Morgunblaðið - 25.02.1978, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. FEBRUAR 1978
7
Einu sinni á
ári hverju
(og rúmlega þó)
Halldór E. Sigurðsson
samgönguráðherra benti
réttilega á þaS i útvarps-
umræðum um ráðstafanir
i efnahagsmálum, að ,,AI-
þingi hafi ekki sjaldnar en
25 sinnum siðan 1956
(eða á 22 árum) talið sig
knúið til að gripa inn i
launasamninga með ein-
um eða öðrum hætti".
Hann benti og á, að allir
núverandi þingflokkar (og
forystumenn þeirra) hefðu
margoft staðið að hlið-
stæðum efnahagsráðstöf-
unum og þeim, sem nú
væri gripið til. til að forða
rekstrarstöðvun i sjávar-
útvegi og koma i veg fyrir
viðtækt atvinnuleysi i
landinu.
Halldór E. Sigurðsson
Sá veldur
miklu sem upp-
hafinu veldur
Halldór E. Sigurðsson
vakti jafnframt athygli á
því, að Lúðvik Jósepsson,
núverandi formaður Al-
þýðubandalagsins, hefði
hafið ráðherraferil sinn í
vinstri stjórninni fyrri
(1956—1958) með þvi
að binda verðbætur á laun
i þrjá mánuði. Þessi sami
forvigismaður lauk ráð-
herraferli sinum i vinstri
stjórninni síðari
(1971 — 1974) með þvi
að fella niður verðbætur á
laun (rjúfa tengsl kaup
gjalds og visitölu), eftir að
hafa staðið að bæði
gengislækkun og sölu
skattshækkun. Samtök
frjálslyndra og vinstri
manna stóðu að vinstri
stjórninni siðari sem
kunnugt er, þó að þau
klofnuðu i afstöðu sinni til
kaupbindingarstefnunnar
1974, stóð núverandi for-
maður þeirra vel i istaðinu
i þágu þáverandi efna-
hagsráðstafana meðan
sætt var á valdastóli.
Alþýðuflokkur
og efnahags-
ráðstafanir
Halldór E. Sigurðsson
staðhæfði að minnihluta-
stjórn Alþýðuflokksins,
sem Gylfi Þ. Gislason sat
í, hafi lögfest „verulega
launalækkun árið 1959".
Einu ári siðar hafi við-
reisnarstjórnin, sem Sjálf-
stæðisflokkur og Alþýðu-
flokkur stóðu að, lögfest
aðgerðir til skerðingar
visitölubóta. Núverandi
formaður Alþýðuf lokks,
Benedikt Gröndal, greiddi
atkvæði með þvi lögbanni
á vísitölubætur, en hann
sat á þingi i bæði þau
skipti, er hér um ræðir.
Ráðherrann sagði að
efnahagsmálaf rumvarp
núverandi rikisstjómar
væri þvi ekkert nýmæli,
heldur hafi leiðtogar
stjórnarandstöðunnar
itrekað staðið að hlið-
stæðum ráðstöfunum,
þegar þeir hafi í stjórnar-
aðstöðu metið þær nauð-
synlegar til að hindra
rekstrarstöðvun fram-
leiðslu, atvinnuleysi og
enn meiri kjaraskerðingu,
sem óhjákvæmilega fylgdi
i kjölfar aðgerðarleysis i
efnahagsmálum við rikj-
andi þjóðfélagsaðstæður.
Hvað rekur
sig á annars
horn
Þegar kemur að þvi,
hver eru úrræði stjórnar-
andstöðu, rekur hvað sig
á annars horn i málflutn
ingi hennar. Gylfi Þ.
Gislason lýsti þvi yfir, að
gengislækkun hafi verið
óumflýjanleg við núver-
andi efnahagsaðstæður,
enda byggðust takmark-
Gylfi Þ Gisiason
aðar efnahagstillögur
stjórnarandstöðu i Verð-
bólgunefnd á 10% gengis-
lækkun. Lúðvik Jóseps-
son fordæmdi hins vegar
gengislækkunina, þó að
hann stæði að efnahags-
tillogum, sem bókstaflega
byggðu á gengislækkun
sem fyrr segir. Gylfi sagði
að hlutdeild launþega i
þjóðartekjum „mætti
trV99ja með þvi að tengja
laun þeirra visitölu um
þróun þjóðartekna", sem
i grundvallaratriðum kem-
ur heim við þau sjónar-
mið, að taka óbeina
skatta út úr vísitölu. Lúð-
vik snerist hins vegar hart
gegn þeirri ráðstöfun, þó
að hann hefði áður (1 974)
varað mjög eindregið við
þvi, að kaupgjald æddi
óheft upp méð verðlagi,
sem leiða myndi til stöðv-
unar i framleiðslugreinum
við þáverandi aðstæður.
Þannig er stjórnarand-
staðan margátta, ósam-
stæð og litt til forystu fall-
in, þegar kemur að raun-
hæfum aðgerðum á efna-
hagssviði.
Menn greinir vissulega
á um efnahagsráðstafanir
núverandi rikisstjórnar.
Um hitt er enginn ágrein-
ingur, almennt talað, að
stjórnarandstaðan er stór-
um lakari valkostur, þegar
að þvi kemur að velja
þjóðmálaforystu, hvort
heldur er i efnahagsmál-
um eða á öðrum sviðum
viðfangsefna þjóðarbús-
ins.
jHlEösíur
á morguti
DÖMKIRKJAN t dag, laugar-
dag kl. 10.30 árd. er barnasam-
koma í Vesturbæjarskólanum
við Öldugötu. Séra Hjalti Guð-
mundsson. A morgun sunnudag
kl. 11 árd. Messa Séra Þórir
Stephensen. Föstu essa kl. 2
síðd. Séra Hjalti Guðmundsson.
HALLGRÍMSKIRKJA Messa
kl. 11 árd. Lesmessa n.k. þriðju-
dag kl. 10.30 árd. Beðið fyrir
sjúkum. Séra Ragnar Fjalar
Lárusson
LANDSPÍTALINN Messa kl.
10 árd. Séra Ragnar Fjalar
Lárusson.
Arbæjarprestakall
Barnasamkoma í Arbæjarskóla
kl. 10.30 árd. Guðs7jónusta í
skólanum kl. 2. Séra Guðmund-
ur Þorsteinsson.
BREIÐHOTSPRESTAKALL
Barnasamkoma i Ölduselsskóla
kl. 10.30 laugardag. Barnasam-
koma í Breiðholtsskóla sunnu-
dag kl. 11. Messa í Breiðholts-
skóla kl. 2. (föstuguðsþjón-
usta). Séra Lárus Halldórsson.
BÚSTAÐAKIRKJA Barnasam-
koma kl. 11 árd. Guðsþjónusta
ki. 2 siðdegis. Kór Menntaskól-
ans við Sund syngur við mess-
una. Barnagæzla. Organisti
Guðni Þ. Guðmundsson.
Kirkjukaffi eftir messu. Séra
Olafur Skúlason, dómprófastur.
DIGRANESPRESTAKALL
Barnasamkoma í safnaðarheim-
ilinu við Bjarnhólastíg kl. 11.
Guðsþjónusta í Kópacogskirkju
kl. 2. Séra Þorbergur Kristjáns-
son.
FELLA- OG HÓLAPESTA-
KALL Barnasamkoma i Fella-
skóla kl. 11 árd. Guðsþjónusta í
safnaðarheimilinu að Keilufelli
1, kl. 2 síðd. Séra Hreinn Hjart-
arson.
GRENSASKIRKJA Barnasam-
koma kl. 11. Guðsþjónusta kl. 2,
organisti Jón G. Þórarinsson.
Séra Halldórs S. Gröndal.
HAEIGSKIRKJA Barnaguðs-
þjónusta kl. 11 árd. Séra Arn-
grimur Jónsson. Guðsþjónusta
kl. 2. Séra Tómas Sveinsson.
Síðdegisguðsþjónusta og fyrir-
bænir kl. 5. Séra Arngrímur
Jónsson.
KARSNESAPRESTAKALL
Barnasamkoma i Kársnesskóla
kl. 11 árd. Guðsþjónusta í Kópa-
vogskirkju kl. 11 árd. Séra Arni
Pálsson.
LAUGARNESKIRKJA Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Messa kl. 2
i umsjá Assafnaðar. Séra Grím-
ur Grimsson messar. Sóknar-
prestur.
LANGHOLTSPRESTAKALL
Barnasamkoma kl. 10.30. Séra
Arelíus Níelsson. Guðsþjónusta
kl. 2. í stól séra Sigurður Hauk-
ur Guðjónsson, við orgelið Jón
Stefánsson. Fullskipaður kór
kirkjunnar syngur. Sóknar-
nefndin.
NESKIRKJA Barnasainkoma
kl. 10.30 árd. Séra Guðmundur
Öskar Ölafsson. Guðsþjónusta
kl. 11. Séra Frank M. Halldórs-
son. Guðsþjónusta kl. 2. Séra
Guðmundur Óskar Ólafsson.
Fræðslu- og kynningarfundur
Guðspjall dagsins:
Lúk. 11.: Jesús rak út illan
anda.
Litur dagsins:
Fjólublár. Litur iðrunar og
yfirbótar.
verður í safnaðarheimilinu
þriðjudaginn 28. febrúar kl.
20.30.
SELTJARNARNESSÓKN
Barnasamkoma kl. 11. Séra
Frank M. Halldórsson.
DÓMKIRKJA Krists Konungs
Landakoti. Lágmessa kl. 8.30
árd. Hámessa kl. 10.30. Lág-
messa kl. 2 siðd. Alla virka daga
er lágmessa kl. 6 síðd. nema
laugardögum, þá kl. 2 síðd.
ASPRESTAKALL Messa í
Laugarneskirkju kl. 2 síðd.
Séra Grimur Grimsson.
FlLADELFlUKIRKJAN "Safn-
aðarguðsþjónusta kl. 2 siðd. Al-
menn guðsþjónusta kl. 8 síðd.
Einar J. Gíslason.
HJALPRÆÐIS ERINN Helg-
unarsamkoma kl. 11 árd.
Sunnudagaskóli kl. 2 síðd. og
Hjálpræðissamkoma kl. 8.30
siðd. Brig. Ingidjörg Jónsson:
FRÍKIRKJAN Reykjavik
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Guðni Gunnarsson. Messa kl. 2.
Séra Þorsteinn Björnsson.
KAPELLA St. Jósefssystra í
Garðabæ Hámessa kl. 2 síðd.
KEFLAVIKURPRESTAKALL
Skátaguðsþjónusta í tilefni af
Baden Powell-degi, kl. 2 síðd.
Sóknarprestur.
STOKKSEYRARKIRKJA
Barnaguðsþjónusta kl. 10.30
árd. Guðsþjónusta kl. 2 siðd.
Sóknarprestur.
LISTER
Höfum fyrirliggjandi hjálparvélasett 70 kw/
871/2 KVA
Gott verð og greiðsluskilmálar
Landrafstöðvar fyrirliggjandt, stærðó: 2V2 kw/
2Vi KVA, 7kw/, 7 KVA, 70 kw/ 871/2 KVA
Leitið nánari upplýsinga:
Vélasalan hf.
Garðastræti 6
s 15401,16341.
Gódar
b*kUr
Bokamarkaóurnn
Í HÚSI IÐNAÐARINS VD
INGÓLFSSTR/ETI
argus