Morgunblaðið - 09.02.1978, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. FEBRUAR 1978
31
Jón Kristjánsson frá Kjörseyri;
Fullyrðingar formanns
Dýralæknafélags Islands
og sauðfjárveikivarnir
Athugasemd við sjónvarpsviðtal
Miðvikudagskvöldið hinn 25.
janúar s.l. átti Ómar Ragnarsson
fréttamaður viðtal í fréttatíma
sjónvarpsins við formann z Dýra-
læknafélags íslands, Jón Pjeturs-
son, dýralækni á Egilsstöðum.
Viðtalið snerist að mestu um
sauðfjárveikivarnir, en einnig var
drepið á fleira.
I viðtali þessu kom fram svo
mikil vanþekking á málefnum, er
snerta sauðfjárveikivarnir og
beinlinis rangt með farið i sumum
atriðum að furðu gegnir að for-
maður D.I. skuli láta slikt frá sér
fara i fjölmiðlum. Sauðfjárveiki-
varnir og allar framkvæmdir, sem
þær annast snerta svo mjög
bændastétt landsins, að hún hlýt-
ur að vera vel á verði, þegar að
þeim er vegið og beinlinis lagt til
að þær séu lagðar niður.
Sauðfjárveikivarnir voru á sin-
um tíma stofnaðar til þess fyrst og
fremst að vinna gegn útbreiðslu
næmra búfjársjúkdóma og gera
þá útlæga úr landinu, og ég held
að flestir geti orðið sammála um
það, að mikið hefur áunnist í því
efni, þótt sumt hafi mistekist.
Því miður eru enn fyrir hendi
og nokkuð útbreiddir margír
smitandi búfjársjúkdómar og á ég
þá fyrst og fremst við þá sjúk-
dóma sem engin lyf eru til við.
Það þarf því engan að undra, þótt
maður hrökkvi við að heyra það
hjá formanni D.í. að hann telji
réttast að leggja þessa starfsemi
niður.
Jón Pjetursson hlýtur að vita
það, að hversu mjög sem honum
finnst mál þau er Sauðfjárveiki-
varnir annast snerta dýralækna
landsins, þá snerta þau bænda-
stéttina miklu meira og hún hlýt-
ur að láta sig það miklu skipta,
hvernig þau mál ráðast i framtið-
inni.
Ég ætla ekki að hafa þennan
formála lengri, en sný mér beint
að viðtalinu.
Spurningu frá Ömari varðandi
sauðfjárveikivanir svarar Jón á
þá leið, að mál þau er þær varða
hafi mikið verið rædd á fundi er
D.I. hélt i des. s.I. og einnig á
nýafstöðnum stjórnarfundi D.I.
Næsta spurning var þess efnis
að leita álits J.P. á þvi, hvernig
staðið skyldi að sauðfjárveiki-
vörnum. Svar Jóns var á þá leið,
að hann túlki fyrst og fremst sina
skoðun, en getur þess þó, að hann
búist við þvi, að hinir dýra-
læknarnir séu sér sammála. Þá
bendir hann á sem dæmi um rang-
ar framkvæmdir Sauðfjárveiki-
varna að taka eigi blóðsýni úr 30
þúsund fjár á Snæfellsnesi, vegna
þess að garnaveiki kom upp á
einum bæ vestan varnarlinunnar
þar á s.l. hausti. Þessi ráðstöfun
sé tóm della, þar hefði aðeins átt
að bólusetja allt fé, sem ekki var
þegar bólusett. Jón getur þess um
leið, að búið sé að bólusetja stóran
hluta af fé þarna á siðustu árum.
Athugum nú þessa staðhæfingu
formanns D.í. nokkru nánar. Á
Snæfellsnesi vestan varnar-
girðingar munu vera um 27
þúsund fjár og er þegar búið að
bólusetja töluverðan hluta þess.
Dýralæknirinn hlýtur þó að vita
að tilgangslaust er að taka blóð úr
Jón Kristjánsson
bólusettum kindum i leit að
garnaveikismiti, því að þær svara
allar jákvætt. Mér er hrein ráð-
gáta hvernig allt þetta sauðfé
hefur komist inn í kollinn á Jóni.
Það er raunar óþarfi að taka
það fram, að það hefur aldrei
staðið til að taka blóðsýni þarna
svo að nokkru nemi og enginn hjá
Sauðfjárveikivörnum hefur heyrt
það nefnt fyrr en hjá J.P. í um-
ræddum fréttatíma. Ég ætla að
fengnum þessum upplýsingum að
öllum ætti að vera ljóst hvorum
megin ,,dellan“ liggur. Ég ætla í
leiðinni að skjóta þeirri
spurningu til J.P. hvað hann teldi
að það tæki Sauðfjárveikivarnir
mörg ár að vinna úr 30 þúsund
blóðsýnum miðað við þann mann-
skap og starfsaðstöðu sem þar er
nú.
Þá talar J.P. um að miklu frek-
ar ætti að taka upp skipulegar
varnir þangað sem garnaveiki sé
ekki eins og á Vestfjörðum og
Öræfum. Formaður D.l virðist
vera harla fáfróður um mál Sauð-
fjárveikivarna. Hann veit ekki að
Vestfirðir og mörg önnur varnar-
hólf hafa verið varin með varnar-
girðingum og ýmsum öðrum ráð-
stöfunum i áratugi. Hitt er svo
annað mál, að illa hefur gengið að
hefta útbreiðslu garnaveikinnar
og hefur hennar orðið vart í
nokkrum varnarhólfum nú á sið-
ustu árum, sem áður voru laus við
hana þar á meðal Vestfjarðahólf.
Þar kom hún upp á Þúfum i
Reykjarfjarðarhreppi, N-Is.
haustið 1976, og er nú þegar þetta
er ritað búið að staðfesta garna-
veiki á þremur öðram bæjum i
hreppnum. Þetta hefur alveg farj
ið fram hjá formanni D.I., þótt
mikið væri á sinum tima um þetta
talað i blöðum og öðrum fjölmiðl-
um. Auk þess senda Sauðfjár-
veikivarnir dýralæknum og mörg-
um öðrum árlega skýrslu um út-
breiðslu garnaveiki á öllu land-
inu. Það litur út fyrir að formaður
D.l. hirði ekki um að lesa slíkt
plagg.
Siðar í viðtalinu kemur fram að
formaður D.I vill leggja Sauðfjár-
veikivarnir niður og færa þessa
starfsemi undir stjórn yfirdýra-
læknis og hefur gengið með þá
hugmynd i maganum i mörg ár.
Hann telur að við þá breytingu
mundu sparast peningar. Þar sem
J.P. er búinn að ganga lengi með
þessa hugmynd, verður að ætla að
hann sé búinn að gera sér grein
fyrir hvar helst mætti koma við
sparnaði. I nefndu viðtali sleppir
hann því alveg að færa nokkur
rök fyrir þessum tillögum sinum,
og er það i meira lagi undarlegt.
Rétt er að taka þessa tillögu til
nánari skoðunar. Þar er lagt til að
sú breyting verði gerð að fela
yfirdýralækni framkvæmda-
stjórastarf hjá Sauðfjárveikivörn-
um. Það starf er svo yfirgripsmik-
ið og erilsamt, að óhugsandi er að
yfirdýralæknir geti sinnt því sem
aukastarfi. En setjum svo að hann
féllist á það. Er það meining J.P.
að hann eigi að annast það án
launa?
Það kemur óbeint fram i við-
talinu að J.P. geri ráð fyrir að sú
starfsemi er Sauðfjárveikivarnir
annast sé haldið áfram, að
minnsta kosti að verulegu leyti og
virðist þvi ætlunin að starfslið
Sauðfjárveikivarna haldi áfram
störfum, nema að J.P. ætlist til
þess að yfirdýralæknir annist
þetta einn. Ég kem þvi ekki auga
á að fé sparist við þessa breyt-
ingu.
Þá er komið að varnargirðing-
unum, kannske er það þar, sem
J.P. vill spara. Um einstakar
varnarlinur má ailtaf deila, en að
leggja þær niður að meira eða
minna leyti væri að minum dómi
mjög hættuleg stefna.
Eins og er geisa hér nokkrir
smitandi búfjársjúkdómar auk
garnaveiki, sem stórir hlutar af
landinu eru lausir við. Þar er ekki
eingöngu um Vestfirði og Öræfi
að ræða eins og J.P. virðist halda.
Auka þarf þvi fremur en slaka
á vörnum gegn útbreiðslu þeirra
og það verður tæpast gert nema
með því að veita meira fé til
endurnýjunar varnargirðinga en
verið hefur. Varnargirðingarnar
munu sums staðar vera mjög lé-
legar.
Ég nenni ekki að eltast við
fleira úr þessu dæmalausa viðtali.
Ég hef hér að framan drepið á það
helsta viðkomandi Sauðfjárveiki-
vörnum, sem J.P. gerði að umtals-
efni og sýnt fram á að ekkert af
þvi sem hann sagði um Sauðfjár-
veikivarnir stenst, og sama held
ég að gildi um viðtalið allt.
Um árás J.P. á Sigurð Sigurðar-
son dýralækni, sem gegnt hefur
framkvæmdastjórastarfi hjá
Sauðfjárveikivörnum siðan
Framhald á bls. 29
stendnr nú sem hæst.
★ Popptónlist
Nýjum plötum bætt við daglega. ★ Kiassísk tóniist
músikk
★ Islensk tónlist
FALKI N N La ulgalregi^24° *