Morgunblaðið - 17.02.1978, Síða 24

Morgunblaðið - 17.02.1978, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 1978 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, sími 1 01 00 Aðalstræti 6, sími 22480. Áskriftargjald 1 700.00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Stefna forystumenn verkalýðssamtaka í ólöglegar verkfalls- aðgerðir? Ríkisstjórnin hefur beitt sér fyrir ráðstöfunum í efnahagsmálum, sem munu tryggja launþegum sama kaupmátt launa og þeir höfðu á síðasta ári, jafnframt þvi, sem þær gefa vonir um, að takast megi að halda fullri atvinnu Þetta eru tvö meginmarkmið aðgerða ríkisstjórnarinnar enda er óhindraður rekstur undirstöðuatvinnuvega forsenda nægrar atvinnu. Verkalýðssamtökin hafa hins vegar mælt með samdráttarleið i efnahagsmáf- um. sem óhjákvæmilega mundi leiða til atvinnuleysis. Það er einkennileg afstaða hjá verkalýðssamtökunum, en óraunsæi og sjálfsblekking, ef forystu- menn þeirra trúa þvi, að atvinnuleysi mundi ekki fylgja i kjölfar þeirrar stefnu, sem þeir vilja beita sér fyrir. Vissulega hefði mátt búast við því, að verkalýðssamtökin veldu þá leiðina, sem enga áhættu hefði i för með sér fyrir atvinnu landsmanna en svo er ekki. Verkalýðssamtökin hafa mælt með leið, sem að flestra dómi leiðir örugglega til atvinnuleysis, en hefur alla vega í sér fólgna mikla hættu á atvinnuleysi. Enn undarlegra er þó, að svo virðist sem Alþýðusamband íslands stefni að ólöglegum verkfallsaðgerðum hinn 1. marz n.k. vegna ráðstafana rikisstjórn- arinnar Ályktun sem ráðstefna formanna verkalýðsfélaga innan Alþýðusam- bands Islands. formanna landssambanda og svæðasambanda svo og mið- stjórnar ASÍ sendi frá sér, verður ekki skilin á annan veg en þann, að Alþýðusamband íslands ætli að beita sér fyrir ólöglegum verkfallsaðgerðum um næstu mánaðamót. Til viðbótar þvi benda ummæli Kristjáns Thorlaciusar, formanns BSRB, til þess. að hann hyggist leiða samtökin út í ólöglegar verkfallsaðgerðir. Ástæða er til að minna á, að verkalýðssamtökin hafa uppi yfirlýsingar nú um slikar aðgerðir þrátt fyrir þá staðreynd, að þær aðgerðir, sem núverandi rikisstjórn hefur beitt sér fyrir, stefni að þvi að tryggja hagsmuni launþega og séu mun mildari en aðgerðir, sem vinstri stjórnin beitti sér fyrir vorið 1974. Þá lét ASÍ hins vegar sitja við orðin tóm. Ef verkalýðssamtökin gripa hins vegar nú til ólöglegra verkfallsaðgerða er augljóst, að þær aðgerðir eru af pólitiskum toga spunnar. Forystumenn verkalýðssamtakanna eru þá ekki að hugsa um hagsmuni launþega heldur sinna pólitiskum áhugamálum sinum. Það er fáheyrð framkoma gagnvart umbjóðendum þeirra. Þjóðin þarf á öllu öðru að halda nú en verkföllum — hvað þá ólöglegum verkföllum. Hún þarf á að halda sáttfýsi og samstöðu. Sú yfirlýsing Geirs Hallgrímssonar, forsætisráðherra, á Alþingi i gær, að 3. grein frumvarpsins, um óbeina skatta, verði felld niður úr frumvarpinu er merki um sáttfýsi, hún er framrétt hönd. Ef verkalýðssamtökin slá á hana sýnir það, að forystumenn þeirra vilja ekki sættir — heldur átök. Þá kemur til kasta hinna óbreyttu félagsmanna verkalýðssamtakanna að hafa vit fyrir forystumönnum sinum Við íslendingar búum við lýðræðislegt stjórnskipulag. Við kjósum þjóðþing * kosningum á fjögurra ára fresti. Það þing kemur sér saman um myndun rikisstjórnar, sem fer með framkvæmdavaldið meðan hún hefur að baki sér meirihluta þingsins. Aðrir aðilar geta hvorki tekið lögin i sínar hendur með þvi að brjóta þau lög, sem þjóðþingið hefur sett, né framkvæmdavaldið. með þvi að taka fram fyrir hendurnar á rétt kjörinni rikisstjórn. Þeir, sem reyna að beita slikum brögðum, munu að lokum sitja uppi með afleiðingar þess sjálfir. Hinn rétti vettvangur til þess að útkljá deilumál af þvi tagi, sem vefjast fyrir sumum leiðtogum verkalýðshreyfingarinnar, eru almennar kosningar. Þær fara fram eftir nokkra mánuði og þá og fyrst þá er upp runninn timi þess pólitiska uppgjörs, sem einstaka forystumenn verkalýðsfélaganna eru ber sýnilega að stefna að nú. Mikill meirihluti islenzku þjóðarinnar mun áreiðan- lega ekki þola slíka misnotkun aðstöðu. Þegar þessar linur eru ritaðar er ekki vist að dagblöðin komi út á næstunni vegna kjaradeilu Morgunblaðið vill þvi hvetja landsmenn til þess að standa traustan vörð um lög landsins á næstu vikum og hrinda sérhverri tilraun til þess að brjóta þau. Þessi aðvörunarorð eru ekki mælt að ástæðulausu. Hagsmunamál bænda Nokkrir bændur úr Þingeyjarsýslu hafa sent frá sér ályktun þar sem áherzla er lögð á, að bændum verði tryggt umsamið verð fyrir afurðir sinar en vinnslustöðvarnar sjálfar verði ábyrgar fyrir rekstri sinum. Þessi ályktun bændanna er bersýnilega stuðningur við þær hugmyndir, sem hafa verið á döfinni um, að ýmsar greiðslur til landbúnaðarins gangi beint til bænda. Stuðningur við þær hugmyndir kemur nú úr ýmsum áttum. Halidór E. Sigurðsson, landbúnaðarráðherra, hefur laqt áherzlu á nauðsyn þess, að bændur fengju sem skjótast það verð, sem þeim ber fyrir afurðir sinar. Fyrir nokkru ritaði Ingólfur Jónsson, alþingismaður og fyrrverandi landbúnaðar ráðherra einn mesti baráttumaður fyrir hagsmunum bænda i áratugi, forystu grein i blaðið Suðurland, þar sem hann ræðir þessi mál og vitnar til ummæla Árna Jónssonar, fulltrúa Stéttarsambands bænda, um gaumgæfilega athug un á þvi, hvort ekki megi nýta á hagkvæmari hátt það fjármagn, sem til landbúnaðar gengur. Ingólfur Jónsson segir: ,,Samtökum bænda verði falin ráðstöfun þess og það greitt til bænda á lögbýlum i hiutfalli við bústærð upp aðákveðnu marki Einn af þingmönnum Framsóknarflokksins, Ingi Tryggvason, sagði i ræðu er hann hélt i umræðum um þingsályktunartillögu Eyjólfs Konráðs Jónssonar og Jóhanns Hafstein um þetta efni, að hann teldi vel koma til greina að greiða útflutningsbætur beint til bænda Þetta sýnir, að þær hugmyndir, sem Eyjólfur Konráð Jónsson hefur manna mest beitt sér fyrir um greiðslu á rekstrar- og afurðalánum beint til bænda og jafnvel einnig öðrum greiðslum svo sem útflutningsbótum njóta stöðugt almennari stuðnings. Framkvæmd þeirra mundi mjög bæta hag bænda í landinu. Inngangsorð Hér hefur nú göngu sína vikulegur þáttur í umsjá Guðmundar Emilssonar, þar sem fjallað verður um tónlist og tónmennt í landinu almennt. Jón Ásgeirs- son og Egill Friðleifsson munu rita tónlistargagn- rýni í blaðið eftir sem áður. Guðmundur Emilsson lauk tónmenntakennara- prófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík 1971, B.A. prófi frá Eastman tónlistarháskólanum í Reykjavík 1975, og vinnur nú sem stendur að M.A. prófi frá þessum sama háskóla. Hann hefur í námi sínu aðallega lagt stund á kór- og hljómsveitarstjórn. Guðmundur, sem var einn tónlistargagnrýnenda Morgunblaðsins á árunum 1971—’73, dvelur nú hér heima um nokkurra mánaða skeið við ritsmíðar og önnur störf. Krýpur Tónlistin, æðsta gyðja listanna, f auðmýkt fyrir Yfirvald- inu f landi leynilegra þagnarheita? Um daginn birtist viðtals- langloka í einu Reykjavíkur- blaðanna þar sem ungur tón- víkingur, nýkominn heim frá námi í kór- og hljómsveitar- stjórn, hjó strandhögg í land- námi Ingólfs, berandi eld að völundarhúsi íslenskra tón- mennta — af mannvonsku einni saman. Þetta er ekki ný bóla, því fer fjarri. Fyrir um fimm árum birtist önnur blaða- grein, svipaðs eðlis, þar sem þessi sami öfriðarseggur sletti framaní alþjóð þeirri fullyrð- ingu, að tónmennt væri veikasti hlekkurinn í menntakerfi okk- ar. Talað var um hálfkák og fordæmi, t.d. með því að benda á, eða framkvæma, raunhæfar úrbætur — en þegja eílaAHa? — Skýjabólstrar — Það er annars mesta furða hvað kokhraustir labbakútar láta hafa eftir sér á prenti, sér- staklega ef mið er tekið af mót- tökunum sem slík hljóta yfir- leitt. Má til sanns vegar færa, að oft hafi ékki staðið steinn yfir steini í tilveru ungu, reiðu mannanna þegar hinir eldri og áhrifameiri hafa svarað fyrir sig, þ.e. gefið kröfukindunum á kjammann. Gott dæmi um hnit- miðað rothögg' má finna á bls. á íslenskan tónlistarmann lýsa því yfir í erlendu sendiráði í Reykjavík, að algert neyðar- ástand riki í tónlistarmálum landsins. Svona terror kalla ég tilraun til landráða. Slíkt hjal líkist mest nazisma, ef ekki öðru enn verra... Mér er nær að halda að það ætti að senda þessar kröfukindur út í Surts- ey, þessa ólukkugemsa sem aldrei sitja á sárshöfði við nokkurn mann og er fyrirmun- að að túlka nokkur sjónarmið nema þau lágkúrulegustu, skilja lítið, vita minna; allt þetta fólk sem á í botnlausu rifrildi við fortíðina, metur samtíðina einskis og heldur að það sé sjálft persónugerð fram- tíðin. Guð hjálpi mér. Mér hefur stundum dottið í hug: hvenær ferst þetta land, er því við bjargandi? Mér finnst land- ið stundum eins og mauraþúfa af alls kyns pakki sem beinir sér upp við guðdóminn og ligg- ur á allífinu eins og marflær á fiski.“ Svo mörg voru þau orð. Já, af þessu sést, að það þarf sannarlega fífldirfsku til að gagnrýna tónlistarlíf á Islandi. ,,Fíflin“ eru ýmist þöguð í hel, eða umsvifalaust sett . útaf sakramentinu í samfélagskró vorri. Stundum afskrifaðir af kokkteilboðalistum fyrir lífstíð. Og því spyr ég enn á ný: Hvern- ig nenna menn að standa í þessu ár eftir ár? Má aldrei sigla milli skers og báru, má aldrei þegja á réttum stöðum. Er hin göfuga list, sem kallast smjaður á bændamáli en heitir réttu nafni diplómasí, komin undir græna torfu? — Tónskrattar í túni — Nú skal segja. Svo yfirmáta klumsa varð ég við lestur skrifa tón-víkings þess er nefndur var í upphafi þessa máls, að ég ákvað að guða á gluggann hans Matthiasar, sem reit um hunda- þúfur, haf og sólskinsdaga í Flóanum um árið, til að spyrj- ast fyrir um hvort háttvirt Morgunblað vildi ekki stuðla að jákvæðri upplýsingamiðlun um tónlistarmál hérlendinga; að þagga niðri píflingum þeim sem alltaf eru að ybba gogg framaní blaðamenn. Varla hafði ég stunið upp erindinu er skáldið kvað: „Samþykkt, Guðmundur minn, samþykkt." Og varð samtalið ekki lengra. Bent skal á, að hér um ræðir mann sem segist sjálfur vera fáviti í tónlist, og sýna þessi skjótu og vinsamlegu við- bdstjórans að tónlistin á unn- endur þar sem enginn hefði þeirra leitað. Enda segir tón- fræðingurinn Scholasticus á einum stað: Oft er tónskratti i túni en hrein fimmund í fjós- haug. En hvað um það góðir hálsar, hér er nú allt í einu til Um strandhögg „nazista,, inga í landi leynilegra þagi ásamt raunhæfri úrbót og fram- kvæmd hennar til hátíðarbrigða sýndarmennsku, og einníg ýjað að leynilegu þagnarheiti á meðal þeirra sem einhvers mega sín í tónmenntamálum annars vegar, og yfirvaldsins hins vegar. Berserkurinn kvað eftirfarandi níðvisu til árétting- ar: „Svo furðuleg dauðaþögn hefur ríkt um þessi mál, að það er engu líkara en yfirvaldið, og þeir sem einhvers mega sin í tónmenntamálum þjóðarinnar, unnist hugástum og telji ástandið bara prýðilegt.“ Mér er spurn: Ætlar þessu gagn- rýnisúrhelli aldrei að linna? Sjá menn ekki svo mikið sem einn hvítan díl á Frónskri til- veru? Væri mönnum ekki nær, að þakka það sem áunnist hefur við kaldranalegar aðstæður, eða ganga á undan með góðu 119 í bókinni t dag skein sól, en þar komst Páll Isólfsson, sá mæti maður, svo að orði þegar ský dró fyrir sólu: „Ungir lista- menn sem heim koma nú á dög- um gera miklar kröfur til lífs- ins, og ef þeir fá þeim ekki að öllu leyti fullnægt þegar í stað, ráðast þeir á allt sem hér hefur verið gert, bæði í tónlist og á öðrum sviðum, vega að góðum mönnum sem brautina ruddu og gáfu þeim í aðra hönd gott land og allsnægtir. Sumir lista- menn hafa jafnvel gengið svo hart fram í sjálfsdekri og kokkteilpexi að halda því fram, að ekki sé hægt að líkja tónlist- arstarfinu hér á landi undan- farna áratugi við annað en glæpsamlegt athæfi. Ég hef jafnvel þurft að hlusta staðar vettvangur til almennra tónlistarskrifa í stærsta dag- blaði landsins. Raunhæf úr- bótatillaga númer eitt er komin í heila höfn! — Andlegar kartöflur — Nú er ég nærri viss um að einhver hinna fjölmörgu hóg- væru tónlistarmanna vorra segi sem svo, að óþarfi sé að spand- era prentsvertu á innanfélags- króníkur tónlistarmanna. En ég leyfi mér að benda á, að allt milli himins og jarðar á erindi I blöð á íslandi. Þær eru ófáar blaðsíðúrnar sem útbía þarf daglega í hildarleik islenskra blaðamennsku. Enda eru rit-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.