Morgunblaðið - 11.04.1978, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 1978
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. APRIL 1978
25
YFIRBURÐIR
Á ÖLLUM SVIÐUM
ÍR-INGAR HÖFÐU óvænta yfirburði gegn KR í 1. deildinni á laugardaginn og 10 marka sigur liðsins, 29il9, var fyllilega í samræmi við
gang leiksins og getu iiðanna að þessu sinni. KR-ingar áttu ekkert svar við góðum varnarleik og snilldarmarkvörzlu ÍR-inga í fyrri hálfleiknum
og þá iagði ÍR-liðið grunninn að þessum mikla sigri. Staðan í leikhléi var 14i6 fyrir ÍR, en í fyrri hlutanum fengu KR-ingar 23 upphlaup,
sem gáfu þeim aðeins 6 mörk. Segir það sína sögu um frammistöðu liðsins að þessu sinni.
Fyrst KR-ingum tókst ekki að
ná stigi gegn IR bendir allt til að
KR verði að leika við annaðhvort
Þór eða Leikni um sæti í 1.
deildinni næsta vetur. Að KR verði
í næst neðsta sæti 1. deildarinnar,
en það verði hlutskipti Armanns-
liðsins að falla beint niður í 2.
deild aftur.
Það var frískt IR-lið, sem hljóp
inn á völlinn til leiksins við KR og
leikmenn greinilega ákveðnir í að
sýna hvað í þeim byggi og góðan
sigur í leiknum. Eftir góðan fyrri
hluta íslandsmótsins hafði sigið á
ógæfuhliðina hjá IR og liðið var í
raun komið í fallhættu. I leiknum
á laugardaginn sýndu leikmenn
liðsins að þar áttu þeir aldrei
heima og KR átti aldrei möguleika
í leiknum. Sérstaklega var
athyglisvert að sjá hvernig IR
spilaði vörnina. Björn og Haukur
fundu sjaldan smugur fyrir undir-
skot sín, leikmenn IR voru alltaf
á undan til að síga skrefið til
vinstri og loka smugunni. Stóru
mennirnir, Símon og Þorvarður,
fengu ekki mikil tækifæri, komið
var út á móti þeim um leið og þeir
gerðust líklegir til að reyna
markskot.
I fyrri hálfleiknum var gert út
um þennan leik og seinni hálfleik-
urinn því aðeins leiðinlegt forms-
atriði í rauninni. ÍR-ingar héldu
sínum hlut og rúmlega það, þeir
hefðu í rauninni getað unnið
stærri sigur ef þeir hefðu viljað.
KR-liðið reyndi á tímabili í seinni
hálfleiknum að taka tvo menn úr
umferð, en það gaf ekki góða raun
og leystist leikurinn í rauninni
upp.
I liði IR voru þeir sterkastir að
þessu sinni Jens markvörður
Einarsson, sem áttu stórleik
framan af og varði 17 skot í
leiknum. Bjarni Bessason var í
hlutverki langskyttunnar að þessu
sinni og skoraði grimmt, en vörn
KR-inga og markvarzla var í
lágmarki. Vilhjálmur Sigurgeirs-
son átti einn sinn bezta leik í vetur
og Sigurður Svavarsson var
KR-ingum erfiður á línunni enda
IR-KR 29:19
maðurinn í öðrum þyngdarflokki.
Það er varla hægt að hrósa
nokkrum leikmanna KR fyrir
þennan leik, lið þeirra var gjör-
breytt frá leiknum við FH á
dögunum er „geirfuglarnir" unnu
góðan sigur, en lið KR hefur fengið
þetta nafn að undanförnu, en
þjálfari liðsins er Geir Hallsteins-
son. Lið KR brotnaði niður í fyrri
hálfleiknum, þá gekk allt upp hjá
liði ÍR, en ekkert hjá KR-ingum og
fór það mjög í skap þeirra. Var svo
komið á tímabili í seinni hálfleikn-
um að leikmenn rifust mikið
innbyrðis og kann það ekki góðri
lukku að stýra.
f stuttu málii
íslandsmótið 1. deild, Laugardals-
höll 7. apríl:
ÍR - KR 29:19 (14:6)
Mörk ÍRi Bjarni Bessason 8,
Vilhjálmur Sigurgeirsson 7 (3v),
Sigurður Svavarsson 3, Brynjólfur
Björn Blöndal reynir markskot gegn óárennilegum varnarvegg Þróttara í sigurleik HK að Varmá á
laugardaginn. (Ijósm. Friðþjófur.)
MIKIL STEMNING
ÞEGAR HK TRYGGÐI
SÉR AUKALEIKINA
HK sigraði Þrótt 18—16 í síðari leik liðanna um rétt til að leika við næstneðsta lið 1.
deildar í handknattleik um sæti meðal þeirra beztu næsta vetur. Leikurinn fór fram að
Varmá í Mosfellssveit á laugardag. Þróttur hefur þar með misst af lestinni og leikur áfram
i 2. deild næsta keppnistimabil.
Þróttur náði strax forystu i
leiknum og eftir 12 mínútna leik
var staðan 5—2 þeim í hag, en
HK-menn sóttu ótruðir á brattann
og tókst að jafna og ná eins marks
forystu, staðan í ieikhléi var 9—8
HK í hag. Síðari hálfleikur var vel
leikinn af hálfu beggja liða, var
mikill hraði í leiknum, hart barist
og spennan mikil.
Var jafnt á öllum tölum þar til
átta mínútur voru til leiksloka að
HK tókst að ná tveggja marka
forystu, 17—15.
Þróttarar fengu ágætis tækifæri
til að jafna leikinn en mjög góð
markavarsla Einars Þorvarðar-
sonar kom í veg fyrir það, þá var
vörn HK mjög vel spiluð og góð
samvinna milli manna þar sem
allir börðust til leiksloka. Þróttar-
liðið lék þennan leik skínandi vel
en vantaði meiri baráttu á loka-
kaflanum í báðum leikjum lið-
anna, þá hefðu þeir Konráð
Jónsson og Sigurður Sveinsson
gjarnan mátt reyna meira af
langskotum að mati undirritaðs.
Besti maður Þróttar í þessum leik
var Sveinlaugur sem var sívinn-
andi og útsjónarsamur í að finna
marktækifæri og skora.
HK-liðið er svo sannarlega vel
að því komið að fá aukaleik um
rétt til að leika í 1. deild, liðið
hefur æft mjög vel að undanförnu
og uppsker eins og það sáir, verður
svo sannarlega gaman að sjá
hvernig þeim vegnar í þeim
leikjum. Bestu menn HK í þessum
leik voru golfleikarinn góðkunni
Ragnar Ólafsson og markvörður
liðsins Einar Þorvarðarson. Ann-
ars er hægt að hrósa öllum
leikmönnum liðsins fyrir baráttu-
vilja og dugnað og þá sérstaklega
í vörninni. Þá virðist liðsandinn
vera mjög iákvæður.
MÖRK ÞROTTARi Sveinlaugur 6,
Konráð 5, Sigurður 3, Gunnar 1,
Halldór H. 1.
MÖRK HKi Ragnar 5, Hilmar 3,
Stefán 4, Björn 3, Kristinn 2, Jón
1. - ÞR.
Markússon 3, Jóhann Ingi Gunn-
arsson 3, Ársæll Hafsteinsson 2,
Ásgeir Elíasson 1, Guðmundur
Þórðarson 1, Sigurður Gíslason 1.
Mörk KRi Björn Pétursson 6
(2v), Haukur Ottesen 3, Jóhannes
Stefánsson 3, Ingi Steinn Björg-
vinsson 3, Símon Unndórsson 2,
Sigurður Páll Óskarsson 1, Þor-
varður Höskuldsson 1.
Misheppnuð vítakösti Jens
varði vítaskot frá Hauki Ottesen
og Örn Guðmundsson varði víta-
kast frá Ólafi Tómassyni, sem
reyndar hafði skorað úr fyrstu
tilraun sinni, en þá var því miður
enginn í markinu. Ólafur var eini
útileikmaður IR, sem ekki skoraði
í leiknum.
Brottvísanir af leikvellii
Sigurður Svavarsson ÍR, og
Þorvarður Guðmundsson KR, í 2
mínútu hvor.
Dómarari Björn Kristjánsson og
Grétar Vilmundarson dæmdu leik-
inn og sýndu þessu verkefni
hæfilega mikinn áhuga. ~ áij
-''í | /
Stefán Gunnarsson fær óblíðar móttökur í leik Vals gegn Ármanni
á sunnudagskvöldið. en Stefán er vanur slíku og skoraði mark
skömmu eftir að þessi mynd var tekin.
En Ármenningar geta huggað
sig við það, að þeir eru með ungt
lið og mjög efnilegt. Þessi vetur
hefur verið lærdómsríkur fyrir
hina ungu leikmenn, þeir hafa
öðlast dýrmæta reynslu og eiga
eftir að sækja ótrauðir áfram því
enginn verður óbarinn biskup.
Það var ekki fyrr en á 15.
mínútu fyrri hálfleiks að Vals-
mönnum tókst að ná forystunni í
leiknum, 7—6, á þessum tíma
hafði Jón Karlsson verið í miklum
ham og hafði hann skorað 5 af 7
mörkum Vals. Sigri Vals varð ekki
ógnað eftir þetta og þeir héldu
öruggri forystu út leikinn, staðan
í leikhléi var 13—10. Ármenningar
tóku að vísu smá sprett í síðari
hálfleik og tókst að minnka
muninn niður í eitt mark, en síðan
ekki söguna meir, það vantaði ró
og kjölfestu í leik þeirra, og ungu
mönnunum hætti til að misnota
góð marktækifæri og sendingar
voru ónákvæmar.
Valsmenn sigu hægt og bítandi
fram úr og 4 marka sigur þeirra
var síst of stór. Valsmenn eiga nú
mikla möguleika á að verja titil
sinn, takist þeim að sigra í þeim
tveimur leikjum sem liðið á eftir.
Lið Vals hefur sótt sig mjög eftir
Valur — Ár-
mann 26:22
því sem liðið hefur á mótið og lék
á köflum vel á móti Ármanni.
I liðinu eru mjög reyndir leik-
menn og reynslan verður væntan-
lega þung á metunum nú í
lokaleikjum liðsins. Þá er í liðinu
góð blanda af línumönnum og
skyttum, og vörn liðsins með þá
Stefán Gunnarsson, Steindór
Gunnarsson og Gísla Blöndal sem
bestu menn var sterk í þessum
leik. Sóknarleikurinn mætti þó
vera hraðari og beittari. Þá
bregður fyrir góðum leikfléttum á
milli og rússablokkeringar liðsins
heppnuðust vel í þessum leik.
Bestu menn Vals í þessum leik
voru Jón Karlsson og Gísli Blöndal
sem voru mjög ógnandi og skoruðu
falleg mörk. Þá kom Steindór
Gunnarsson vel frá Ieiknum,
sterkur línumaður með gott grip
auk þess sem hann er sterkur
varnarmaður.
Hjá Ármanni bar Jón V. Sig-
urðsson af og sýndi alloft í
FRAM FORÐAÐI SÉR
FRÁ FALLIOG OPNAÐI
1. DEILDINA AÐ NÝJU
LEIKUR Víkings og Fram var með mest spennandi leikjum 1. deildarinnar í handknattleik í vetur. Framarar höfðu
lengst af yfirhöndina, allt að 5 mörkum, en undir lokin komust Víkingar tveimur mörkum yfir, 19.17. Svo fóru þó leikar
að liðin skildu jöfn, 21.21 og þegar allt komur til alls var jafntefli e.t.v. bezt við hæfi í þessum einkennilega leik.
OLLVON UTIHJA
ÁRMENNINGUM
ÖLL VON er nú úti hjá Ármanni. Með tapi sínu á móti Val í 1. deild karla í handknattleik
á sunnudagskvöld í Laugardalshöll, 22—26, er liðið fallið niður í 2. deild. Ármannsliðið
hefur orðið fyrir ýmsum skakkaföllum í vetur, meiðsli hafa hrjáð leikmenn liðsins og oft
hefur vantað 3 til 4 fasta leikmenn.
Flestir höfðu spáð Víkingum sigri
í þessum leik og í rauninni var annað
ekki eðlilegt þegar hafður var í huga
síbatnandi leikur liðsins að undan-
förnu og góður sigur á Fram í fyrri
umferðinni. Leikir Víkings og Fram
hafa þó undanfarin ár yfirleitt alltaf
verið mjög spennandi og það liðið,
sem talið hefur verið minni máttar,
vaxið að getu í leikjum þessara liða.
Þetta var tilfellið með Fram í
leiknum á sunnudaginn og fyrri
hálfleikinn spilaði liðið sérlega vel.
Er leið á leikinn fundu Víkingar
ráð til að stöðva sóknaraðgerðir
Framara og gangur leiksins snerist.
Mikil spenna var í leiknum síðasta
stundarfjórðunginn og það var ekki
fyrr en 11 mínútur voru eftir af
leiknum að Víkingum tókst að jafan
í fyrsta skipti í leiknum. Þá komst
Magnús Guðmundsson inn í send-
ingu Framara, brunaði upp og
skoraði upp á sitt eindæmi. Framar-
ar komust aftur yfir, en mörk Árna,
Páls og Björgvins komu Víkingslið-
inu 2 mörk yfir og sigur á elleftu
stundu virtist blasa við liðinu.
Framarar voru ekki á því að gefast
upp og náðu að jafna 19:19, þar voru
að verki Arnar og Gústaf.
Nú voru 5 mínútur eftir af leiknum
og Viggó kom Víkingunum yfir á
nýjan leik. Er 4 mínútur voru eftir
var Þorbergi vikið af leikvelli fyrir
litlar sakir og enn náðu Framarar að
jafna, Arnar úr vítakasti. Allt var á
suðupunkti í Laugardalshöllinni,
jafnt inni á vellinum sem utan hans.
Árni Indriðason skoraði úr vítakasti
fyrir Víking er hálf mínúta var eftir.
Víkingar voru einu marki yfir og
sigur blasti við þeim. Framarar voru
þó ekki sáttir við það og er nokkrar
dekúndur voru eftir skoraði Gústaf
Björnsson jöfnunarmark Fram úr
vítakasti, 21:21.
Jafnteflið var því staðreynd og
staðan í 1. deildinni breyttist
verulega við þessi úrslit. Framarar
eru endanlega sloppnir úr fall-
hættu, en á toppinum hefur staðan
opnast upp á gátt. Víkingur á eftir
tvo leiki, á móti Val og ÍR, og til að
tryggja sér meistaratitil þarf liðað
að fá þrjú stig úr þessum leikjum.
Fari svo að Víkingur vinni ÍR, en
tapi fyrir Val á sama tíma, sem
Haukarnir vinna báða sína leiki,
þarf að fara fram aukakeppni á
milli þessara liða. Yrði þeirri
keppni varla lokið fyrr en um
miðjan maí, en margt er ólíklegra
en að þetta verði niðurstaðan í
íslandsmótinu.
I leik Fram og Víkings byrjaði Atli
Hilmarsson stórkostlega vel og þessi
unglingalandsliðsmaður Fram skor-
aði 5 af 7 fyrstu mörkum Fram í
leiknum, mörg markanna á skemmti-
Víkingur —
Fram 21:21
legan hátt og í upphafi þessa leiks
sýndi hann á sér hliðar, sem hann
hefur ekki flíkað fyrr í leikjum
vetrarins. Er Víkingar fundu ráð til
að stöðva hann tóku aðrir við og var
Gústaf Björnsson, sá skemmtilegi
leikmaður, heilinn í sóknarleik
Framliðsins. Arnar Guðlaugsson
gerði 9 mörk og var drjúgur. Guðjón
Erlendsson varði mjög vel allan
leikinn og fyrir framan sig hafði
hann fram í seinni hálfleik mjög
góða vörn.
Árni Indriðason var bezti leikmað-
ur Víkinga í leiknum, sá eini þeirra,
sem alltaf heldur haus. Magnús
Guðmundsson lék nú sinn bezta leik
í vetur og þá stóðu Þorbergur og Páll
sig allvel. Menn eins og Viggó og
Björgvin geta báðir betur en þeir
sýndu að þessu sinni og þá einnig
Kristján Sigmundsson, sem engan
veginn hefur náð sér eftir botnlanga-
uppskurð fyrir nokkru. Eggert Guð-
mundsson kom fljótlega í Víkings-
markið og varði mun betúr en
Kristján. Víkingar komu alltof
rólegir til þessa leiks. Hefðu þeir
byrjað leikinn eins og þeir léku
seinni hálfleikinn hefði ekki þurft að
spyrja frekar að úrslitum.
Dómarari Bræðurnir Guðmundur
og Þórður Óskarssynir dæmdu leik-
inn — eða áttu að gera það. í sem
fæstum orðu m sagt þá voru þeir
engan veginn verkefninu vaxnir og
hlýtur það að vera ábyrgðarhluti að
setja svo reynslulitla dómara á leik
sem þennan, sem fyrirfram var vitað
að yrði baráttuleikur frá upphafi til
enda.
í stuttu máiii
Islandsmótið 1. deildi
Laugardalshöll 9. janúar
Fram — Víkingur 21:21 (13:9)
Mörk Frami Arnar Guðlaugsson 9
(6v), Atli Hilmarsson 5, Gústaf
Björnsson 5 (lv), Jens Jensson 1,
Ragnar Hilmarsson 1.
Mörk Víkingsi Árni Indriðason 7
(4v), Páll Björgvinsson 5 (lv), Viggó
Sigurðsson 3, Þorbergur Aðalsteins-
son 2, Björgvin Björgvinsson 1,
Magnús Guðmundsson 1, Erlendur
Hermannsson 1, Skarphéðinn
Óskarseon 1.
Brottvísanir af leikvellii Árni
Indriðason í 4 mínútur, Jón G.
Sigurðsson, Magnús Guðmundsson,
Þorbergur Aðalsteinsson, Ragnar
Hilmarsson og Pétur Jóhannsson í 2
mínútur hver.
Misheppnuð vítaskoti Guðjón Er-
lendsson varði frá Páli Björgvinssyni
í fyrri hálfleik. -áij
leiknum mjög lagleg gegnumbrot,
hann hefur lag á því að hanga í
ioftinu og koma markverðinum úr
jafnvægi áður en hann skýtur á
markið. Þá er Friðrik Jóhannsson
efnilegur spilari og góður skot-
maður. Þráinn Ásmúndsson sýndi
og góða takta á línunni, en í heild
vantar Ármenninga meiri leik-
reynslu.
í stuttu máli. íslandsmótið 1.
deild. Laugardalshöll 9. apríl:
Valur — Ármann 26:22 (13:10).
Mörk Valsi Jón Karlsson 9 (lv),
Gísli Blöndal 8, Steindór Gunnars-
son 3, Þorbjörn Guðmundsson 3,
Stefán Gunnarsson 1, Bjarni
Guðmundsson 1, Jón Pétur Jóns-
son 1.
Mörk Ármannsi Jón V. Sigurðs-
son 6, Björn Jóhannsson 8 (5v),
Þráinn Ásmundsson 3, Friðrik
Jóhannsson 4, Óskar Ásmundsson
1.
Brottvísanir af leikvellii Frið-
rik Jóhannsson, Ármanni, 2 mín.
Misnotuð vítakösti Björn
Jóhannsson steig á línu á 12. mín.
Dómarari Gunnlaugur Hjálm-
arsson og Björn Kristjánsson og
dæmdu þeir leikinn mjög vel og
voru sérlega ákveðnir í dómum
sínum. — þr.
Arnari Guðlaugssyni er vikið af leikvelli í lok leiks Vfkings og Fram af dómurunum Þórði og Guðmundi óskarssonum. Vítakast er dæmt á Fram
og Árni Indriðason gengur að vítapunktinum, aðrir á myndinni Björgvin, Þorbergur og Gústaf. (Ijósm. Friðþjófur).
Þrjú lið í auka-
keppni á botninum
í 1. deild kvenna
AUKAKEPPNI part að fara fram milli
priggja neðslu liðanna « 1. deíld
kvenna í handknattleik um hvert
liðanna fellur niður í 2. deild, hvert
peirra leikur aukaleiki við ÍBK um
sæti ( 1. deildinni og hvert pessara
priggja liöa heldur sæti sínu meðal
peirra sterkustu á næsta vetri. Liöin
sem standa í pessari baráttu eru
Víkingur, Ármann og Haukar. Á
laugardaginn vann KR tveggja
marka sigur, 12:10, á Víkingi og með
Þessum sigri firrti KR-liðið sig
frekari vandræðum.
Eíginlega má segja að pessi
leikur hafi verið uppgjör á milli
Þeirra Páturs Bjarnasonar, Þjálfara
KR-liðsins, og Guðrúnar Helgadótt-
ur, eiginkonu hans, en hún er einn
traustasti teikmaður Víkingsliðsins.
Svo fóru leikar að KR hafði betur,
en leikurinn var mjög jafn allan
tímann, staöan í leikhlái t.d. 8:8, en
síðari hálfleikinn vann KR með
peirri fátæklegu markatölu 4:2.
Jafntefli heföi dugaö báðum liðun-
um og ekki munaði miklu að svo
færi. Þegar hálf mínúta var eftir af
leiknum var staðan 11:10 og Vík-
ingsliöiö fékk Þá aukakast fyrir
framan miðja vörn KR. Aukaköstin
höfðu einmitt reynst Víkingum vel í
leiknum og Ingunn skorað 5 mörk
eftír slíkar uppstillingar. En að
Þessu sinni var úthaldiö á protum
og ekkert varð úr. Lið KR sneri vörn
í sókn og skoraði síðasta markið i
leiknum.
Beztar í liöi KR voru Karólína,
sem staðið hefur sig mjög vel í lok
mótsins, en Hansína og Hjördís
stóðu einnig vel fyrir sínu að vanda.
Af Víkingum voru Þær Stella og
Ingunn beztar, en Guðrún Sigurrós
og Ástrós einnig traustar í vörninni.
Mörk KR: Karóh'na 5, Hansína 3,
Hjördís 3, Jónína 1.
Mörk Víkings: Ingunn 5, Stella 4,
Sigurrós 1.
-áij
ÍR: Jens Einarsson 3, Ásgeir Elíasson 2,
Ólafur ' Tómasson 1, Guðmundur
Þórðarson2, Bjarni Bessason 3, Jóhann
Ingi Gunnarsson 3, Ársæll Hafsteinsson
2, Vilhjálmur Sigurgeirsson 3, Sigurður
Gíslason 3, Ingimundur Guðmundsson
1, Brynjóinir Markússon 2, Sigurður
Svavarsson 3.
KR: Emil Karlsson 1, Haukur Ottesen 2,
Símon Unndórsson 2, Kristinn Ingason
1, Ingi Steinn Björgvinsson 2, Sigurður
Páll Óskarsson 1, Þorvaröur Guð-
mundsson 1, Ólafur Lárusson 1, Björn
Pétursson 2, Þorvarður Höskuldsson 2,
Jóhannes Stefánsson 2, Jóhannes
Stefánsson 2, Örn Guðmundsson 1.
PRAM: Guðjón Erlendsson 3, Birgir
Jóhannsson 2, Jens Jensson 2, Gústaf
Björnsson 3, Sigurbergur Sigsteinsson
3, Pétur Jóhannsson 2, Arnar Guðlaugs-
son 3, Atli Hilmarsson 3, Jóhannes
Helgason 1, Ragnar Hilmarsson 2.
VÍKINGUR: Eggert Guðmundsson 2,
Kristján Sigmundsson 1, Jón G.
Sígurðsson 1, Skarphéðinn Óskarsson
2, Páll Björgvinsson 3, Erlendur Her-
mannsson 2, Arni Indriðason 3, Þor-
bergur Aðalsteinsson 3, Viggó Sigurðs-
son 2, Björgvin Björgvinsson 2, Sigurð-
ur Gunnarsson 2, Magnús Guðmunds-
son 3.
VALUR: Brynjar Kvaran 2, Steindór
Gunnarsson 3, Stefán Gunnarsson 2,
Karl Jónsson 1, Bjarni Guðmundsson 2,
Bjöm Björnsson 2, Þorbjörn Jensson 1,
Þorbjörn Guðmundsson 1, Gísli Blöndal
3, Jón Kartsson 3, Jón P. Jónsson 2, Jón
Ólafsson 1.
ÁRMANN: Ragnar Gunnarsson 2, Friðrik
Jóhannsson 3, Þráinn Asmundsson 3,
Björn Jóhannsson 2, Einar Þórhallsson
1, Einar Eiriksson 1, Grétar Árnason 1,
Jón V. Sigurðsson 3, Heimir Áskelsson
1, Óskar Asmundsson 2, Vilberg Sig-
tryggsson 1.