Morgunblaðið - 11.04.1978, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.04.1978, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 1978 Eldur í húsi sambyggðu Ásgríms- safni ÍBÚI hússins við Bergstaða- stræti 74A, varð var við að reyk lagði út úr kjallaraher- hertji í húsinu í ífærmorgun, þar sem hann vissi að fyrir var maður. Manninum var hjarxað út fljótlega, og kom slökkvilið á vettvanj;. Var frekari útbreiðsla elds heft, en hann hafði þá aðeins læst si« i rúmföt mannsins. Litlar skcmmdir urðu á hýbýlum. Þess má geta að húsið er sambyggt húsi því er Asgríms- safn er í, svo að illa hefði getað farið ef ekki hefði tekist að hefta útbreiðslu eldsins svo fljótt. í Ásgrímssafni eru hverju sinni milljóna verðmæti í málverkum. Krísuvíkur- fjósið selt BÆJARSTJÓRN Hafnarfjarð- ar hefur samþykkt að selja fjósið og súrheysturna í Krísu- vík. Kaupandinn er Halldór Júliusson sem þar hefur rekið svínabú að undanförnu, og er söluverðið 6 milljónir króna. Þá er Ilalldóri einnig leigður 1.1 hektari lands umhverfis húsið til 25 ára. Bygging fjóssins var á sínum tíma mikið pólitískt hitamál í Hafnarfirði, að því er fram kemur í blaðinu Hamri. Það var að tilhlutan Alþýðuflokksins, sem þá var í meirihluta í bæjarstjórn, að bærinn byggði þessi mannvirki í Krísuvík og átti að hefja þar rekstur kúabús með um 200 kúm. Aldrei varð þó neitt úr þeim búrekstri en hins vegar hafinn þar fjárbúskapur. Þessi rekstur varð hins vegar mjög umdeild- ur og síðar var öllum rekstri á vegum bæjarins hætt í Krísu- vík. Tillagan um sölu fjóssins og súrheysturnanna var samþykkt samhljóða í bæjarstjórninni. Atvinnulaus- um fækkar ATVINNULEYSISDAGAR í marz voru á öllu landinu 9.186 og hafði fækkað frá fyrra mánuði úr 9.973. Samtals voru skráðir atvinnulausir einhvern tíma í marzmánuði 468 manns, en höfðu verið í febrúar 511. Færeying- arnir koma REIKNAÐ er með að færeysk- ir togarar hefji veiðar á ný á íslandsmiðum í dag, en þeir hafa ekki verið hér við land síðan í lok janúar, en þá höfðu þeir lokið við að fiska upp í Íiann kvóta, sem þeir hafa á slandsmiðum, en það eru alls 17.000 tonn af fiski á ári, þar af 7000 tonn þorskur. Færeysku togararnir höfðu heimild til að hefja veiðar á Islandsmiðum á ný strax að þorskveiðibanni loknu, en fær- eyska landstjórnin heimilaði ekki togurunum að hefja veiðar fyrr en 11. apríl. Hins vegar héldu línuveiðarar á Islands- mið, strax og þorskveiðibanni var lokið. Mest mega vera 10 færeysk skip á íslandsmiðum í »inu. Sjópróf vegna strands Leó VE: Skipstjórinn sofn- aði og báturinn sigldi stjórnlaus upp í fjöru SJÓPRÓFUM vegna strands vél- hátsins Leós VE á Landeyjasandi er að mestu lokið. Aðeins er eftir að taka skýrslur af skipverjum á varðskipinu Ægi, sem reyndi að ná bátnum á flot og verður það gert í Sjó- og verzlunardómi Reykjavíkur við fyrstu hentug- leika. Að sögn Júlusar B. Georgssonar, fulltrúa bæjarfógetans í Vest- mannaeyjum, kom það fram við sjóprófin að ástæðan fyrir strandi Framhald á bls. 30. Annar listi sjálfstæðismanna í Kópavogi: „Vegna riftunar nið- urstöðu í prófkjöri” — segir Guðni Stefánsson járnsmíðameistari MORGUNBLAÐIÐ hafði sam- band við Guðna Stefánsson járn- smíðameistara í Kópavogi og spurði hann um ástæður fyrir því að hann hefur sagt sig af lista sjálfstæðismanna til bæjarstjórn- ar ásamt tveimur öðrum. Guðni átti að skipa 5. sæti á listanum samkvæmt tillögu uppstillingar- nefndar, en í undangengnu próf- kjöri varð hann í 2. sæti. Þá hcfur Guðni tilkynnt að hann ásamt fleirum sjálfstæðismönnum muni hjóða fram sérstakan lista sjálf- stæðismanna í kosningunum. „Annað framboð sjálfstæðis- manna í Kópavogi er nú ákveðið," sagði Guðni í spjalli við Mbl., „allt flokksbundinna sjálfstæðismanna eða yfirlýstra sem slíkra. Ástæðan fyrir þessu framboði er sú að haft hefur verið að engu prófkjör Sjálfstæðisflokksins frá 4. og 5. marz s.l. en það hafði verið samþykkt fyrr í vetur. Síðar kom reyndar fram tillaga á fundi fulltrúaráðsins um að efna ekki til prófkjörs en hún var felld. Þegar hins vegar niðurstaða prófkjörsins lá fyrir var niðurstöð- unni riftað af 18 manna uppstill'- ingarnefnd með Richard Björgv- insson í forsæti, en 10 úr þessari uppstillingarnefnd hafa skipað sjálfa sig á listann og þó eru tveir þar sem ekki tóku þátt í prófkjör- inu. 18 manna nefndin kaus 3 manna undirnefnd með Richard Björgvinsson í forsæti og hlutverk hennar var að ræða við frambjóð- endur í prófkjörinu. Ég kvað Framhald á bls. 30. Magnús Magnússon í Hafskip: Flýtti sendingu myndanna út vegna útflutningsbannsins ÞEGAR Morgunblaðsmenn komu niður á bryggju í Hafnar- firði í gærmorgun var Sveinn Björnsson lögregluforingi og listmálari þeirra Hafnfirðinga í óða önn að koma fyrir myndum í gámi, sem hann sfðan sendir til Kaupmanna- hafnar. þar sem hann opnar stóra sýningu seinna í vor. M.a. var Sveinn að koma þessari mynd fyrir, þeirri stærstu á sýningunni, en hún er 2x4 metrar. Sveinn sagði í gær að hann hefði ætlað að senda myndirnar utan með skipi 19. apríl, en starfsmenn Eimskip hefðu tekið vara við því að draga það að senda myndirnar vegna út- flutningsbannsins. Sagði Sveinn þá hafa gengið í málið og flýtt því að senda myndirnar og færu þær með Háafossi annað kvöld. „Ég vildi ekki taka neina áhættu," sagði Sveinn, „þótt kannsk^ hefði mátt fá undan- þágu fyrir myndirnar mínar.“ Sveinn mun sýna 170 málverk í hinum þekkta sýningarstað Den Frie í Kaupmannahöfn. Ljósm. Mbl. Kristján. Kannar möguleika á leigu- kaupum á verksmiðjuskipi Talið unnt að fá um 40 þúsund tonna skip fyrir 6-7 milljarða KANNAÐIR hafa verið möguleikar á því að kaupa og reka íslenzkt bræðslu- skip, sem einkum skal miðast við vinnslu kol- munna á miðum fjarri landi en jafnframt mundi skipið sinna vinnslu á vetrarloðnu eftir því sem ástand loðnu- stofnsins leyfir ellegar vera sent á fjarlæg mið hluta ársins. Hugmyndin er að fá með svonefndum Ieigukaup- um 36—40 þúsund tonna flutningaskip, og breyta því í verksmiðju- og móðurskip en áætlaður kostnaður við skipið nemur milli 6 og 7 milljörðum króna. Það er Magnús Magnússon, forstjóri Hafskips, og hlutafélag á hans vegum sem unnið hefur að athugun þessa máls, vegna lag- anna um rétt til fiskveiða í landhelgi þarf að koma til laga- breyting, sem felur í sér að ákvæði um bann við fiskvinnslu erlendra aðila í íslenzkri fiskveiðilögsögu skuli ekki standa í vegi fyrir því í KVÖLD klukkan 20.30 verður fundur í fulltrúaráði sjálfstæðis- félaganna í Reykjavík, þar sem tekin verður ákvörðun um fram- boðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík við næstu borgar að ríkisstjórn sé heimilt að leyfa íslenzkum aðilum er fullnægja ákvæðum laganna að semja um leigukaup á stóru verksmiðjuskipi til vinnslu á kolmunna og öðrum sjávarafla, eins og greint er frá á þingsíðu. Ellert B. Schram hefur ásamt Ingólfi Jónssyni lagt fram á þingi frumvarp um þessa laga- breytingu og sagði hann í samtali við Mbl. að hann teldi hér þarft mál á ferð er stuðlaði að því að beina sókn í aðrar fisktegundir en þorsk, og honum hefði þótt sjálf- sagt að veita því lið. I greínargerð með frumvarpinu kemur fram að gert er ráð fyrir að í skipinu yrði ný og fullkomin verksmiðja með um 2 þúsund tonna afköstum á sólarhring en jafnframt aðstaða til frystingar á loðnuhrognum. Um borð yrðu einning vélar til flokkunar kol- munna en úrval úr aflanum yrði flutt í kælitönkum til vinnslu í landi. Gert er ráð fyrir að skipið myndi fá a.m.k. 150 þúsund tonn af kolmunna til vinnslu á ári og tæki einnig til vinnslu um 60 þús. tonn af loðnu á ári þegar veiðiþol stofnsins leyfir. Þá kemur fram, að hugmyndin stjórnarkosningar. Fundurinn verður haldinn í Sigtúni (nýi salurinn á 2. hæð). Á fundinum mun Geir Hallgrímsson forsætisráðherra flytja ræðu. er að halda skipinu á kolmunna- miðum fjarri landi og gera þær veiðar arðbærar fyrir íslenzka skuttogaraflotann, þannig að þær stæðust fjárhagslegan samanburð við veiðar á öðrum fiski. Hins vegar væri með flutningi úrvals úr kolmunnanum til vinnslu hjá vinnslustöðvum í landi unnt að skapa þeim verkefni og vinna þannig upp það tjón er vinnslu- stöðvarnar hefðu af því að togararnir hættu þorskveiðum. Gert er ráð fyrir að sjávarútvegs- ráðherra setji nánari skilyrði um Stofnlánasjóður landbúnaðar: Ekki meira fé að íá STÉTTARSÁMBAND bænda hefur borið fjárhagsvanda stofnlánasjóðs landbúnaðarins upp við ríkisstjórnina, en eins og kom fram í Mbl. hefur sjóðurinn aðeins til ráðstöfun- ar um 400 milljónir króna en umsóknir nema um 2100 millj- ónum króna. Að sögn Gunnars Guðbjartssonar, formanns Stéttarsambands bamda, hafa þau svör fengizt hjá ríkisvald- inu að ekki sé unnt að verja meiri fjármunum til sjóðsins en að framan greinir, og sagði Gunnar að því væri óhjá- kvæmilegt að synja yrði all- flestum beiðnum nema þá helzt einhverjum byggingar umsóknum um heygeymslur. vinnslu verksmiðjuskipsins en skipið væri íslenzkt, með íslenzkri áhöfn og nyti aðgangs að íslensk- um sjávarauðlindum og aðstoðar íslensks veiðiflota. Fram kemur að auðvelt er að fá notuð skip í góðu ásigkomulagi með hagstæðum kjörum og nú væri til athugunar hvort unnt væri að fá skip af þessu tagi með öllum búnaði á leigukaupakjörum, sem er áþekk aðferð og beitt hefur verið við kaup á farþegaflugvélum hér á landi. Stálu bíl og óku ölvaðir AÐFARARNÓTT laugardagsins tók lögreglan í Reykjavík fasta tvo pilta sem höfðu stolið bíl frá bílasölu. Piltarnir höfðu neytt áfengis og voru því ölvaðir við aksturinn. Þá viðurkenndu þeir við yfirheyrslu að hafa þrotizt jnn í verzlunina Borgarkjör. Patreksfjörður: Seldi öll málverkin á skömmum tíma Patreksfirði, 10. apríl. LISTAMAÐÚRINN Baldvin Árnason hélt málverkasýningu og sýningu á styttum í félags- heimilinu i gær, sunnudag. Sýn ingin var mjög fjölsótt og seldust öll málverkin upp á skömmum tfma. - PÁLL. B orgarst j órn arkosn ingarnar: Framboðslisti sjálfstæðis- manna ákveðinn í kvöld

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.