Morgunblaðið - 17.02.1978, Side 3

Morgunblaðið - 17.02.1978, Side 3
i MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 17. FEBRUAR 1978 3 NiðurfeUing 3iu grein- arinnar brey tir engu r - segja formenn ASI og BSRB „1 MlNUM huga breytir það engu um okkar andstöðu við frumvarpið og baráttu gegn því, þótt ríkisstjórnin hafi dregið þriðju grein þess til baka,“ sagði Björn Jónsson, forseti ASl, er Mbl. spurði hann í gær álits á þeirri breyt- ingartillögu meirihluta fjár- hags- og viðskiptanefndar efri deildar Alþingis að 3ja grein frumvarps um ráðstafanir í efnahagsmálum verði felld nið- ur. „Eftir sem áður stendur það óbreytt,“ sagði Björn, „sem ráð- gert er með frumvarpinu að skerða kjarasamningana út samningstímann og það er auð- vitað það sem brennur heitast á okkur.“ Björn sagði, að eftir sem áður væri engin vissa fyrir hendi um það, að viðhorf ríkisstjórnar- innar til efnis þriðju greinar- innar hefðu breytzt, „og því getur vel farið svo, að þessi draugur verði vakinn upp að nýju. Annars er þetta sem stendur lítið mál í augum verkalýðs- hreyfingarinnar og við hefðum út af fyrir sig getað geymt deil- una um þriðju greinina til betri tíma, enda átti hún ekki að taka gildi fyrr en um áramótin. Þannig er niðurstaða mín sú, að þetta breyti engu um okkar afstöðu eða ráðagerðir". „Ég tel þetta ekki breyta neinu," sagði Kristján Thorlac- ius, formaður BSRB, er Mbl. Ieitaði álits hans. „Mér skilst af yfirlýsingu forsætisráðherra að grundvöllur vísitölunnar verði endurskoðaður og þar verði áfram stefnt að því marki, sem þriðja greinin boðaði, en hún átti ekki að koma til fram- kvæmda fyrr en 1. janúar 1979. Efnislega stendur óbreytt í frumvarpinu að það á að rjúfa okkar kjarasamninga og það tel ég vera kjarna málsins. Launa- fólk getur ekki lengur unað því að fjárskuldbindingar í kjara- samningum standi ekki eins og aðrar fjárskuldbindingar. Hins vegar sýnir þessi tillaga, að ríkisstjórnin er á undan- haldi fyrir sameinaðri andstöðu launafólksins í landinu og það á að sýna mönnum nauðsynina á því, að baráttan verði hert og þessu undanhaldi ríkisstjórnar- innar fylgt eftir, þar til fullur sigur er unninn." Þriðju áskriftar- Kamm- ersveitar Doktor í norr- ænum fræðum EYSTEINN Sigurðsson varði doktors ritgerð sína i norrænum fræðum við Háskólann i Lundúnum skömmu fyr- ir áramót. Ritgerð hans fjallaði um erlend samtimayrkisefni i islenzkri Ijóðagerð á timabilinu frá 1750 til 1930. Andmælendur i vörn ritgerð- arinnar voru prófessorarnir Peter G. Foote i London og Amold R. Taylor i Leeds. Eysteinn Sigurðsson er fæddur i Reykjavík árið 1939 sonur hjónanna Þóru Eyjólfsdótlur og Sigurðar Sveins- sonar fyrrv aðalbókara hjá Skipaút- gerð rikisins Hann lauk kandidatsprófi i islenzkum fræðum frá Háskóla ís iands 196 7 Siðan hefur hann starfað hjá fræðsludeild Sambands islenzkra samvinnufélaga með nokkrum hléum síðustu árin, sem hann hefur notað til að vinna að þessu verkefni en ritgerðin var samin við norrænudeild University College i London ÞKIÐJU áskriftartónlt'ikar Kammarsveitar Reykjavfkur á þessu starfsári verða haldnir n.k. sunnudag í samkomusal Mennta- skólans við Hamrahlfð og hefjast kl. 17. A efnisskrá verða að þessu sinni Sextett eftir Beethoven fyr- ir tvö horn og strokkvartett. Er það samið í Vín árið 1795. Kvint- ettett eftir Jón Ásgeirsson fyrir strokkvartett og sembal, er annað verkið á efnisskrá. Kvintett þenn- an fluttu félagar úr Kammersveit- inni á móti norrænna kammer- sveita í Osló i jan. s.l. Hlaut verk- ió injög góðar undirtektir og lof- samlega dóma. Síðasta viðfangs- efnið verður Septet eftir stenska tónskáldið Franz Adolf Berwald. Berwald var samtíðarmaður Beel- hovens og fyrsta tónskáld Svia sem eitthvað kvað að. Aðeins ein af sinfónium Berwalds og einn strokkvartetl hefur verið flutt hérlendis, svo segja má að Ber- walds hai verið vanræklur af ís- lenzkum flytjendum Septet þessi er talinn vera eitt fágaðasta og áheyrilegasta verk Berwalds, svo tónleikagestuin gefst hér fteri á að kynnast þessu inerka tónskáldi Svía örlítið nánar. Hlaut styrk úr M álf r elsiss j óði ASÍ: Samningsbundinn mánaðaruppsagnarfrestur BSRB: Lögbundinn samn- ingstími tU 1. júlí 1979 í OKKAR kjarasamningi er ákvæði um mánaðar uppsagnar- frest", sagði Björn Jónsson, for- seti ASÍ, er Mbl. spurði hann um þetta mál i gær. Þessi frestur er nú ekki bundinn við mánaðamót, eins og oft hefur verið áður, held- ur er um að ræða mánuð frá því að uppsögn er tilkynnt." ..Okkar samningstimi er lög- bundinn til 1. júli 1979," sagði Kristján Thorlacius. formaður BSRB, er Mbl. spurði hann um það mál i gær. ,. i kjarasamningn- um er ákvæði um endurskoðunar- rétt á launaliðum á samnings- timanum, en honum fylgir ekki verkfallsréttur". Dr. Eysteinn Sígurðsson Eysteinn er kvæntur Elisabetu S Magnúsdóttur manneldisfræðmgi og eiga þau tvær dætur „ÞAÐ er álit sjóðsstjórnar að málalok þau, sem orðið hafa í máli Guðsteins, séu til þess falin að letja menn að taka þátt í um- ræðum um alvarleg deilumál, er hafa almenna samfélagslega skír- skotun, og að sú aðstoð af hendi Málfrelsisjóðs, sem Guðsteinn leitar eftir, falli því undir það hlutverk, sem sjóðnum var ætl- að.“ Svo segir í áiiti stjórnar Mál- frelsissjóðs uni úthlutun Ijár- styrks til Guðsteins Þengilssonar, en honum var i gær veittur styrk- ur að upphæð 321.550 krónur og er það í fyrsta sinn sem styrki er úthlutað úr sjóðnum. Styrknum skal varið til að standa straum af kostnaði vegna Hæstaréttannáls nr. 109/1975: Bjarni Ilelgasono.fi gegn Guðsteini Þengilssyni. Utankjörstaðakosning hefst n.k. miðvikudag UTANKJÖRSTAÐAKOSNING vegna prófkjörs Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík hefst mið- vikudaginn 22. febrúar n.k. en tveimur dögum áður eða á mánu- dag á að vera búið að birta listann yfir þá sem í framboði verða í prófkjörinu. Utankjörstaðakosningin mun síðan standa daglega til föstu- dagsins 3. marz frá kl. 5—7 nema á laugardögum, þá frá kl. 10—3 og á sunnudögum frá kl. 2—5 í Sjálfstæðishúsinu, Háaleitisbraut 1. Utankjörstaðakosningin er ætl- uð þeim sem ekki geta verið á landinu þegar sjálft prófkjörið fer fram dagana 4. 5 og 6. marz n.k. Atkvæðisrétt í prófkjörinu hafa allir stuðningsmenn Sjálf- stæðisflokksins i málefnum borgarstjórnar auk flokkbundins sjálfstæðisfólks. Ólafur B. Thors verður í framboði „JU, ÞAÐ er rétt, að ég hef nú tekið ákvörðun um að verða við tilmælum kjörnefndar og gefa kost á mér í prófkjör Sjálfstæðis- flokksins fyrir borgarstjórnar- kosningarnar," sagði Ólafur B. Thors, borgarfulltrúi og forseti borgarstjórnar, í samtali við Morgunblaðið í gær. Kvaðst hann þegar vera búinn að tilkynna formanni nefndarinn- ar þessa ákvörðun sína. Ölafur B. Thors var einn núverandi borgar- fulltrúa Sjálfstæðisflokksins sem ekki gaf kost á sér þegar í upphafi eftir að lýst hafði verið eftir fram- boðum til prófkjörsins, en hann gaf þá skýringu. að honum hefði þá ekki gefizt timi til að fjalla um þetta mál við vinnuveítanda sinn. Heimsmeistaraeinvígið i skák: Hollenzkt tilboð hæst, 162 millj. — Sjö tilboð bárust SJÖ tilboð bárust í heimsmeist- araeinvígið í skák milli Kar- povs og Kortsnojs, að því er Ineke Bakker, framkvæmda- stjóri Alþjóðaskáksambands- ins, tjáði Mbl. í gær. Skáksamband Austurríkis bauð 133 milljónir króna til verðlauna og Graz sem einvigis- stað, franska skáksambandið bauð 13,3 milljónir og helming af sjónvarpstekjum og París sem einvígisstað, v-þýzka skák- sambandið bauð 133 milljónir króna'til verðlauna ög Ham- borg sem einvígisstað, ítalska skáksambandið bauð 20 millj- ónir og Luago sem einvígisstað, hollenzka skáksambandið bauð 162 milljónir til verölauna og Tillsburg sem einvígisstað. skáksamband Filippseyja bauö 140 milljónir til verðlauna og Batuio sem einvígisstað og svissneska skáksambandið bauð 133 milljónir til verðlauna og Luzern sem einvígisstað. Tilboðin verða nú send þeim Karpov og Kortsnoj til athug- unar og hafa þeir frest til 16. marz að gera upp hug sinn. Verðlaunaupphæð íslenzku tílboðshugmyndarinnar var 146 millj. með hækkunarleið „ÞAÐ VARÐ ekkert af íslenzku tilboði í heimsmeistaraeinvígið í skák, þar sem menn heyktust á málinu á elleftu stundu í orðsins fyllstu merkingu, því afsvar pósts- og slmamálaráð- herra barst okkur fimmtán mínútum fyrir klukkan ellefu í morgun, en tilboðsfresturinn rann út klukkan 11,“ sagði Ein- ar S. Einarsson, forseti skák- sambands Islands, í samtali við Mbl. í gær. „Ég viðurkenni, að hugmyndin kom fram nokkuð seint, en hún var fyrirtakshug- mynd. Við vorum alveg tilbúnir með tilboðið og höfðum sett 146 milljónir króna sem verðlauna- fé, en með þeim möguleika, að sú upphæð yrði hækkuð, ef til- boðið fengi jákvæðar undrr- tektir." Að sögn Einars var hugmynd- in fólgin í því, að ef einvíginu yrði ráðstafað til Islands myndi póststjórnin gefa út fimm fri- merkja seríu og yrði upplagið takmarkað við 500.000 stykki. Með sölu á öllu magninu hafði brúttóhagnaðurinn af útgáfu getað numið 7—800 milljónum króna og voru þá verðgildin; 100, 200, 300, 400 og 500 krónur höfð í huga. Einar sagði, að hugmyndin hefði formlega verið lögð fyrir póst- og simamálaráðherra á miðvikudag, „en við vorum svona búnir að kalsa málið við aðra ráðherra, sem lóku hug- myndinni fjarska vinsamlega," sagði Einar. „Ráðherra álli sið- an fund með póst- og simamála- sljórn, en timinn of naumur, þannig að menn vildu ekki gleypa hugmyndina svona hráa." „Þessi hugmynd um fri- merkjaútgáfuna fæddisl bara svona smátt og smátt i umræð- urn okkar," sagði Einar S. Ein- arsson, ,,en því miður of seint".

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.