið - 07.02.1978, Side 5

Morgunblaðið - 07.02.1978, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRUAR 1977 fc> Ennþár / : er mikið yv s '% úrval af \ p vörum Terelyne & ullarbuxur búnartil beint á útsölu áaðeinskr. 6.900.— Kakhibuxurá kr. 4.900.— Kakhifötákr. 12.900.- 9.800.- 2.500.- Leðurjakkarákr. Mittis ullarjakkar á kr. Skyrtur — Blússur, mjög gott úrval frá kr Bolir frá kr. Kjólar frá kr. Allar nýjar vörur með meðan áútsölunnistendur. sem allir hafa beöið eftir helduráfram á morgun í 5verzlunum samtímis. LATIO EKKIHAPPUR HENDISLEPPA Greinargerð frá Páli Líndal MORGUNBLAÐINU barst f gær eftirfarandi greinargerð frá Páli Lfndal. fv. borgarlögmanni: Þegar mér þann 3. febrúar barst í hendur fréttatilkynning ásamt syrpu af gögnum frá skrif- stofu borgarstjóra, dags. 3. febrú- ar 1978, var klukkan tæplega 17.00. Þessi tilkynning hefur verið meira og minna birt í dag- blöðum. 1. Það kom f Ijós, að maður sem hefur verið samstarfsmaður minn iengi og að ég hélt góður vinur, Jón G. Tómasson skrifstofustjóri borgarstjórnar, virðist hafa sent alla syrpuna, sem ætlað er að sverta mig, á undan til dagblað- anna, sennilega um kl. 15.00. Hann veit, sem er, að það er ekki auðvelt að koma við svari í blöð- um undir kvöld á föstudegi. Það átti sem sé að mfnu mati að nota helgina til, að ósannindin í frétta- tilkynningunni gróðursettust vel f hugum manna. 2. Ég hafði þegar samband við Björn Jóhannsson fréttastjóra Morgunblaðsins, og bað hann að koma í blaðið athugasend frá mér og hét hann því. Það loforð var ekki efnt. Ég hef ekki tök á að sanna þetta frekar en annað, sem sagt er í síma. Hins vegar hef ég enga ástæðu til að kenna honum um. Einhver virðit hafa kippt í spotta. Kæruna á borgarendur- skoðanda afhenti ég aftur á móti Styrmi Gunnarssyni að viðstödd- um Kjartani Gunnarssyni for- manni Heimdallar. Mig minnir að ég hafi líka ámálgað þetta við Styrmi. Hefði ég satt að segja haldið, að athæfi það, sem ég kærði, innbrot í læstar hirzlur mínar undir for- ustu borgarstjórans i Reykjavík, hefði ef til vill þótt fréttaefni á borð við fréttatilkynninguna frá Jóni Tómassyni, sem er á útsiðu Morgunblaðsins með stærsta letri, en kæra mfn, er hálffalin á 5. síðu við hliðina á bílaauglýsingu. 3. Næsti áfangastaður minn i dreifingu á kæru minni var Þjóð- viljinn. Þar hitti ég Úlfar Þor- móðsson blaðamann og lét hann fá ljósrit af bréfi því, sem ég hafði óljósar fregnir af að væri til, og hef minnzt 'á. Bréfið hljóðar á þessa leið: „Um skipulag „Hallærisplans“ Fyrir nokkrum dögum skrifuð- um við bréf til borgarstjórnarinn- ar og óskuðum eftir að hún frest- aði þvi að afgreiða mál sem borg- arráðið hafði samþykkt bæði með mótatkvæði og alls konar fyrir- vörum frá a.m.k. tveim mönnum i ráðinu. Orsökin til að við fórum að skrifa þetta bréf var aðallega sú að við álitum að einn eða fleiri embættismenn hefðu sagt bæði borgarráði og skipulagsnefnd ósatt frá undirbúningi og gangi málsins. Þess vegna væri sjálfsagt að fresta málinu. Þessi ósannindi getum við sannað. Það átti með pukri að svikjast aftan að okkur. Við álftum að eigandi Aðalstrætis 9 hafi notað allan þann byggingarrétt sem hann á. Við bentum á að þetta væri ólöglegt því það striddi móti gildandi skipulagi i Reykjavík. Þróunarstjórinn teiur allt í lagi með vinnubrögðin f viðtali við Vísi á laugardaginn og bætir því við, að við kunnum náttúrulega ekkert i lögum. Zóphonias Páls- son skipulagsstjóri hefur lýst ann- arri skoðun og trúum við honum betur. Sama lét Aðalsteinn Júlíus- son skrifa í fundargerð skipulags- nefndarinnar í júlí s.l. ár. Um lagakunnáttu okkar þróunar- stjóra verður kannski skorið úr fyrir dómstólum á sinum tíma. Við ætLum að minnsta kosti ekki að gefast upp í þessu máli. Margt fleira mætti segja um framkomu þeirra sem stjórna skipulaginu á bak við tjöldin en það mun bíða betri tima. Af því að borgarstjórnin frest- aði afgreiðslu málsins bara hálfan mánuð er okkur afskaplega nauð- synlegt að fá að kynna okkur gögnin sem borgarráð og aðrir hafa byggt afstöðu sína á. Það hlýtur hreint og beint að flokkast undir mannréttindi. Ég fór því til borgarstjóra strax á föstudagsmorgun til að biðja um að fá gögnin tafarlaust. Fyrsti maóur f viðtalstima og mættur á undan mér var sjálfur Ragnar Þórðarson og fræddi mig án þess að ég bæði um, um ýmislegt fróð- legt um samskipti sin við yfir- menn skipulagsmálanna. Borgarstjóri taldi sjálfsagt að taka beiðni mína til greina, en ég fór fram á að fá þ.á m. öll gögn frá Þróunarstofnun Reykjavíkur. Borgarstjóri sagði fulltrúa sín- um sm heitir Ölafur Jónsson að ég ætti að fá umbeðin gögn. Mér var sagt að ég mætti koma kl. 3. Ég var viðstaddur þegar Ólafur tók við fyrirmælum borgarstjóra. Þegar ég kom aftur til að sækja gögnin kl. 3.30 voru engin gögn til og beið ég til kl. rösklega 4. Ölafur gerði allt sem hann gat til að hjálpa mér. Þróunarstjóri var „týndur“, engin gögn fundust i Þróunarstofnuninni þegar þang- að var hringt, þeir bentu á skjala- safnið f Austurstræti. Ólafur hafði athugað það, þeir sem þar eru sögðu að Þróunarstofnunin væri nýbúin að fá öll gögnin. Ólafi tókst með dugnaði að fá eitthvað hrafl frá teiknistofu Gests i Garðastræti og ársskýrslu skipulagsnefndar frá Skipulags- stjóra í Skúlatúni 2. Þetta er allt sem ég hefi fengið og í dag er 24. janúar. Mér er ekkert ánægjuefni að þurfa að kæra svona háttalag fyrir borgarráði en okkur þykja þessi vinnubrögð svoleiðis að það sé skylda okkar. Borgarráð er blekkt, fyrirmæli borgarstjóra hundsuð, skjöl látin hverfa og em- bættismennirnir „týnast". Á meðan þetta gerist eru að renna út möguleikar okkar til að gæta hagsmuna okkar. Ætlar æðsta stjórn höfuðborg- arinnar að láta svona lagað líðast? Við gerum enn kröfu um að staðið verði við loforð borgarstjóra að við fáum að kynna okkur öll gögn- in frá Þróunarstofnuninni og ein- hverjum samviskusömum og kurteisum manni eins og Ólafi Jónssyni sem við treystum full- komlega verði falið að afgreiða gögnin í okkar hendur. Ég efast ekki um að hann muni staðfesta að hér sé rétt greint frá okkar samskiptum. Með vinsemd og virðingu f.h. -eigenda Aðalstrætis 8—16 Þorkell Valdimarsson. Borgarráð Reykjavikur" Hvort bréfritarar eru nú ánægðir með þau gögn, sem þeir hafa fengið, veit ég ekki, en það er ekki ofmælt, að með tillögunni um Hallærisplanið sé verið að fjalla um hundruð milljóna og einhverjir hljóta að hagnast mjög mikið á þvf að fá allt í einu marg- falda nýtingu á lóðum I Miðbæn- um. Það þekkja allir lóðaverðið þar. 1 fréttatilkynningu Jóns G. Tómassonar er talað „um óljósar aðdróttanir í garð borgaryfir- valda“ í sambandi við þetta mál. Hverjar eru þær? 4. Það er athyglisvert, að í fréttatilkynningunni eru hvergi nefndir heimildarmenn. Það er sagt, að ég hafi „neitað vanskil- um“. Hver segir það? Síðan hafði ég greitt umræddar fjárhæðir. Stendur það i bókhaldinu? Ekki kannast ég við, að hafa greitt borgargjaldkera neitt 9. des. 5. Enn stendur: „Var honum tjáð af borgarstjóra, að endur- skoðunardeild óskaði eftir að gera leit að skjölum i herbergi hans, og honum gefinn kostur á að vera viðstaddur, sem hann afþakkaði". Ekki kannast ég við þetta, og ekki var ég beðinn um lykla að hirzl- um. 6. Svo segir, að ég hafi veitt móttöku bifreiðastæðagjöldum að fjárhæð kr. 5.069.729, sem ekki hafi verið skilað í borgarsjóð. „Inn á þessa fjárhæð greiddi Páll Lindal 9., 14. og 15. des. samtals 1.973.705.“ Ég greiddi enga pen- inga i borgarsjóð 14. og 15. des. frekar en 9. des. 7. Ég er sakfelldur hvað eftir annað opinberlega af einum æðsta embættismanni borgarinn- ar fyrir, að ekki sjáist að greiðsl- um frá mér hafi verið skilað i borgarsjóð. Ekki reynir þessi maður að leiðrétta þetta, þótt hann telji nú að rangt sé eftir sér haft. Þarf ekki óhlutdræga rann- sókn og dóm, áður en slíkt er gert? 8. Um viðtal mitt við borgar- stjóra vil ég ekki fjölyrða meira en orðið er, slíkur var ofsinn í honum, að ég hef aldrei séð þenn- an dagfarsprúða mann í slíkum ham. Mér fannst því rétt að biðj- ast lausnar eins og kunnugt er. Ég hafði ámálgað við hann oftar en einu sinni, að ég hefði hug á að hætta í mínu starfi, svo að það var mér síður en svo óljúft að hætta, þótt ég hefði kosið, að það yrði með öðrum hætti, sbr. bréf mitt til borgarráðs. 9. Sú staðhæfing, að ég hafi ekki sinnt tilmælum endurskoð- unardeildar um að koma og gera grein fyrur málum eftir að ég fékk skýrslu endurskoðunardeild- ar að kvöldi 31. jan., eru vfsvit- andi ósannindi. Ég trúi því ekki, að Bergur Tómasson haldi þvi fram, enda stendur ekkert um það f bréfi hans dags. 2. febrúar s.l. Að morgni 3. feb„ áður en fréttatilkynningin er send út bað ég sérstaklega fyrir skilaboð til Bergs og borgarstjóra, að ég væri tilbúinn að mæta hjá þessari svo- kölluðu stjórn endurskoðunar- deildar strax eftir helgi. Ég hafði nokkru áður verið beðinn af borg- arendurskoðanda að aðstoða hann við að reyna að skilja greinargerð upp á 22 síður. Voru það skráðar yfir 300 húsbyggingar allar götur frá 1965. Eg kom strax næsta morgun (14). jan.) og útskýrði málið fyrir honum, en það held ég að hafi tekið nær 3 klst. 10. Mér er sem sagt fagnaðar- efni, að þetta mál skuli nú komið í hendur manna. sem ég hef alla ástæðu til að halda, að hafi vit og dómgreind. Eg hefði ekki viljað liggja undir þvf alla ævi, að „mál- inu“ hafi verið stungið undir stól, mér hlfft o.s.frv. af borgarráði og „vinum mfnum". 11. Þessi grein er orðin alltof löng, en hún er aðeins brot af því, sem ég gæti sagt af lífinu í Austurstræti 16 frá 1949. Það er ekki ómerkur þáttur af sögu Reykjavíkur. 12. Að lokum vil ég segja þetta og beini þá máli mfnu til mfns gamla húsbónda Gunnars Thor- oddsen, sem er félagsmálaráð- hcrra og þar með yfirmaður sveitastjórnarmála f landinu. Getur hann látið það viðgang- ast, að æðstu stjórnendur borgar- innar, brjóti opinberlega stjórnar- skrá landsins og hegningarlög? Getur maður, sem hefur tekið Framhald á bls. 37. Næst slðasti da

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.