Morgunblaðið - 09.02.1978, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. FEBRUAR 1978
21
slíkra ráðstafana er gengisbreyt-
ingin ein sér skammgóður vermir.
Ætlunin að
stöðva gengissig
Einnig er rétt að taka það fram,
að með þessari nýju gengis-
ákvörðun er ætlunin að víkja frá
þeirri stefnu í gengismálum, sem
fylgt hefur verið síðustu þrjú ár-
in, en á því tímabili hefur verið
reynt að varðveita samkeppnisað-
stöðu atvinnuveganna með hæg-
fara breytingum á gengisskrán-
ingunni, er nægðu til þess að
jafna samkeppnisaðstöðu fyrir-
tækja hér á landi og í helstu við-
skiptalöndum okkar, þar sem
verðbólga hefur verið miklu
minni. Þótt þessi stefna hafi að
ýmsu leyti reynst vel, hefur hún
óneitanlega haft þann ókost að
draga úr aðhaldi um verðlags- og
launaþróun hér á landi. Hún hef-
ur heldur ekki reynst þess megn-
ug að jafna metin, þegár stórfelld-
ar breytingar verða á innlendum
kostnaöi, eins og átti sér stað á
Geir Hallgrfmsson, forsætisráðherra, flytur framsögu sfna með stjðrn-
arfrumvarpi um ráðstafanir vegna breytingar á gengi íslenzku krón-
LjUl'
ráðstöfunum
a atvinnu, hamla gegn verð-
itöðu þjóðarbúsins út á við
síðastliðnu ári. Hefur því nú verið
horfið að þvi ráði að leiðrétta þá
skekkju, sem auðsjáanlega er orð-
in í gengisskráningunni, með því
að leiðrétta gengið í einu skrefi.
Jafnframt er það ætlun ríkis-
stjórnarinnar að stöðva frekara
gengissig, þar sem hún telur, að
stöðugt gengi geti við núverandi
aðstæður og i samhengi við aðrar
ráðstafanir orðið til þess að draga
verulega úr þeirri verðbólguþró-
un, sem nú hefur náð tökum á
hagkerfinu.
Frumvarpið
Mun ég nú víkja að einstökum
atriðum í því írumvarpi, sem hér
liggur fyrir. Meginatriði þess er,
að gert er ráð fyrir að gengismun
af útflutningsbirgðum sjávaraf-
urða verði varið til lausnar sér-
stakra fjárhagsvandamála innan
sjávarútvegsins. Fyrst og fremst
er talið mikilvægt að efla fjárhag
Verðjöfnunarsjóðs en einnig að
ætla nokkuð fé til þess að greiða
fyrir hagræðingu í fiskiðnaði og
létta stofnfjárkostnaðarbyrði
fiskiskipa. Þörfin fyrir hið síðast-
nefnda er þó ekki jafn mikil og
oftast áður vegna þess, að hagur
fiskveióa er nú allgóóur. Hins
vegar eru gengistryggðar skuldir
flotans miklar að vöxtum. Þörfin
fyrir hagræðingu í fiskiðnaði er
brýn, ekki síst þar sem gengis-
ákvörðun og aðrar tekjuákvarðan-
ir í sjávarútvegi sníða fiskiðnað-
inum það þröngan stakk, að leita
þarf allra leiða til þess að bæta
skipulag um framleiðni í grein-
inni.
Lauslega áætlað er talið, að
alls gætu komið um 2.100 milljón-
ir króna í gengismunarsjóðinn og
er þá ekki reiknað með tekjum af
skreið eða ógreiddum saltfiski,
sem seldur var til Zaire, og einnig
dregið frá það, sem greitt skal
skv. 2. gr. frumvarpsins til ríkis-
sjóðs vegna Verðjöfnunarsjóðs.
Fé þetta mun skiptast i aðalatrið-
um þannig að:
1) Verðjöfnunarsjóður
fengi um 1.300 m.kr.
2) Til að létta stofn-
fjárkostnað fiski-
skipa færu um 450 m.kr.
3) Til hagræðingar
í fiskiðnaði
færu um 350 m.kr.
SAMTALS 2.100 m. kr.
Það skal tekið skýrt fram, að
það fé, kr. 350 m.kr. að varkáru
mati sem ætlað er til að stuðla að
hagræðingu í fiskjðnaði, mun
koma til viðbótar þeim 500 m.kr.,
sem rikisstjórnin hefur beitt sér
fyrir að verði til reiðu sem sér-
stakt lánsfé frá Byggðasjóði á
þessu ári til að bæta fjárhag og
skipulag fiskvinnslufyrirtækja,
sem átt hafa í rekstrarerfiðleik-
um. En þau lán eiga á hverjum
stað að miða að betri nýtingu hrá-
efnis, fjármagns og starfskrafta
en ekki aukningu afkastagetu.
Möguleikarnir til að leysa vanda
fiskvinnslunnar hafa því batnað
að mun.
Eg mun nú gera grein fyrir
einstökum greinum frumvarps-
ins.
I fyrstu grein eru
svo sem venja hefur verið við
gengisbreytingar settir frestir um
tollafgreiðslu, en að öðru leyti
gilda almenn ákvæði tollskrár-
laga um tollmeðferð skjala, eftir
að hið nýja gengi tekur gildi.
Við útflutning, vegna þeirra af-
urða, sem framleiddar hafa verið
fyrir áramót en ekki fluttar út
fyrr en eftir gengisbreytinguna.
Ennfremur þykir eðlilegt, að
greitt verði af gengismun, áður en
honum er ráðstafað, það, sem
rfkissjóður hefur vegna fram-
leiðslu ársins 1976 greitt til
Verðjöfnunarsjóðs. Er hér um að
ræða 174 milljónir króna.
í þriðju grein
er fjallað um ráðstöfun á gengis-
munarsjóði. Nokkur óvissa ríkir
um það, hversu mikið fé hér verð-
ur um að ræða, þar sem miklar
birgðir eru af óseldri skreið og
alger óvissa ríkir um hvernig
kunni að seljast eða hvenær.
Sama máli gegnir um verkaðan
saltfisk, sem sendur var til Zaire
og ekki hefur fengist greiddur
enn. Ekki er þó óliklegt, að
heildarverðmæti birgða og þess,
sem ógreitt er en þegar flutt út,
geti numið um 18 milljörðum
króna og er þá hvorugt þess, sem
hér var nefnt talið með sakir
óvissu.
Ennfremur eru ákvæði um ráð-
stöfun á gengismunarsjóði. Gert
er ráð fyrir, að 65% af því fé, sem
kemur í sjóðinn af verðjöfnunar-
afurðum, renni til viðkomandi
deilda hans. Mikil þörf er á að
efla Verðjöfnunarsjóð, sem á und-
anförnum árum hefur orðið að
taka á sig skuldbindingar sem
hafa verið bein afleiðing af kostn-
aðarhækkunum framleiðslunnar
innanlands. Því er eðlilegt, að
þegar genginu er breytt til að
vega upp á móti innlendum kostn-
aðarhækkunum, þá renni hluti af
þeim gengismun, sem til verður,
til Verðjöfnunarsjóðs. Einnig
virðist eðlilegt, að stofnuð verði
sérstök deild við Verðjöfnunar-
sjóð fyrir saltsíld, þar sem fram-
leiðsla hennar virðist nú komin á
öruggan grundvöll og fer vaxandi.
Gert er ráð fyrir, að hluti af
gengismun vegna saltsildar renni
í þessa nýju deild sem stofnfram-
lag.
Þvf fé, sem þá er eftir i gengis-
munarsjóði ásamt því, sem til fell-
ur af öðrum sjávarafurðum, skal
síðan að hluta varið til að létta
stofnkostnaðarbyrði eigenda
fiskiskipa, sem orðið hafa fyrir
gengistapi vegna erlendra og
gengistryggðra skulda. Við fyrri
gengislækkanir hefur hluta
gengismunar einnig verið ráðstaf-
að á þennan hátt og þykir ekki
óeðlilegt, að eigendum fiskiskipa
verði bættur að nokkru sá út-
gjaldaauki, sem af gengislækkun-
inni leiðir, þar sem itkuldir þeirra
eru að mestu gengistryggðar.
Að hluta verður þessu fé síðan
ráðstafað til að greiða fyrir hag-
ræðingu i fiskiðnaöi. Enda þótt
miklum fjármunum hafi á undan-
förnum árum verið varið til
endurbóta í fiskiðnaði er brýnt að
auka hagræðingu og bæta fram-
leiðni á ýmsum sviðum.
Gert er ráð fyrir að sjávarút-
vegsráðuneytið setji nánari regl-
ur um notkun þessai hluta gengis-
munarsjóðs.
Ekki þykir ástæða til að setja
hliðstæð ákvæði vegna annarra
útflutningsgreina; einkum af þvi
að þar er ekki um að ræða sömu
forsendur um skiptingu fram-
leiðslunnar á tvö stig, veiðar og
vinnslu, þar sem annað stigið,
vinnslan, nýtur að óbreyttu alfar-
ið gengismunar, né heldur er þar
um að ræða jöfnunarkerfi af þvi
tagi sem Verðjöfnunarsjóður er.
í landbúnaði verður gengis-
breytingin tekin beint til þess að
lækka þörfina fyrir útflutnings-
bætur og verður ekki varið betur.
Þar er ekki þörf fyrir sjóðmynd-
un.
Að svo mæltu vil ég leyfa mér
að leggja til að frv. þessu verði
vísað til 2. umr. og hv. fjh,-
og viðsk.n.
Samtök migraine-
sjúklinga stofnuð
Káúunauíar siaribim-mi viu laiiuuuiuuaiiaiiiisuMiir ræua m.a. marKaúsmái u& tfukauúf;i niui. Ljósm.
Mbl. RAX.
Hafrún dregin til Reykjavíkur
VÉLBATURINN Hafrún sem
strandaði 1 Arnarfirði í fyrri viku
er nú á leið til Reykjavlkur þar
sem báturinn verður tekinn f
slipp til fullnaðarviðgerðar.
Bráðabirgðaviðgerð var fram-
kvæmd á bátnum nú um helgina
og lauk henni á hádegi i gær, en
við hana únnu menn af kafara-
skipinu Oríon. Björgunarskipið
Goðinn kom til Bildudals um há-
degisbilið i gær og síðdegis tók
það Hafrúnu í tog áleiðis til
Reykjavíkur. Er gert ráð fyrir að
skipin verði komin til Reykjavik-
ur um hádegisbil í dag. Hafrún
mun vera allmikið skemmd, en
sem fyrr segir verður báturinn
tekinn í slipp strax við komuna til
Reykjavíkur.
— Páll
Fyrir skömmu var hald-
inn undirbúningsstofn-
fundur Migraine-
samtakanna og var á fund-
inum kannað hverjar
undirtektir væru við stofn-
un slíkra samtaka. Á fund-
inum fluttu stutt erindi dr.
med. Gunnar Guðmunds-
son yfirlæknir og Tryggvi
Jónasson kírópraktor.
Norma E. Samúelsdóttir skýrði
i stuttu máli frá þeim undirbún-
ingi sem átt hefði sér stað fyrir
fundinn. Dr. Gunnar Guðmunds-
son flutti tölu um migraine og
Tryggvi Jónasson ræddi um
möguleika hnykkingaaðferða til
að draga úr tiðni migraine-kasta
og Einar Logi Einarsson kynnti
nokkrar hugmyndir undirbún-
ingsnefndar um tilgang og stefnu-
mið samtakanna.
Þá talaði Helgi Hannesson for-
maður Samtaka sykursjúkra og
lýsti yfir ánægju sinni með það
frumkvæði sem sýnt hefði verið
með að halda þennan fund og
tóku margir aðrir fuadargestir til
máls og segir i frétt frá undirbún-
ingsnefndinni að einhugur hafi
virzt ríkja um nauðsyn stofnunar
samtakanna.
Undirbúningsnefndina skipa
þau Norma E. Samúelsdöttir,
Regfna Einarsdóttir, Einar Logi
Einarsson, María Gunnarsdóttir
og Jóhannes Jónsson. Fundinn
sóttu á annað hundrað manns og
gerðist 91 stofnfélagi.
Með ufsa
í söluferð
Roydarfirdi. 8. febrúar
BÁTURINN Gunnar kom
að veióum í morgun með 55
tonn af ufsa, og fór héðan
kl. 6 i dag í söluferð til
Þýzkalands.
Fyrsta loðnan barst hing-
að til síldarverksmiðjunn-
ar í gærkvöldi. Kom ísafold
með 735 tonn og Svanur
RE með 285 tonn. í fyrra
kom fyrsta loðnan hingar
19. janúar. _ Créta