Morgunblaðið - 11.04.1978, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 11.04.1978, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 1978 47 „Ævi Marilyn Monroe“ nefnist leikrit sem þessa dagana er verið að sýna í Schiller-leikhúsinu í Berlín. Með aðalhlutverkið fer Therese Diirenberger, er hér sést á æfingu á leikritinu. Tekur ekki við af Hubert Humprey St. Paul, Minnesota, 8. apríl. Reuter. MURIEL Ilumphrey sagði í dag að hún hefði ekki hug á að halda sæti fráfallins eiginmanns síns, Hubert Humphreyes, og myndi því ekki fara í framboð í auka- kosningum í nofember. Muriel tók sæti manns síns í bandarísku öldungadeildinni í febrúar, er hann féll fra. „Ég hef tekið þátt í kosninga^ baráttu 12 sinnum og í 33 ár stóð ég við hlið manns míns, þegar hann var borgarstjóri Minnea- polis, varaforseti og þingmaður. Nú langar mig til að sinna heimili mínu,“ sagði Muriel Humphrey í kvöldverðarboði með demókrötum. Kvöldverðarboðið var haldið í minningu Huberts Humphreys og voru um 5.000 manns viðstaddir. Muriel sagði að hún hefði meiri hug á að sinna heimilisstörfum sínum en málefnum Bandaríkj- anna. Nokkurra vonbrigða þótti gæta á fundinum með afstöðu Muriel, en henni var þó klappað lof í lofa fyrir vel unnin störf í þinginu. Muriel Humphrey er eina konan sem situr í öldungadeild banda- ríska þingsins. 518 handteknir fyrir samsæri Nikósíu, 10. apríl. Reuter. LÖGREGLA handtók í gær 10 grískættaða Kýpurbúa í nágrenni Limasol, og er þá fjöldi þeirra sem handteknir hafa verið vegna gruns um samsæri gegn stjórn Kypríanousar orðinn 518. Handtökurnar hófust fyrir viku síðan. Meðal þeirra sem voru teknir fastir í gær Var Vassos Pavlides, foringi EOKA-sam- takanna, sem rændu í desem- ber syni Kyprianousar. Pavlides er grunaður um að hafa skipulagt árásir á stjórnmálafrömuði og er- lenda fulltrúa á Kýpur. Kyprianous sagði í dag að hoaart yrði tekið á þeim sem reyndu að stofna til ófriðar á eynni. Amin gagnrýnir rádherra sína Nairobi, 10. apríl, Reuter AP. IDI Amin, forseti Uganda, sagði í dag að sumir ráðherrar hans væru „stoltir og heimskir" og varaði þá við breytingum á stjórninni, að því er útvarpið í Uganda skýrði frá í dag. Samkvæmt fréttum útvarpsins gagnrýndi Amin fjármálaráð- herrann, Moses Ali, fyrir að gefa vinum sínum bifreiðar, sem ríkið borgaði. Sagði Amin að senn liði að því að Ali hefði engin völd til að gefa stórgjafir. Ali hefur gefið vinum sínum í Kampala margar bifreiðir, og sagði forsetinn afleiöingar gjafa Alis vera að allar götur í höfuð- borginni væru tepptar af bif- reiðum. Þá sagði Amin að allar bifreiðar í Uganda væru fluttar inn frá einni bifreiðaverksmiðju, vegna Framhald á bls. 30. Muriel Humphrey Veður víða um heim Amsterdam Aþena Berlin Briissel Chicago Frankturt Genf Helsinki Jóhannesarb. Kaupmannahöfn Lissabon » London Los Angeles Madríd Malaga Miami Moskva New York Ósló Palma, Majorca París Róm Stokkhólmur Tel Aviv Tokýó Vancouver Vinarborg 10 skýjað 20 skýjað 14 sólskin 10 skýjað 18 rigning 17 heiðskírt 12 mistur 5 skýjað 20 rígning 12 sólskin 16 sólskin 8 heiðskírt 21 heiöskírt 15 skýjað 17 léttskýjað 26 heiðskírt 4 sólskin 14 heiöskírt 10 skýjaö 16 mistur 13 skýjað 12 skýjað 8 skýjað 24 skýjað 17 heiðskírt 15 skýjað 16 sólskin Rússi dæmdur fyrir landráð Moskvu, 10. apríl. Reuter SOVÉSK yfirvöld tilkynntu í dag að þau hefðu dæmt Leonid nokkurn Lubman til 15 ára vistar í vinnubúðum fyrir landráð. Lubman er talinn vera af Gyðingaættum og er frá Len- ingrad. Tass-fréttastofan sagði að Lubman hefði afhent skjöl sem geymdu ríkisleyndarmál ítölsku konunni Gabrielli, sem stundaði nám í rússnesku í Leningrad, Skjölin fundust í fórum Gabrielli við farangursskoðun á Moskvu- flugvelli þegar hún hugðist yfir- gefa Sovétríkin 11. ágúst í fyrra. Samtök rússneskra útlaga (NTS) sendu Gabrielli til Sovét- ríkjanna að sögn Tass. Sovésk yfirvöld segja N.T.S. vera í tengsl- um við vestrænar leyniþjónustur. Sendiráð Italiu í Moskvu sagðist í dag ekki hafa upplýsingar um neinn ítalskan þegn með þessu nafni í heimsókn í Sovétríkjunum. Þetta gerðist 11. apríl 1973 — Nazistaleiðtoginn Mar- tin Bormann opinberlega lýstur látinn og leit að honum hætt. 1972 — Þúsundir bíða bana í jarðskjálfta í Suður-íran, 1963 — Leit hætt að banda- ríska kjarnorkukafbátnum „Thresher" sem hvarf með 129 mönnum innanborðs undan Cape Cod. 1953 — Samkomuiag gert um fangaskipti í Kóreu. 1951 — Truman forseti leysir Douglas MacArthur hershöfð- ingja frá störfum. 1899 — Bandaríkjamenn taka við stjórn Filippseyja af Spán- verjum. 1891 — Uganda lýst brezkt verndarsvæði. 1814 — Napoleon leggur niður völd og er flænidur til Elbu samkvæmt samningum í Fon- tainebleau. 1805 — Bretar og Rússar ákveða samkvæmt samningnum í St. Pétursborg að mynda ríkjabandalag gegn Frökkum. 1713 — Frakkland, Bretiand, Holland, Savoy, Portúgal og Prússland samþykkja friðinn í Utrecht — Spánverjar láta Gíbraltar af hendi við Breta. 1677 — Hertoginn af Orleans sigrar Vilhjálm af Óraníu í Kassel. Afmali dagsins. George Can- ning, brezkur ráðherra (1770 — 1827) — Manuel Quintana, spænskt skáld (1772 — 1857) — frú Ethel Kennedy, ekkja Roberts Kennedys (1928). Orö dagsins. Hugrekki er mesti mannkosturinn því að það tryggir alla hina — Sir Winston Churchill, brezkur þjóðarleið- togi (1874 - 1965). Chirac varar i Giscard við París, 10. apríl. Reuter. JACQUES Chirac ieiðtogi gaullista varaði Valery Giscard d’Estaing forseta við því í dag að halda að flokkurinn myndi sjálf- krafa veita stjórninni stuðning. „Við munum láta sannfæringu okkar ráða þegar við tökum afstöðu í einstökum málum,“ sagði Chirac á ílokksþingi Gaullista í dag. Flokkur hans er stærstur stjórnarflokkanna. Flokksþing gaullista samþykkti að ráðherrar og þingdeildaforsetar úr röðum þeirra skyldu ekki gegna flokksembættum. Sérfræðingar telja þetta bein viðbrögð við kosningu Jacques Chaban-Delmas í embætti forseta þjóðþingsins í stað hins opinbera frambjóðanda flokksins, Robert Fabre. Chaban-Delmas er gauilisti en hlaut stuðning þeirra afla í stjórnarflokkunum sem styðja Giscard dorseta. Sigur hans var talinn sigur fyrir Frakklandsfor- seta og niðurlæging fyrir Chirac. Frekar kalt hefur verið á milli Chiracs og D'Estaing frá því að forsetinn leysti Chirac úr embætti forsætisráðherra í ágúst 1976. Yfirlýsing Chiracs í dag*er talin bera togstreitunni ljósan vott. Skip tekið í landhelgi Póllands Varsjá 8. apríl. Reuter. HIN opinbera fréttastofa Pól- lands, PAP, skýrði frá því í dag, að vestur-þýzkt fiskiskip hefði verið staðið að ólöglegum veiðum innan póTsku landhelginnar í Framhald á bls. 31.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.