Morgunblaðið - 11.04.1978, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. APRIL 1978
■ ■P^ SÍMAR
jO 28810
car rental 24460
bílaleigan
GEYSIR
BORGARTUNI 24
LOFTLEIDIR
'ZT 2 11 90 2 11 88
Ný stjórn í
Verzlunar-
mannafélagi
r
Arnessýslu
AÐALFUNDUR Verzlunar-
mannafélags Arnessýslu var
haldinn í Selfossbíói 15. mars,
1978.
Eftir venjuleg aðalfundarstörf
voru kynntar lagabreytingar.
Síðan fór fram kosning stjórnar og
trúnaðarmannaráðs. Gunnar
Kristmundsson, sem verið hefur
formaður frá 1971, baðst undan
endurkjöri. Tveir aðrir gáfu ekki
kost á sér. I nýja stjórn voru
kjörnir:
þormóður Toríason formadur, Hveragerði.
Gunnar Kristmundsson varaformaður, Selfossi.
Garðar Ilólm Gunnarsson gjaldkeri. Selfossi.
Maria Hauksdóttir ritari, Selfossi. Pétur
Iljaltason meðstjórnandi. Selíossi.
í trúnaðarmannaráð voru þessir kjörniri
Magnús Aðalbjarnarson. Selfossi. Erla Jakobs-
dóttir. Seifossi. Guðmundur Geir ólafsson,
Selfossi. Steini borvaldsson, Selfossi.
Endurskoðendur voru kjörnin Kristmann
Guðmundsson. Selfossi. Leifur Guðmundsson,
Selfossi.
Ægir verður
mánaðarblað
Tímaritið 70 ára
UM þessar mundir er verið að
vinna að breytingum á Ægi,
tímariti Fiskifélags íslands, og
verður blaðið framvegis mánaðar-
rit, en til þessa hefur Ægir komið
út hálfsmánaðarlega.
Jónas Blöndal, ritstjóri Ægis,
sagði í samtali við Morgunblaðið,
að i júnímánuði n.k. yrði farið að
offsetprenta Ægi og nú um leið og
blaðið kæmi út mánaðarlega, yrði
síðufjöldi í hverju blaði aukinn.
„Þá er og hugmyndin, að hvert
blað verði helgað sérstöku
viðfangsefni, auk þess sem haldið
verður áfram að birta efni, sem
ávallt hefur verið í Ægi, eins og
skýrslur Fiskifélagsins o.fl. T.d.
verður næsta tölublað helgað
kolmunnaveiðum.“
Þá sagði Jónas, að nú yrði reynt
að fá fleiri utanaðkomandi til að
skrifa íblaðið en verið hefði. Þá má
geta þess að Ægir er 70 ára á
þessu ári.
útvarp Reyklavlk
ÞRIÐJUDtkGUR
11. apnl
MORGUNNINN
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15
og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05.
Fréttir kl. 7.30. 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00.
Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
9.15i Steinunn Bjarman Ies
söguna „Jerutti bjargar
Tuma og Tinnu“ eftir Cecil
Bödker (7).
Tilkynningar kl. 9.30 Þing-
frcttir kl. 9.45. Lctt lög milíi
atriða.
Áður fyrr á árunum kl.
10.25. Ágústa Björnsdóttir
sér um þáttinn.
Morguntónleikar kl. 11.00.
György Sandor leikur á
píanó „Tíu þætti“ op. 12 cftir
Sergej Prokofjeff / André
Gertler og Diane Andersen
leika Sónötu fyrir íiðlu og
pi'anó eftir Béla Bartók.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar. „
Við vinnuna. Tónleikar. V
SÍÐDEGIÐ
14.35 Stund í Ásgrímssafni,
Tómas Einarsson ræðir við
umsjónarmann safnsins,
Bjarnveigu Bjarnadóttur.
15.00 Miðdegistónleikar,
Fílharmoníusveitin í Los
Angeles leikur „Don Juan“,
sinfónískt ljóð eftir Richard
Strauss, Zubin Mehta
stjórnar. Fflharmoníusveit-
in\JL Vín leikur Sinfóníu nr.
9 í e-moll „Úr Nýja
heiminum“, eftir Antonín
Dvorák, Istvan Kertesz
stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popp
17.30 Litli barnatfminn, Finn-
borg Scheving sér um
tímann.
ÞRIÐJUDAGUR
11. aprfl 1978
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.30 Svínafórn og sætar kart-
öflur (L)
Kanadísk heimildamynd
um lífshætti og siði hins
frumstæða Mendi-ættflokks
á Nýju-Guineu.
Þýðandi og þulur Oskar
Ingimarsson.
17.50 Að tafli, Jón Þ. Þór
flytur skákþátt.
Tónleikar . Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIÐ
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Rannsóknir í verkfræði-
og raunvísindadeild Iláskóla
íslands. Sigurður Helgason
dósent ræðir um samband
saltbúskapar og vaxtar hjá
laxfiskum.
20.00 Einsöngur í útvarpssaL
Boris Borotinskí frá Finn-
iandi syngur lög eftir
Sibelíus og Tsjaíkovský.
Guðrún Kristinsdóttir
leikur á píanó.
21.25 Sjónhending (L)
Erlendar myndir og mái-
efni. Umsjónarmaður Bogi
Ágústsson.
21.45 Serpico (L)
Bandarískur sakamála-
myndaflokkur.
Afstyrmið
Þýðandi Jón Thor Haralds-
son.
22.35 Dagskrárlok
20.30 Útvarpssagan, „Pfla-
grímurinn“ eftir Par Lager-
kvist, Gunnar Stefánsson
lýkur lestri þýðingar sinnar
(16).
21.00 Kvöldvaka,
a. „Sálin hans Jóns míns"
Ingibjörg Þorbergs syngur
eigið lag við Ijóð Davíðs
Stefánssonar frá Fagra-
skógi.
b. Er Gestur spaki Oddleifs-
son höfundur Gísla sögu
Súrssonar? Erindi eftir
Eirík Björnsson lækni, —
síðari hiuti. Baldur Pálma-
son les.
c. Alþýðuskáld á Héraði,
Sigurður Ó. Pálsson skóla-
stjóri les kvæði og segir frá
höfundum þeirra, sjötti
þáttur.
d. Tveir heiðursmenn á
Steinboga, Ilalldór Péturs-
son segir frá.
e. Samsöngur, Einsöngvara-
kvartettinn syngur lög við
ljóðaþýðingar Magnúsar Ás-
geirssonar, Ólafur Vignir
Álbertsson leikur á píanó.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.50 Harmonikuiög. Hcidi
Wild og Ranto Bui leika.
23.00 Á hljóðbergi, „A Delicate
Balance", leikrit eftir
Edward Albee, — síðari
hluti. Með aðalhlutverk fara
Katherine Hepburn, Paul
Scofield, Kate Reid, Joseph
Cotton og Betsy Biair.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
SKJANUM
„Svínafórn
og sætar
kartöflur”
KLUKKAN 20.30 í kvöld er í
sjónvarpi kanadísk heimilda-
mynd um hinn frumstæða
Mendi-ættflokk á Nýju-Guineu.
Nefnist myndin „Svínafórn og
sætar kartöflur" og er tæplega
klukkustundar löng. Þýðandi
myndarinnar og þulur er Óskar
Ingimarsson.
Nýja-Guinea telst í dag vera
næststærsta eyja í heimi, aðeins
Grænland er stærri. Eyjan er í
Suðvestur-Kyrrahafi, skammt
norðan við Ástralíu. Þykir
líklegt að Nýja-Guinea og
Ástralía hafi einhvern tíma
verið áföst.
Eyjan er frekar hálend og alls
staðar er þéttur frumskógur.
Dýralíf er frekar fjölbreytt, og
þar er meðal annars að finna
dýr náskylt kengúrunni í
Ástralíu.
íbúar Nýju-Guineu eru á
þriðju milljón, og er eyjan því
állstrjálbýl. Skiptast íbúarnir í
þrjá flokka: Pygmía, Papuana
og Melansíumenn. Pygmíar eru
fámennastir íbúanna og þeirra
frumstæðastir. Þeir lifa í litlum
þorpum, eru flestir veiðimenn
og þekkja ekki neina málma.
Fyrsti landkönnuðurinn sem
fann Nýju-Guineu var Portúgal-
inn Antonio d'Avreu árið 1511.
Eyjan var skírð Nýja-Guinea
árið 1546 vegna þess hve líkir
Papúarnir voru íbúum Guineu í
Vestur-Afríku.
Meðal efnis á kvöld-
vökunni í kvöld klukkan
21.00 er flutningur Ingi-
bjargar Þorbergsdóttur á
eigin lagi við ljóð Davíðs
Stefánssonar frá Fagra-
skógi, „Sálin hans Jóns *
míns“.
Ferðamál — nýtt
rit Ferðamálaráðs
KOMIÐ er út nýtt rit Ferða-
málaráðs íslands og heitir
Danskt
eftirlits-
skip í
heimsókn
DANSKA eftirlitsskipið INGOLF
kemur til Reykjavíkur í dag, 11.
apríl 1978, kl. 0900.
Meðan á heimsókn skipsins
stendur gefst almenningi kostur á
að koma um borð og skoða það,
þriðjudaginn 11. apríl og miðviku-
daginn 12. apríl frá kl.
15.00-16.30.
það Ferðamál. Verður rit-
inu dreift ókeypis meðal
þeirra er starfa að ferða-
málum og inna af hendi
störf í hinum ýmsu greinum
ferðaþjónustu.
Ábyrgðarmaður ritsins er
Lúðvík Hjálmtýsson og
annast Guðbrandur Gíslason
ritstjórnarlega umsjón
ásamt Haraldi J. Hamar,
sem- hefur að öðru leyti
umsjón með útgáfunni. Gert
er ráð fyrir að Ferðamál
komi út fjórum sinnum á ári
eða oftar ef þurfa þykir.
Meðal efnis í þessu fyrsta
tölublaði er frásögn frá
auknu átaki í landkynning-
Forsíða hins nýja rits Ferðamála-
ráðs íslands.
ar- og markaðsmálum,
Lúðvík Hjálmtýsson segir
frá starfsemi Ferðamálaráðs
og sagt er frá útgáfu
kynningarbæklinga á vegum
Ferðamálaráðs á erlendum
tungumálum.
Þungatak-
markanir
á vegum
VEGAGERÐIN hefur sett þunga-
takmarkanir á flesta aðalvegi
landsins að undanskildum vegum
á Norðausturlandi, samkvæmt
upplýsingum Hjörleifs ólafsson-
ar hjá Vegaeftirlitinu.
Að sögn Hjörleifs er hámarks-
þungi nú miðaður við sjö tonna
öxulþunga. Frost er víða að fara úr
jörðu og töluverð aurbleyta á
vegunum og eru takmarkanirnar
settar til þess að koma í veg fyrir
skemmdir á vegunum. Færð er nú
með skásta móti á vegum landsins
miðað við árstíma, að sögn Hjör-
leifs.