Morgunblaðið - 11.04.1978, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 1978
23
Player lék
snilldarlega
GARY PLAYER lék snilldarlega síðasta dag „Masters-gollkeppninn-
ar“ og S-Aíríkumaðurinn tryggði sér sigur í þessari miklu keppni.
Fær Player 45 þúsund dollara í sinn hlut fyrir sigurinn. Hann lék
samtals á 277 höggum (72 —72 —69 — 64) á hinum 7000 metra langa
golfvelli í Augusta í Georgíu, en par vallarins er 72.
Þrír kylfingar komu síðan jafnir
í næstu sætum, þeir Hubert Green,
Tom Watson og Ron Funseth sem
allir léku á 278 höggum. Bill
Kratzert og Wally Armstrong léku
á 280 höggum, Jack Nicklaus varð
7. á 281 höggi.
Nicklaus var
sérstaklega gætt tvo síðustu
keppnisdagana, en hótað hafði
verið tilræði gegn honum og
óeinkennisklæddir lögreglumenn
fylgdu honum hvert fótmál.
Nicklaus hefur fimm sinnum
unnið þessa mikiu keppni, en sigur
Players núna var hans þriðji í
„Masters" og er hann fyrsti
útlendingurinn, sem vinnur keppn-
ina. Sigurvegarinn í keppninni í
fyrra Hubert Green, virtist lengi
vel ætla að verja titil sinn, en
brást bogalistin í lokin.
rmginn hefur unnið Masters-golfkeppnina eins oft og Jack Niklaus,
en hann varð í 7. sæti að þessu sinni. Myndin er tekin er Nicklaus
slær úr sandgryfju fyrsta keppnisdaginn.
Sigurður í
fremstu röð
SIGURÐUR Jónsson, skíða-
maður frá ísafirði, varð í 4. og
5. sæti á svigmótum í Bærum,
rétt utan við Ósló, um helgina.
Meðal keppenda voru skíðamenn
víðs vegar að úr Evrópu og auk
Sigurðar 6 aðrir íslenzkir skíða-
menn. Sigurður var sá eini
(slendinganna, sem varð í
fremstu röð, en auk hans voru
þau Steinunn Sæmundsdóttir,
Vals- '
stúlkur
unnu
Þórsara
VALUR vann Þór í 1. deild
kvenna á Akureyri á laugardag-
inn og er Valur því enn í
toppharáttunni í deildinni. Úr-
slitin urðu 12>9, eftir að staðan
hafði verið 7«5 í háifleik. Leikur-
inn var frekar slakur í heild, cn
Þórsliðið hefði þó getað veitt
meiri mótspyrnu með meiri
heppni. Auk þess varði Sigur-
björg Pétursdóttir stórvel í
marki Vals að þessu sinni.
MÖRK VALSi Halldóra 5,
Oddný 3, Harpa 2, Elín og Ilulda
1 hvor.
MÖRK ÞÓRSi Soffía 5, Magnea
2, Sigríður Dýrfinna 1 hvor.
Ásdís Alfréðsdóttir, Ása Hrönn
Sæmundsdóttir, Karl Frímanns-
son, Björn Olgeirsson og Gunnar
Jónsson með í mótunum. ís-
lenzka skíðafólkið heldur nú til
Ítalíu til keppni þar.
Skiptir
um félag
innan
Svíþjóðar
GUÐMUNDUR Sveinsson, hand-
knattieiksmaðurinn kunni úr
Fram, dvelur hér heima um
þessar mundir. Guðmundur hefur
leikið í Svíþjóð í vetur, og allar
líkur eru á að hann muni fara
utan aítur í júní og gera samning
við 2. deildar iiðið Aranes, sem er
i Suður-Svíþjóð, og leika með
liðinu næsta vetur.
Guðmundur lét vel af dvöl sinni
ytra, hann lék með Malmberget í
2. deild siðasta keppnistimabil og
hafnaði liðið í öðru sæti í sínum
riðli á óhagstæðara markahlut-
falli. Þrír íslenskir handknatt-
leiksmenn, þeir Viðar Símonar-
son, Hilmar Björnsson og Hörður
Harðarson hafa leikið með
sænsku liði i þriðju deild og gekk
liði þeirra illa, urðu þeir um
miðja deild. Ágúst Svavarsson
mun hafa fengið tilboð frá
nokkrum sænskum fyrstu deildar
liðum og er hann að kanna þau
og mun skýrast á næstunni hvaða
lið hann Ieikur fyrir á næsta ári.
— br.
FYLKIR lék í gærkvöidi sinn fyrsta leik í meistaraflokki Reykjavikurmótsins í knattspyrnu.
Fylkismennirnir mættu þá Val og sjást hér fyrirliðar liðanna heilsast fyrir leikinn. Valsmenn unnu leikinn
örugglega 3.0. Fyrsta markið skoraði Ilálfdán Örlygsson á 35. mínútu og á 18. mfnútu seinni hálfleiks
breytti Albert Guðmundsson stöðunni í 2.0 með glæsilegu marki og fimm minútum fyrir leiksiok innsiglaði
Guðmundur Þorbjörnsson sigur Vals með góðu marki. Ljósm.i Mbl. RAX.
Mikiðaf mörkum
LEIKMENN Breiðabliks og Víkings voru á skotskónum er liðin léku í litlu bikarkeppninni og
Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu um helgina. Breiðabiik vann Hauka 6.1 og Víkingar lögðu
Armenninga að velli með 4 mörkum gegn engu. Fá Víkingar því aukastig fyrir þennan sigur. en
sami háttur er hafður á í Reykjavíkurmótinu í ár og í fyrra, 3 mörk í leik gefa eitt stig sama hver
úrslit verða.
Reykjavíkurmótið hófst á
laugardaginn með leik KR og
Þróttar og var þar um alljafnan
leik að ræða þegar á heildina er
litið, en aðstæður voru erfiðar.
Sigurður Indriðason skoraði
fyrir KR i fyrri hálfleiknum, en
í þeim síðari jafnaði Páll
Ólafsson fyrir Þróttara. Bæði
mörkin voru lagleg og vel að
þeim staðið.
Á sunnudag léku Víkingar
síðan gegn Ármanni og var þar
lengi vel um mjög jafnan leik að
ræða. Ármenningar voru sízt
lakari meðan þeir höfðu úthald.
Er leið á seinni hálfleikinn var
úthald þeirra greinilega þorrið
og Víkingar gengu á lagið. Fyrst
skoraði Jóhann Torfason, sitt
fyrsta mark fyrir Víking. Viðar
Elíasson frá Vestmannaeyjum
fylgdi í fótspor hans og jók
muninn í 2:0. Húsvíkingurinn
Helgi Helgason tryggði síðan
aukastigið með 3:0 og Arnór
Guðjohnsen, sá ungi og sérlega
efnilegi leikmaður, rak smiðs-
höggið á verkið með síðasta
marki leiksins, 4:0. Helmingur
marka Víkings var góður, en
markvörður hefði átt að ráða við
tvö skotanna, sem gáfu mörk.
Sömuleiðis var leikur Breiða-
bliks og Hauka lengi vel í
jafnvægi í Litlu bikarkeppninni.
Hinrik Þórhallsson skoraði fyrir
Blikana í fyrri hálfleik og
Haukarnir kvittuðu fljótlega.
Um miðjan seinni hálfleikinn
fór skriðan af stað. Ólafur
Friðriksson, Þór Hreiðarsson
(víti), Vignir Baldursson, Valdi-
mar Valdimarsson og Einar
Þórhallsson (víti) skoruðu fyrir
UBK áður en yfir lauk. Sex
leikmenn, sex mörk.
Á Akranesi léku heimamenn
við ÍBK og þar varð jafntefli 0:0,
en leikurinn fór fram við mjög
erfiðar aðstæður, rok og kalsa-
veður. í leik b-liðanna unnu
Keflvíkingar 2:0. Þær tölur urðu
einnig uppi á teningnum í leik
b-liða UBK og Hauka, Gunnar
Steinn Pálsson og Guðmundur
Þórðarson, þær gömlu kempur,
skoruðu fyrir UBK í leiknum.
Unglingalandsliðið lék um
helgina æfingaleik við FH og
úrslitin urðu 4:4, en unglingarn-
ir höfðu yfir 4:2 um miðjan
seinni hálfleikinn. Valur átti að
leika gegn ÍBV í meistarakeppn-
inni á laugardaginn, en vegna
veðurs varð að fresta leiknum.
-áij
Þór tapaði og
þarf að leika 2
leiki við Leikni
KA VANN Þór í 2. deildinni í handknattleik á Akureyri á föstudagskvöldið með 20 mörkum gegn 19.
Þessi úrslit þýða að Þór verður að leika gegn Leikni um það hvort liðanna mætir Breiðablik í keppni
um lausa sætið í 2. deild næsta keppnistímabil.
Leikurinn á föstudaginn var
jafn allan tímann og kom á óvart
að Þór skyldi ekki vinna auðveldan
sigur því KA-menn stilltu upp
hálfgerðu b-liði. Þór hafði yfir í
leikhléi, 10:8, en KA hafði jafnað
eftir nokkrar mínútur af seinni
hálfleik og jafnt var á öllum tölum
fram undir lok leiksins. Á síðustu
mínútunni tókst leikmönnum KA
að skora síðasta markið og tryggja
sér sigur.
Beztur í liði KA að þessu sinni
var Friðjón Jónsson, ungur og
bráðefnilegur leikmaður, sonur
Jóns Stefánssonar fyrrum knatt-
spyrnukappa. Af Þórsmönnum átti
Sigtryggur Guðlaugsson beztan
leik.
Mörk KAi Friðjón 5, Jón Hauks-
son 5 (2v), Alfreð 3, Hermann,
Þórleifur og Jóhann 2 hver, Páll 1.
Mörk Þórsi Sigtryggur 6 (2v),
Einar 4, Jón og Árni 3 hvor,
Gunnar 2, Valur 1.
—Sigb. G.
Eftir bókinni
\
í blakbikarnum
UM HELGINA var leikíð í undanúr-
Slitum í bikarkeppninni { blaki og
urðu par engin óvænt úrslit.
Stúdentar unnu Laugdæli 3—1
(15-6,3-15,15-7 og 15-2) og Þróttur
vann UMSE einnig 3—1 (15-11,
10-15, 15-2 og 15-4). Pað verða pví
ÍS og Þróttur sem berjast tH úrslita
um bikarinn á laugardagínn kem-
ur.
Laugdselír hófu leikinn gegn
stúdentum af miklum kratti og
komust í 5—1 í byrjun fyrstu hrinu
en pá var sem dofnaði yfir peim og
stúdentar náðu sér á strik og unnu
hrinuna auöveldlega 15—6. í 2.
hrinu áttu stúdentar aldrei mögu-
leika og enda gekk spil peirra
engan veginn upp og máttu peir
pola par sitt mesta tap i vetur
15—3. i 3. hrinu mættu stúdentar
ákveönir til leiks og komust í 14—3
en pá náðu Laugdælir aðeins að
rétta hlut sinn og lauk hrinunni
með 15—7.
Í 4. hrinunni var um algjöra
einstefnu að ræða af hálfu stú-
denta og unnu peir hrinuna 15—2.
Bestur stúdenta i pessum leik
var Indriði Arnórsson eins og svo
oft áður en annars átti liðið í heiíd
góðan leik ef 2. hrinan er undan-
skilin par sem allir gerðu sig seka
um villur jafnframt pví sem Laug-
dælir sýndu snilldartakta. i liði
Laugdæla stóö enginn einn uppúr
nema pá helst Haraldur Geir.
Leikur Þróttar og UMSE var litið
spennandi og vann Þróttur nokkuð
öruggan sigur. Það var aðeins í
tveimur fyrstu hrinunum sem
Eyfirðingar náðu að veita einhverja
mótstöðu og unnu Þeir 2. hrinuna
15—10 eftir að peir höfðu komist
i 9—1 í byrjun. Eftirleikurinn var
Þrótturum auðveldur og unnu peir
tvær siðustu hrinurnar meö yfir-
burðum, 15—2 og 15—4.
ke/ps
I_____________