Morgunblaðið - 11.04.1978, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 1978
41
félk í
fréttum
+ Tilraunir starfsmanna dýra-
garðsins í Tel Aviv til að koma
„Shlomo", sem er 7 ára gíraffi,
á fætur mistókust. Dýrið gat
ekki risið á fætur af sjálfsdáð-
um, en hann er l'Æ tonn að
þyngd. Starfsmennirnir ákváðu
að reyna aftur daginn eftir, en
þá var það of seint, „Shlomo"
drapst um nóttina, annar gíraff-
inn í dýragarðinum á skömmum
tíma.
+ Dýraverndunarsamtök í Bret-
landi hala nú hafið herferð gegn
refaveiðum, sem vinsælar eru
meðal fyrirfólks par í landi. Anna
prinsessa er ein af peim, sem
taka pátt í pessum viöum. Og nú
hafa samtökin ákveöið að trufla
hana eins og Þau geta til að vekja
athygli hennar á málstaðnum.
Fyrir skömmu fór fram undan-
keppni par sem valið var í breska
landsliðið í hindrunarhiaupi og
var Anna einn af knöpunum, sem
Þátt tóku í keppnínni. Meðlimir
samtakanna voru mættir með
mótmælaspjöld og gerðu allt
hvað Þeir gátu til að trufla hana.
Dýraverndarmenn segjast ætla að
halda áfram aö gera henni lífið
leitt Þar til hún fæst til að ræða
við Þá um refaveiðarnar. Markmið
Þeirra er að fá . refaveiðar í
núverandi mynd bannaðar, Þar
sem Þær séu ómannúðlegar og
grimmilegar.
Með við-
komu í
Tokyo
+ Þessi mynd var tekin í Tokyo,
og á henni má sjá Caroline
Kennedy, Patriciu Lawford, Ed-
ward Kennedy og dóttur hans
Köru. Þau höfðu viðkomu í
Tokyo eftir hálfopinbera heim-
sókn til Kína. Með þeim á
myndinni er japanskur glímu-
kappi í góðum holdum.
Tilraun-
irnar mis-
tókust
SKIPULAGT hefur veriö svæði fyrir utan kauptúnið í Stykkishólmí en þarna
á að veröa um 400 manna byggð. Er þetta í Ás- og Nestúni, en þar voru
áður grasbýli tilheyrandi Stykkishólmi. Lóðir á þessu svæði hafa verið
boðnar út og er byrjað að byggja á nokkrum þeirra. Fyrirhugað er að hafa
þarna kyndistöð til upphitunar og eru húsin á svæöinu byggð meö það
1 hu9a- Ljósm. Árni Helgason.
#
'Jriumiih
I NTE RNA TlONAL
Skínandi pottar og pönnur
með Brillo stálull með sápu
LONDON
DÖMUDEILD
AUSTURSTRÆTI