Morgunblaðið - 29.03.1978, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. MARZ 1978
31
Lú ther Hróbjarts-
son - Minningarorð
Fæddur 24. maí 1888
Dáinn 14. mars 1978
Deyr fé. deyja frændur
deyr sjálfur hið sama
en orstfr deyr aldregi
hveim cr sér góðan getur.
Eitt eigum við öll víst sem
fæðumst í þennan heim, öll
skulum við deyja þó jarðvistin sé
mislöng hjá hverjum og einum. Nú
hefur Lúther frændi lokið göng-
unni gegnum lífið. Hans æviganga
varð löng, nálega 90 ár. Samt gæti
maður trúað því, að það hafi ekki
verið honum iangur tími svo
starfsömum manni sem setti
metnað sinn í að leysa hvern þann
vanda sem að höndum bar.
Lúther Hróbjartsson var fædd-
ur 24. maí 1977 ,á Velli í Hvol-
hreppi. Foreldrar hans voru Hró-
bjartur Hróbjartsson og Bjarg-
hildur Magnúsdóttir, bæði Rangæ-
ingar, og var hann elstur barna
þeirra og eini sonur, sem upp
komst. Þau fluttust til Eyrarbakka
1893 þar sem Lúther ólst upp í
stórum hópi systkina við lítil efni
sem og flestir þeirra tíma enda fór
Lúther snemma að taka til hendi
og vinna fyrir sér við allt sem til
féll, til sjávar og sveita.
Arið 1908 hleypti hann heim-
draganum og héit til Reykjavíkur
þar sem hann gerðist sjómaður
fyrst og síðar verkstjóri á eyrinni,
en 1930 breytir hann til og gerist
umsjónarmaður við hinn nýstofn-
aða Austurbæjarskóla, sem þá var
fjölmennasti skóli landsins. Þó það
væri umfangsmikið starf lét
Lúther sér það ekki nægja svo
starfsamur sem hann var, en
starfaði sem verkstjóri við timbur-
uppskipanir hjá Völundi í fríum
frá skólanum árum saman. Ekki
lét Lúther þjóðmálin fram hjá sér
fara. Var eindreginn sjálfstæðis-
maður og virkur félagi í Oðni og
lét ekki hlut sinn fyrir neinum í
þeim efnum. Trúmaður var
Lúther, trúði á framhaldslíf og að
starfinu lyki ekki við líkamsdauð-
ann, heldur myndi það halda
áfram á nýjum vettvangi.
Lúther var góðviljaður maður og
vildi hvers manns vanda leysa,
glaðsinna og greindur vel og gat
átt til að kasta í hendingum í
góðra vina hópi þó hann flíkaði því
lítt.
Skömmu eftir að Lúther fluttist
til Reykjavíkur kvæntist hann
Steinunni Jónsdóttur ættaðri úr
Grímsnesi og áttu þau saman 6
börn, en áður hafði Steinunn
eignast son sem er Skarphéðinn
Jónsson og gekk Lúther honum í
föður stað. Börn þeirra eru:
Sigurbjört Clara, gift Hermanni
Guðmundssyni, Hróbjartur,
kvæntur Svövu Pétursdóttur,
Rebekka, gift Óskari Ólafssyni,
Helga, gift Hákoni Kristgeirssyni,
Hilmar Jón Hlíðar og Björgvin,
kvæntur Boggu Sigfúsdóttur.
1942 dró ský fyri/ sólu á
heimilinu þegar Steinunn dó
skyndilega og -voru þá erfið ár
framundan þar til hann kynntist
Sigríði Kjartansdóttur, seinni
konu sinni, sem hann kvæntist
23/12 1945. Sigríður átti þá son á
unglingsaldri sem Kjartan Brynj-
ólfsson heitir og reyndist Lúther
honum sem besti faðir. Nú brosti
lífið aftur við honum, enda Sigríð-
ur mannkostakonna sem hefur
reynst honum frábærlega traustur
lífsförunautur til síðustu stundar
og er það fólki hans ómetanlegt
hve hún annaðist hann af miklum
kærleika hin síðustu ár því þótt
Lúther héldi öllum sálarkröftum
til hinstu stundar var ellin farin
að segja til_sín svo háaldraður sem
hann var orðinn.
Mér er Lúther frændi minnis-
stæður frá fyrstu kynnum. Þessi
stóri gjörvilegi maður sem kom
um langan veg þegar faðir minn
dó, til að fylgja honum og styrkja
okkur sem vorum svo mörg og ung.
Það var ekki eina hjálpin, hann
var alla tíð tilbúinn að rétta
frændfólkinu í fjarlægðinni hjálp-
arhönd. Þegar ég kom til bæjarins
unglingur var mín fyrsta ferð í
Austurbæjarskóla til frændfólks-
ins og þangað lá leiðin þegar
Magnús Theódór Þorláksson var
fæddur 5. ágúst árið 1896 að
Laugalandi í Reykhólasveit,
A-Barðastrandarsýslu.
Móðir hans var Guðlaug Dags-
dóttir, ættuð af Ströndum. Faðir
hans var Þorlákur Guðmundsson,
er bjó að Laugaiandi. Bæði al-
systkini og hálfsystkini Theódórs
heitins voru 11 að tölu. Af þeim
stóra hópi lifir aðeins Elísabet
Guðmundsdóttir, er býr ásamt
manni sínum, Jóni Þórðarsyni, að
Árbæ í Reykhólasvéit. Frá for-
eldraheimili Theódórs lá leiðin að
Borg og Kinnastöðum. Báðum
þessum heimilum átti Theódór
gott að unna og bar hlýhug til
húsráðenda og þeirra fólks frá
báðum þessum bæjum.
Theódór var liðlega vaxinn
maður og knár. Stundaði íþróttir
og kenndi sund. Við heimabæ sinn
byggði hann sundlaug og iðkaði
mikið að fara í sund. Theódór var
mjög hagur maður og lærði
húsasmíði og tók full réttindi í
þeirri iðn. Hann gekk í læri hjá
Ríkarði Jónssyni og var hann
snillingur í tréskurði. Hann var
listfengur með rennibekk og smíð-
aði spunarokka, sem kunnir voru
víða fyrir gæði og fegurð.
frístund gafst. Ailtaf var frændi
glaður og spaugsamur og gaman
að tala við hann. Það er margt að
þakka að leiðarlokum, farðu vel
frændi, kannski við hittumst á
öðru tilverustigh
Elín Ág. Jóhannesd.
Nú er hann afi minn dáinn. Það
koma margar minningar í hugann,
allar góðar og fallegar — hann var
mér og minni fjölskyldu svo mikils
virði.
Mig grunar, að er ég, sem lítill
drengur, var að sniglast í kringum
hann, að sjálfsagt hafi ég þá gert
mörg prakkarastikin. Þegar ég
fulltíða minntist á slíkt við hann,
gerði hann að gamni sínu og sagði,
að ég hefði ailtaf verið svo þægur.
Þegar ég kom í heimsókn með
konu minni og sonum var alltaf
sama góða viðmótið hjá afa og
konu hans, Sigríði. Alltaf var
mikil tilhlökkun hjá drengjunum
mínum að heimsækja afa og
ömmu. Vil ég því þakka afa mínum
allt gott frá liðnum árum og bið
guð að blessa minningu hans og
veita „Siggu ömmu“ styrk í
sorginni.
Lúther Hróbjartsson.
Meðari Reykjavíkurár Theódórs
stóðu yfir, kynntist hann Helgu
Amelíu Illugadóttur, sem þá var
einstæð móðir, með tvær ungar
dætur sínar. Felldu þau hugi
saman og stóð samleið þeirra
meira en 40 ár. Theódór var góður
stjúpdætrum sínum og. reyndist
þeim Guðbjörgu Bjarnheiði og
Guðnýju Halldóru vel. Theódór og
Helga eignuðust tvo drengi, þá
Guðmund, sem fæddur er hér í
Reykjavík, og Gunnlaug, sem
fæddur var vestra. Hér í Reykja-
vík bjó Theódór með fjölskyldu
sína í eigin húsi.
I byrjun stríðsins kveður Theó-
dór borgarlífið og flytur með
fjölskyldu sína að Laugalandi og
eignaðist hann síðar jörðina.
Hafði stuðning af landbúnaði og
smíðaði fyrir aðra og féll sjaldan
verk úr hendi.
Theódór var bókelskur maður og
var vandur að ritmáli. Engin bók
var honum kærari en Heilög
Ritning. Las hann þá bók sér til
gagns og sálubóta. Theódór kynnt-
ist hvað lifandi trú er, rótfest á
Orði Guðs hjá Sumarliða pósti
föðurbróður sínum og konu hans,
Jóhönnu Loftsdóttur frá Borg. Það
veganesti dugði gegnum lífið til
eilífðarinnar.
Fyrir lestur Heilagrar Ritning-
ar tók Theódór afstöðu með
Hvítasunnusöfnuðinum og var
trúr þeim málstað allt til enda síns
lífs. Síðustu þrjú árin var heilsu
hans mjög tekið að hraka og var
heilsa hans þrotin er hann andað-
ist í Landakotsspítala 3. mars s.l.
Það voru margir sveitungar og
vinir er kvöddu Theódór í Foss-
vogskirkju 16. mars s.l. en þá fór
útför hans fram.
Merkur maður og gegn er
genginn. Hans mun verða minnst
sem góðs drengs, er ekki mátti
vamm sitt vita. Helgu og börnun-
um öllum ásamt systur hans og
öðrum ástvinum eru sendar sam-
úðarkveðjur og þeim beðin bless-
unar Drottins.
Einar J. Gislason.
+
Innileqar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför
ASTÞRUOAR SVEINSDÓTTUR
Alúöar þakkir færum viö læknum og hjúkrunarfólki aö Reykjalundi fyrir góöa
umönnun. Flugfélagi íslands h/f þökkum viö viröingu og vinsemd í garö hinnar
látnu.
Bergþóra Kriatinsdóttir
Sveinn Kristinaaon Edda Guölaugsdóttir
Siguröur Kristinsson Þórey Guómundsdóttir
Arnheiöur Krístinsdóttir Örn Ragnarsson
Bryndis Kristinsdóttir Þóröur Oskarsson
Unnur Kristinsdóttir Orri Vigfússon
Jón Kristinsson Unnur Steingrímsdóttir
Kristján Kristinsson Oddný Dóra Halldórsdóttir
og barnabörn.
Kveðjuorð — Magnús
Theódór Þorláksson
+ Móöir mín, FRÍÐUR BJARNADÓTTIR, Bogahliö 13 Reykjavík sem lést á Landspítalanum 19. þ.m. veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju fimmtudag 30. marz kl. 3 e.h. Fyrir okkar hönd og annarra vandamanna. Ragna Möller Steinn Hansson. Ólafur Sigurðsson
+ Móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma, KATRÍN MARÍA MAGNÚSDÓTTIR Heiöargeröi 72, Reykjavík, sem andaöist 17. marz, veröur jarósungin frá Akureyrarkirkju laugardaginn 1. apríl klukkan 13.30. Kveðjuathöfn fer fram í Dómkirkjunni í Reykjavík miövikudaginn 29. marz klukkan 15.00. Blóm vinsamlegast afþökkuö, en þeir, sem vilja minnast hinnar látnu, eru beönir aö láta líknarstofnanir njóta þess. » Kristjana Hretna Ingóltsdóttir, Pálmi Jónasson, Svava Óladóttir, Baldur Ingólfsson, Kristín H. Pátursdóttir, Ragna Ásdís Ingólfsdóttir, Guöjón Eymundsson, Stefán Arnbjörn Ingólfsson, Auður Guðjónsdóttir, Þórunn Elisabet IngóHsdóttir, Arnar Jónsson, Jóhanna K. Ingólfsdóttir-Johannessen, Matthías Johannessen, Kristján Höröur Ingólfsson, Þorbjörg Jónsdóttir, Karólína Guöný Ingólfsdóttir, Steingrímur Sigvaldason, Hanna Sæfríöur Ingólfsdóttir, Bragi Axelsson, Birna Svava Ingólfsdóttir, Aöalsteinn Vestmann, Magnús Ingólfsson, Helga Aöalsteinsdóttir, Páli Ingóltsson, barnabörn og barnabarnabörn.
+ Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, JÓN Ó. GÍSLASON, húsasmíóameistari, Langageröi 92, sem lézt í Borgarspítalanum, föstudaginn 24. marz veröur jarösunginn frá Bústaöakirkju, föstudaginn 31. marz kl. 13.30. Helga Hjartardóttir, Guöborg Jónsdóttir, Þórarinn Lárusson, Örn Jónsson, Elín Elíasdóttir, Ólafur Jónsson, Bjarni Jónsson, Lilja Svavarsdóttir, og barnabörn.
+ Jarðarför bróöur míns, ÞORGEIRS ÓLAFSSONAR pípulagníngamanns sem lést aö heimili sínu Hátúni 12, 16. marz fer fram miðvikudaginn 29. marz kl. 13.30 í Fossvogskirkju. Fyrir hönd systkina og vandamanna. Sigríóur Ólafsdóttir.
+ Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaðir og afi JÓHANN V. JÓNSSON, bitreiöastjóri, Álfheimum 15 veröur jarösettur frá Fossvogskirkju föstudaginn 31. mars kl. 3. Kristrún Kristjánsdóttir Ingibjörg Jóhannsdóttir Halldór Guömundsson Anna Sigríóur Jóhannsdóttir Kjartan Kjartansson Kristján Tryggvason Jóna Hafsteinsdóttir og barnabörn.
+ Alúöar t>akkir til allra er sýndu okkur samúö og vináttu viö fráfall og jaröarför SVÖFU ÞORLEIFSDÓTTUR Vandamenn.
+ Innilegustu þakkir færum viö öllum þeim, sem í veikindum og viö andlát og útför konu minnar og móöur okkar, AÐALHEIDAR ÞORSTEINSDÓTTUR, Kleppsvegi 24, Guö blessi ykkur öll, . Óskar Valdimarsson og börn.
+ Þökkum innilega samúö og vinarhug viö andlát og jarðarför BJÖRNS JÓNSSONAR, Deildartungu. Unnur Jónsdóttir, Sigurbjörg Björnsdóttir, Valgeröur Björnsdóttir, Jóhann Oddsson, Jón Björnsson, Gráta Ingvarsdóttir, Guólaugur Guömundsson, Siguröur Guómundsdóttir, og barnabörn.