Morgunblaðið - 29.03.1978, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. MARZ 1978
17
• Standard Liege vann Racing
White Molenbeck 3:1 í 1. deildinni
í Belgíu um páskahelgina og er í
2. saeti deildarinnar með 41 stig.
Efst er Briigge með 44 stig, en
liöíð tapaði pó leik sínum um
helgina. Anderlecht er í priðja
sæti meö 40 stig og gerði sér lítið
fyrir og gaf unnendum sínum
stórt páskaegg um helgina er
liðið vann Boom 9:0 á heímavelli
sínum. Fleiri lið en Brúgge,
Standard og Anderlecht eíga
ekki möguleika á sigri í deildinni.
• Celtic vann sætan sigur yfir
Rangers í skozku úrvalsdeildinni
um helgina, 2:0 á heimavelli
Celtic. McDonald og Glavin skor-
uöu mörkin, en í nokkrum skozku
blaöanna er Jóhannesi Eövalds-
syni hrósað mjög og hann talinn
bezti maður vallarins. Segir
Mirror t.d. að paö hafi ekki komið
á óvart, Jóhannes eigi alltaf
stórleiki í viðureignum erkióvin-
anna.
• PSV Eindhoven heldur sínu
striki í hollensku 1. deildinni og
liðið hefur nú sex stiga forystu,
hefur ekki tapað leik í Hollandi á
keppnístímabilinu. Um helgina
gerði liðiö jafntefli, 0:0, á útívelli
gegn Spörtu. Twente er í 2. sæti
deildarinnar, AZ ‘67 er í priðja
sæti meö 39 stig.
V_________________________________
• Real Madrid virðist vera aö
stinga Barcelona af á Spáni og
vann Sociedad 5:0 um helgina, en
á sama tíma tapaði Barcelona 1:2
fyrir Sevilla.
• Belgar unnu Austurríkismenn
1:0 í vináttulandsleik í knatt-
spyrnu á miðvikudaginn í
Charleroi. Eina mark leiksins
skoraði Geurts rétt fyrir lok fyrri
hálfleiks. Leikurinn var liður í
undírbúningi Austurríkismanna
fyrir HM í Argentínu og fyrsti
sigur Belga i leikjum pjóðanna
síðustu 53 árin.
• Pólland vann Luxemborg 3:1 á
miövikudaginn. Lubanski og
Szarmach (2) skoruöu fyrir HM-
lið Pólverja, en Reiter eina mark
Luxemborgara.
• Argentína vann Perú 3:1 í
knattspyrnulandsleik á skírdag,
en leikið var í Lima. Luque,
Pasrarella og Houseman skoruöu
fyrir HM-gestgjafa Argentinu, en
Oblitas eina mark Perú. Liðin
léku einnig saman fyrir viku og
pá vann Argentína 2:1.
• Akranes vann Hauka 2:0 í Litlu
bikarkeppninni í knattspyrnu um
helgina og hafa pví unnið báða
leiki sina í keppninni til pessa, en
peir unnu FH 3:1 fyrir 10 dögum.
Meistarakeppni KSÍ hefst um
næstu heigi með leik Vals og ÍA
á Melavelli og Reykjavíkurmótið
er á næsta leyti.
ÓLAFSFIRÐINGAR voru
mjÖK sigursælir á SkíAamóti
íslands, sem fram fór í
skíóalöndum ReykvíkinKa um
páskana. Feneu Ólafsfirðing-
ar 11 af 19 Islandsmeistara-
titlum og 22 verðlaunapen-
inga samtals. Það var í
norrænu greinunum, sem ól-
afsfirðingarnir voru ósigr-
andi og er þcssi mynd frá
keppninni í 30 km göngu, en
á blaðsíðum 20—23 er greint
frá gangi mála á
skíðalandsmótinu.
Þau stóðu sig bezt á íslandsmótinu í borðtennis, Ragnhildur Sigurðardóttir, Stefán Konráðsson,
Guðrún Einarsdóttir, Hjálmtýr Hafsteinsson og Tómas Guðjónsson.
íslandsmótið í borðtennis:
MEISTARARNIR FELLU
MEISTARAMÓT islands í borðtennis
fór fram dagan 22. og 23. marz í
Laugardalshöllinni. Keppendur voru
alls 139 í 16 flokkum og er þetta
fjölmennasta íslandsmót í borðtennis
til þessa. íslandmeisturunum frá í
fyrra tókst ekki að verja titla sína,
Gunnar Finnbjörnsson tapaöi fyrir
Hjálmtý Hafsteinssyni í undanúrslit-
um og Ásta Urbancic tapaði fyrir
Ragnhildi Sigurðardóttur í úrslita-
leiknum. í úrslitaleiknum í karlaflokki
mætti Tómas Guðjónsson Hjálmtý
Hafsteinssyni og sigraöi Tórrias eftir
skemmtilega keppni. Tómas vann
fyrstu lotuna 21:11. Hjálmtýr þá
næstu 21:14, en Tómas vann svo
næstu tvær lotur 21:10 og 21:16 og
þar með leikinn 3—1. Hann var vel
að sigrinum kominn. lék af öryggi og
komst hann aldrei í eriðleika í mótinu
og segir það nokkuð til um hæfni
hans. i meistaraflokki kvenna sigraði
Ragnhildur Sigurðardóttir Ástu
Urbancic í úrslitum. Sigraöi Ásta í
fyrstu lotu 21:15. en í þremur síöustu
sigraöi Ragnhildur og lék vel, vann
hún 21:16. 21:16. og 21:18. Ragn-
hildur er dóttir hins kunna íþrótta-
frömuöar Sigurðar Guömundssonar í
Leirárskóla í Borgarfirði. Hörkuviður-
eign var í tvíliðaleik karla, þar
sigruöu Tómas og Hjálmtýr þá
Gunnar Finnbjörnsson og Ragnar
Ragnarsson. Erninum. Fyrsta lotan
endaði með sigri Gunnars ög
Ragnars 21:17, þá unnu Tómas og
Hjálmtýr 21:15 og þá þriöju 21:17, en
Gunnar og Ragnar gáfust ekki upp
og siruðu í fjórðu lotu 21:16, en í
oddaleiknum sigruöu Tómas og
Hjálmtýr 21:17. Mikil keppni var í
öllum flokkum á mótinu og oft var
mjótt á mununum. mundaði þar
margur borötennisspaðann lipur-
lega. Guðrún Einarsdóttir, Gerplu,
sem varö sigurvegari í tvenndar-
keppni ásamt Stefáni Konráössyni,
hlaut nú islandsmeistaratitil í
tvenndarkeppni í 6. skipti.
Urslit urðu sem hér segir:
Meistaraflokkur karla.
Tómas- Guöjónsson KR
Hjálmtýr Hafsteinsson KR
Gunnar Finnbjörnss. Erninum
Meistaraflokkur kvenna
Ragnhildur Sigurðard. UMSB
Ásta Urbancic Erninum
Sigrún Bjarnad. UMSB
1. flokkur karla
Brynjólfur Þórisson G
Vignir Kristmundss. Erninum
Ómar Ingvarsson K
Stúlknaflokkur
Ragnhildur Sigurðard. UMSB
Nanna Haröard. Víkingi
Dagrún H|artard. Víkingi
Drengir 15—17 ára
Ómar Ingvarss. UMFK
Gylfi Pálss. UMFK
Þorfinnur Guðmundss. Erninum
Sveinar 13—15 ára
Bjarni Kristjánss. UMFK
Hafliöi Kristjánss. UMFK
Krisþán Jónas. Víkingi
Einliöaleikur 13 ára
Einar Einarss. Víkingi
Haukur Stefánss. Víkingi
Snorri Jóhanness. HSK
Old boys
Þórður Þorvarðars. Erninum
Stefán Árnason KR
Birkir Gunnarss. Erninum
Tvítiðaleikur 15—17 ára
Gylfi Pálsson og
Ómar Ingvarss. UMFK
Vignír Kristmundss. og
Þorfinnur Guðmundss. Erninum
Tvíliöaleikur 15 ára og yngri
Finnur Guömundss. og
Ólafur Birgiss. UMFK
Bjarm Kristjánss. og
Hafliði Kristjánss. UMFK
Tvíliöaleikur kvenna
Guðrún Einarsd. og
Sveina Sveinbjörnsd. Gerplu
Ásta Urbancic og
Hafdís Ásgeirsdóttir.
Skíðasjóður íslands stofnaður:
Takmarkið að halda úti
15 manna landsliðshópi
t t
- segir Sæmundur Qskarsson, formaður Skíðasambands Islands
„VIÐ bindum miklar vonir við
þennan Skíðasjóð íslands og
ætlum að hann gcti strax orðið
jafngildi annarra fjárödunar-
leiða Skíðasambandsins og í
framtíðinni mun öflugri,“
sagði Sæmundur Óskarsson,
prófessor, er Mbl. ræddi við
hann að loknu Skíðaþingi, en
Sæmundur var kjörinn
formaður Skíðasambands
íslands, þegar Hákon ólafsson
gaf ekki kost á sér til frekari
formcnnsku. „Ég kannaði þetta
mál á mikilli skíðasýningu í
V Þýzkalandi nýlega og ræddi
þar við fulltrúa 35 fram-
íeiðenda skíða og
skíðabúnaðar. Af þeim lýstu 29
áhuga á að vera með í íslenzk-
um skíðasjóði. Allir vildu
leggja fram útbúnað, en 10
vildu ekki greiða í sjóðinn.
Hinir 19 lýstu því yfir að
greiðslur þeirra yrðu *háöar
skilyrðum okkar. Það verður
svo eitt fyrsta verk okkar
stjórnarinnar að leiða þetta
mál til kykta.“
„Eins og málin standa nú,
teldi ég æskilegast, að við
héldum út ekki minna en
fimmtán manna landsliðshópi,“
sagði Sæmundur. „Tíu manns í
alpagreinum og fimm í norrænu
greinunum. Nú telur landsliöið 5
manns; Sigurð Jónsson, Hauk
Jóhannsson, Hafþór Júlíusson
og Steinunn Sæmundsdóttir í
alpagreinum og í göngu voru
valdir tveir landsliðsmenn;
Magnús Eiríksson og Halldór
Matthíasson.
Við í stjórninni höfum mikinn
hug á að stækka landsliðshópinn
og einnig að halda honum
lengur út til keppni. Alpaliðinu
þyrfti að halda erlendis við
æfingar og þjálfun, en norrænu
greinarnar ættum við að geta
æft heima, en auðvitað þarf til
þeirra þjálfara, eins og hinna.
Svo er að halda liðinu út til
keppni. Aðalkeppnistímabilið
ytra er frá desember til apríl og
ég tel, að við ættum að stefna að
því að halda landsliðinu úti til
keppni í minnsta kosti þrjá
mánuði á ári~.“
—Hver yrði kostnaðurinn við
slíkt?
„Ef áætlunin liti svona út hjá
Sæmundur óskarsson, formaður Skíðasambands íslands. Hann er
faðir Steinunnar Sæmundsdóttur t.v. þrefalds íslandsmeistara á
landsmóti 1978. og Ásu Hrönn Sæmundsdóttur, sem einnig lét mjög
að sér kveða í alpagreinunum á landsmótinu.
okkur, yrði kostnaðurinn ekki
undir20 milljónum króna, en til
samanburðar má geta þess, að
fjárhagsáætlun næsta starfsárs
hljóðar upp á 5 milljónir, sem er
sama upphæð ogsíðar, en þá
varð hallinn á starfseminni um
500 þúsund krónur.
Það er því ljóst að við þurfum
mjög aukið fé og þar bindum við
okkar vonir við skíðasjóðinn."
— Hvernig yrði hann byggður
upp?
„Skíðasjóður Islands myndi
byggjast upp á framlögum frá
framleiðendum skíðsbúnaðar.
Framleiðendur hafa áhuga á
því að bezta skíðafólk hvers
lands not búnað þeirra og þeir
eru tilbúnir að greiða fyrir það
fé. Samkvæmt alþjóðareglum er
keppendum ekki heimilt að taka
við slíku fé, en skíðasamböndin
mega það eftir ákveðnum
reglum.
Þetta fer þannig fram, að
skíðasambandið sendir fram-
leiðendum tilboð um að vera
með í skíðasjóði og er þá hvort'
tveggja til að sett er ákveðin
upphæð á hve4n keppanda og
heildarupphæð á allt liðið, allt
eftir því, hvaða vörutegund er
Kramhald á hls. 26.