Morgunblaðið - 11.04.1978, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 1978______________________________________________
I-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------1
Landsliöið
lofar góðu
Sigraði pressuliðið 106:102
ÍSLENZKA landsliðið í körfuknattleik sýndi það á sunnudaginn, að það er til alls líklegt í
Norðurlandamótinu sem hefst í Reykjavík eftir hálfan mánuð, er það sigraði pressuliðið í
stórskemmtilegum leik fyrir troðfullu húsi áhorfenda vestur í Hagaskóla með 106 stigum gegn 102.
Strax í upphituninni fengu
áhorfendur að sjá forsmekkinn
af því sem koma skyldi.
Leikmenn beggja liða kepptust
þá við að sýna kúnstir sínar og
var það bráðskemmtilegt á að
horfa. Mesta athygli vöktu
Pétur Guðmundsson og Banda-
ríkjamennirnir Mark Christen-
sen og. Rick Hockenos, sem
„tróðu“ með meiri tilþrifum en
áður hefur sést hér á landi.
Svo við víkjum okkur að
leiknum, þá var hann alltaf
mjög jafn og í leikhléi hafði
landsliðið forystu, 48:45.
Pressan náði góðum kafla um
miðjan síðari hálfleikinn og
komst 8 stig yfir, en landsliðið
var ekki búið að segja sitt
síðasta orð og komst yfir 97:94
skömmu fyrir leikslok, en
pressan jafnaði 100:100. Lands-
liðið átti þó síðasta orðið og
sigraði eins og áður sagði.
106:102.
Leikur þessi var mjög vel
leikinn af beggja hálfu og
einhver skemmtilegasti körfu-
boltaleikur, sem sést hefur hér
á landi. Landsliðið sýndi að það
er á réttri leið, því að það þurfti
vissulega stórleik til þess að
sigra sterkt pressulið með þrjá
bandaríska snillinga í broddi
fylkingar. Pétur Guðmundsson
tók á sig rögg ísíðari hálfleik og
sýndi þá hvers hann er megnug-
ur. Til þess að ná betri árangri
þarf hann þó að vera miklu
jákvæðari. Erfitt er að gera upp
á milli einstakra leikmanna,
langflestir áttu góðan leik. Jón
Sigurðsson, Kristján Ágústsson,
Pétur, Símon Ólafsson og
Gunnar Þorvarðarson voru allir
góðir.
Mark Christensen, Dirk
Dunbar og Rick Hockenos léku
allir snilldarlega með pressu-
liðinu og féllu aðrir leikmenn
liðsins óneitanlega í skuggann
þótt þeir stæðu sig allir vel. Var
oft unun að horfa á þá félaga
leika listir sínar. Mark
Christensen sannaði það hversu
sterkur leikmaður hann er, en
því er ekki að neita, að minnst
hefur borið á honum í vetur af
þeim bandarísku leikmönnum,
sem hér léku. í góðu liði er hann
síst lakari heldur en hinir.
Stigin fyrir landsliðið: Pétur
Guðmundsson 25, Kristján
Ágústsson 18, Símon Ólafsson
17, Jón Sig. 15, Gunnar
Þorvarðarson 12, Þorsteinn
Bjarnason 8, Bjarni G. Sveins-
son 6, Torfi Magnússon 4 og
Kári Marísson 2.
Stigín fyrir pressuna: Dirk
Dunbar 22, Mark Christensen og
Rick Hockenos 19 hvor, Einar
Bollason 12, Jónas Jóhannesson
8, Brynjar Sigmundsson og Geir
Þorsteinsson 6 hvor, Bjarni
Jóhannesson og Ingi Stefánsson
4 hvor og Steinn Sveinsson 2.
Mjög góðir dómarar voru
Eiríkur Jóhannesson og Hilmar
Victorsson ín
Lokastaðan
ímfLkvenna
KR - ÍS 52.43
ÍR - Þór 51.46
KR - Þór 64.26
LOKASTAÐAN.
KR 6 5 1 342.253 10
ÍS 6 5 1 323.266 10
Þór 6 1 5 237.305 2
ÍR 6 1 5 282.361 2
Eítir er aukaúrslitaleikur
milli KR og ÍS.
Rick_ Hockenos fylgir á eftir skoti frá samherja sínum í
pressuleiknum á sunnudag.Torfi Magnússon. Mark Christensen
Pétur Guðniundsson og Geir Þorsteinsson fylgjast með.
Dauft yfir Reykjavíkurmótinu í lyftingum
GÚSTAFÆTLARAÐ
VERJA NM-GULLIÐ
LÍTIL REISN var yfir Reykjavikurmótinu í lyftingum í Laugardalshöllinni á sunnudag og sterkustu
lyftingamennirnir tóku ekki á öllu sínu. Ástæðan var sú. að um næstu helgi fer Norðurlandsmótið
í lyítingum fram í Kotka í Finnlandi og verða þar 5 íslenzkir lyftingamenn meðal keppenda, þeir Gústaf
Agnarsson, Már Vilhjáimsson, Birgir Þór Borgþórsson, Ágúst Kárason 'og Kári Elfasson.
Þeir Gústaf Agnarsson og Guðmundur Sigurðsson urðu Norðurlandameistarar á síðasta móti, sem
haldið var í Reykjavík og verður að reikna með að Gústaf eigi alla möguleika á að verja titil sinn
að þessu sinni. Þá ættu þeir Kári Eliasson og Már Vilhjálmsson að geta náð verðlaunum á mótinu.
Kári Elíasson, Ármanni, sá um að met væru sett á Reykjavikurmótinu á sunnudaginn, en
lyftingamenn halda helzt ekki mót án þess að setja a.m.k. eitt íslandamet. Kári setti mct í snörun
er hann lyfti 105 kflóum í 67.5 kflóa flokki og hann setti einnig met í samanlögðu, 227.5 kfló.
Gústaf Agnarsson tók enga áhættu í 110 kílóa flokki. Ilann lyfti „aðeins" 300 kflóum samtals, cn
á íslandsmótinu á dögunum lyfti hann 342.5 kflóum. Norðurlandametið í flokknum er 350.5 kfló og
hefur Gústaf gert betur en að lyfta þcirri þyngd á æfingum að undanförnu: Til marks um hve dauft
var yfir Reykjavíkurmótinu má nefna að Gústaf notaði þetta mót aðeins sem æfingu og að því loknu
hélt hann áfram æfingum í Jakabóli. aðsetri lyftingamanna f Laugardalnum.
56 KlLÓA FLOKKlIRi
75 KILOA FLOKKIJR,
Þorvaldur RognvaldsNnn. KR. 145 (65— 80) Ólafur Emilsson. Á, 220 (95—125)
60 KÍLÓA FLOKKUR.
Baldur Boncþórsson, KR, 135 (60— 75)
Lárus GuAjónsson, KR, 115 (50 —65)
67.5 KÍLÓA FLOKKUR.
Kári Elíasson, Á. 227.5 (105-122.5)
Leifur Björnsson, KR. 170 (75—95)
82.5 KÍLÓA FLOKKUR.
Már Vilhjálmsson. Á, 255 (115-140)
Hraifi Helgason, KR, 187.5 (77.5—110)
Valur Stelánsson. KR. 160 (70— 90)
90 KlLÓA FLOKKUR,
Biririr Borgþórsson. KR. 262.5 (117.5—145)
Snorri Aanarsson. KR, 235 (100—135)
100 KÍLOA FLOKKUR.
Óskar Kárason, KR, 245 (110—135)
110 KÍLÓA FLOKKUR.
Jén P. Sigmarsson. KR. 167.5 (72.5-95) Gústal Agnarsson, KR. 300 (130-170)
mmHm
Sólveig Þórhallsdóttir og Hanna Birgisdóttir berjast um knöttinn
f leik KR og ÍS á föstudaginn. Sigur KR færði liðinu aukaleik gegn
ÍS um íslandsmeistaratitilinn. (Ijósm. ÁG).
TVEIR GÓÐIR
SIGRAR FÆRÐU
KR AUKALEIK
KR TRYGGÐI sér um helgina aukaúrslitaleik um íslands
bikarinn í mfl. kvenna í kröfuknattleik með því að sigra ÍS
52i43 og Þór 64i26 og ná þar með ÍS að stigum.
KR-ÍS 52.43 (49.14).
KR byrjaði leikinn mjög vel og
komst í 6:0, en ís gekk mjög illa
að finna leið í gegnum sterka
KR-vörnina. Mikið var um
mistök í fyrri hálfleiknum og lítið
skorað og í leikhléi hafði KR yfir
19:14.
Fljótlega í síðari hálfleik tók
KR leikinn í sínar hendur og á 13.
mínútu var munurinn orðin 17
stig, 39:22. Þetta var of mikið
fyrir ÍS, þrátt fyrir að fjórar
beztu KR-stúlkurnar þyrftu að
yfirgefa völlinn með fimm villur.
Þeim tókst þó að minnka muninn
og lokatölur voru eins og áður
sagði 52:43 fyrir KR.
Sigur KR var mjög sanngjarn
og það sem gerði gæfumuninn
var sterk vörn, sem ÍS hafði
ekkert svar við, og góð hraðaupp-
hlaup. Beztan leik átti Linda
Jónsdóttir, en Björg Kristjáns-
dóttir og Emelía Sigurðardóttir
áttu einnig ágætan leik. Þá á allt
liðið hrós skilið fyrir góðan
varnarleik.
Það kann aldrei góðri lukku að
stýra, þegar lið gengur til leiks
með því hugarfari, að það sé
nánast formsatriði að ljúka
leiknum, en það gerðu
ÍS-stúlkurnar óneitanlega að
þessu sinni. Kolbrún Leifsdóttir
var langbezt hjá ÍS, en Guðný
Eiríksdóttir og Hanna Birgis-
dóttir áttu þökkalegan leik.
Stigin fyrir KR: Linda 21, Börg
10, Emelía 8, Erna og Kristjana
4 hvor, Sólveig 3 og Olga 2.
Stigin fyrir ÍS: Kolbrún 17,
Guðný 11, Hanna 7, Ragnhildur 4,
Sigurlaug og Valerður 2 hvor.
í leiknum voru dæmdar 19
villur á ÍS, en 32 á KR. KR fékk
23 vítaskot og hitti 10, en ÍS 45
og hitti 21.
KR — Þór 64.26 (31.10).
Leikur KR óg Þórs var leikur
kattarins að músinni. Yfirburðir
KR voru algerir og í fyrri
hálfleiknum mátti sjá tölur eins
og 15:0 og 23:4, en í leikhléi var
staðan 31:10. Sama var uppi á
teningnum í síðari hálfleik,
aðeins spurning hve munurinn
yrði mikill. Lokatölur urðu 64:26.
Með þessum sigri náði KR ÍS
að stigum og þurfa liðin að leika
aukaúrslitaleik um íslands-
meistaratitilinn. Þór situr hins
vegar á botninum ásamt ÍR með
2 stig.
Stigin fyrir KR: Linda 26, Emelía
13, Erna 9, Kristjana 6, Olga 4,
Björg, Salína og Sólveig 2 hver.
Stigin fyrir Þór: María 8, Ásta
6, Guðríður og Guðrún 4 hvor,
Alice og Sólveig 2 hvor. ÁG.
HELDURÞÓR
SÆTISÍNU?
ÞÓR sigraði Snæfell frá
Stykkishólmi f körfuknattleik á
laugardaginn, en liðin leika tvo
leiki um réttinn tii að leika í
Úrvalsdeildinni næsta vetur.
Það fór aldrei á milli mála hvort
liðið var betra f leiknum á
laugardag og má fullvíst telja
að Þórsarar leiki meðal þeirra
beztu í körfunni næsta vetur.
Úrslit leiksins urðu 64—46 og
ólíklegt verður að telja að Þór
glutri því forskoti niður í leik
liðanna á Akranesi næst-
komandi laugardag.
Mark Christensen var f sér-
flokki leikmanna á vellinum að
þessu sinni og skorað tæpan
helming stiga Þórs, 31 af 64.
Einar Sigfússon, fyrrum ÍR-ing-
ur var helzta skytta Uólmara að
þessu sinni og gerði 16 stig í
leiknum.
- Sig. G.