Morgunblaðið - 17.02.1978, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 17. FEBRUAR 1978
37
— Minning
Örn
Framhald af bls. 39
reyr, stör og rósir vænar, reiknar
hann jafn fánýtt."
Við skiljum ekki, en við eigum
ekki annars kosta en að hlita. Við
Kiwanisbræður minnumst og
þökkum félaga okkar Erni Arn-
ljótssyni. Hans skarð verður
vandfyllt. Þar sem hann gekk, fór
drengur góður.
Við sendum hans góðu konu
Höllu, foreldrum, tengdaforeldr-
um, börnum og öðrum ættingjum,
innilegar samúðarkveðjur. Megi
minningin um Örn Arnljótsson
vera okkur öllum huggun harmi
gegn.
Eldborgarfélagar.
Hinn 11. febrúar s.l. varð Örn
Arnljótsson bankaútibússtjóri
bráðkvaddur á heimili sinu í
Ölafsvík. Örn var fæddur I
Reykjavik 31. október 1936, sonur
hjónanna Agústu Figved og Arn-
ljóts Davíðssonar. Örn var elstur
þriggja sona þeirra hjóna. Kynni
okkar Arnar hófust er við vorum
saman við nám í Samvinnuskólan-
um, en þaðan brautskráðist hann
árið 1955. Sama haust byrjaði Örn
að starfa hjá útgerðarfyrirtækinu
Garður h/f I Sandgerði, og starf-
aði hann þar, uns hann byrjaði að
vinna hjá Landsbanka tslands.
Fyrstu ár sín starfaði Örn í Veð-
bréfadeild, varð siðar deildar-
stjóri í víxladeild Landsbankans
að Laugavegi 77. Arið 1972 var
Erni falið að gegna tímabundnum
störfum sparisjóðsstjóra við Eyr-
arsparisjóð á Patreksfirði. Næst
tekur Örn við störfum útibús-
stjóra Landsbankans á Kefla-
víkurflugvelli, og var hann þar til
ársins 1975. Það sama ár stofnset-
ur Landsbankinn útibú á Snæ-
fellsnesi, og árið eftir eru opnuð
útibú í Ólafsvik og á Hellissandi.
Eins og hér að framan greinir, þá
fól Landsbankinn Erni mikil
trúnaðarstörf. Ráðning Arnar
sem fyrsta bankastjóra Lands-
bankans á Snæfellsnesi sýnir að
stjórn bankans hlýtur að hafa
borið mikið traust til hans með
því að fela honum að gegna jafn
vandasömu starfi, sem er banka-
stjóri nýrra útibúa.
Árið 1961 kvæntist Örn eftirlif-
andi konu sinni Höllu Gísladótt-
ur, dóttur hjónanna Gísla Guð-
mundssonar og Hallfríðar Jóns-
dóttur. Byrjuðu Halla og Örn bú-
skap sinn á Baldursgötu í Reykja-
vík, en fluttust síðan til Hafnar-
fjarðar. Á meðan Örn var við
Landsbankann á Keflavíkurflug-
velli bjuggu þau þar, þar til þau
fluttust til Ölafsvíkur. Eins og hjá
jafn ágætu fólki og Höllu og Erni
þá varð hjónaband þeirra mjög
farsælt. Þau eignuðust þrjú börn
sem eru: Arnljótur fæddur 1961,
Gísli fæddur 1965 og Agústa fædd
1969.
Að eiga að lýsa Erni í stuttri
minningargrein er mér æði tor-
sótt, en segja verð ég að örn var
með meiri mannkostamönnum
sem ég hef kynnst á lífsleiðinni,
og er það mér mjög sárt að sjá á
eftir honum í blóma lífsins, og er
ég enn varla búinn að átta mig á
því að hann sé okkur horfinn héð-
an. Örn hafði alveg einstaklega
glaðværa lund, varð mjög vin-
margur og vinsæll, ekki veit ég til
að hann hafi nokkru sinni eignast
óvildarmenn. Var hann æði glögg-
ur á manngerð og sérkenni fólks,
kom oft auga á hið broslega í fari
okkar mannanna og gat verið
hnyttinn í góðlátlegum athuga-
semdum um menn og atburði.
Eins og ég gat um áður hófst
kunningsskapur okkar Arnar er
við vorum samtíða í Samvinnu-
skólanum, síðan eru liðin 23 ár, og
varð þessi kunningsskapur okkar
að vináttu. Margar ljúfar minn-
ingar um ánægjulegar samveru-
stundir koma upp í hugann þegar
ég kveð Örn, og vil ég biðja hinn
hæsta höfuðsmið er öllu ræður að
vera með Erni og ættingjum hans,
sem eiga um svo sárt að binda.
Við hjónin og möðir mín sendum
Höllu, börnunum, foreldrum og
tengdaforeldrum hins látna inni-
legar samúðarkveðjur í sorg
þeirra. Það er alltaf huggun í
harmi að geta minnst góðs drengs
sem Örn Arnljótsson var.
Hrólfur Ilalldórsson.
Opið til kl. 7 í kvöld og til
hádegis á morgun
HERRADEILD
iAUSTURSTRÆTI 14J
SKÁKSTYRKIR ERU SKATTFRJÁLSIR
SKÁKSAM BAIMD
GIRO 625000 ÍSLANDS
ÞJÓÐHATÍÐARSJÓÐUR
Stjómunarfélag Islands
Hvernig stjómum við?
LEAP-Stjórnunamámskeið
Stjórnunarfélag íslands gengst fyrir LEAP-
Stjórnunarnámskeiði 25. — 26. febrúar n.k.
Námskeiðið kennir ungum og verðandi stjórnendur sex
hagnýta þætti stjórnunar sem komið geta þeim að notum
í daglegu starfi.
Þessir þættir eru:
Skapandi hugsun og hugarflug.
Hóplausn vandamála.
Mannráðningar og mannaval.
Starfsmat og ráðgjöf.
Tjáning og sannfæring.
Hvatning.
Námskeiðið er tilvalið fyrir unga og verðandi stjórnendur
úr öllum greinum, atvinnulifs, hjá félagasamtökum og í
opinberri þjónustu.
Leiðbeinandi: Árni Árnason rekstrarhagfræðingur
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til skrifstofu SFÍ, að
Skipholti 37, í síma 82930.
SJÓB-
UTSALA
DOMUDEILD:
Flónel
300 kr. m.
Köflótt denim
300 kr. m
Köflótt bómullarefni
400 kr m.
Kjólaefni
400 kr m
Terylene kjólaefni
600 kr. m.
Svart rifflað flauel
800 kr m.
Diolin efni
b. 1 .50, 1 000 kr m.
Denimefni br 1 .50
1 000 kr m.
UII- og teryleneefni
br 1.50, 1 200 kr. m
Kvenbuxur 300 kr
Handklæði frá 400 kr.
Ullargarn margarteg.
Borðdúkarfrá 500 kr.
HERRADEILD:
Herraskyrtur
2000 kr.
Peysur frá
2000 kr.
Náttföt
1700 kr
Hlírabolir
675 kr
Stuttar buxur
675 kr
Hálfermabolir
900 kr.
Síðar buxur
1100 kr.
Stuttar
drenqjabuxur
475 kr
Drenqjaskyrtur
1700 kr
Ennþá er hægt að
gera hagstæð innkaup
OPIÐ TIL 12 LAUGARDAG
Egill Sacobsen
i ...1_A._JL? A '
Austurstræti 9
auglýsir eftir umsóknum um
styrki úr sjóðnum á árinu 1 978.
Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins nr 361 30 september 1977 er
tilgangur sjóðsins ..að veita styrki til stofnana og annarra aðila er hafa
það verkefni að vinna að varðveislu og vernd þeirra verðmæta lands og
menningar, sem núverandi kynslóð hefur tekið i arf
a) Fjórðungur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins skal renna til Frið-
lýsingarsjóðs til náttúruverndar á vegum Náttúruverndarráðs.
b) Fjórðungur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins skal renna til varð
veislu fornminja, gamalla bygginga og annarra menningarverð-
mæta á vegum Þjóðminjasafna.
Að öðru leyti úthlutar stjórn sjóðsins ráðstöfunarfé hverju sinni i
samræmi við megintilgang hans. og komi þar einnig til álita viðbótar-
styrkir til þarfa, sem getið er i liðum a) og b)
Við það skal miðað, að styrkir úr sjóðnum verði viðbótarframlag til
þeirra verkefna. sem styrkt eru. en verði ekki til þess að lækka önnur
opinþer framlög til þeirra eða draga úr stuðningi annarra við þau
Stefnt er að fyrstu úthlutun á fyrri hluta þessa árs Umsóknarfrestur er
til 20 april 1978 Umsóknareyðublöð liggja frammi i afgreiðslu
Seðlabanka íslands Hafnarstræti 10 Reykjavik Nánari upplýsingar
gefur ritari sjóðsstjórnar. Sveinbjörn Hafliðason i sima (91) 20500
bjóðhá t íðarsjóðu r
|* FERÐAKYNNING:
Oenidorm
Keflavík — Suóurnes
Stapi föstudaginn 17. febrúar
Kvöldverður kl 20
Ferðakynning: Benidorm
Skemmtiatriði: Baldur Brjánsson
Tlzkusýning: Karon-samtökin sýna
fatnað frá Evubæ, Fataval, Herrariki
og Capellu.
Ferðabingó
Danssýning: Sæmi og Didda
Dans: Hljómsveit Stefáns P
Ferðamiðstöðin hf.
Aðalstræti 9 Simar 11255 12940
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
AUGLYSINGA-
SIMINN ER:
22480