Morgunblaðið - 11.04.1978, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 11.04.1978, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. APRIL 1978 3 Vestmannaeyjar: „Prófkjörið staðfest ir traust fylgi sjálf stæðismanna” TÆPLEGA 900 manns tóku þátt í prófkjöri sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum um síðustu helgi vegna væntanlegra bæja- stjórnarkosninga í vor en flokk- urinn fékk 931 atkvæði í siðustu bæjarstjórnarkosninum. 16 voru í framboði og hlutu 5 efstu bind- andi kosningu. Sá háttur var hafður á í prófkjörinu að merkt var við 5 frambjóðendur og fékk efsta sæti 5 stig, 2. sæti 4 stig og svo koll af kolli. Sjálfstæðisflokk- urinn í Vestmannaeyjum hefur nú 4 af 9 bæjarfulltrúum í Vestmannaeyjum. Úrslit í prófkjörinu urðu þau að Arnar Sigurmundsson fram- kvæmdastjóri hlaut 1780 stig, Sigurður Jónsson yfirkennari 1564 stig, Gísli Geir Guðlaugsson vél- virki 1333 stig, Georg Þór Krist- jánsson verkstjóri 986 stig og Sigurður Olafsson stýrimaður 920 stig. Morgunblaðið hafði samband við Arnar Sigurmundsson og innti hann álits á prófkjörinu. „Við viljum þakka Eyjafólki," sagði Arnar, „fyrir þessa miklu þátttöku í prófkjörinu og hún sýnir ljóslega að Sjálfstæðisflokk- urinn er leiðandi afl í stjórnmál- um Vestmannaeyja og staðfestir traust fylgi flokksins. Þegar stað- reyndir eru skoðaðar þá liggur það ljóst fyrir að mestu tilþrif í stjórn bæjarmála og framkvæmda hafa verið þegar sjálfstæðismenn hafa haft forystuna. Við hyggjum gott til glóðarinnar og erum ánægðir með að þorri Eyjamanna vill leggja okkur lið til þess að taka fast og ákveðið á vandamálum Eyjabyggðar." Garðabær: „Mikill áhugi á bæjar- málum og stuðningur við sjálfetæðisflokkinn” I PRÓFKJÖRI sjálfstæðismanna í Garðabæ vegna væntanlegra bæjarstjórnarkosninga kusu 1123 en flokkurinn fékk við síðustu sveitarstjórnarkosningar 989 atkvæði. Niðurstöður urðu þær að Garðar Sigurgeirsson bæjarstjóri hlaut 1. sæti með 379 atkv. í það sæti, en 657 atkv. í 1,—5. sæti. Næstur varð Jón Sveinsson for- stjóri með 273 atkv. í 1,—2. sæti en 601 í 1.—5. sæti. í þriðja sæti varð Markús Sveinsson fram- kvæmdastjóri með 318 atkv. í 1.—3. sæti og 522 atkv. í 1,—5. Fjórði varð Sigurður Sigurjóns- son lögfræðinur með 376 atkv. í 1.—4. sæti og 464 í 1.—5. sæti og í 5. sæti varð Fríða Proppé húsmóðir með 418 atkvæði í 1.—5. sæti. Þegar Morguriblaðið hafði sam- band við Garðar Sigurgeirsson og innti álits hans á prófkjörinu, sagði hann: „Þetta tækifæri nota ég til þess að koma á framfæri þakklæti til þess mikla fjölda Garðbæinga sem tók þátt í próf- kjörinu og lét með því í ljós mikinn áhuga sinn á bæjarmálum og stuðning við Sjálfstæðis- flokkinn." Prófkjör sjálfstæðismanna í Mosfellssveit: 196% aukning fylgis frá síðustu kosningum ÚRSLITIN í prófkjöri sjálfstæðis- manna í Mosfellssveit urðu þau að Salóme Þorkelsdóttir hlaut 491 atkv. eða 81,4%, Jón M. Guðmundsson hlaut 427 atkv. eða 70,8%, Bernhard Linn hlaut 390 atkv. eða 64,8%, Magnús Sig- steinsson hlaut 295 atkv. eða 48,9%, Örn Kjærnested hlaut 230 atkv. eða 38,1% og í 6. sæti varð Hilmar Sigurðsson með 221 atkv. eða 36,7%. Atkvæði greiddu 603, en á kjörskrá voru 1282. 47% kosninga- bærra íbúa í hreppnum tóku þátt í prófkjörinu, en í síðustu kosning- um hlaut Sjálfstæðisflokkurinn 307 atkvæði. Aukning í prófkjörinu er því 196%. Ekki náðist samband við Salóme Þorkelsdóttur í gærkvöldi til þess að fá álit hennar á hinni miklu þátttöku í sveitinni í prófkjöri sjálfstæðismanna. Hveragerði: 273% aukning í próf- kjöri sjálfstæðismanna 213 MANNS kusu í prófkjöri sjálfstæðismanna í Hveragerði vegna væntanlegra hreppsnefnd- arkosninga og er það 273% aukning frá síðasta prófkjöri. Úrslit urðu þau að Hafsteinn Kristinsson hlaut 108 atkvæði í 1. sæti, Helgi Þorsteinsson hlaut 59 í 1. og 2. sæti, Ólafur Óskarsson hlaut 100 í 1,—-3. sæti, Ævar Axelsson hlaut 92 í 1,—4. sæti og Aðalsteinn Steindórsson hlaut 123 í 1,—5. sæti. „Það verður nokkuð mikil breyt- ing á lista sjálfstæðismanna," sagði Hafsteinn í spjalli við Morgunblaðið í gær,“ tveir menn fara út úr efstu sætunum og nýju mennirnir þrír sem koma inn eru allir iðnaðarmenn sem hafa getið sér gott orð fyrir dugnað og við væntum góðs af starfi þeirra í hreppsnefnd. Við erum bjartsýn hér og ánægð, sérstaklega með þátttökuna sem er óvenju mikil miðað við prófkjörið fyrir 4 árum. Það var mikil stemning í kring um þetta prófkjör, enda var það opið öllum þar sem við töldum það vænlegast. Þessi þátttaka stað- festir einnig að fólk hér hefur áhuga á starfi okkar og stefnumál- um og vill styðja við í þeim efnum.“ Gestir skoða hið nýja heimili. Nýtt dagheim- ili í Kópavogi OPNAÐ hefur verið nýtt dag- heimili í Kópavogi og stendur það við Furugrund í Snælandshverfi. Þetta er fjórða dagheimilið í Kópavogi og sagði Stefnir Helgason, formaður félagsmála- ráðs Kópavogs, við opnun heimilisins, að þctta væri helmingsaukning dagheimila á s.1. fjórum árum. Dagheimilið rúmar 34—36 börn, en húsið er einingahús frá Húsa- smiðjunni h.f. og tók bygging þess um 9 mánuði. Sagði Stefnir að það væri mun skemmri byggingartími en á fyrri dagheimilisbyggingum í Kópavogi sem hefði verið um það bil 3 ár að meðaltali. Kostnaður nam tæplega 70 milljónum króna. Stefnir Helgason sagði að nú væri nokkurn veginn búið að fullnægja Kristján Guðmundsson félags- málastjóri í Kópavogi opnar heimilið. þörf fyrir dagvistunarpláss og engir biðlistar væru nú á heimilunum. Sagði hann að nú væri rúm fyrir um það bil 25% af aldursflokknum 2— 6 ára á dagheimilum. Hið nýja dagheimili er búið ýmsum nýjungum t.d. þeirri að nú væri tekið við leikskólabörnum einnig þ.e. að 6 börn dveldu á heimilinu í 4 tíma fyrir hádegi og önnur sex í fjóra tíma eftir hádegi og fengju þessi börn þar að auki hádegismat þannig að þau dveldu á heimilinu í um það bil 5 tíma. Er þar með bætt nokkuð úr brýnni þörf, sagði Stefnir, þar sem sumir foreldrar þurfa ekki á 8 tíma gæzlu í dag að halda, en þurfa helzt meira en 4 tíma gæzlu. Þessa tilraun á að gera í eitt ár og taka síðan til endurskoðunar þessa tilhögun. Af öðrum nýjungum má nefna að gangstéttir og sandkassi eru upphituð sem kemur sér vel á veturna. Að innan er heimilið búið eftir nýjustu kröfum og m.a. er eldavél þar sem börnin geta „poppað" með aðstoð fóstranna. Að lokum nefndi Stefnir Helgason þá erfiðleika sem verið hefðu í byggingu þessa dagheimilis en skv. lögum tekur ríkið þátt í byggingu dagheimila, en á fjárlög- um þessa árs er áætlað að þrjár milljónir fari til þessarar bygging- ar. — Þessir peningar frá ríkinu koma því of seint til að þeir nýtist vel, sagði Stefnir og segja má að núverandi skipan þessara mála sé of þung í vöfum þar sem liðið geta jafnvel nokkur ár frá því hlutur ríkisins er að fullu greiddur. Framhald á bls. 31. Urval flytur í hús Al- mennra trygginga FERÐASKRIFSTOFAN Úr- val hefur tekið á leigu húsnæði í húsi Almennra trygginga við Pósthússtræti. Þessa dagana er verið að flytja bókhaldsskrifstofu Úrvals á 2. hæð hússins, en söluskrifstofan flyzt ekki fyrr en eftir u.þ.b. 2 mánuði og verður hún á jarðhæð. Sem kunnugt er hafa Almennar tryggingar fest kaup á húsi við Síðumúla og hefur bifreiðadeild félagsins þegar flutzt þangað. Axel Einarsson hrl., stjórnar- formaður Úrvals, sagði í samtali við Morgunblaðið, að Úrval hefði til þessa verið með aðsetur á tveim stöðum í borginni. Söluskrifstofan hefði frá upphafi haft aðsetur í Eimskipafélagshúsinu, en bókhald hefði verið í leiguhúsnæði í Hafnarstræti. Framvegis yrði því bókhald og söluskrifstofa á sama stað, og yrði það til mikillar hagræðingar fyrir ferðaskrifstof- una. 16 ára piltur tapaði laúna- umslaginu sinu SEXTÁN ára piltur varð fyrir pví óláni í gær að tapa launaumslaginu sínu en í pví voru rúmlega 10 púsund krónur í peningum og 4 púsund krónur í sparimerkjum. Pilturinn tapaði um- slaginu milli klukkan 5 og 6 í gær annað hvort i Austurstræti eða á Laugavegi. Skílvís finnandi er vinsam- legast beðinn aö hafa samband við lögreglustöðina. Skuld ríkis- sjóðs við Seðlabanka tæplega 22 milljarðar kr. SKULDIR ríkissjóðs við Seðla- oankann námu 14.928 milljónum króna í ársbyrjun 1978 og í marzlok 21.978 milljónum króna. Að auki hækkuðu erlend endur- lán Seðlabankans til ríkissjóðs tm 2.728 milljónir króna vegna gengisuppfærslu. Frá þessu er skýrt í fréttatilkynningu, sem Morgunblaðinu barst í gær frá fjármálaráðuneytinu um afkomu ríkissjóðs á fyrsta ársfjórðungi 1978. Fréttatilkynning fjármálaráðu- neytisins er svohljóðandi: „Greiðsluáætlun A-hluta ríkis- sjóðs gerir ráð fyrir jöfnuði í ríkisfjármálum í árslok 1978. Fjárþörf ríkissjóðs er hins vegar breytileg eftir mánuðum, þar'sem tekjur innheimtast yfirleitt síðar á árinu en gjöld falla til. Fjárþörf ríkissjóðs til að brúa slíkt bil tekna og gjalda var 7.050 milljónir króna í lok fyrsta ársfjórðungs þessa árs, sem er 635 milljónum króna hærri upphæð en greiðsluáætlun ríkissjóðs gerði ráð fyrir. Frávik þetta má fyrst og Framhald á bls. 30. Patreksfjörður: Stal bíl og gereyðilagði Patreksfirði, 10. apríl. AÐFARARNOTT laugardags- ins var stolið Saab bifreið hér á Patreksfirði og ökuferðin endaði á hvolfi við svonefnda Þorsteinshjalla á veginum til Tálknafjarðar. Ökumaðurinn brákaðist á öxl og gekk niður í Tálknafjörð en bifreiðin er gjörónýt. Ung hjón, Hrafn Asgeirsson og Ilalldís Atla- dóttir, áttu bifreiðina og er þetta tilfinnanlegt tjón fyrir þau. Sá sem stal bílnum er utanbæjarmaður og óvíst er hvort hann er borgunarmaður fyrir bflnum. - Páll Bjargey SH strandaði en náðist á flot óskemmd AÐFARARNÓTT s.l. sunnu- dags steytti vélbáturinn Bjargey SH-230 frá Rifi á skeri undir Keflavíkurbjargi, rétt hjá Rifi. Fljótlega komu nokkrir bátar á staðinn og á flóðinu klukkan sjö á sunnu- dagsmorguninn náðu þeir I ’argey á flot. Mjög gott veður var, hvítalogn. Sam- kvæmt upplýsingum Rögn- valds ólafssonar fréttaritara Mbl. á Ilellissandi rcyndist Bjargey vera alveg óskemmd og fór hún í róður í gær. Bjargey er 64 tonna stálskip. smíðað í Hollandi árið 1955. Drengur fyrir bil DRENGUR á reiðhjóli varð fyrir bifreið um hálfáttaleytið á sunnudagskvöld á mótum Melabrautar og Valhúsabraut- ar á Seltjarnarnesi. Drengur- inn slasaðist nokkuð og var lagður inn á sjúkrahús.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.