Morgunblaðið - 07.02.1978, Side 37

Morgunblaðið - 07.02.1978, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRUAR 1977 37 — Hart í bak . . Framhald af bls. 35 í stúf við aðrar persónur í fyrsta þætti. ekki vegna leiks sins, sem réttlætti hann svo sannarlega í siðari framgöngu sinni, þegar hann og viðhorf hans eru raunverulega skýrð, heldur vegna þess hve ger- ólikur hann er hinni rótlausu samtíð, óbifanlegur i viðhorfum sinum til guðdómsins á hverju sem gengur Sjómaðurinn sjálfur, Svavar Óskars- son, sigldi skútu sinni þarna ódeigur um úfinn poll, veiðimaður á hverju sem gekk Pétur kennari, umvandarinn, leið- beinandinn, er nokkuð stirður í fyrsta þætti, sem má eftilvill skrifast á reikning leikstjórans Hann og af- staða hans þarf að mótast betur strax í upphafi leiksins, því hann nær ekki samhygð áhorfenda fyrr en í lokin er hann veðjar á réttan hest Járnsmiðnum Unnsteini Kristins- syni, sem er annar af leikendunum nú, sem áður hefir leikið hjá Litla leikfélaginu, skólastjórinn i Koppa logni Jónasar, tókst bezt upp er hann snaraðist burt af sviðinu i lokin, en það var lika hans stóra stund. Nú fara stjörnurnar að Ijóma skærar þarna suður i Garði Inga Stefánsdóttir, sem starfar sem verkamaður, handlangari, mannleg skurðgrafa með skóflu hjá íslenzkum aðalverktökum uppi á velli, gengur hér fram sem Árdis, dæmigerð kvenvera, enn óskekin af hrolli lifs- baráttunnar, sautján ára föðurleys- ingi, nýbúin að missa móðurina, leitandi föðursins, en skynjandi af innsæi sinu að þar sem hann hefir aldrei fengið að takast föðurhlutverk á hendur, kann hann ekki að vera faðir, foreldri, og af vorkunnsemi sinni og eðlislægri elsku, fórnar hún tilkalli sinu til hans. Inga túlkar þessa skiru sál vel, umhyggjusemi hennar og ást á öllu sem minna má sín, jafnvel föðurnum sem ekki kann að vera faðir Henni förlaðist aldrei i viðureign sinni við Láka, og um- breyting hans var eðlilega skýrð vegna eiginleika þeirra er í henni búa Hér ris Jökull hátt i persónu- sköpun Einar Tryggvason, vörubilstjóri i Garðinum, leiðir Finnbjörn fyrir sjónir okkar og gerir honum góð skil Honum tekst meira að segja að- sýna fram á minnim^Morke'nnd hans oaonvori samborgurum sinum, með mænandi hundsaugum á ástkonu sina, draumadis allt frá unglingsár- um, fjötraður í umhverfi sínu, en brýst um af rammri karlmennsku sinni Nýliði á sviði sem tókst ákaf- lega vel að skila frumraun sinni. Það sama verður sagt um Ingi- björgu Gestsdóttur, húsmóður, sem sinnir þeirri nauðsynlegu samfélags- þjónustu að lesa af rafmagninu og rukka það, ásamt þvi að bera út póst til Garðbúa Meðferð hennar á Ár- óru, með þörf hennar á sjálfstæði og sjálfræði i umhverfi sinu, er einlæg og sönn Hún siglir lika sinn sjó, ein á báti í þess orðs fyllstu merkingu, alandi önn fyrir sér og sinum á sinn hátt, með tjáningarsvið sitt á kristi- legri samkomu, berandi vitni, vit- andi að.Guð skilur allt, alls ófeimin og afsakar ekkert Hér tekst Jökli einnig vel að skila raunveru tilver- unnar i mannlifinu, eins og með tveim næstu persónum, sem eru meistaraverk Áróra leggur sitt fram til að mynda og móta þær tvær, föður sinn og soninn Ingibjörg átti sviðið hvað eftir annað, en einna helzt er hún leiddi fram fortið sina og lifshamingju, stolt og fagnandi i örbirgð sinni. ,Já, þeir ortu um mig ” Hólmberg Magnússon, sem er sjálfmenntaður músikant, en verka- maður daglega, skilar hlutverki Láka með glæsibrag Svipbrigði öll ná að lýsa sálarlifi þessa viðkvæma, djúpt særða unglings. sem sér hreiðrið sem augljósa rúst, albúinn að fljúga út i framtíðina, en áttavilltur unz hann kynnist Árdisi Hólmbert spil- aði á bassa i Bóthildartriói i fyrra hjá Litla leikfélaginu, og hann nær full- um samhljómi á sinn bassa i þetta skiptið. sem undiralda móður sinnar og afa, kennarans og Árdísar, og á sinn fulla þátt i þvi öldusogi sem líf þeirra bifast á Liðugur hæfileika- maður, Hólmberg, og á eflaust eftir að beita sér á fleiri sviðum Þótt ég hafi i upphafi þessa leik- dóms lýst öldungnum sem baksvið- inu, þá er hann einnig loginn og Ijósmetið í þessan stjörnusýningu i Garðinum Ólafur Sigurðsson, byggingaverkamaður, sýnir með túlkun sinni á Jónatan strand- kapteini svo stórkostlega leikhæfi- leika að með fádæmum er Blindan, svo erfið i túlkun, var i hverri hans hreyfingu og svipbrigðum. röddin, hugsanirnar sem tættust frá honum, sorg hans og hryggð yfir strönduðu þjóðarskútunni, stolt hans og hóg- værð, undarleg samtvinnun, hélt áhorfendum i hendi hans frá upp- hafi til enda leiks Hér er á ferðinni mikill og hæfileikarikur túlkandi. og það er ekki síst vegna framlags hans, sem þessi sýning i Garðinum Ijómar eins og stjarna í skammdeg- inu Leiktjöldin eru gerð af Steinþóri Sigurðssyni listmálara. og leikstjór- inn. Svavar Helgason, má vera stolt- ur af árangri erfiðis sins og leiðbein- inga yfirleitt Hjá þvi verður ekki komist. við að verða vitni að slikum afburða leik sem sýning þessi í heild sinni er, að sú tilkenning vakni, — hvilik sóun að festa ekki þessa túlkun á filmu — Allir leikendurnir lýstu yfir áhuga sinum að viðhalda starfi Litla leikfé- lagsins, sem var endurlifgað i fyrra, eftir áratuga svefn, þegar Una okkar i Garði hætti að geta leitt það og stýrt þvi. Sú samfélagsþjónusta sem slikt leikstarf veitir er svo sannarlega meira en „menningarviðleitni ', hún stofnar til gagnkvæmrar vináttu og samhygðar á örskömmum tíma, leiðir fram hjálpsemi hvers við ann- an, við að koma frá sér tjáningu sinni, sem er ein af æðstu frumhvöt- unum, og örvar og eflir hugarþor og skyn á allan hátt Varla er það tilgangur skattyfir- valda að skatta slika viðleitni, slikt sjálfboðastarf? Hvers vegna er þess- um söluskatti sem tekinn er af ágóða miðasölu ekki veitt i sameig- inlegan sjóð til þess að kvikmynda með slíkan afburða árangur sam- hents en fámenns leikfélags? Vel yrði það eflaust metið í öðrum landshlutum, að fá slikar leiksýning- ar sem koma frá hinum ýmsu áhugamannahópum um land allt. inn á sjónvarpsskerm sinn á kom andi árum, að nú ekki sé talað urr að nýta slikan sjóð til að standa undir kostnaði við þýðingar á slikum meistaraverkum sem nú eru að fæð- ast með þjóðinni, og koma þeim á framfæri erlendis Ég hvet alla Suðurnesjabúa og ibúa Stórreykjavikur til þess að fá sér ökuferð suður í Garð næstu daga Vegurinn er beinn *>& toreíðúr og versty atstaðin. Þar eigið »þið kost á því að hryggjast með hryggum og gleðjast með glöðum yfir geislum umhyggjusemi og von- ar Njótið verka meistaranna, Jökuls og Litla leikfélagsins i Garðinum! Erla Guðmundsdóttir — Lífríki Framhald af bls. 34. 1870, eru nú alsett kræklóttum dauöviði", segir „Newsweek" hinn 19. september f. á. Aðrar þjóðir hafa ekki verið neinir eftirbátar Bandaríkja- manna i að loka augunum fyrir varnaðarvitum, nema siður sé, eins og sjá má af þvi, að árlega umhverfast 5—7.000.000 ha í eyðimerkur. Rúmlega 1/5 yfirborðs jarðar er eyðimerkur eða auðnir, sem stöðugt þenjast út, ekki sizt vegna áfergju iðnaðar af ýmsu tagi i trjávið til margs konar framleiðslu, m.a. pappírsfram- leiðslu. Þannig torgar t.d. sunnudags- útgáfa „The New York Times“ 350 ha af skógum Kanada 52 sinnum á ári hverju. Og allt ber að sama brunni — — jafnframt því að skógarnir eyðast, hækka blöð og tfmarit í verði; náttúruránsskapur hefn- ir sin í mynd verðbólgu og at- vinnuleysis reglustjóra, að fulltrúar borgar- endurskoðunar hefðu leitað i skrifborði hans. Nokkru síðar kom Páll hins vegar á ritstjórn Mbl. og afhenti skriflega athuga- semd sama efnis. Var hún birt næsta dag. Að sjálfsögðu var ekki ástæða til að birta lika fréttina, sem byggðist á simtali okkar. - Vidskipti Framhald af bls. 14. þeim sí auknu kröfum, sem t.d. lánastofnanir gera til viðskipta- vina sinna. Ég ætla svo að ljúka þessum sundurlausu þönkum með því að lýsa þeirri skoðun minni að við séum á réttri leið I að bæta enn stjórnun fyrirtækja. Dálftið hefur áunnist, en til allrar hamingju er enn mikið óunnið, því hvað er gaman að lífinu án baráttu. Það mætti ef til vill heimfæra orð Churchills, þau er hann mælti er innrásin hófst: „Þetta er ekki endirinn, þetta er ekki einu sinni byrjunin á endinum, en þetta er endirinn á byrjuninni." — Kvikmynda- hátíð Framhald af bls. 20 istans í stað þess að varpa honum frá sér. Það er afleikurinn — BVS P.S. Af fljótfærni varð undirrituðum það á í umsögn um myndina Stroszek á sunnudag að ruglast á þeim kumpánum Frankenstein og Dracula Herzog er nú að gera mynd um Dracula. sem auðvitað er ekki síður utangarðsmaður en Franken- steín. Eru lesendur beðnir velvirð- ingar á þessum mistökum og von- andi erfa þeir kumpánar þessi mis- tök ekki við mig — bvs. isins, ályktar sambandsstjórnar- fundur Rafiðnaðarsambands ís- lands eftirfarandi: Rafiðnaðarsamband íslands hefur frá stofnun sambandsins barist fyrir aukinni verkmenntun svo og því að gildi verklegra starfa sé metið að verðleikum. Sambandsstjórnin telur það ekki i samræmi við þessa megin- stefnu að dregið sé úr gildismati verklegra starfa með skerðingu á réttindum iðnaðarmanna, svo sem stefnt er að með frumvarpi þessu. Sérstaklega bendir sambands- stjórnin á að þegar fjallað er um iðnréttindi og iðnaðarstörf verður að taka tillit til mikilvægis lög- giltra iðngreina hverrar úm sig, þar sem mjög mismunandi kröfur eru i raun gerðar til hinna ýmsu greina, bæði hvað þekkingu snert- ir og ábyrgð. Sambandsstjórnin varar við þvi, að nokkrar þær breytingar verði gerðar á núverandi lögum um iðju og iðnað sem stefnt geti gildi verkmenntunar og framtíð iðnaðar í voða. Sambandsstjórn lýsir yfir sér- stakri andstöðu við 8. gr. frum- varpsins svo og það ákvæði um að fella niður heimild gildandi laga til að áskilja próf frá meistara- skóla sem skilyrði fyrir meistara- réttindum. — Greinargerð frá Páli. . . Framhald af bls. 5. sína verðskuldaða doktorsgráðu út á „friðhelgi einkalífs“ látið það viðgangst, að bæði ég undirritað- ur og mitt fólk þurfi vikum saman að liggja undir ofsóknum óvand- aðra manna í borgarkerfinu. Þær ofsóknir eru náttúrlega kostaðar af fé okkar allra Reykvíkinga. Reykjavik, 5. febrúar Páll Lfndal Athugasemd frétta- stjóra ÞAD ER rétt, að Páll Líridal átti sfmtal við mig. Höfuðatriðið í frétt, sem ég skrifaði að þvi loknu, var, að Páll hygðist kæra þá þegar um kvöldið til ríkislög- — Vesturveldin Framhald af bls. 46. um frá Benelux-löndunum er boð- ið að fylgjast með. Sérfræðingarnir munu hafa takmarkaða yfirsýn yfir heræf- ingarnar ef tekið er mið af fyrri æfingum en þeir hafa þó mögu- leika á hagkvæmu sambandi við sovézka liðsforingja. Bandarikja- menn og Bretar senda tvo sér- fræðinga hver. — Nicaragua Framhald af bls. 47. muni ekki láta af völdum, en fjöl- skylda hans hefur nú setið á valdastjóri í landinu í samfleytt 42 ár. Kosningaúrslit þau, sem nú liggja fyrir í byggðakosningun- — 'Rafiðnaðar- sambandið Framhald af bls. 36. um, komu fæstum á óvart. Frjáls- lyndi þjóðernissinnaflokkurinn, sem styður Somoza fékk yfirgnæf- andi meirihluta greiddra at- kvæða, eða 136 þúsund, Ihalds- flokkurinn, sem er eini leyfði stjórnarandstöðuflokkurinn, fékk 7 þúsund atkvæði. Haft er eftir opinberum talsmanni Somoza að forsetinn sé hinn ánægðasti með kosningaúrslitin. — Rhódesía Framhald af bls. 47. Rhódesiu, þótt augsýnilega væru mörg ljón á veginum. Hann sagði að annar fundur yrði haldinn með Þjóðarfylkingunni þegar þess yrði þörf. Owen sagði að viðræður Smiths og ANC í Salisbury hefðu verið spor i rétta átt og sagði að viðurkenning Smiths á jöfnum kosningarétti benti til að Smith hygðist reyna samningaleiðina til þrautar. Undanfarið hafa viðræðurnar i Salisbury að mestu snúist um hvernig kosningu hvítra manna á þing skuli vera háttað. Samkomu- lag hefur náðst í meginatriðum um að 100 menn skuli sitja á þingi og þar af 28 hvitir. Er það gert til að hvítir menn geti komið í veg fyrir breytingar á stjórnarskránni sem skerði hagsmuni þeirra. Babb hefur hins vegar komið i bátinn vegna þeirrar afstöðu Muzorewa biskups, leiðtoga ANC, að svartir menn skuli kjósa bæði hvita þingmenn og svarta. Nkomo hefur sagt, að bardagar muni halda áfram þó svo samningaviðræður standi nú yfir, en hann sagði í dag að 11.200 málaliðar berðust með herjum hvíta minnihlutans. Þar af væru 4.500 frá Suður-Afríku, 2.300 frá Bandaríkjunum, 2.000. Bretar, 1.800 Frakkar og töluverður fjöldi Portúgala og Vestur- Þjóðverja. Nkomo sagði að mála- liðarnir væru dreifðir um alla Rhódesíu, en flestir væru í Sambesí-dalnum, „vegna þess að málaliðarnir halda að skæru- liðarnir berjist gegn vilja fólks- ins“. m Glæsilegu hertogahúsgögnin Nýkomið <8> Ekki bara skápasamstæður. heldur einnig fáanlegur fjöldi annarra glæsilegra muna á sérlega hagstæðu verði ..Old Charm" verður ekki lýst með orðum. — Komið og skoðið aldrei meira úrval Tryggið ykkur Old Charm strax i dag. DUNA Síðumúla 23 - Simi 84200

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.