Morgunblaðið - 09.02.1978, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. FEBRUAR 1978
5
Kvikasilfur hef-
ur ekki fundizt í
appelsínum hér
MORGUNBLAÐIÐ spurðist fyrir um
niðurstöður rannsókna á appelsínum
hjá Hrafni Friðrikssyni, forstöðu-
manni Heilbrigðiseftirlits ríkisins, en
sýni er tekin voru hjá innflytjendum i
síðustu viku hafa verið til rannsókn-
ar hjá Rannsóknastofnun fiskiðnað-
arins.
Hrafn Friðriksson sagði að niður-
stöður sýndu að ekkert óeðlilegt væri
við þær appelsinur er rannsakaðar
hefðu verið. að í þeim væri ekki óeðli-
legt kvikasilfursmagn Þá sagði hann
að landlæknir og heilbrigðiseftírlitið
hefðu sent fyrirspurnir til heilbrigðisyf-
irvalda Hollands og Þýzkalands og Al-
þjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar og
beðið um frekari upplýsingar um þess-
ar fréttir og hafa borizt svör frá þeim.
Eru svörin á þá leið að sprautað hefur
verið kvikasilfri í appelsínur og að
engin alvarleg eitrunartilfelli hafi kom-
ið upp, en vitað er um nokkur tilfelli
þess að fólk hafi byrjað að borða
appelsínur án þess að hljóta nokkurt
varanlegt mein af. Það virðist einnig
vera Ijóst. sagði Hrafn að hér er um að
ræða nokkrar appelsínur. sem hafa
fundizt í Hollandi, Vestur-Þýzkalandi
og ein í Sviþjóð. Er þetta væntanlega
staðbundið og er um að ræða ísraelsk-
ar Jaffa-appelsinur er farið hafa gegn-
um Holland. Ef sprautað hefur verið
kvikasilfri i þær ætti það að sjást auð-
veldlega, en hins vegar ef sprautað
hefur verið i þær kvikasilfursblöndu
sem litar appelsinur lita þær út eins og
þær væru myglaðar og sjálfsagt er að
fólk neyti þeirra ekki. Hafa heilbrigðis-
yfirvöld í þessum löndum varað fólk
við að neyta skemmdra appelsína
Hrafn sagði ennfremur að heilbrigð-
iseftirlitið hefði lagt það til við ráðu-
neytið að innflytjendur yrðu að sjá til
að tekin væri sýni úr appelsínum og
rannsökuð til að minnka hættuna á því
að inn verði fluttar skemmdar appeisín-
ur.
Mikil aðsókn að Hans og Grétu
LEIKFÉLAG Vestmannaeyja hefur að undanförnu sýnt barnaleikritið
Hans og Grétu við mjög góða aðsókn f Bæjarleikhúsinu f Eyjum, en
alls koma fram um 20 leikarar f sýningunni. Leikstjóri er Sigurgeir
Scheving. Næstu sýningar eru f kvöld, fimmtudag, kl. 20,30 og á
Iaugardag og sunnudag kl. 4. Meðfylgjandi myndir tók Sigurgeir
Ijósmyndari f Vestmannae.vjum af leikarahópnum og nokkrum sératr-
iðum.
Athugasemd frá
Vegagerd ríkisins
„VEGNA fréttar Morgunblaðsins
af strandi vb. Hafrúnar f Arnar-
firði og viðbrögðum rekstrar-
st jóra Vegagerðar rfkisins á svæð-
inu við ósk um snjómokstur yfir
Hálfdán frá Tálknafirði til Bíldu-
dals og á Ketildalavegi frá Bfldu-
dal að strandstað við Austmanns-
dal, skal eftirfarandi tekið fram:
1. Sú fullyrðing, að hafnað hafi
verið þeirri ósk „að ryðja veginn
áfram út að strandstað (Ketildala-
veg)“, er röng. Staðreyndin er sú,
að vegurinn var ruddur, og til
marks um skjót viðbrögð Vega-
gerðarinnar skal bent á, að haft
var samband við rekstrarstjórann
um kl. 15.30 á fimmtudag og milli
kl. 19 og 20 var veghefill frá Pat-
reksfirði kominn á strandstað.
Hafði hann þá farið um 46 km leið
og rutt snjó af fjallvegi á Ieiðinni.
2. Fullyrt er ennfremur að odd-
vitinn á Bíldudal hafi óskað eftir
mokstri yfir Hálfdán af öryggis-
ástæðum, „en fengið þau svör að
slíkt væri ekki unnt nema séð
væri til þess að Vegagerðin þyrfti
ekki að bera kostnað af þeim
mokstri . . .“ Nú vill svo til að
Vegagerðin mokar Hálfdán einu
sinni í viku skv. snjómoksturs-
reglum útgefnum af Samgöngu-
málaráðuneytinu. Sá moksturs-
dagur er á mánudögum ef veður
leyfir. Rekstrarstjórum Vega-
gerðarinnar er ekki heimilt að
moka oftar en reglurnar segja til
um, nema til komi greiðsla, að
hálfu eða öllu leyti eftir aðstæð-
um, frá þeim aðila, sem óskar
eftir mokstrinum. Vegna stöðu út-
gerðarmanns Hafrúnar sem odd-
vita á Bildudal hlýtur honum að
vera kunnugt um ofangreindar
Framhald á bls. 30.
Lítill munur á vigt
og áætluðu magni
Leiðrétting
VEGNA fréttar I blaðinu 2. febr.
s.l. hefur blaðinu borizt yfirlit frá
Sfldarverksmiðjum ríkisins um
áætlað og vegið loðnumagn frá
verksmiðjunum á Siglufirði í
janúar.
A yfirlitinu sést að munur er
yfirleitt litill á áætluðu magni og
því sem mælist, og vigtin oft
meiri en áætlað er.
I fréttinni eru tilgreindir 5 bát-
ar, sem lönduðu á tímabilinu frá
25.—28. janúar, og var ekki farið
rétt með áætlað magn tveggja
þeirra.
Samkvæmt yfirliti Sildarverk-
smiðjanna lítur þetta þannig út:
Aætlað Vigt
Gfsli Árni RE 550 535.9
Pétur Jónsson RE 420 422,6
Skarðsvfk SII 200 188.4
Kap 2 VE 100 108,9
Pétur Jónsson RE 250 242,1
í frétt blaðsins var áætlað magn
Péturs Jónssonar RE sagt 440 í
fyrri löndun og áætlað magn Kaps
2 130 tonn.
Það var ekki aS sjá aS hin nýju tlmamörk háðu Polugaevsky. þegar
hann tefldi viS GuSmund Sigurjónsson I fyrradag, en þá skák vann
hann örugglega. Ljósm Mbl : RAX
„Fyrri tímamörk-
in mjög hættuleg”
— segir Lev Polugaevsky —
„PERSÓNULEGA er ég
ekki sáttur við þessa nýju
skipan, en hins vegar er
hún athyglisverð tilraun og
það er út af fyrir sig áhuga-
vert að taka þátt í henni,"
sagði sovézki stórmeistar-
inn Lev Polugaevsky, er
Mbl. ræddi við hann eftir
fjórðu umferð Reykjavíkur-
skákmótsins, þar sem Polu-
gaevsky sigraði Guðmund
Sigurjónsson mjög örugg-
lega.
,,Mér finnast fyrri tímamörkin, 30
leikir á einni og hálfri klukkustund.
mjög hættuleg, einkum fyrir sterka
skákmenn, sem kjósa að gaumgæfa
mjög áætlun sína frá 1 5 í 30 leik
Þessi tímamörk kreppa mjög að
þeim, eins og skák mín gegn
Browne í fyrstu umferð sýndi, en
þar missti ég af auðveldu jafntefli
við 30 leikja mörkin og tapaði
Hins vegar tel ég hina breyting-
una, 50 leiki á tveimur og hálfum
klukkutíma í stað 40, til bóta og
hugsa að hún verði lifseigari á meiri
háttar mótum en 30 leikja markið
Auðvitað geri ég mér Ijóst að
áhorfendur hafa helmingi meiri
ánægju af að sjá okkur skákmennina
berjast við tvö timamörk heldur en
eitt En hitt er líka athyglisvert,
hvaða áhrif þetta hefur á skákina
sjálfa."
Vitni vantar
að árekstri
milli strætis-
vagns og olíu-
flutningabíls
Mánudaginn 16. janúar s.I.
klukkan 10.40 varð árekst-
ur á Miklubraut rétt
vestan gatnamóta Skeiðar-
vogs og Réttarholtsvegar.
Strætisvagn var á leiö
vestur Miklubraut og lenti
hann í árekstri við olíu-
flutningabíl, sem ók suður
Skeiðarvog og beygði inn á
Miklubraut til vesturs.
Nokkrir kyrrstæðir bílar
voru á Miklubraut austan
gatnamótanna og eru það
tilmæli slysarannsókna-
deildar að vitni í þeim
bílum gefi sig fram, því
mönnum ber ekki saman
um stöðu umferðarljós-
anna. Síminn er 10200.
Rithöfundavaka
FÉLAG fsl. rithöfunda hcldur
aðra kvöldvöku sína og bók-
mcnntafund f vetur að Hótcl Esju
I kvöld, fimmtudag. kl. 8.30.
Kvöldvakan veróur með nýju
sniði. Koma fram 12 rithöfundar
og lesa stutta kafla úr verkum
sínum.
Nýr kröftugur KENWOOD KR-4070.
Lágmarks afl við 8 ohm 2 x 40 RMS wött frá 20 - 20000 Hz, bjögun mest 0.1%.
Verð aðeins kr. 119.430.—
Aö eignast þetta reginafl, með hinu víðfræga KENWOOD útvarpi ásamt fjölda
af fágætum eiginleikum, fyrir slíkt verð, er einsdæmi.
Hvernig getur KENWOOD þetta?
Það er nú einmitt það sem Pioneer, Marantz o.fl. velta vöngum yfir.
Nýr kröftugur KENWOOÐ KR-4070
NÚ FÆRÐ ÞÚ ÞÉR ^KENWOOD
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670