Morgunblaðið - 29.03.1978, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. MARZ 1978
13
Frá aðalfundi Samvinnubankans:
Iimláns<iu kning
48,8% árið 1977
NÝLEGA var haldinn aðalfundur Samvinnubankans. Kom
þar m.a. fram að heildarinnlán námu 6.888 milljónum
króna í árslok ‘77 en 4.63Ö milljónum árið áður og höfðu
því hækkað um 48.8%. Aukning milli áranna 1976 og 1977
var 29.4%. Hjá viðskiptabönkunum í heild varð innláns-
aukning á árinu 43.1% og hækkaði því hlutdeild
Samvinnubankans í heildarinnstæðum þeirra þar með úr
8.2% í 8.6%.
Erlendur Einarsson formaður
bankaráðs flutti á fundinum
skýrslu um starfsemi bankans og
gerði hann m.a. grein fyrir þróun
peningamála. Kom þar fram að
árið hefði einkennst af miklum
sveiflum i efnahagslífi, á fyrri
hluta ársins hefðu viðskiptakjör
farið batnandi, en á síðari hluta
ársins hafi verðbólgan tekið að
vaxa hraðar og sé hún ásamt
aukningu erlendra skulda helzta
áhyggjuefnið í efnahagsmálum.
Um framkvæmdir á vegum
bankans sagði hann, að nýtt útibú
hefði verið opnað í nóvember og
því væru þau nú orðin 2 í
Reykjavík og 11 úti á landi, auk
tveggja umboðsskrifstofa. Starfs-
mönnum fjölgaði úr 108 í 114.
Einnig gat hann þess að útibúin á
Húsavík og Patreksfirði hefðu
verið tengd Reiknistofu bankanna
og yrði stefnt að því að tengja í
framtíðinni öll útibú bankans við
hana.
Kristleifur Jónsson bankastjóri
lagði síðan fram endurskoðaða
reikrýnga bankans og skýrði þá.
Auk Innlánsaukningarinnar, sem
getið er að framan, kom fram að
skipting innlána er þannig að
spariinnlán voru 77,5%, eða 5.337
m. kr. þar af vaxtaaukainnlán
30.8%, veltiinnlán eða innstæður á
tékkareikningum námu 1.551 m.
kr. Útlán hækkuðu um 38.8% og
skiptist þannig í árslok: víxillán
27.6%, yfirdráttarlán 17.9%, al-
menn verðbréfalán 18.8%, vaxta-
aukalán 15.1% og afurðalán
20.6%. Þá lánaði stofnlánadeild,
sem hefur það hlutverk að lána til
uppbyggingar verzlunarreksturs
innan samvinnuhreyfingarinnar,
samtals 267 m. kr. en árið áður
lánaði deildin 65 m. kr. I árslok
var innstæða bankans á viðskipta-
reikningi við Seðlabankann 345 m.
kr. samanborið við 242 m. kr.
yfirdráttarskuld í upphafi árs.
Lausafjárstaðan batnaði því um
587 m. kr. á árinu 1977.A árinu
voru gefin út jöfnunarhlutabréf að
upphæð 100 m. kr. og hófst
jafnframt síðara hluta ársins nýtt
hlutafjárútboð að upphæð 300 m.
Sönglög eftir
SIGVALDA KALDALÓNS og
SELMU KALDALÓNS
Söngltona;
GUÐRÚN TÖMASDÖTTfR
UndirleikUr;
ÓLAFUR VIGNIR AI BLRTSSON
SEI.MA KALDALÓNS
Plötuumslagið prýða myndir af tónskáldunum og flytjendum laganna.
Lög Sigvalda og Selmu
Kaidalóns á hljómplötu
KOMIN we út hijómplata með
lögum eftir Sigvalda og Selmu
Kaldalóns. Guðrún Tómasdóttir
syngur lögin við undirleik Ólafs
Vignis Albertssorvar, en Selma
Kaldalóns leikur undir söng
Guðrúnar við sín lög.
Þrjú lög eftir Sigvalda eru á
plötunni, sem ekki hafa heyrzt
áður, lögin Hrauntöfrar, Sólarlag
og Til næturinnar, en alls eru lög
Sigvalda á plötunni 10. Selma
Kaldalóns á 12 lög á henni.
Hljóðritun fór fram hjá Ríkisút-
varpinu og er Fálkinn h.f. útgef-
andi plötunnar.
Dr. Hallgrímur Helgason ritar
aftan á plötuumslagið nokkur orð
um lög þeirra Selmu og Sigvalda
og segir m.a., að tóngáfa sé oft
arfgeng og hafi Selma hlotið
ríflegan föðurarf. Um Sigvalda
segir hann m.a.: „Með fyrstu
sönglagaútgáfu sinni árið 1916
nær Sigvaldi strax öruggum
hljómgrunni meðal landsbúa. Ein-
stætt kvæðalag er nú orðið að
undirleiksprýddu einsöngslagi í
margbreytilegum ljóðastíl. Söngv-
ar Sigvalda fara fljótt sigurför um
land allt. Menn finna í þeim hreina
söngvagleði, sem stafar af einlæg-
um einfaldleik frá sannverðugu
innræti".
Má rifta kjara-
samningum?
STJORN Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja hefur sampykkt að
afla lögfræðilegrar álitsgerðar um
Það, hvort riftun kjarasamninga
með lögum brjóti ekki í bága við 67
gr. stjórnarskrárinnar. Hefur stjórn-
in faliö Guömundi Ingva Sigurðs-
syni, hrl., í samstarfi við tilnefnda
lögfræðinga annarra samtaka
launafólks, athugun á bessu máli.
Umrædd grein í stjórnarskránni er
svohljóðandi: „Eignarrétturinn er
friðhelgur. Engan má skylda til að
láta at hendi eign sína, nema
almenningsþörf krefji; þarf til þess
lagafyrirmæli, og komi full verð fyrir“.
Kristleifur Jónsson bankastjóri í ræðustóli á aðalfundi Samvinnubankans.
kr. og nam sala þeirra um
áramótin 263 m. kr. Eigið fé
bankans, þ.e. varasjóður, innborg-
að hlutafé ásamt öðrum eiginfjár-
reikningum, nam í árslok 496 m.
kr. Samþykkt var að greiða
hluthöfum 10% arð á allt innborg-
að hlutafé og jöfnunarhlutabréf.
Endurkjörnir í bankaráð voru
Erlendur Einarsson, Hjörtur
Hjartar og Vilhjálmur Jónsson og
til vara Hallgrímur Sigurðsson,
Hjalti Pálsson og Ingólfur Olafs-
son. Endurskoðendur voru kjörnir
Oskar Jónatansson og Magnús
Kristjánsson, en Ásgeir G. Jó-
hannesson er skipaður af ráð-
herra.
heimilistæki sf
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 1 5655
Philco l________□
og fossandi vatn
gera þvottinn mjallhvitan
Helztu kostir Philco þvottavéla:
# Heitt og kalt vatn inn — sparar
tíma og rafmagnskostnað.
# Vinduhraði allt að 850 snún/mín
— flýtir þurrkun ótrúlega.
# 4 hitastig (32/45/60/90 °C)
— hentar öllum þvotti.
# 2 stillingar fyrir vatnsmagn
— orkusparnaður.
# Viðurkennt ullarkerfi.
# Stór þvottabelgur — þvær betur
fulla vél.
# 3 mismunandi hraðar í þvotti og
tveir í vindu — tryggir rétta
meðferð alls þvottar.
# Stór hurð — auðveldar hleðslu.
# 3 hólf fyrir sápu og mýkingarefni.
# Fjöldi kerfa — hentar þörfum og
þoli alls þvottar.
# Nýtt stjórnborð skýrir með tákn-
um hvert þvottakerfi.
# Þvottakerfum hægt að flýta og
breyta á auðveldan hátt.
# Fullkomin viðgerðarþjónusta
— yðar hagur.