Morgunblaðið - 11.04.1978, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 11.04.1978, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 1978 33 smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar Vörubíll til sölu Scania 110 árg. 1974. Upplýs- ingar í síma 93-7144. Frúarkápur til sölu úr ullarefnum. Kápusaumastofan Díana, Miö- túni 78, sími 18481. Muniö sérverzlunina meö ódýran fatnaö. Verölistinn Laugarnesvegi 82, S. 31330. Keflavík Annast allar almennar bílaviö- gerðir og róttingar. Lími á bremsuboröa. Opiö frá 8—7. Opiö laugardaga. Bílaverkstaeöi Prebens, Dvergasteini, Bergi, sími 1458. Brotamálmur er fluttur aö Ármúla 28, sími 37033. Kaupi allan brotamálm langhæsta veröi. Staögreiösia. □ EDDA 59784117—2 Aukafi □ EDDA 59784117 = 2 □ Mimir 59784127 — 2 IOOF Rb. 1 E 1274118% — Sk. KFUK AD fundur í kvöld kl. 8.30 aö Amtmannsstíg 2 b. Séra Lárus Halldórsson hefur biblíulestur. Allar konur velkomnar. Fílarielfía Almenn kveöjusamkoma fyrir Garöar Ragnarsson, og trú, kl. 20.30. Kvennadeild Flugbjörgunar sveitarinnar Fundur veröur haldinn miöviku- daginn 12. apríl kl. 20.30. Spiluö veröur félagsvist. Takiö meö ykkur gesti. Stjórnin. SVD. Hraunprýöi, Hafnarfiröi heldur skemmtifund i Góö- templarahúsinu í kvöld kl. 8.30. Konur mætiö stundvíslega og takiö meö ykkur gesti. Stjórnin. Safnaöarfólk í Nessókn Félagsvist í Safnaöarheimili kirkjunnar, fimmtudaginn 13. apríl kl. 8.30 e.h. Fjölmenniö og takiö meö ykkur gesti. Kvenfélagiö. raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar Sér hæö 130 m2 hæö í þríbýlishúsi viö Sólheima til sölu. Upplýsingar í síma 31165. Til leigu Til leigu skrifstofuhúsnæöi aö Hverfisgötu 54, Reykjavík. Um er aö ræöa ca. 140—150 m2 húsnæöi, en því fylgja 4 bílastæöi. Inngangur er í húsnæöiö bæöi frá Hverfis- götu og Laugavegi. Húsnæöiö veröur leigt óinnréttaö þannig aö væntanlegur leigjandi getur ráöiö innrétt- ingum. Upplýsingar í síma 26933 og 26113 á skrifstofutíma. marlfaðurinn Austurstræti 6. EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU Athugiö — útsala í Hofi Ennþá er mikiö til af garni og hannyröavör- um. Einnig tilbúnir púöar, dúkar, diskamott- ur og ýmsar gjafavörur. Hof Ingólfsstræti 1. Til sölu dráttarvél Ford 7600 ekin 500 tíma. Upplýsingar í síma 97-1129. Vefnaöarnámskeiö Er aö byrja kvöldnámskeiö í almennum vefnaöi og myndavefnaöi. Upplýsingar í síma 34077 kl. 10—12 og 4—6. Guðrún Jónasdóttir. nauðungaruppboð Nauðungaruppboð sem augl. var í 9., 95., og 99. fbl. Lögbirtingarblaösins 1977 á fasteigninni Borgarhrauni 10, Grindavík, þinglýst eign Magnúsar Ásgeirssonar fer fram á eigninni sjálfri fimmtud. 13. april 1978 kl. 15.30. Bæjarlógetinn í Gríndavík. tilboð — útboö Útboö — fjarskiptabúnaöur Landsamband Hjálparsveitar skáta óskar eftir tilboöum í fjarskiptabúnaö á VHF-tíönissviði. Um er aö ræöa handtæki, tæki í bifreiöar og 'endurvarpsstöö. Útboðsgögn fást á skrifstofu Landsambandsins Nóatúni 21 Reykjavík. Skrifstofan er opin frá kl. 13—16 alla virka daga. Sfml 26430. Tilboöum skal skilaö á sama staö fyrir 1. maí 1978. Landsamband Hjálparsveita skáta. Aöalfundur Byggingasamvinnufélags barnakennara veröur haldinn aö Þingholtsstræti 30 mánudaginn 17. apríl n.k. kl. 20.30. Dagskrá: Samkvæmt lögum félagsins. Stjórnin. — Nokkur orð að gefnu tilefni Framhald af bls. 13 . fulltrúi þeirra á búnaðarþingi. Ég trúi því illa, að það séu margir bændur á Suðurlandi, sem treysti mér ekki til þess að vinna að þeirra hag og landbúnaðarins í heild, þó að ég sé ekki framleið- andi búvara og eigi því sjálfur ekki eins mikið í hættu og bændur, ef landbúiiaðSrinn lendir á þrenging- um. En þessi hugsunarháttur, að enginn leggi sig fram nema hann hafi sjálfur beinan hag af því, er mér svo framandi, að mér líður alltaf hálf illa, þegar ég verð hans var, sem því miður kemur alloft fyrir. Þeir sem aðhyllast hann þekkja nnilega kunnugri hinu, hvernig farið er að við að hlunn- fara náungann og auðgast á annarra kostnað. Ekki vil ég þó væna Magnús Finnbogason um slíkan verknað. Magnús Finnbogason telur sig hafa hlustað á orð, sem ég á að hafa sagt í sjónvarpsviðtali, nú um það leyti, sem búnaðarþing lauk störfum. Þarna hefur Magnús tekið mjög illa eftir eða misheyrt. Sannleikuinn er sá, að ég hef ekki gert upp hug minn hvernig takast megi að spyrna við gegn fram- leiðsluaukningu á mjolk og sauð- fjárafurðum, þannig að hljótist ekki af óbætanlegt tjón, vegna versnandi afkomu bændastéttar- innar eða vaxandi framleiðslu- kostnaðar á búvörueioingu, sem myndi orsaka það tvennt, að minnka samkeppnisaðstöðu land- búnaðarins og auka á dýrtíð í landinu. Magnús heldur að ég hafi mikinn áhuga á að kjarnfóður- gjald verði sett á hér á landi. Ég hef ekki staöið að neinum sam- þykktum þar að lútandi, nema í sambandi við uppbyggingu inn- lends fóðuriðnaðar. I því frum- varpi sem fóðuriðnaðarnefnd samdi, var gert ráð fyrir allt að 6% kjarnfóðurgjaldi, gegn veru- legu framlagi frá ríkinu sem mótframlagi til uppbyggingar innlendrar kjarnfóðurframleiðslu. Mín skoðun er óbreytt í því máli, enda var það samþykkt með öllum greiddum atkvæðum- á búnaðar- þingi 1977. Eftir þessu hefur þó ekki verið farið og er nú svo komið, að allt útlit er fyrir að grænfóður- verksmiðjurnar stöðvist nú á þessu vori vegna fjárhagsörðug- leika. Og ég spyr, er von á öðru? Myndi nokkur innlend fram- leiðslugrein geta staðist sam- keppni af slíku tagi, sem gras- kögglaiðnaðurinn hefur átt við að búa? Ég er þeirrar skoðunar að mikill meiri hluti bænda skilji þetta og vilji leggja eitthvað af mörkum til þess, að þessi grein landbúnaðarins geti þrifist áfram. Ég hef enn fremur þá skoðun, að vel komi til greina að hagkvæmt þætti að jafna kjarnfóðurverðið, þannig að framleiðsluráð land- búnaðarins hefði lagalegan rétt til þess að taka kjarnfóðurgjald undir þeim kringumstæðum þegar inn- flutt kjarnfóður er orðið ódýrara en innlend fóðurframleiðsla og markaðserfiðleikar eru verulegir eins og nú blasa við. Slík heimild var borin upp og samþykkt á nýafstöðnu búnaðarþingi, og var ég einn af 20 búnaðarþingfulltrú- um, sem greiddu þeirri tillögu atkvæði. Það sem ég tel mikilvægustu ákvarðanir búnaðarþings, og var ég í hópi þeirra þingfulltrúa, sem mótuðu þær, en allir þingfulltrúar greiddu þeim atkvæði, voru í fyrsta lagi að leiðbeiningar- þjónustan reyndi að draga úr framleiðsluaukningu á mjólk og sauðfjárafurðum, þangað til betur áraði í markaðsmálum, og í öðru lagi að skipa nefnd, sem kannaði hvaða aðgerðir væru líklegastar til að koma að bestu gagni til þess að bændastéttin þyrfti ekki að selja búsafurðir verulega undir verð- lagsgrundvallarverði, og þar með fá yfir sig stórversnandi afkomu, eins og nú horfir, ef ekkert verður að gert. Nefnd þessi á að skila áliti í júlímánuði, en þá er líklegt að öll þessi mál verði skoðuð í sambandi við nýjan stjórnarsamning að afloknum kosningum og því mikil- vægt að gaumgæfileg athugun á þessum málum hafi farið fram. Það voru þessar tillögur, sem ég var að • reyna að lýsa við frétta- menn sjónvarpsins og vona ég að flestir, sem á hlýddu geti staðfest það. Ég hef að beiðni flokksbræðra minna fallist á að verða í framboði til búnaðarþings á þessu vori, og vona ég að það hendi mig aldrei að bregðast trausti þeirra manna, sem hafa kvatt mig til þeirra vandasömu starfa, sem sennilega bíða næstu búnaðarþinga. Um leið vil ég þakka þeim Jóni á Selalæk, Lárusi á Miðhúsum og Sigmundi í Langholti, sem nú ætla að draga sig í hlé, ágæt störf á búnaðar- þingi á undanförnum þingum. Þeir þurfa ekki að kippa sér upp við það, þó að þeir séu kallaðir ellilífeyrisþegar, þó ósmekklegt og stráklegt sé. Ég held að búnaðar- þing starfi best með því að aldursdreifing sé þar nokkuð mikil og að þessu sinni hefur heyrst, að búnaðarþing yngist, verulega upp, þar sem um helmingur þingfull- trúa hefur haft við( orði að gefa ekki kost á sér. Ég treysti því, að þeir erfiðleik- ar, sem landbúnaðurinn hefur átt við að stríða í markaðs- og framleiðslumálum leysist á þann veg, að sveitirnar blómgist áfram og bændastéttin fái búið við vaxandi farsæld og menningu. Ég vona, að sú forystusveit, sem valin verður í vor, verði samhent í því að leysa vandamál land- búnaðarins og finna nýjar leiðir, sem leiði til nýrrar sóknar í framleiðslumálum landbúnaðar- ins. Hjalti Gestsson. — Vextir og verðbólga Framhald af bls. 18 augum þó að menn sláist um á hæl og hnakka enn þann dag í dag að taka lán, jafnvel með 32% vöxtum. Það virðist ekkert lát á eftirspurn eftir lánsfé þrátt fyrir vextina. Það er kominn tími til þess að menn opni augun fyrir þeirri staðreynd og viðurkenni hana, að verðbólgan ekki einasta orsakar háa vexti í þessu þjóðfélagi og marga aðra óáran í efnahagsmál- um okkar, heldur orsakar hún líka ýmsa þá siðferðisbresti, sem við eigum við að glíma, því miður. Það er ekkert raunhæft ráð til að koma vöxtum niður nema að lækka verðbólguna. Að því eiga háttv. alþingismenn og öll áhrifaöfl í þjóðfélaginu að beina kröftum sínum. Ekki með sýndarmennsku, eins og oft vill verða úr umræðum hér á Alþingi, heldur af einlægni, ábyrgð og ákveðni. Við erum sífellt að skipta meiru en tii er í því formi að smækka krónuna, rýra kaupgildi hennar. Ef við reynumst ekki menn til að stoppa þennan hættulega leik, þá mun verðbólgan vaxta okkur upp fyrir höfuð. Smávægileg vaxta- lækkun hefur hins vegar hæpin áhrif í þessa átt. Þar þurfá til að koma önnur og víðtækari ráð en fyrst og fremst almannavilji og breytt viðhorf til samfélagsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.