Morgunblaðið - 17.02.1978, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. FEBRUAR 1978
Greinargerð frá
blaðaútgefendum
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi greinargerð frá
blaðaútgefendum:
Hér fer á eftir greinargerð frá
blaðaútgefendum vegna fram-
kominnar fréttatilkynningar frá
Blaðamannafélagi Islands þar
sem augljóst er að meginregla
blaðamanna um hiutlaust frétta-
mat hefur ekki verið í heiðri höfð
við samningu hennar.
Megin krafa blaðamanna er sú
að algjörir breyjendur í blaða-
mennsku verði á sömu kjörum og
margreyndir og/eða velmenntað-
ir fréttamenn Ríkisútvarpsins.
Mætti líkja þessu við að iðnnemi á
fyrsta ári ætti að fá sömu laun og
iðnmeistari. Utgefendur hafa boð-
ið að blaðamenn er hafa sambæri-
lega starfsreynslu og/eða mennt-
un og fréttamann Rikisútvarpsins
njóti sömu kjara. Þessu hefur
Blaðamannafélag Islands hins
vegar hafnað, m.a. í því formi að
neita algjörlega að taka nokkurt
tillit til menntunar er skipa skal í
launaflokka. Annað veigamikið
atriði í þessum samanburði er það
að blaðamenn njóta sérstakra
fríðinda umfram fréttamenn, sem
nema í dag milli 14 og 20 þúsund
kr. á mánuði. Þessi fríðindi vill
Blaðamannafélagió ekki meta.
Er ekki náðist samkomulag
milli aðila í sérstakri nefnd útgef-
enda og blaðamanna var aðilum
heimilt að segja upp gildandi
kjarasamningi. Blaðamannafélag
íslands notfærði sér þennan rétt
og sagói upp samningi aðila frá og
með 24. janúar s.l.
Eins og venja er til er slíkt
ástand skapast þá lagði Blaða-
mannafélagið fram ýmsar kröfur.
Auk ýmissa fríðindkrafna og ann-
arra sérkrafna voru lagðar fram
kaupkröfur er námu allt að 105%
hækkun launa frá því sem nú er. í
þessu sambandi er rétt að taka
fram að launaþróun blaðamanna
á tímabilinu 1. desember 1976 til
1. desember 1977 nemur um
47—48% hækkun launa meðan
launataxtar prentara dagblaða
hafa hækkað milli 52—56% á
sama tímabili og meðaltalshækk-
un launataxta ASI félaga í heild
nemur um 60%. Vöntunin nemur
því milli 5.7—8.4%. Síðasta tilboð
vinnuveitenda samsvarar 6.5%
hækkun launa en gagnboð blaða-
manna eru nú upp á um 91%.
Heildarhækkun iauna á eftir
þessu að dæma að vera um 182%
fyrir blaðamenn meðan hækkun
launataxta ASI nemur um 60%.
Til að ítreka enn frekar kröfur
sínar hefur Blaðamannasélag ís-
lands kvatt félaga sína til ólöglegs
yfirvinnubanns og hófst það þann
14. febr. s.l. Að lokum er rétt að
taka fram að samningsvilji blaða-
manna hefur um nokkurt skeið
verið í algjöru lágmarki og því
vart von á lausn meðan óbreytt
ástand ríkir.
Hér fylgja með kröfur blaða-
manna þannig að lesendur geti
sjálfir dæmt um hversu réttmæt-
ar og „hógværar“ kröfur Blaða-
mannafélagsins eru.
Blaðaútgefendur.
Frá blaðamönnum 1.2. 1978.
Tillögur Blaðamannafélags ts-
lands til Félags blaðaútgefenda.
Utgáfufélags Þjóðviljans og Dag-
blaðsins h.f. um breytingar á
kjarasamningi aðilanna, sem fall-
inn er úr gildi.
1. Við 1. grein samningsins
verði gerð sú breyting, sem til-
greind er á fylgiskjali 1 við tillög-
ur þessar. Greiða skal verðlags-
uppbót að fullu á laun samkvæmt
sámningi frá 1. júlí 1977.
2. Við þriðju grein þriðja lið
komi talan 50% í stað tölunnar
36%. I fjórða Iið sömu greinar
komi talan 100% í stað 85%, sem
er greiðsla fyrir aukavinnu og í
stað tveggja klukkustunda út-
kalla, komi minnst fjórar stundir.
Síðan skal eftirfarandi bætast við
fjórða liðinn: Öll yfirvinna, sem
unnin er á stórhátíðum (nýárs-
dag, föstudaginn langa, páskadag,
hvítasunnudag, 1. maí, 17. júní,
jóladag, eftir klukkan 12 á hádegi
aðfangadag jóla og gamlársdag)
greiðist með tvöföldu yfirvinnu-
álagi.
Standi blaðamaður svokallaða
gæzluvakt utan síns vinnutíma.
þ.e. í kallfæri við síma t.d. um
helgar, fær hann fullt vaktaálag
fyrir þann tima og ef til útkalls
kemur fær hann yfirvinnuálag í
samræmi við ofangreind skilyrði.
Hafi starfsmaður ekki fengið
samfellda hvíld í«a.m.k. 8 klukku-
stundir vegna yfirvinnu eða ýmis-
konar útkalla, ber honum átta
klukkustunda hvíld frá því út-
kalli eða yfirvinnu lýkur og þar
til hann mætir til reglubundinnar
vinnu á ný án skerðingar á þeim
reglubundnu launum sem starfs-
maður hefði fengið greidd. Fáist
ekki tilskilin hvíld greiðist yfir-
vinnukaup auk hinna reglu-
bundnu laun'a (dagvinnu, vakta-
álags og yfirvinnu) sem hann
hefði fengið greidd. Þeir sem
vinna vaktir skulu í viku hverri fá
tvo samfellda frídaga þannig að
næturfrí komi fyrir og eftir fri-
dagana.
3. Fjórða grein hljóði svo: Ut-
gefendur greiði fullt fastagjald
heimasima félaga í Bl. Auk þess
greiði þeir 220 umframskref á
ársfjórðungi. Þá greiði útgefend-
ur einnig afnotagjald útvarps og
sjónvarps eftir eitt ár í starfi.
„Litsjónvarpsafnotagjöld“ skulu
greidd þar sem um slík tæki er að
ræða. Þessu til viðbótar greiði út-
gefendur krónur 2400 á mánuði
upp í síma-, útvarps- og sjónvarps-
afnot til allra félaga í Bl.
Greidd sé ársfjórðungslega
áskrift sex heimsendra dagblaða
fyrir félaga í Bl.
4. Akvæði samningsins um
sumarleyfi blaðamanna sem er að
finna í sjöundu grein skulu breyt-
ast á þann hátt, að sumarleyfi sé
minnst 27 dagar (orlofsdagar).
Eftir fimm ára starf verði orlofs-
dagarnir 30, eftir 10 ára starf 33
og eftir 15 ára starf 36.
Blaðamenn fái 12 daga vetrar-
orlof.
Sé sumarorlof tekið á tímabil-
ínu 1. október til 31. maí, kemur á
það 50% álag. Samsvarandi
hundraðshluti fyrir orlof á yfir-
vinnu verði reiknaður út.
Laugardagar reiknist ekki sem
orlofsdagar í orlofi. Ennfremur
verði eftirfarandi breyting gerð á
sjöundu grein: Blaðamenn, sem
unnið hafa óslitið í fimm ár eða
lengur á íslenzkum fjölmiðlum,
skulu að loknu fimm ára starfi fá
þriggja mánaða frí auk orlofs á
fullum launum hjá þeim vinnu-
veitanda, sem hann starfar hjá
þegar fríið er tekið.
5. í áttundu grein verði eftir-
farandi breyting gerð: Þá skulu
félagar í Bl, sem hafa verið eitt ár
í samfelldu starfi hjá sama blaði
fram að fæðingu barns þeirra, fá
þriggja mánaða frí á fullum laun-
um, enda haldi þeir áfram störf-
um að fríi loknu hjá sama vinnu-
veitanda í a.m.k. eitt ár.
Fyrri hluti áttundu greinar
breytist einnig á þennan hátt:
Veikíst blaðamaður, sem orðinn
er fullgildur félagi í Bl langvar-
andi á hann rétt á fullum launum
á dagvinnukaupi í fimm mánuði
og hálfum launum í næstu fimm
mánuði þar á eftir, haldist
veikindin. Blaðamaður, sem unn-
ið hefur í fimm ár eða lengur á
rétt á sex mánaða launum og hálf-
um launum aðra sex mánuði,
haldist veikindin. Blaóamaður,
sem unnið hefur i 10 ár eða leng-
ur á rétt á átta mánaða launum
aðra átta mánuði, haldist veikind-
in.
6. Við tiundu grein bætist: At-
vinnurekendur greiði upphæð
sem nemur 2% af öllum launum
félaga í Bí í Eftirmenntunarsjóða
Blaðamannafélags Islands.
7. Við tólftu grein bætist:
Blaðamannafélag islands fái afrit
af greiðslukvittunum tryggingar-
félaganna vegna ferða- og slysa-
trygginga félagsmanna.
8. Ný grein komi sem 14. grein,
og númeraröð greina þar á eftir
hækki samsvarandi. Greinin
hljóði svo: Atvinnurekendur taka
að sér að greiða ársgjöld félaga í
Bí samkvæmt lögum félagsins.
9. Núverandi 14. grein breytist
þannig: Stjórn Bl er heimilt að
fyrirskipa meðlimum þess að
leggja niður vinnu hjá atvinnu-
rekanda, sem dregið hefur að
greiða í Lífeyrissjóð, menningar-
sjóð, orlofsheimilasjóð, eftir-
menntunarsjóð og ársgjöld félaga
í tvo mánuði eða lengur. Þetta
skal þó aðeins gert að beiðni
stjórnar sjóðanna og stöðvunin
tilkynnt með mánaðar fyrirvara.
10. Núverandi 15. grein hljóði
svo: Samningur þessi gildir frá 1.
júlí 1977 til 1. marz 1979.
11. Núverandi 17. grein hljóði
svo: Handritalesarar og prófarka-
lesarar á blöðum skuli fá sömu
laun og blaðamenn samkvæmt
fyrstu grein samningsins.
12. Núverandi 18. grein hljóði
svo: Allir fastráðnir starfsmenn
sem stunda blaðamennsku, ljós-
myndun, handrita- og prófarka-
lestur og útlitsteiknun, skulu ger-
ast félagar í Bi. Fyrir fastráðna
félaga í Bl, skal uppsagnarfrestur
útgefandans vera jafnlangur í
mánuðum og starfsaldur í árum,
þó ekki lengri en 12 mánuðir,
nema hvað uppsagnarfresturinn
skal aldrei vera styttri en þrír
mánuðir. Uppsagnarfrestur fé-
laga í Bi skal vera þrír mánuðir.
13. Inn í samning skuli koma
ákvæði um að útgefendur sjái fé-
lögum í Bi fyrir mat, ef þeir
standa vaktir á matmálstímum.
14. 21. grein hljóði svo: Trúnað-
armaður Bi á hverjum vinnustað
skal m.a. hafa þau réttindi, að eigi
er heimilt að ráða nýjan blaða-
mann án hans vitundar né segja
upp blaðamanni. Trúnaðarmaður
félagsins skal vera fulltrúi i
stjórn þess fyrirtækis sem hann
starfar hjá, með tillögurétt og
með frelsi.
15. Inn í samninginn komi
ákvæði um greiðslu fyrir afnot af
tækjum starfsmanna, svo sem bíl-
um, Ijósnyndavélum og segul-
böndum.
16. Inn í samninginn komi
ákvæði um greiðslu 50% álags,
þegar menn þurfa að gegna
tveimur störfum samtímis t.d.
þegar blaðamaður þarf auk skrifa
sinna að annast Ijósmyndatökur
og öfugt (þ.e. þegar ljósmyndarar
þurfa að skrifa).
17. Blaðamannafélag islands
áskilur sér allan rétt til frekari
tillögugerðar i þessum samning-
um.
Blaðamannafélag íslands gerir tillögu um að laun blaðamanna verði
svohljóðandi frá 1. júlí 1977.
A fvrsta Mánaðarlaun Árslaun
starfsári 2. f I. 3.fl. 2,fl. 3,fl.
Eftir 225.275 234.737 2.703.300 2.816.844
1 ár 230.584 240.269 2.767.008 2.883.228
2 ár 271.619 283.027m 3.259.428 3.396.324
4 ár 278.415 290.108 3.340.980 3.481.296
6 ár 285.179 297.157 3.422.148 3.565.884
8 ár 292.038 304.304 3.504.456 3.651.648
10 ár 297.120 309.599 3.565.440 3.715.188
12 ár 307.929 320.862 3.695.149 3.850.344
15 ár 317.168 330.480 3.806.016 3.965.760
Hinn 1.' desember 1977 hækki allir mánaðalaunataxtar um 4.3%,
hinn 1. júnf 1978 um 4.1% og hinn 1. september 1978 um 3.2%, hinn 1.
desember 1978 um 5% og hinn 1. febrúar 1979 um 5%.
Ritstjórnarfulltrúar og fréttastjórar taka laun samkv. 4. flokki sem
séu a.m.k. 20% hærri en 3. fl.
Ritstjórar taki laun sem séu a.m.k. 40% hærri en 3. fl.
Tauni Aikáá Matti Tuloisela
Tveir Finnar halda
Dómkirkjutónleika
TVEIR Finnar halda kirkjutón-
leika f Dómkirkjunni í Reykjavík
nk. sunnudag 19. feb. Tónlistar-
mennirnir eru styrkþegar úr
menningarsjóði er finnska rfkið
stofnaði til að stuðla að auknum
menningartengslum islands og
Finnlands f tilefni af 1100 ára
afmæli islands byggðar að þvf er
segir í tilkynningu frá fínnska
sendikennaranum á lslandi, Ros-
mari Rosenberg.
Finnsku tónlistarmennirnir eru
prófessor Tauni Aikáa, kennari í
organleik við Sibelíusarakademí-
una og organleikari við Jóhannes-
arkirkjuna í Helsingfors og bari-
tonsöngvarinn Matti Tuloisela.
Prófessor Tauni Aikáá er fædd-
ur 1917 og nam við Tónlistarskóla
kirkjunnar í Viborg. Aikáá kom
fyrst fram sem organisti 1939 og
sem píanóleikari 1947 og útskrif-
aðist í þessum tveimur greinum
frá Síbelíusarakademíunni 1950
og 1951. Hann stundaði fram-
haldsnám í organleik í Stuttgart
m.a. hjá Hermann Keller og
Marie-Claire Alain og nam píanó-
leik hjá Suzanna Guébel. Hann er
einna þekktastur finnskra organ-
leikara, hefur leikið inn á margar
hljómplötur, farið margar tón-
leikaferðir og leikið í útvarp utan
heimalands síns.
Matti Tuloisela er fæddur 1931.
Hann er lögfræðingur að mennt
er jafnframt lagði hann stund á
söng og kom í fyrsta skipti fram
1953 í óperunni í Helsingfors.
Hann hélt fyrstu sjálfstæða
hljómleika sína í Helsingfors
1955. Tuloisela hefur sungið í ein-
söngshlutverkum í óratórium og
margoft farið með gestahlutverk
við finnsku óperuna. Hann hefur
sungið inn á margar hljómplötur
og farið í margar söngferðir um
Norðurlönd, V-Þýzkaland og Mið-
Evrópu. Einnig er hann þekktur
söngkennari og var aðstoðarfor-
stjóri Síbelíusarakademíunnar
1971—1974.
Tónleikarnir verða kl. 17.00 í
Dómkirkjunni í Reykjavík á
sunnudaginn nk.
Þriðja bílslysið í
Perú á tíu dögum
i.ímu, Pcrú, 16. febr. ap. hrapaði niður í ána aðeins smá-
Abba syngur áfram
POPPHÓPURINN ABBA sagði i London í dag að þeim væri ekki í
huga að draga saman seglin, og myndi þau halda áfram að syngja
saman og semja lög eins lengi og fært yrði. Plötur með Abba sem
í eru þau Anni Frid Lyngstad, Benny Andersson, Björn Ulvaeus
og Agneta Faltskog hafa nú selst í um 50 milljónum eintaka siðan
þau slógu i gegn fyrir fimm árum mixi laginu „Waterloo". Þau
eru í London til að vera við frumsýningu á fyrstu kvikmynd
þeirra sem heitir „Abba — the Movie“. Hefur koma Abba hópsins
vakið geysilega athygli f Englandi og þau ekki getað þverfótað
fyrir blaðamönnum og aðdáendum sem fylgja þeim hvert fótmál.
TALIÐ er að fjörutíu hafi látið
lífið og sextán særðust þegar
langferðabfll hrapaði niður
fimmtán hundruð metra i ána
Tarma, um 150 kílómetra frá
Lima.
Fregnir frá borginni Tarma i
Andesfjöllum herma að bílstjór-
inn hafi sofnað við stýrið þegar
slysið átti sér stað á miðvikudags-
morgun.
Þetta er þriðja alvarlega um-
ferðarslysið sem á sér stað í Perú
á tíu dögum. Langferðabíllinn
spöl frá þeim stað, þar sem annar
langferðabíll hrapaði á föstudag
með þeim afleiðingum, að átján
manns létu lífið og tuttugu særð-
ust.
Þriðji langferðabíllinn hrapaði
niður í Manterofljót, sem rennur
rétt hjá Tarmafljóti, fyrir tiu dög-
um og þá létu 35 manns lífið.
Síðdegis á miðvikudag höfðu
tuttugu lík fundist af þeim er
létust í þriðja slysinu.
Tugir Iangferðabíla lenda í
óhöppum í hinum þröngu gljúfr-
um Andesfjalla árlega.