Morgunblaðið - 29.03.1978, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. MARZ 1978
—
Jón Konráfts.son (t.v.) og Guómundur Garóarsson frá ólafsforði.
Nú stefnum við á
Ólympíuleikana
- segja Guðmundur Garðarsson og Jón
Konráðsson, fslandsmeistarar 17-19 ára
„Nú stefnum við bara á það að
komast á Ólympíuleikana eins
og Iiaukur Sifíurðsson," sögðu
Óiafsfirðinnarnir Guðmundur
Garðarsson og Jón Konráðsson,
er Mbl. ræddi við þá eftir 15 km
gönKu 17—19 ára, en þar varð
Jón íslandsmeistari, en Guð-
mundur vann 10 km gönguna ot?
einnití vann hann stökkið og
norrænu tvíkeppnina, en Jón
vann tvíkeppnina í göngu, en í
10 km göngunni varð hann
þriðji. Báðir voru þeir svo í
sigursveit Ólafsfirðinga í boð-
göngunni.
„Það er svo góð aðstaða á
Ólafsfirði, að hún hlýtur að
kveikja i manni áhuga," sagði
Guðmundur, þegar Mbl. spurði
uni ástæðuna fyrir velgengni
Ólafsfirðinga í norraenu
greinunum. „Svo á Björn Þór
Ólafsson stóran þátt í þessu.
Hann er allan sólarhringinn að
snúast í kringum þetta."
„Þetta hefur auðvitað allt sín
áhrif,“ sagði Jón. „Og rekur
mann svo áfram, þegar maður
nær einhverjum árangri. Kg er
búinn að æfa ge.vsivel í vetur og
það er ekki ónýtt að hafa mann
eins og Hauk Sigurðsson tii
stöðugrar viðmiðunar."
Guðmundur sagði, að 15 km
gangan hefði reynzt sér erfið.
„Það gekk ekki alveg upp dæmið
hjá mér með smurninguna."
„Kg var nú orðinn hálfvonlaus
eftir 10 km. Kg átti aldrei von
á því að tapa þeirri göngu,“
sagði Jón. „Kn svo hugsaði ég
með mér í morgun, að nú væri
annaðhvort að duga eða drepast
og þá fékk ég vonina aftur."
— Hvort finnst ykkur
skemmtilegra; stökkið eða gang-
an?
„Ég myndi bóka stökkið
skemmtilegra,“ segir Guðmund-
ur. „F)n mér líður alltaf óskap-
lega vel, þegar ég er búinn að
ganga.“
„Þetta er alveg eins og í
draumi fyrsta klukkutímann á
eftir," segir Jón. „Kg valdi
gönguna í fyrra. Hætti þá við
stökkið, en ég hef einu sinni
orðið unglingameistari í
norrænni tvíkeppni.
Kn i vetur hef ég bara stokkið
á einu móti. Kg kom nú með
stökkskiðin með mér hingað og
hugsaði mér að fara í stökkið, ef
ég hefði svolítið forskot eftir 10
km gönguna. F?n hún fór nú eins
og hún fór og ég hætti alveg við
þátttöku í stökkinu."
— Nú sýnir það sig, að norksu
gestirnir standa ykkur íslend-
ingunum talsvert framar í
göngunni.
„Það er von,“ segja þeir báðir.
„Okkur vantar meiri frí í þetta,
ef við eigum að geta veitt
útlendingum einhverja keppni.
Þetta eru menn, sem gera lítið
annað en að ganga, en okkur
vantar tíma, þjálfara og góðar
slóðir til að standa þeim jafn-
fætis. F]f við fengjum þetta og
svo tækifærin til að keppa, þá
þyrftum við ekki alltaf að horfa
í bakið á þessum mönnuín."
11 af 19 Isiandsmeisturum
og 22 af 54 verðlaunapeningum
ÓLAFSF’IRÐINGAR héldu af landsmóti með digrastan
sjóð verðlaunapeninga, samtals 22, þar á meöal 11 af 19
Gull Silfur Brons Samt.
Ólafsfirðinf/ar 11 4 7 22
Reykvíkingar 3 6 4 13
Isfirðingar 3 5 3 11
Akureyringar 2 2 3 7
Húsvíkingar 1 1
Eins og stendur langar
mig ekki til annars en
að stunda skíðin
- segir Sigurður
Jónsson frá ísafirði
„ÉG ætlaði að vara farinn út
fyrir viku en treysti mér ekki
út af hakinu. Mér fannst svo
upplagt að hafa landsmótið
sem prófstein á það. hvort ég
væri tilhúinn í slaginn aftur."
sagði Sigurður Jónsson frá
ísafirði. er Mbl. ræddi við hann
á landsmótinu, en þar varð
Sigurður þrefaldur Islands-
meistari. vann svigið og stór-
svigið og alpatvfkeppnina.
„Kg fer svo út í næstu viku,“
sagði Sigurður. „Og ætla að vera
með á mótum í Noregi og
F’innlandi, sem gefa alþjóðlega
punkta."
Sigurður hefur átt við slæm
veikindi að stríða í vetur. „Ég er
mest búinn að liggja heima á
ísafirði," sagði Sigurður. „Ég
var skorinn upp á hné í fyrra og
var ekki búinn að jafna mig fyrr
en um jól.
Ég fór svo út í janúar og var
út heimsrneistaramótið. Eftir
það fór ég með sænska lands-
liðinu til Svíþjóðar og Noregs.
Þar meiddi ég mig í bakinu á
æfingu og varð að koma heim
aftur."
— Þannig að þú hefur ekki
bætt stöðuna í vetur?
„Nei. Það hefur heldur bætzt
á mig. Ég er núna með 19
punkta, en var kominn með 16
í fyrra."
— Hvernig gekk á heims-
meistaramótinu?
„Mér gekk vel í sviginu; varð
númer 13. Það dugði þó ekki til
þess að laga neitt fyrir mér
rásröðina því tímamunurinn var
of mikill. En ég er ánægður með
Sigurður Jónsson sýndi sannkaliaða meistaratakta í sviginu.
13. . sætið eftir atvikum."
— Hvað með stórsvigið?
„Blessaður minnztu ekki á
það. Við erum miklu lengra á
eftir í því. Þetta er allt önnur
tækni, sem menn nota í stór-
sviginu. Það er miklu erfiðara
og krefst bæði erfiðari tækni og
meira úthalds en svigið.“
— Hvernig finnst þér keppnin
hafa verið hér á landsmótinu?
„Brautirnar voru mér
auðveldari bæði í stórsviginu og
sviginu. F’ærið i sviginu var
alveg óskaplega lélegt, en stór-
svigskeppnin var reglulega
skemmtileg; gott veður og færið
fínt.“
— Hver finnst þér vera
munurinn á því að keppa hér
heima og erlendis?
„Munurinn liggur fyrst og
fremst í færinu. Úti er færið
hart og skemmtilegt en hér
heima flýtur maður bara á
snjónum og fer í gegn.“
— Hugsarðu til margra ára í
keppni erlendis?
„Það fer auðvitað allt eftir
árangrinum. Og svo er nú alltaf
erfitt að vera að spá nokkuð í
framtíðina.
En eins og stendur langar mig
ekki til annars," sagði Sigurður
að lokum.
Veðrið kippir manni
niður á jörðina aftur
- segir Steinunn Sæmundsdóttir, þrefaldur Islandsmeistari í alpagreinum
„ÞAÐ er alla vega ekkert verra
að keppa svona á heimavelli."
sagði Steinunn Sa'mundsdóttir,
íslandsmeistari í svigi, stór-
svigi og alpatv íkeppni kvenna,
þegar Mbl. spurði, hvort hún
teldi, að það hefði eitthvað að
segja fyrir hana, að landsmótið
færi fram í Reykjavík. Svo
bætti hún viði „Það er alltaf
þa>gilegra að keppa heima en
að heiman."
Um stórsvigið og svigið sagði
Steinunn: „Stórsvigið var
skemmtilegt. Það var svo gott
veður og brautin var skemmti-
legri en í sviginu. Og í sviginu
var færið alveg óskaplegt, eins
og sést á þeim fjölda, sem hætti
keppni. Snjórinn var eins og
leðja og kantarnir hafa bitið of
vel, þannig að stelpurnar sátu
hreinlega fastar."
— Þú hefur verið erlendis?
Steinunn Sæmundsdóttir var yfirburðasigurvegari í svigi og
stórsvigi og þá einnig í alpatvíkeppninni.
„Já. Ég er búin að vera í tvo
mánuði úti að æfa og keppa; á
Ítalíu, í Frakklandi, Sviss,
Austurríki og Þýzkalandi, þar
sem ég tók þátt í
heimsmeistarakeppninni.“
— Hvernig gekk?
„Nokkuð vel. Ég varð í 29. sæti
í sviginu og komst niður um 50
punkta, sem hefur mikið að
segja upp á rásnúmerið næst.“
— Hvað tekur nú við?
„Eg er á förum til Noregs og
Finnlands, þar sem ég ætla að
taka þátt í alþjóðlegum skíða-
móturn."
— Hvað finnst þér þú helzt
sækja til útlanda?
„Það eru miklu lengri brekkur
þar en hér og maður fær meira
út úr því að keppa í þeim. Svo
er veðrið betra og færið allt
annað og skemmtilegra."
— Ertu þá ekki orðin afvön
svona íslenzkum aðstæðum?
„Nei, nei. Ég er nú búin að
æfa í brjáluðu veðri hér heima
í viku fyrir þetta landsmót. Það
kippir manni alveg niður á
jörðina aftur, hvað aðstæðurnar
snertir."