Morgunblaðið - 17.02.1978, Side 2

Morgunblaðið - 17.02.1978, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. FEBRUAR 1978 Dönsk Herkúlesvél, svipuð þeirri er Israelsmenn notuðu í Entebbeárásinni með góðum árangri, sótti okkur heim í gær — í friðsamlegum tilgangi þó. (Ljósn Mbl. Ól KJVl). Borgarstjórn: Rannsóknin snýst annars vegar um meint lát vegna lyfjagjafar — og hins vegar um misferli á lyfjaávisun segir landlæknir AF HÁLFU rannsóknarlögreglu hefur enn ekkert verið látið uppi um rann- sókn embættisins á tveimur dauðs- föllum í Reykjavík, sem grunur leik- ur á um að stafi af óvarlegri lyfja- meðferð sama læknis, eins og greint var frá í frétt Mbl. í fyrradag Vegna þessarar fréttar hefur Ólafur Ólafsson, landlæknir. beðið Mbl fyrir yfirlýsingu. þar sem fram kemur. að einungis í öðru tilfellinu er mannslátið talið geta stafað af lyfjagjöf en í hinu tilfellinu snýst rannsóknin um það hvort misferli á lyfjaávisun sé að ræða Yftrlýsing landlæknis er svohljóðandt ,.í minni tið sem landlæknir hefur ekkt komið fyrir nema eitt mál. þar sem um er að ræða grun um lát vegna •yfjagjafar 09 er það annað þeirra mála sem nú eru i athugun Hitt málið er rannsókn á því hvort um misferli á lyfjaávísun sé að ræða.” segir land- læknir Rádstefna um borgarskipulag SAMTÖK sveitarfélaga á höfuð- borgarsvæðinu hafa ákveðið að boða til ráðstefnu um skipulags- mái svæðisins á morgun, laugar- dag 18. feb. kl. 13.30—18.30. Segir í tilkynningu frá samtökunum að á ráðstefnunni verði fjallað um núverandi ástand skipulagsmála í höfuðborginni og hugmyndir um þróun þeirra. Verður ráðstefnan haldin í Valhúsaskóla og félags- heimili á Seitjarnarnesi og halda þar framsöguerindi Þorbjörn Broddason, lektor, Hilmar Olafs- son, arkitekt, og Gestur Ólafsson, arkitekt. Aðrir þátttakendur verða sveitarstjórnarmenn á höf- uðborgarsvæðinu og fulltrúar í skipulagsnefndum, svo og aðrir sem áhuga hafa. I tilkynningunni segir að reynt verði a svara spurningum eins og eftirfarandi: Hvað er átt við með skipulagi og hvert er hlutverk þess? Hvaða þörfum sveitarfélag- anna er skipulagstillögu ætlað að mæta? Er þörf á samvinnu sveit- arféláganna á höfuðborgarsvæð- inu í skipulagsmálum? Hvernig verður réttur hvers sveitarfélags tryggður með hliðsjón af heildar- hagsmunum? „Samtök sveitarfélaga á höfuð- borgarsvæðinu" segir í fréttatil- kynningu undirbúningsnefndar, Blaðamannafélagið frestar verkfalli hjá Frjálsu framtaki Blaðamannafélag tslands frest- aði í gærkvöldi verkfalli gagnvart útgáfufyrirtækinu Frjálsu fram- taki, þar sem þá hafði verið geng- ið frá drögum að samkomulagi milli þessara aðila. „voru stofnuð 4. april 1976 af 8 sveitarfélögum frá Kjalarnesi til Hafnarfjarðar. Skipulagsmál svæðisins voru frá upphafi tilefni samtakanna, enda segir í 2 gr. samþykktar þeirra „Tilgangur Framhald á bls. 27 Skipulag á Eiðs- granda samþykkt A FUNDI borgarstjórnar í gær- kvöldi var staðfest skipulag á Eiðsgranda I í öðrum byggingar- áfanga. A svæðinu er gert ráð fyrir einu 7—9 hæða fjölbýlis- húsi, 13 2ja hæða raðhúsum og ennfremur nokkrum 3ja hæða f jölbýlishúsum. Samtals verða 138 fbúðir á svæðinu. Morgun- blaðið hafði samband við Magnús L. Sveinsson, borgarfulltrúa, og spurði hann nánar um þetta mál. Magnús sagði, að sjálf úthlutun- in hefði ekki enn farið fram en taldi skammt í hana. Magnús sagði nokkrar mismunandi hug- mqndir um skipulag hafi komið en sú sem samþykkt var hefði átt mestu fylgi að fagna og uppfyllti bezt mismunandi sjónarmið þeirra aðila, sem að málinu unnu. ASÍ heldur átta svæðarádstefnur FJÖGUR verkalýðsfélög hafa nú tilkynnt skrifstofu ASl um sam- þykktir varðandi uppsagnir á launaliðum kjarasamninganna; Eining á Akureyri, Vaka á Siglu- firði, verkalýðsfélagið í Borgar- nesi og verkalýðsfélagið á Þórs- höfn. „Það hafa æði mörg félög auglýst fundi um þetta mál í kringum helgina," sagði Björn Jónsson, forseti ASi, í samtali við Mbl. í gær, „og á morgun, föstu- dag, eru til dæmis fundir hjá Dagsbrún og Sókn.“ Björn sagði, að af hálfu ASl væri nú verið að undirbúa svæða- ráðstefnur, en svæðasambönd innan ASÍ eru 8 talsins. Sagði Björn að fyrsta svæðaráðstefnan yrði sennilega haldin á ísafirði á sunnudag og siðan kæmu hinar á eftir og væri stefnt að þeim sið- ustu á miðvikudag. A þessum ráðstefnum verða vætanlegar aðgerðir verkalýðs- hreyfingarinnar ræddar og skipu- lagðar, en Björn lagði áherzlu á, að ASÍ myndi hafa full samráð og samflot með BSRB og Farmanna- og fiskimannasambandinu í þeim málum. Polugaevsky vann Larsen Á Reykjavíkurskákmótinu í gær urðu þau tiðindi helzt að Polugaevsky vann Larsen i 38 leikjum, Miles og Hort gerðu jafn- tefli einnig Friðrik og Kuzmin, og skák Margeirs og Helga fór í bið. Öðrum skákum var ólokið, þeirra Jóns L. og Ögaards, Brownes og Guðmundar, og Smeikals og Lombardy. Hraðskákmót verður haldið i Skákheimilinu við Grensásveg n.k. þriðjudag og hefst kl. 8 en þar munu ýmsir af þátttakendum Reykjavikurskákmótsins verða meðal keppenda. Síðustu fréttir: !-• Árnasorr og Ögárd gerðu jafntefli, en skákir þeirra Browne og Guðmundar og Smeikals og Lombardy fóru i bið. Góð loðnuveiði: Skákmeistarinn Polu- gayevski mun tefla fjöl- tefli við skákmenn á Akur- eyri á miðvikudagskvöld í næstu viku, og hefst fjöl- teflið kl. 20 t samkomu- salnum Félagsborg (sam- komusal starfsmanna SÍS) 60 þúsund tonn vantar enn upp á aflann í fyrra GÓÐ loðnuveiði var hjá loðnubát- unum I fyrrinótt en þá tilkynntu alls 27 bátar samtals um 10 þús- und tonn. Bezti sólarhringsaflinn til þessa var hins vegar sólar- Allt á kafi í snjó í Eyjum og Vík: Fólk í hrakningum heima við túnfótinn GÍFURLEGT fannfergi er nokkurn veginn miðsvæðis á Suðurlandi og f Vestmannaeyj- um, að því er fréttaritarar Mbl. á þessu svæði sögðu í samtali við Mbl. f gær. Sigurgeir Jónas- son í Vestmannaeyjum sagði t.d. að þar væru dæmi þess að' fólk hefði lent í hinum ótrúlcg- ustu hrakningum vegna ófærð- ar og veðurs, og Sigþór Sigurðs- son, Litla-IIvammi, skammt frá Vfk í Mýrdal, kvaðst sjálfur hafa verið veðurtepptur f Vfk allt frá því á mánudag en á þessum slóðum hefði snjóað meira eða minna frá því á laug- ardag og allt fram til gærdags- ins. I Vestmannaeyjakaupstað hefur hlaðizt upp gífurlegur snjór og kvað Sigurgeir Jónas- son dæmis þess, að skaflar þar væru allt að 3—4 metrar á hæð, og því víða myndarleg snjógöng í bænum. Hins vegar sagði hann að sögur gengju bæjarbúa á meðal um hinar ótrúlegustu hrakningar í veðrinu, sem þarna gekk yfir. „Það hefur t.d. verið sagt frá sjómanni sem kom hingað frá landi með Herjólfi til að fara í 3ja vikna skiptifrí. Það var ekk- ert að veðri þegar maðurinn sté um borð í Herjólf á meginland- inu, svo að hann var aðeins klæddur jakkafötur og blank- skóm, en þegar hann gekk í land f Vestmannaeyjum tók þar á móti honum blindbylur. Komst maðurinn við illan leik upp í miðjan bæ og fékk nætur- gistingu þar hjá mágkonu sinni. Til eiginkonu sinnar komst hann hins vegar ekki fyrr en daginn eftir. Þá gengur einnig sú saga, að núna einn morguninn hafi ung kona farið héðan að heiman frá sér árla og ætlað til vinnu. Um klukkustund síðar varð stjóri á moksturstæki var við þúst í skafli og blakandi trefil þarna skammt frá. Við nánari athug- un reyndist þetta vera unga konan, að þvi komin að örmagn- ast,“ sagði Sigurgeir. Sigþór í Litla-Hvammi sagðist enn vera tepptur í Vík í Mýrdal en hann á að fara með flokk manna til viðgerðar á sfma á Höfðabrekkuheiði strax og veðri slotar og tekizt hefur að ryðja vegi í kring. Hann kvað gífurlegan snjó hafa sett niður á svæðinu milli Múlakvíslar og Péturseyjar, enda hefði snjóað meira og minna samfellt frá því sl. laugardag og allt fram til gærdagsins, en þá seinnipart- inn virtist sem aðeins væri að rofa til. Snjóblásari frá Reykja- vík var í gær kominn á Mýrdals- sand og átti að taka þar til við að ryðja snjó strax og veður leyfði. hringinn þar á undan eða mið- vikudag þegar samtals 29 bátar tilkynntu um 12.600 tonn. Heild- araflinn er þá orðinn það sem af er þessari vertíð um 180 þúsund tonn, en var sama dag í fyrra orðinn 242 þúsund tonn. Loðnan fæst nú úti af Austur- landi og landsskipin afla í öllum Austfjarðahöfnum, og reyndar var einnig von á einu skipi til Vestmannaeyja í gær, ísafold, með fullfermi en skipið mun hafa jafnframt þurft að fá viðgerð á nót. Aflinn til Eyja bérst 3 vikum til mánuði síðar en í fyrra. Bát- arnir voru ekki farnir að tilkynna afla á tiunda timanum í gær- kvöldi. Löndunarbannið: Nýr fundur í Grimsby á sunnudag ÁKVEÐINN hefur verið nýr fundur me8 löndunarverkamönnum I Grimsby n.k. sunnudag. þar sem til umræðu verður hvort ekki sé tlma- bært að aflétta löndunarbanninu af íslenzkum fiskiskipum. sem þar hef- ur gilt fré þvi i þorskastriðinu siðasta eins og raunar i öðrum fiskihöfnum i Bretlandi. í Hull átti að taka þetta mál fyrir á fundi með löndunarverka- mönnum i gærkvöldi, en Morgun- blaðinu var ekki kunnugt um af- greiðslu þess fundar á málinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.