Morgunblaðið - 11.04.1978, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 11.04.1978, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 1978 23 Player lék snilldarlega GARY PLAYER lék snilldarlega síðasta dag „Masters-gollkeppninn- ar“ og S-Aíríkumaðurinn tryggði sér sigur í þessari miklu keppni. Fær Player 45 þúsund dollara í sinn hlut fyrir sigurinn. Hann lék samtals á 277 höggum (72 —72 —69 — 64) á hinum 7000 metra langa golfvelli í Augusta í Georgíu, en par vallarins er 72. Þrír kylfingar komu síðan jafnir í næstu sætum, þeir Hubert Green, Tom Watson og Ron Funseth sem allir léku á 278 höggum. Bill Kratzert og Wally Armstrong léku á 280 höggum, Jack Nicklaus varð 7. á 281 höggi. Nicklaus var sérstaklega gætt tvo síðustu keppnisdagana, en hótað hafði verið tilræði gegn honum og óeinkennisklæddir lögreglumenn fylgdu honum hvert fótmál. Nicklaus hefur fimm sinnum unnið þessa mikiu keppni, en sigur Players núna var hans þriðji í „Masters" og er hann fyrsti útlendingurinn, sem vinnur keppn- ina. Sigurvegarinn í keppninni í fyrra Hubert Green, virtist lengi vel ætla að verja titil sinn, en brást bogalistin í lokin. rmginn hefur unnið Masters-golfkeppnina eins oft og Jack Niklaus, en hann varð í 7. sæti að þessu sinni. Myndin er tekin er Nicklaus slær úr sandgryfju fyrsta keppnisdaginn. Sigurður í fremstu röð SIGURÐUR Jónsson, skíða- maður frá ísafirði, varð í 4. og 5. sæti á svigmótum í Bærum, rétt utan við Ósló, um helgina. Meðal keppenda voru skíðamenn víðs vegar að úr Evrópu og auk Sigurðar 6 aðrir íslenzkir skíða- menn. Sigurður var sá eini (slendinganna, sem varð í fremstu röð, en auk hans voru þau Steinunn Sæmundsdóttir, Vals- ' stúlkur unnu Þórsara VALUR vann Þór í 1. deild kvenna á Akureyri á laugardag- inn og er Valur því enn í toppharáttunni í deildinni. Úr- slitin urðu 12>9, eftir að staðan hafði verið 7«5 í háifleik. Leikur- inn var frekar slakur í heild, cn Þórsliðið hefði þó getað veitt meiri mótspyrnu með meiri heppni. Auk þess varði Sigur- björg Pétursdóttir stórvel í marki Vals að þessu sinni. MÖRK VALSi Halldóra 5, Oddný 3, Harpa 2, Elín og Ilulda 1 hvor. MÖRK ÞÓRSi Soffía 5, Magnea 2, Sigríður Dýrfinna 1 hvor. Ásdís Alfréðsdóttir, Ása Hrönn Sæmundsdóttir, Karl Frímanns- son, Björn Olgeirsson og Gunnar Jónsson með í mótunum. ís- lenzka skíðafólkið heldur nú til Ítalíu til keppni þar. Skiptir um félag innan Svíþjóðar GUÐMUNDUR Sveinsson, hand- knattieiksmaðurinn kunni úr Fram, dvelur hér heima um þessar mundir. Guðmundur hefur leikið í Svíþjóð í vetur, og allar líkur eru á að hann muni fara utan aítur í júní og gera samning við 2. deildar iiðið Aranes, sem er i Suður-Svíþjóð, og leika með liðinu næsta vetur. Guðmundur lét vel af dvöl sinni ytra, hann lék með Malmberget í 2. deild siðasta keppnistimabil og hafnaði liðið í öðru sæti í sínum riðli á óhagstæðara markahlut- falli. Þrír íslenskir handknatt- leiksmenn, þeir Viðar Símonar- son, Hilmar Björnsson og Hörður Harðarson hafa leikið með sænsku liði i þriðju deild og gekk liði þeirra illa, urðu þeir um miðja deild. Ágúst Svavarsson mun hafa fengið tilboð frá nokkrum sænskum fyrstu deildar liðum og er hann að kanna þau og mun skýrast á næstunni hvaða lið hann Ieikur fyrir á næsta ári. — br. FYLKIR lék í gærkvöidi sinn fyrsta leik í meistaraflokki Reykjavikurmótsins í knattspyrnu. Fylkismennirnir mættu þá Val og sjást hér fyrirliðar liðanna heilsast fyrir leikinn. Valsmenn unnu leikinn örugglega 3.0. Fyrsta markið skoraði Ilálfdán Örlygsson á 35. mínútu og á 18. mfnútu seinni hálfleiks breytti Albert Guðmundsson stöðunni í 2.0 með glæsilegu marki og fimm minútum fyrir leiksiok innsiglaði Guðmundur Þorbjörnsson sigur Vals með góðu marki. Ljósm.i Mbl. RAX. Mikiðaf mörkum LEIKMENN Breiðabliks og Víkings voru á skotskónum er liðin léku í litlu bikarkeppninni og Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu um helgina. Breiðabiik vann Hauka 6.1 og Víkingar lögðu Armenninga að velli með 4 mörkum gegn engu. Fá Víkingar því aukastig fyrir þennan sigur. en sami háttur er hafður á í Reykjavíkurmótinu í ár og í fyrra, 3 mörk í leik gefa eitt stig sama hver úrslit verða. Reykjavíkurmótið hófst á laugardaginn með leik KR og Þróttar og var þar um alljafnan leik að ræða þegar á heildina er litið, en aðstæður voru erfiðar. Sigurður Indriðason skoraði fyrir KR i fyrri hálfleiknum, en í þeim síðari jafnaði Páll Ólafsson fyrir Þróttara. Bæði mörkin voru lagleg og vel að þeim staðið. Á sunnudag léku Víkingar síðan gegn Ármanni og var þar lengi vel um mjög jafnan leik að ræða. Ármenningar voru sízt lakari meðan þeir höfðu úthald. Er leið á seinni hálfleikinn var úthald þeirra greinilega þorrið og Víkingar gengu á lagið. Fyrst skoraði Jóhann Torfason, sitt fyrsta mark fyrir Víking. Viðar Elíasson frá Vestmannaeyjum fylgdi í fótspor hans og jók muninn í 2:0. Húsvíkingurinn Helgi Helgason tryggði síðan aukastigið með 3:0 og Arnór Guðjohnsen, sá ungi og sérlega efnilegi leikmaður, rak smiðs- höggið á verkið með síðasta marki leiksins, 4:0. Helmingur marka Víkings var góður, en markvörður hefði átt að ráða við tvö skotanna, sem gáfu mörk. Sömuleiðis var leikur Breiða- bliks og Hauka lengi vel í jafnvægi í Litlu bikarkeppninni. Hinrik Þórhallsson skoraði fyrir Blikana í fyrri hálfleik og Haukarnir kvittuðu fljótlega. Um miðjan seinni hálfleikinn fór skriðan af stað. Ólafur Friðriksson, Þór Hreiðarsson (víti), Vignir Baldursson, Valdi- mar Valdimarsson og Einar Þórhallsson (víti) skoruðu fyrir UBK áður en yfir lauk. Sex leikmenn, sex mörk. Á Akranesi léku heimamenn við ÍBK og þar varð jafntefli 0:0, en leikurinn fór fram við mjög erfiðar aðstæður, rok og kalsa- veður. í leik b-liðanna unnu Keflvíkingar 2:0. Þær tölur urðu einnig uppi á teningnum í leik b-liða UBK og Hauka, Gunnar Steinn Pálsson og Guðmundur Þórðarson, þær gömlu kempur, skoruðu fyrir UBK í leiknum. Unglingalandsliðið lék um helgina æfingaleik við FH og úrslitin urðu 4:4, en unglingarn- ir höfðu yfir 4:2 um miðjan seinni hálfleikinn. Valur átti að leika gegn ÍBV í meistarakeppn- inni á laugardaginn, en vegna veðurs varð að fresta leiknum. -áij Þór tapaði og þarf að leika 2 leiki við Leikni KA VANN Þór í 2. deildinni í handknattleik á Akureyri á föstudagskvöldið með 20 mörkum gegn 19. Þessi úrslit þýða að Þór verður að leika gegn Leikni um það hvort liðanna mætir Breiðablik í keppni um lausa sætið í 2. deild næsta keppnistímabil. Leikurinn á föstudaginn var jafn allan tímann og kom á óvart að Þór skyldi ekki vinna auðveldan sigur því KA-menn stilltu upp hálfgerðu b-liði. Þór hafði yfir í leikhléi, 10:8, en KA hafði jafnað eftir nokkrar mínútur af seinni hálfleik og jafnt var á öllum tölum fram undir lok leiksins. Á síðustu mínútunni tókst leikmönnum KA að skora síðasta markið og tryggja sér sigur. Beztur í liði KA að þessu sinni var Friðjón Jónsson, ungur og bráðefnilegur leikmaður, sonur Jóns Stefánssonar fyrrum knatt- spyrnukappa. Af Þórsmönnum átti Sigtryggur Guðlaugsson beztan leik. Mörk KAi Friðjón 5, Jón Hauks- son 5 (2v), Alfreð 3, Hermann, Þórleifur og Jóhann 2 hver, Páll 1. Mörk Þórsi Sigtryggur 6 (2v), Einar 4, Jón og Árni 3 hvor, Gunnar 2, Valur 1. —Sigb. G. Eftir bókinni \ í blakbikarnum UM HELGINA var leikíð í undanúr- Slitum í bikarkeppninni { blaki og urðu par engin óvænt úrslit. Stúdentar unnu Laugdæli 3—1 (15-6,3-15,15-7 og 15-2) og Þróttur vann UMSE einnig 3—1 (15-11, 10-15, 15-2 og 15-4). Pað verða pví ÍS og Þróttur sem berjast tH úrslita um bikarinn á laugardagínn kem- ur. Laugdselír hófu leikinn gegn stúdentum af miklum kratti og komust í 5—1 í byrjun fyrstu hrinu en pá var sem dofnaði yfir peim og stúdentar náðu sér á strik og unnu hrinuna auöveldlega 15—6. í 2. hrinu áttu stúdentar aldrei mögu- leika og enda gekk spil peirra engan veginn upp og máttu peir pola par sitt mesta tap i vetur 15—3. i 3. hrinu mættu stúdentar ákveönir til leiks og komust í 14—3 en pá náðu Laugdælir aðeins að rétta hlut sinn og lauk hrinunni með 15—7. Í 4. hrinunni var um algjöra einstefnu að ræða af hálfu stú- denta og unnu peir hrinuna 15—2. Bestur stúdenta i pessum leik var Indriði Arnórsson eins og svo oft áður en annars átti liðið í heiíd góðan leik ef 2. hrinan er undan- skilin par sem allir gerðu sig seka um villur jafnframt pví sem Laug- dælir sýndu snilldartakta. i liði Laugdæla stóö enginn einn uppúr nema pá helst Haraldur Geir. Leikur Þróttar og UMSE var litið spennandi og vann Þróttur nokkuð öruggan sigur. Það var aðeins í tveimur fyrstu hrinunum sem Eyfirðingar náðu að veita einhverja mótstöðu og unnu Þeir 2. hrinuna 15—10 eftir að peir höfðu komist i 9—1 í byrjun. Eftirleikurinn var Þrótturum auðveldur og unnu peir tvær siðustu hrinurnar meö yfir- burðum, 15—2 og 15—4. ke/ps I_____________

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.