Morgunblaðið - 11.04.1978, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 11.04.1978, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 1978 21 SPENNAN EYKST SPENNAN jókst aft nýju í keppninni í 1. deildinni í handknattleik er Fram og Víkingur gerðu jafntefli á sunnudagskvöldið. Þýða þessi úrslit það, að alls ekki er útilokað að þrjú lið verði efst og jöfn í efstu sæt-um deildarinnar. en fyrir leikinn virtust Víkingar vera að sigla fram úr öðrum liðum. Víkingar hafa nú tapað 6 stigum, en Haukar og Valur 8 stigum hvort félag. Á botninum gerðist það um helgina að Ármenningar misstu síðasta hálmstráið er þeir töpuðu fyrir Val og eru nú fallnir niður í 2. deild, en þaðan komu þeir í fyrra. Það virðist ætla að verða mikið um aukaleiki í handbolt- anum í vor. Þannig þurfa þrjú lið að berjast á botninum í 1. deild kvenna eftir að KR vann Víking á laugardaginn og auk síðarnefnda félagsins taka Haukar og Ármann þátt í þeirri keppni. í 2. deild karla þurfa Þór frá Akureyriog Leiknir að leika aukaleiki um hvort liðið leikur síðan við Breiðablik um sæti í 1. deildinni. Þetta er þó ekki allt, því útlit er fyrir að Valur eða Fram þurfi að leika aukaleiki við FH um Islandsmeistaratitil- inn hjá kvenfólkinu. En það er ekki aðeins í félagakeppninni, sem spennan er mikil. I keppninni um marka- kóngstitilinn er mikil barátta á milli þeirra Andrésar Kristjáns- sonar og Jóns H. Karlssonar, sem hafa skorað 70 og 71 mark, reyndar er Björn Jóhannsson úr Ármann með í þessari keppni, en hann á aðeins einn leik eftir. Næstu leikir í fyrstu deildinni verða á föstudaginn er Víkingur leikur gegn ÍR og KR mætir Ármanni. Staðan í 1. deild karla: Víkingur 12 7 4 1 261.223 18 Haukar 12 6 4 2 246i218 16 Valur 12 7 2 3 250.232 16 Fram 13 4 4 5 267.271 13 FH 12 5 2 4 235.220 12 ÍR 12 4 3 5 243.229 11 KR 12 3 2 7 251.266 8 Ármann 13 2 1 10 240.286 5 Markhæstu leikmenn 1. deild- ar eru eftirtaldi: Jón Karlsson Val 71 Andrés Kristjánsson Haukum 70 Björn Jóhannsson Ármanni 70 Brynjólfur Markússon IR 62 Haukur Ottesen KR 52 Páll Björgvinsson Víkingi 49 Þorbergur Aðalsteinsson í skotfæri í leik Fram og Víkings. Guðjón Erlendsson til varnar, Gústaf, Atli og Árni fylgjast með. (ljósm. Mbl. Friðþjófur). Ekkert gull, en góðmálm samt EKKI tókst íslenzku júdómönnunum að ná sér í gull á Norðurlandamótinu, sem fram fór í Helsinki um helgina. Er mótið var haldið hér á landi fyrir ári fengu íslendingar tvenn gullverðlaun, en þá titla tókst ekki að verja að þessu sinni. Eigi að síður stóðu júdókapparnir sig vel og koma heim með tvenn silfurverðlaun og fern bronzverðlaun. Bjarni Friðriksson var sá ís- laun í opna flokknum og bronz í 95 fyrra vann hann gullverðlaun í lenzku keppendanna, sem mest kom kílóa flokki. Gísli Þorsteinsson fékk þessum þyngdarflokki. í opnum á óvart, en hann hlaut silfurverð- silfurverðlaun í 95 kg flokki, en í flokki varð Gísli í þriðja sæti. Halldór Guðbjörnsson varð sömu- leiðis þriðji í sínum þyngdarflokki að þessu sinni, en sigraði í fyrra. Jónas Jónasson varð síðan fjórði íslendingurinn til að hljóta bronz- verðlaun í sínum þyngdarflokki. •Finnar höfðu mikla yfirburði á mótinu og fengu öll gullverðlaunin. I einstaklingskeppninni fengu Is- lendingarnir næstflest verðlaun ásamt Svíum, 2 silfur, 4 bronz. í sveitakeppninni komu Norðmenn mest á óvart og urðu í þriðja sæti. Finnar sigruðu, Svíar aðrir, Danir fjórðu og íslenzka sveitin varð síðust, enda ekki fullskipuð. — áij (---------------\ jr Agúst meistari - Ólafur slapp ÁGÚST Svavarsson og félagar hans í Drott urðu Svíþjóðar- meistarar í handknattleik um helgina er þeir unnu Lugi í síðari úrslitaleik liðanna 20.17. í fyrri leiknum sigraði Drott cinnig. þá 19.18 á heimavelli Lugi. Ágúst Svav- arsson fékk ekki að taka þátt í úrslitakeppninni. cn Jón Hjaltalín gerði þrjú mörk í þessum tveimur leikjum. Olvmpia. liðið. sem Ólafur Benediktsson hefur leikið með í vctur. slapp við fall úr Allsvenskan. Eftir spennandi aukakeppni neðstu liða 1. deildar og þeirra efstu í 2. dcild vann Olvmpia sigur í síðasta leik sínum. 25.23 gegn CV 74 og það nægði liðinu til að hanga uppi. Danirnir Bock og Pazyj skoruðu 19 af mörk- um Olympia í þessum leik. - áij TEITUR byrj- aði á að skora í Allsvenskan TEITUR Þórðarson byrjaði vel er keppnin hófst í 1. deildinni í Svíþjóð á sunnudag- inn, en Teitur er fyrsti íslend- ingurinn. sem leikur í deild- inni. Skoraði Teitur annað mark östers gegn Vestarás. en liðið vann sannfærandi 2.0 sigur. Undanfarið hefur tals- vert verið skrifað um Teit í sænsk blöð og honum líkt við eldfjall og markagíg ef svo má að orði komast. Á blaðsíðu 27 er endursögn á grein um Öster úr Dagens Nyhcter. Meðal úrslita í Allsvcnskan um hclgina má nefna að Malmö, meistarar fyrra árs. unnu AIK 3.0. Elfsborg, sem varð í 2. sæti deildarinnar í íyrra. gerði 1.1 jafnteíli á útivelli og ÍFK Gautaborg vann Landskrona 2*1. í þeim leik skoraði Ralf Edström annað mark sigurliðsins og nálgast óðum sitt bezta form. en hann var einn af lykilmönn- um Svía í IIM 1974. | - áij I SENDUM NANASTC-LIÐ EF ÍSLAND TEKUR ÞÁTT I OL I KNA 1 í SPYRNU STJÓRN KNATTSPYRNUSAMBANDSINS. FIFA, samþykkti nýlega mcð 10 atkvæðum gegn 7 að þátttakendur í undankeppni Ólympiuleikanna í Moskvu megi ekki haía leikið með landsliðum sínum í heimsmeistarakeppni. hvorki í undankeppni eða aðalkeppni. Mái þetta verður lagt fyrir þing FIFA í Argentínu í byrjun tnaí og verði tillagan samþykkt þýðir það að ísland sendir nánast c lið til undankeppni ÓL — verði þá ákvörðun tekin um að senda lið til keppninnar. Morgunblaðið bar þetta mál undir EUert B. Schram í gær og sagði Ellert að tillagan væri komin fram til að koma í veg f.vrir að þjóðir A-Evrópu færu alltaf framhjá áhugamanna- reglum og notuðu sína sterkustu atvinnumenn í Ólympíukeppni. — Knattspyrnan hefur smátt og smátt misst gildi sitt á Ólym- — Mín skoðun er sú að píuleikum og þannig hafa t.d. knattspyrnan sé að lognast útaf Svíar og Englendingar ekki sem Ólympíuíþrótt. Það hefur verið meðal þátttakenda undan- verið rætt um ýmsar leiðir til að farin ár, sagði Ellert. — Nú er koma í veg fyrir að Austan- útlit. fyrir að engin Norður- tjaldsþjóðirnar noti atvinnu- landaþjóðafina nema Finnar menn sína á ÓL og sú tillaga á verði með í undankeppni næstu mestu fylgi aö fagna að leik- Ólympíuleika. menn, sem tekið hafa þátt í HM-leikjirm, verði .útlilokaðir frá Ól. Norðurlandaþjóðirnar eru t.d. fiestar inni á .þessu úr því sem komiö er. Fyrir okkur þýðir þetta hins vegar aö þarna er verið að banna hinum einu raunverulégu atvinnumönnum að taka þátt í Ólympíuleikunum. Að sjálfsögðu stangast það algjörlega á við grundvallarhug- sjón Ólympíuleikanna, en við verðum að athuga gaumgæfi- lega hvort við tiíkynnum þátt- töku í ÓL með það í huga að e.t.v. 20 af okkar beztú leik- mönnum fá ekki að vera með í keppninni, sagði Ellert B. Schram. Ellert sat í síðustu viku þing forinanna norrænu knatt- spyrnusambandanna og var þar meðal annars rætt um mál Matthísar Ilallgrímssonar og Halmia. Kom þar fram að dönsk félög eiga í svipuðum inála- rekstri við sænsk félög vegna skipta leikmanna á milli Framhald á hls. 37.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.