Morgunblaðið - 11.04.1978, Blaðsíða 48
Alþýðubankamálið:
Opinbert mál gegn banka-
stjórum og skrifstofustjóra
UNGA stúlkan, Svala Hrönn, situr þarna innan um hrannir af
grýlukertum í Raufarhólshelli við Þrengslin, en fyrstu 100 metrana
inn í þennan um 1 km langa helli er oft mikil svellbunga með
þúsundum grýlukerta bæði í góifi og lofti hellisins. Op Raufarhólshell-
is eru innan girðingar um 70 metra frá veginum t.v. rétt áður en
komið er fram á hæðina í síðustu brekkunni niður úr Þrengslunum.
Tjón Alþýðubankans talið nema tugum milljóna króna
RÍKISSAKSÓKNARI hefur
gefið út ákæru á hendur
tveimur fyrrverandi banka-
stjórum Alþýðuhankans,
þeim Óskari Hallgrímssyni
ojf Jóni Hallssyni, svo og
fyrrverandi skrifstofustjóra
hankans, Gísla Jónssyni,
fyrir brot gegn almennum
hegningarlögum. Er þeim
gefið að sök að hafa misnot-
að starfsstöðu sína í bankan-
um og að hafa staðið þannig
að stjórn bankans að hann
hafi orðið og verði fyrir
fjárhagstjóni svo tugum
milljóna skipti.
I frétt frá embætti ríkissak-
sóknara, sem Mbl. barst í gær,
segir svo orðrétt:
„I dag hinn 10. apríl 1978 var af
ákæruvaldsins hálfu höfðað opin-
bert mál fyrir sakadómi Reykja-
víkur á hendur Oskari Kristmanni
Hallgrímssyni og Jóni Hallssyni,
fyrrverandi bankastjórum Al-
þýðubankans h.f. svo og Gísla
Jónssyni, fyrrverandi skrifstofu-
stjóra sama banka, fyrir brot gegn
almennum hegningarlögum nr. 19,
1940.
1 fyrsta lagi er hinum fyrrver-
andi bankastjórum gefið að sök að
hafa á árunum 1974 og 1975 hagað
Ráðherra
bandaríska
flughersins
kemur hing-
að til lands
RÁÐHERRA bandaríska flug-
hersins, John C. Stetson, kemur
hingað til lands á föstudaginn og
hefur hér sólarhringsviðkomu.
Hjá upplýsingaþjónustu Banda-
ríkjanna fékk Mbl. þau svör ein, að
Islandsferð ráðherrans væri að-
eins „venjuleg heimsókn tii að
kynnast af eigin raun starfsemi
varnarliðsins og til viðræðna við
embættismenn bandamanna
Bandaríkjanna."
lánveitingu, víxlakaupum, yfir-
dráttarheimildum og ábyrgðar-
skuldbindingum í nafni bankans á
þann veg að einatt vantaði stórum
á að nægar tryggingar væru settar
fyrir greiðslum með þeim afleið-
ingum að bankinn varð og verður
fyrir fjárhagstjóni svo tíigum
milljónum króna skiptir.
Framhald á bls. 30.
10 ára telpa drukknaði
í höfninni á Reyðarfírði
Reyðarfirði, 10. apríl.
SÁ SORGLEGI atburður
gerðist hér fyrir hádegi í
dag, að 10 ára telpa féll út
af haínargarðinum og
drukknaði. Kafari var feng-
inn frá Eskifirði til að leita
telpunnar í höfninni og fann
hann lík hennar um kl. 14.
Tildrög slyssins eru ó-
kunn.
Gréta
Bátur frá Bol-
ungarvík stór-
skemmdist af eldi
Bolungarvík, 10. apríl.
LAUST upp úr klukkan 10 í
morgun kom upp eldur í vélbátnum
Sæfinni frá Bolungarvík, þegar
háturinn var á veiðum. Tveir menn
voru um borð og varð mannhjörg.
Sæfinnur fór í línuróður klukkan
sjö í morgun en þegar skipverjar
höfðu lagt línuna 12 mílur út af
Deild, urðu þeir varir við eld í
vélarrúmi bátsins, sem magnaðist
mjög skjótt. Talstöðin varð óvirk og
ekki tókst þeim að ná sambandi í
gegnum neyðartalstöð, svo að þeir
skutu flugeld, sem nærstaddir bátar
urðu strax varir við, og fór vélbátur-
inn Sigrún frá Súðavík, sem næst
var Sæfinni, strax á staðinn. Þá var
eldurinn orðinn svo magnaður, að
skipverjar sáu sér ekki annað fært
en yfirgefa bátinn og fóru þeir yfir
í Sigrúnu, sem tók Sæfinn í tog.
Hafrannsóknaskipið Dröfn, sem
statt var hér í Djúpinu, kom inn til
Bolungarvíkur og tók menn úr
slökkviliðinu ásamt slökkvibúnaði og
fóru þeir á móts við bátana.
Slökkviliðinu tókst fljótlega að ráða
niðurlögum eldsins. Dröfn tók Sæ-
finn í tog og kom með hann til
Bolungarvíkur um klukkan 18. Er
hann að sjá mikið brunninn ef ekki
ónýtur. Meðal annars er öll yfirbygg-
ing að aftan brunnin.
Tveir menn voru á Sæfinni.
Skipstjóri og jafnframt eigandi
bátsins er Gunnar Þ. Ólafsson
Bolungarvík og keypti hann bátinn
hingað fyrir tæpu ári síðan. Með
honum var á bátnum Magnús
Kristjánsson. Sæfinnur er eikarbát-
ur, 21 lest að stærð, smíðaður á
Skagaströnd 1972.
—Gunnar.
Ljósmynd Árni Johnsen
Suðumes hafa enn ekki
boðað útflutningsbann
FUNDUR 10-manna neíndar
Alþýðusambands íslands
óskaði eftir því í gær að önnur
sambönd innan ASÍ flýttu
athugunum sínum á
aðgerðum. Fundurinn var
haldinn að beiðni Suðurnesja-
manna, sem enn hafa ekki
boðað til útflutningsbanns, en
óskir stjórnar Verkamanna-
í>rjú þingmannafrumvörp um kosningareglur:
Fjöldi atkvæða en ekki hlut-
fall ráði uppbótarþingsætum
sambandsins voru þær að
útflutningsbann yrði boðað
eigi síðar en 15. apríl. Ef
Suðurnesjamenn boðuðu t.d. í
dag, kæmi slík aðgerð ekki til
framkvæmda fyrr en 18.
aprfl. Er því augljóst, að
Suðurnesjamenn hafa ekki
orðið við tilmælum stjórnar
Verkamannasambandsins.
Það mun mál manna, að þetta
rýri mjög áhrif útflutnings-
bannsins, en ástæður munu
m.a. þær, að atvinnuástand á
Suðurnesjum hefur verið
verra en annars staðar á
Framhald á bls. 30.
Reykjaneskjördæmi verði skipt í tvö 5 manna kjördæmi
5% heildaratkvæða framboðsflokks tryggi rétt til uppbótarþingsætis
I gær voru lögð fram á
Alþingi þrjú þingmanna-
frumvörp, er ýmist varða
kjördæmaskipan eða niður-
stöður alþingiskosninga.
• í fyrsta lagi/ frumvarp
Ellerts B. Schram (S), Jóns
Skaftasonar (F), Guðmundar II.
Garðarssonar (S) og Ölafs G.
Einarssonar (S), þ.e. fjögurra
þingmanna Reykjavíkur- og
Reykjaneskjördæma, sem felur í
sér tvær breytingar á núgildandi
lagaákvæðum um uppbótaþing-
sætl' Frv. gerir annars vegar ráð
fyrir því að hlutfallstala við
útreikning. uppbótarsæta verði
felld brott og hins vegar að fleiri
en einn frambjóðandi hvers flokks
geti hlotið landskjör (uppbótar-
þingsæti) í sama kjördæmi. Þessi
breyting myndi ekki hafa áhrif á
þingmannatölu flokka í þingkosn-
ingum, miðað við kjörfylgi í
kosningunum 1974, heldur einung-
is á það, hvaða frambjóðendur
verða uppbótarþingmenn hvers
flokks. þe^a ákvæði hefði verið
í lögum 1974, hefðu uppbótarþing-
sæti í Reykjavík orðið 8 en voru 4,
en óbreytt í öðrum kjördæmum.
Þetta gæti að sjálfsögðu breytzt í
næstu kosningum, þar sem íbúa-
tala hefur breytzt verulega, eink-
um í Reykjaneskjördæmi.
- í öðru lagi er frumvarp Odds
Ólafssonar (S) til breytinga á
stjórnarskrá lýðveldisins. Það
gerir ráð fyrir að kjördæmum
verði fjölgað úr.8 í 9. Núverandi
Reykjaneskjördæmi verði skipt í
tvö kjördæmi:
Framhald á bls. 30.
Áburðar-
verð hækk-
ar um 32%
NÝTT verð hefur verið ákveð-
ið á áburði til bænda frá
Áburðarverksmiðjunni í Guíu-
nesi. Hækkar vcrðið um 32%
frá því verði, sem gilti í fyrra.