Morgunblaðið - 29.03.1978, Síða 19

Morgunblaðið - 29.03.1978, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. MARZ 1978 19 ÍSLANDSMEISTARAR KRi Efri röð frá vinstri: Sveinn Jónsson form. Kr., Carsten Kristinsson, Þröstur Guðmundsson, Bjarni Jóhannesson, Gunnar Jóakimsson, Kristinn Stefánsson, Einar Bollason, Eiríkur Jóhannesson, Einar Sæmundsson fyrrv. form. KR, Stefán Hallgrímsson og Helgi Ágústsson liðsstjóri. Aftari röð frá vinstri: Helgi Helgason lukkudrengur, Árni Guðmundsson, Ágúst Líndal, Andy Piazza, Jón Sigurðsson og Kolbeinn Pálsson. Fremst á myndinni eru sonur og dóttir Jóns Sigurðssonar. Ljósm. Fríðþjófur. KR ISLANDSM EISTARI „Við áttum þetta skilið. Baráttan var geysileg, en sigurinn er þeim mun sætari,“ sagði fyrirliði KR, Einar Bullason, eftir að KR-ingar höfðu innbyrt sigur í einu mest spennandi íslandsmóti í körfuknattleik um áraraðir. Höllin var þéttsetin áhorfendum, en um 1700 manns komu til að sjá leikinn og er það met á körfuboltaleik hérlendis. Njarðvíkingar voru að vonum niðurlútir eftir þetta 10 stiga tap, og sáu nú á eftir enn einum bikarnum í hendur KR-inga. Lokatölurnar, 96—86, gefa nokkuð rétta mynd af leiknumt sterkara liðið vann, en Njarðvíkingar voru þó aðeins fetinu á eftir. KR-ingar tóku strax forystuna í leiknum og komust í 4—0, en Njarðvíkingar svöruðu fljótlega fyrir sig. Þá komust KR-ingar í 10—4 og virtust Njarðvíkingar mjög óöruggir og þurftu full- langan tíma til að jafna sig. KR-ingar hins vegar léku á als oddi og skoruðu jafnt og þétt á Njarðvíkingana. Um miðjan fyrri hálfleik var staðan 20—12 KR í vil, en þá loksins komust Njarðvíkingar í gang og jöfnuðu leikinn á örskömmum tíma. Á 11. mínútu hálfleiksins komust þeir síðan yfir 23—22, en það var reyndar í eina skiptið í leiknum því KR-ingar vöknuðu af dvalan- um og með stórgóðum leik Andy Piazza og Jóns Sigurðssonar komust þeir í 38—33. Liðin skoruðu síðan jafnt á báða bóga út hálfleikinn, en staðan í hálfleik var 45—41 KR-ingum í vil. KR-ingar komu til seinni hálfleiksins, sem óðir væru og tóku strax á upphafsmínútum hálfleiksins afgerandi forystu í leiknum. Skoruðu þeir 8 fyrstu stigin og komust síðan í 10—2 og virtust Njarðvíkingar vart vita hvar þeir voru staddir því að bæði varnar- og sóknarleikur þeirra var í molum. Um miðjan Þetta er í 7. sinn, sem titillinn fer til KR-inga, en síðast unnu þeir hann 1974. Lið KR lék allan leikinn í gær eins og meisturum sæmir. Allir unnu vel saman bæði í vörn og sókn, en þótt allir KR-ingar hafi átt góðan leik voru tveir þeirra, sem stóðu upp úr, en það voru Jón Sigurðsson og Andy Piazza. Er óhætt að segja að báðir hafi þarna leikið^ sinn besta leik í vetur, Njarðvíkingar gátu lítið átt við hraða og knattmeðferð Jóns og Piazza hitti nánast alls staðar. Þá skal tveggja annarra getið, en það eru þeir Kristinn Stefánsson og Gunnar Jóakims- son. Kristinn hirti aragrúa frákasta og skoraði 14 stig, en Gunnar kom inná í seinni hálfleik og skoraði strax 8 stig, sem ef til vill gerðu út um leikinn því Njarðvíkingar voru farnir að síga á. Lið Njarðvíkinga hefur oft verið betra en í gærkveldi, en Lelst má um kenna hvað liðið var seint í gang í báðum hálfleikjunum. Leikmenn UMFN verða nú að bíta enn einu sinnií súra eplið og láta sér 2. sætið lynda. Langbestur Njarðvíkinga var Kári Marisson, sem dreif félaga sína áfram allan leikinn með ódrepandi dugnaði þótt illa gengi. Kári kveður nú körfu- knattleikinn, en gerist bóndi í Skagafirði og er mikil eftirsjá í þessum litríka íþróttamanni. Aðrir Njarðvíkingar voru undir meðallagi, nema hvað helst Þorsteinn Bjarnason, sem var að vanda drjúgur. Stig KR skoruðu: Jón Sig. 24, Andy 20, Kristinn og Bjarni Jóhannesson 14 stig, Einar 12 stig, Gunnar 8, Árni Guðmunds- son, Kolbeinn Pálsson, sem var leynivopn KR-inga og dugði vel, og Ágúst Líndal skoruðu 2 stig hver. Stig Njarðvíkinga skoruðu: Þorsteinn 24, Kári 19, Gunnar Þorvarðarson 13, Brynjar Sig- mundsson og Geir Þorsteinsson 8 stig, Stefán Bjarkason 6 stig, Árni Lárusson 5 stig og Jónas Jóhannesson 4 stig. Dómarar voru Sigurður Valur Halldórsson óg Erlendur Eysteinsson og höfðu þeir góð tök á leiknum allan tímann. Vítaskot skiptust þannig: KR 24:16 UMFN 35-24. Villur skiptust: KR 25, UMFN 21. Eftir leikinn sagði Geir Þo- steinsson, sem er aðal baráttu- jaxlinn hjá UMFNi „Þetta eru geysileg vonbrigði. Við héldum að loks fengjum við titil, en það er erfitt að eiga við þessa KR-inga þeir „halda alltaf haus“ og ná fram góðum leik þegar þess þarf. Við erum búnir að vera of lengi í 2. sæti, og næsti vetur verður okkar. En núna held ég að það sé best að fara heim og gráta!“ „Þetta er geysilega erfiður leikur“, sagði Andy Piazza þjálfari KR-inga eftir leikinn. „Eg er ánægður með veturinn og í kvöld er endirinn á löngu en ánægjulegu starfi. Njarð- víkingar eru baráttu lið og ég var ekki viss um sigur fyrr en flautað var til leiksloka. Ég fer heim á morgun, en KR hefur farið þess á leit við mig að ég komi aftur næsta haust og geri ég fastlega ráð fyrir að svo verði“. Einar Bollason sagðii „Eftir nokkra lægð hjá liðinu náðum við nú að sýna okkar besta. Við bjuggum okkur vel undir leik- inn og ég held að samheldni leikmanna og góður félagsandi hafi haft mest að segja í kvöld“. GG Landinn í síðasta sætinu í Víðavangs- hlaupi heimsins ISLENDINGAR uröu aö sætta sig viö neðsta sætiö í Víöavangs- hlaupi heimsins sem háð var í Glasgow um páskana. Sveitin lenti í 20. sæti í keppninni, varö 10 stigum á eftir sveit Japans. Vegaiengdín, sem hlaupin var, var um 12,3 kílómetrar og var brautin pung og blaut. Jón Diðriksson, UMSB, kom fyrstur íslendinga í mark, varð i 130. sæti. 190 hlauparar hófu keppni, en 159 luku hlaupinu. Heims- meistari í víóavangshlaupi varö írinn John Treacy og Frakkar sigruóu i sveitakeppninni. Brautin sem keppt var í reyndist mörgum hlaupurum erfið. Gáfust margir upp vegna færöarinnar og einnig purfti að flytja á sjúkrahús pá sem höfóu ofgert sér og misst meðvítund af áreynslunni. Færðin olli nokkru stjörnuhrapi, pví i eöjunni sprungu m.a. Portúgalinn Lopes, sigurvegari ‘76 og annar ‘77, Hollendingurinn Hermens, Sví- inn Dan Glans og Belgíumaður- inn Leon Schots sem sigraði i fyrra. Svíar luku ekki sveita- keppninní par sem aðeins tveir hlauparar peirra luku pví. í kvennakeppninni sigraði norska stúlkan Greta Waitz með miklum yfirburðum. Dansk-ís- lenzka stúlkan Lóa Ólafsson var í fremstu röð í byrjun, en brekkurnar og færðin sáu til pess að hún hafnaði í 32. sæti. Norðurlandapjóðirnar sendu fáar sveitir i hlaupiö aö pessu sinni. Finnar sendu enga sveit nú, en hafa verið með í karla-, kvenna- og unglingahlaupinu undanfarin ár. Norðmenn sendu nú aðeins kvennasveit, en pað er reyndar í fyrsta sinn sem peir senda sveít tit heimsmeistara- mótsins í víðavangshlaupi. Svíar hafa um árabil sent sveit i karlaflokkinn. Hefur sveit peirra ýmist ekki lokið hlaupinu eða verið í einu af neðstu premur sætunum. Danir sendu nú ein- göngu kvennasveit og varð hún í 15. sæti af 17. Þeir tóku eitt sinn pátt í karlahlaupinu og urðu pá síðastir. islendingar sendu nú sveit í fyrsta sinn til mótsins. í sveitinni voru Jón Diðriksson, UMSB (130), Sigfús Jónsson, ÍR (138), Ágúst Porsteinsson UMSB (145), Ágúst Ásgeirsson, ÍR (155), Sigurður P. Sigmundsson, FH (157) , Hafsteinn Óskarsson. ÍR (158) , og Einar P. Guðmundsson, FH (159). í svigunum er röð hlauparanna í htaupinu. Bikarleik- ur í Eyjum EINN leikur fer fram í Bikar- keppni IISÍ í kviild t fþróttahús- inu í Vestmannaeyjum. Þór. nýbakaður aigurvegari í 3. deild. leikur gegn Víkingi. efsta lióinu í 1. deild. KR-MÓT KR-ingar gangast fyrir móti í ípróttahúsi KR i kvöld. Keppt verður í langstökki karla og kvenna án atrennu og kútuvarpi seinni hálfleikinn var staðan orðin 75—55 og var nú titillinn nánast í höfn hjá Vesturbæjar- liðinu. En Njarðvíkingar eru þekktir fyrir allt annað en að gefast upp og með geysilegri baráttu jtókst þeim að minnka muninn í 11 stig þegar um 4 mínútur voru til leiksloka. En KR-ingar „héldu haus“ eins og það er kallað á íþróttamáli og jafnvel þótt Einar Bollason væri farinn út af með 5 villur sigldu KR-ingar sigrinum örugglega í höfn og íslandsmeistaratitillinn var tryggður með 96—86 sigri. HM í K N A T T S P Y R N U 50/i? EO'Í t5T/AÆ> AE> AUDA UÍ^TTAJC. CbfcAS'lÚólCiA. U4<S>'tO &MKJ v/tsfee: , ,>£>g,6t.&fcr\fc. ocr Of£.OOOA'r'AlC T=ÍkJOA AOKJA. . . . . . - . S.LL6.FO þViáJÚTufK LeíiCS uoc ÖCoeAe: LiTUi FKAMucVfteuRu INJkJ £HI(jAIA AtdUA€> IMARIk; ö£asíl4a TaFYA^. Þ-AÍif-iOTlJ .CJAF’kJA.e SCHiafPíoO. BiCtA giKJCO VJOK) Bkj. . - •

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.