Morgunblaðið - 11.04.1978, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 11.04.1978, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 1978 29 Jón Bragi Bjarnason. Lauk doktors- prófi í lífefna- frædi í Banda- ríkjunum JÓN Bragi Bjarnason efnafræð- ingur hefur lokið doktorsprófi í lífeínafræði frá Ríkisháskóianum í Colorado í Fort Collins. Fjallaði doktorsritgerð Jóns Braga um einangrun og greiningu enzym-blæðingarþátta úr eitri amcrískrar landslöngu en slöngu- bit valda um 50 þúsund dauðsföll- um í heiminum ár hvert. Jón Bragi er fæddur 15. ágúst 1948, sonur hjónanna Rósu Guð- mundsdóttur og Bjarna Braga Jónssonar. Hann lauk B.S. prófi frá Háskóla íslands 1973, en hefur síðan stundað framhaldsnám og rannsóknir við Colorado-háskóla, en rannsóknirnar voru styrktar af heilbrigðisráðuneyti Bandaríkj- anna. Kennir Jón Bragi nú lífefna- fræði við Háskóla íslands og hefur hafið rannsóknir á enzymum úr þorski. Hann er kvæntur Guðrúnu Stefánsdóttur og eiga þau tvær dætur. Ráðning rekstrar- stjóra Vegagerd- arinnar fordæmd SVOHLJÓÐANDI tillaga var sam- þykkt á kjördæmisráðsfundi Sjálf- stæðisflokksins á Austurlandi, sem haldinn var á Reyðarfirði 2. apríl 1978: Fundurinn fordæmir þau vinnu- brögð samgönguráðherra, sem beitt var við ráðningu rekstrar- stjóra Vegagerðar ríkisins á Aust- urlandi nú nýverið. (Fréttatilkynning) Hjálparsveitir skáta kallaðar út: „Það hefur orðið mikill jarðskjálfti uppi í Hval- firði og þar eru a.m.k. 34 manns slasaðir, nánar til- tekið í nágrenni við Hvíta- nes.“ — Þannig hljóðaði útkall það sem allar hjálp- arsveitir skáta á suðvest- urhorninu fengu klukkan 7.30 á sunnudagsmorgun og voru þeir þar beðnir að mæta með allan sinn mannskap og flutningatæki Um klukkan 10.30 voru allar sveitirnar frá Reykjavík, Kópa- vogi, Garðabæ, Hafnarfirði og Njarðvíkum mættar með um 100 manns á staðinn ásamt fjölda bj örgunarbifreiða. Þá kom í ljós að hér var aðeins um sviðsett stórslys að „Fjöldi f ólks stórslasað eftir mikinn jarðskjálfta í Hvalfirði” ræða, sem 14 nýútskrifaðir kennarar í skyndihjálp frá Björgunarskóla Landssambands hjálparsveita undir stjórn kenn- ara síns Thors B. Eggertssonar stóðu að. Mbl. ræddi við Thor og innti hann eftir gangi æfingarinnar, undirbúningi og tilgangi þessa útkalls. — „Eftir að sveitirnar voru komnar hér á staðinn, var sett á stofn leitar- og björgunar- stjórn sem var skipuð stjórn Landssambands hjálparsveita skáta. Skipulögð var leit að hinum slösuðu, sem voru á víð og dreif Um 20 hektara svæði allt kringum eyðibýlið að Hvíta- nesi. Hinir slösuðu voru 34 að tölu, skátar úr skátafélaginu Garðbú- um í Reykjavík, sem voru útbúnir sem eðlilegast með hin ýmsu gervisár, margir hverjir mjög mikið slasaðir. Það kom mér nokkuð á óvart hversu allar aðgerðir gengu fljótt og vel fyrir sig, öll stjórnun svo og kunn- áttusamleg handbrögð hinna almennu félaga, sem sáu um að koma hinum slösuðu til hjálp- ar,“ sagði Thor ennfremur. „Þegar búið var að hlúa að hverjum sjúklingi og koma honum á sjúkrabörur, voru þeir fluttir með sjúkrabílum sveit- anna á neyðarsjúkrahús sem komið hafði verið upp í félags- heimilinu að Félagsgarði. Þessu var svo öllu lokið um klukkan 12.00, þannig að það er hægt að vera mjög ánægður með árang- urinn. — Hvað varðar undirbún- ing og markmið með æfingunni, þá er það að segja að tilgangur- inn er fyrst og fremst að kanna ástand sveitanna með tilliti til þess að samkvæmt samningi við Almannavarnir ríkisins um þátt hjálparsveita skáta í kerfinu ef til stóráfalla kemur, er það hlutverk þeirra að sjá um sjúkrahjálp og þjónustu, ásamt því að setja upp neyðarsjúkra- hús á staðnum. Hvað varðar undirbúninginn er það að segja að hann hófst strax í janúar s.l. þegar við fórum að huga að stað og hvernig bezt væri að skipu- leggja þetta.“ — Að lokum sagði Thor, að eftir slysið hefði hópurinn komið saman þar sem gallar og kostir æfingarinnar voru ræddir. Helgi mátaði Timman og er nær öruggur um að hljóta alþ jódatitil „EG ÞARF að fá hálfan vinning úr Þremur síðustu umferðunum til þess að fá alþjóðlegan titil og ég geri ráð fyrir því að mér takist ekki að klúöra þessu núna,“ sagöi Helgi Ólafsson skákmeista%í samtali við Mbl. í gær, en telja má fullvíst að Helgi verði útnefndur alþjóðlegur meistari í skák að loknu Lone Pine-skákmótinu, eftir að hann sigraði hollenska stórmeistarann Jan Timman glæsilega í 6. umferð mótsins. Helgi hefur áður unnið til hálfs titils, það var á skákmóti í New York 1976. Helgi sagöi að hann hefði verið í ágætu formi á þessu móti og verið farsæll í skákum sínum. I skákinni við Timman tefldi hann mjög vel í mikilli baráttuskák og í tímahraki í lokin missti Hollendingurinn alveg þráðinn og Helgi mátaöi hann, sem er afar sjaldgæft á kaþpmótum. Var staða Helga gjörunnin og hefði Timman getað gefið skákina nokkru áður. Margeir Pétursson tefldi við júgóslavneska stórmestarann Janosevic og lék iliilega af sér eftir að hafa verið með goða stöðu og tapaði. Haukur Angantýsson tefldi við finnska stórmeistarann Wester- inen og vann Haukur skákina í 42 leikjum. Ásgeir Þ. Árnason tapaði fyrir Bandaríkjamanninum Taylor og Jónas P. Erlingsson tapaði fyrir Whitehead, sem einnig er frá Bandaríkjunum. Eftir 6 umferðir er Polugaevsky efstur með 5'/2 vinning en hann sigraði Reshevsky í síðustu umferð. Bent Larsen kemur fast á hæla Sovétmannsins með 5 vinninga, en hann hefur nú unnið 5 skákir í röð, síöast Bretann Mestel. í 3.-6. sæti eru Portisch, Peters og Laine með 4'/2 vinning, en Helgi er í 7. —17. sæti með 4 vinninga. Margeir og Haukur hafa 3 vinninga, Ásgeir 1% og Jónas '/2 vinning. Hér fer á eftir sigurskák Helga gegn Timman. Hvítt: Helgi Olafsson Svart: Jan Timman. 1. c4 — e5 2. Rc3 — Rf6 3. Rf3 — Rc6 4. e3 — Bb4 5. Dc2 — 0-0 6. d3 — He8 7. Bd2 — d6 8. a3 — Bxc3 9. Bxc3 — Bg4 10. Be2 — Bxf3 11. Bxf3 — Rd4 12. Dd1 — d5 13. 0-0 — Rxf3+ 14. Dxf3 — c6 15. e4 — d4 16. Bd2 — Rd7 17. b4 — b6 18. Dh3 — a5 19. f4 — exf4 20. bxa5 — bxa5 21. Bxf4 — Rc5 22. Hab1 — a4 23. Hb4 — He6 24. Hf3 — De7 25. Dg3 — h6 26. h3 — Hf6 27. Bd2 — Hxf3 28. Dxf3 — Rb3 29. Bf4 — Df6 30. Dg3 — He8 31. Hxa4 — Rc5 32. Ha5 — Rxd3 33. Bxh6 — Re5 34. Bf4 — Rxc4 35. Hf5 — De6 36. Hg5 — g6 37. e5 — Hd8 38. h4 — d3 39. h5 — Kg7 40. hxg6 — fxg6 41. Hh5 — Hd7? 42. Dg5 — Dg8 43. Df6 mát.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.