Morgunblaðið - 17.05.1978, Side 22
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 1978
— Steinunn
Framhald af bls. 3.
taka þaö sem ákveðið verkefni til að
vinna að þeim málefnum, sem ég
styð.
Stefnuskrá Samtakanna er nú
einu sinni stefnuskrá, sem ég vann
að og ég mætti þá hafa ölvazt meira
en lítið, ef hún er ekki mín að
einhverju leyti ennþá,“ sagði Stein-
unn Finnbogadóttir.
— 50 blakkir
Framhald af bls. 1.
í stríðinu sem hefur staðið í fimm
ár.
Samkvæmt óstaðfestum fréttum
urðu átökin á ættflokkasvæði,
Gutu, um 180 km suður af
Salisbury.
I maí í fyrra munu 35 óbreyttir
borgarar hafa beðið bana þegar
þeir lentu í skothríð öryggissveita
og skæruliða í Suðaust-
ur^Rhódesíu.
I tilkynningu herstjórnarinnar
sagði að skæruliðar hefðu mvrt
einn hvítan óbreyttan borgara og
13 svarta og öryggissveitir hefðu
fellt 13 samverkamenn skæruliða.
Þar með var tilkynnt að alls hefðu
88 fallið og það er mesta mannfall
sem herstjórnin hefur skýrt frá í
einni tilkynningu. Það sem af er
árinu hafa 1.553 fallið, þar af 38
hvítir og 448 svartir óbreyttir
borgarar.
— Orlov
storkað
Framhald af bls. 1.
ava eiga.yfir höfði sér sjö ára
vinnubúðavist og að auki fimm ára
útlegð innanlands vegna ákæru
um andsovézka áróðursstarfsemi.
Gamsakhurdia og Kostava munu
hafa játað að sögn Tass, en Orlov
hefur neitað að játa og heldur uppi
vörnum.
Tass sagði að ættingjum
Gamsakhurdia og Kostava hefði
fundizt áhugi Sakharovs
„óskemmtilegur" þar sem hann
hefði átt upptökin að þeirri
starfsemi sem leiddi til réttar-
haldanna. Sakharov sagði sjálfur
að hann hefði reynt að fara
flugleiðis til Tbilisi í gær en misst
af flugvélinni.
„Þetta er sjónarspil og hring-
leikahús", sagði frú Orlov í réttar-
höldunum gegn manni hennar.
„Þetta er eekkert skemmtilegt því
að aðalatriðið er að Yuri hefur
verið sviptur rétti sínum til að
verja sig almennilega."
Orlov sagði að það væri ekki
saknæmt að afhenda fréttaritur-
um skjöl.
Fyrir tveimur árum stofnaði
Orlov andófssamtök með aðsetri í
Moskvu til þess að fylgjast með því
hvernig sovézk stjórnvöld stæðu
við Helsinki-sáttmálann frá 1975.
Sovézka öryggislögreglan handtók
Orlov 10. febrúar 1977, skömmu
eftir að Jimmy Carter forseti hóf
baráttu sína fyrir mannréttindum
og bandaríska utanríkisráðuneytið
mótmælti handtökinni opinber-
lega. Orlov var 15 mánuði í
einangrun í Lefortovo-fangelsi í
Moskvu þangað til hann var
leiddur fyrir rétt.
Réttarhöld hafa enn ekki farið
fram í málum andófsmannanna
Anatoly Shcharansky og Alexand-
er Ginzburgs og um tólf annarra
félaga Hesinkinefnda víðs vegar í
Sovétríkjunum.
Þegar réttarhöldin gegn Orlov
hófust í gær hélt Orlov rúmlega
eins og hálfs klukkutíma ræðu og
neitaði þeirri ásökun sækjanda að
hann hefði sent rógsrit til Vestur-
landa og þegið fé fyrir. Að sögn frú
Orlovs lýsti hann því yfir að
andófsstarfsemi hans ætti rætur í
mannúðarsjónarmiðum fremur en
stjórnmálaáhuga.
Tass birti seinna óvenjulanga
frásögn af réttarhöldunum í dag,
1.000 orð, en ekki var vitað hvort
það yrði birt í sovézkum blöðum á
morgun. Þar segir að vitni hafi
afhjúpað andsovézka starfsemi
Orlovs, og hann hafi samið skjöl
með rógi um ríkið og kerfið og
dreift þeim. Tass segir að Orlov og
nefnd hans hafi samið rúmlega 80
skjöl um ástand í Sovétríkjunum
og dreift þeim til vestrænna
fréttamanna. Fréttastofan segir
að tveir sálfræðingar hafi hrakið
ásakanir Orlovs um pólitíska
misbeitingu geðsjúkrahúsa og að
aðbúnaður í geðsjúkrahúsum sé í
alla staði eðlilegur.
í grúsíu-réttarhöldunum hefur
því verið haldið fram að sakborn-
ingarnir hafi fengið „undirróðurs-
gögn“ frá Igor Belousovich starfs-
manni bandaríska sendiráðsins í
Moskvu. Talsmaður sendiráðsins
vísaði þessu á bug í dag.
— Þökkuð
áratuga
. Framhald af bls. 2
kosinn bæjarfulltrúi 1946 og hefur
átt sæti í bæjarstjórn óslitið síðan.
Hann hefur tvisvar verið forseti
bæjarstjórnar — 1962—66 og
1970-74.
Þegar dagskrá fundarins í dag
hafði verið tæmd ávarpaði Stefán
Reykjalín núverandi forseti
bæjarstjórnar, Jón G. Sólnes og
þakkaði honum langt og farsælt
starf og árnaði honum og öðrum
þeim bæjarfulltrúum, sem ekki
eiga afturkvæmt í bæjarstjórn,
allra heilla. Gísli Jónsson ávarpaði
síðan Stefán Reykjalín og færði
honum einnig þakkir og góðar
óskir bæjarfulltrúa en Stefán
hættir nú setu í bæjarstjórn eftir
22 ára samfellda þjónustu sem
aðalfulltrúi en þar áður var hann
2 ár varabæjarfulltrúi.
Um helgina heiðraði bæjar-
stjórnarflokkur sjálfstæðismanna
Jón G. Sólnes og við það tækifæri
var honum flutt ávarp það, sem
hér fer á eftir:
„Nú, þegar þú lætur af störfum
í bæjarstjórn Akureyrar eftir 32
ára samfellda setu sem aðalfull-
trúi þar, langar okkur vini þína og
samstarfsmenn til þess að færa
þér þakkir og árnaðaróskir okkar
allra.
A þessum árum hefur Akureyri
stækkað og eflzt svo mjög að
stakkaskipti má kalla. Okkur
blandast ekki hugur um, að í þeirri
þróunarsögu hefur þú átt veiga-
mikinn þátt. Áhrifa þinna mun
lengi gæta og verka þinna lengi sjá
stað. Þá hefur þú ekki átt lítinn
þátt í að glæða þann góða
samstarfsanda, sem einkennt
hefur bæjarstjórn Akureyrar um
mörg undanfarin ár.
Okkur hefur þú reynzt stórbrot-
inn foringi, ráðhollur og ratvís
leiðtogi, skemmtilegur félagi og
góður vinur. Við höfum verið stolt
af þér og fundið með ánægju
hverrar virðingar og hvílíkra
vinsælda þú hefur notið langt lit
fyrir okkar raðir. Við vonum að
giftu þeirrar, sem þér hefur fylgt
í bæjarstjórn Akureyrar, megi
hún njóta framvegis þótt þú
hverfir nú þaðan eftir lengri setu
en nokkur annar fyrr og síðar.
Við vitum að áhugi þinn á heill
Akureyrar verður hinn sami eftir
sem áður og að við megum enn
sem fyrr sækja til þín leiðsögn og
heilræði. Við vottum þér virðingu
okkar, vináttu og álúðarþökk og
árnum þér og fjölskyldu þinni
allra heilla.
Gísli Jónsson, Sigurður J.
Sigurðsson, Sigurður Hannesson,
Bjarni Rafnar, Erna Jakobsdóttir,
Friðrik Þorvaldsson, Árni Árna-
son, Ingi Þór Jóhannsson, Sig-
mundur Magnússon, Freyja Jóns-
dóttir." — Sv.P.
— Andreotti
Framhald af bls. 1.
yrðu skoðuð sem atkvæða-
greiðsla um traust eða van-
traust á stjórnina. Það gerði
hún meðal annars til að þurfa
ekki að taka til athugunar 2.150
breytingartillögur lítilla
vinstriflokka sem telja ráðstaf-
anirnar grafa undan mannrétt-
indum.
Samkvæmt ítölskum lögum
verður þingið að staðfesta
innan 60 daga tilskipanir eins
og þær sem stjórnin gaf út eftir
ránið á Moro.
Samkvæmt lögunum getur
lögreglan yfirheyrt grunað fólk
án þess það fái að hitta
lögfræðinga, hadtaka fólk í allt
að sólarhring^ til að kanna
skilríki þess, hlera síma í
ótakmarkaðan tíma og krefjast
upplýsinga af rannsóknardóm-
urum. Vitnisburður byggður á
hlerunum verður tekinn til
greina fyrir rétti.
— Rauða
herdeildin
Framhald af bls. 1.
Franceschini, forystumenn
Rauðu herdeildanna á Italíu.
Hvorki Curcio né hinir fjórtán
félagar hans á sakborninga-
bekknum sýndu nein viðbrögð
við yfirlýsingum Girottos.
Þögðu þeir þunnu hljóði í búrum
sínum og létu ekki að sér kveða.
Girotto skýrði frá því hvernig
að hefði borið að hann hefði
gengið í samtökin og hvernig
síðan hefði svo æxlast til að
hann ákvað að hætta þátttöku
og aðstoða lögregluna. Hann
sagðist vera hlynntur baráttu
vinstrisinnaðra hópa sem ynnu
í þágu hinna kúguðu, en Rauðu
herdeildirnar ættu ekkert skylt
við slíkt.
Þá bárust um helgina þær
fréttir að félagar í Rauðu
herdeildinni hefðu skotið og
sært alvarlega starfsmanna-
stjóra Menarini-bílaverksmiðj-
anna í Bologna í gær, mánudag.
Segir lögreglan frá því að þrír
karlar og ein kona hafi ráðist að
manninum Antonio Mazzotti,
þegar hann var að fafa til vinnu
sinnar. Lögreglan ságði að hann
hefði verið skotinn í fætur,
maga og brjóst og hann væri í
lífshættu.
Geta má þess að ítalska
lögreglan fann í dag leynistað
neðanjarðar í Rómaborg og er
búizt við að Rauða herdeildin
hafi útbúið þennan felustað til
að geyma gísla sína. Tvennt var
tekið höndum. Með öllu er óljóst
hvort einhverjar líkur eru á að
Aldo Moro fyrrv. forsætisráð-
herra hafi verið geymdur þarna.
— Senda
liðsauka
Framhald af bls. 1.,
I Briissel var haft eftir áreiðan-
legum heimildum að allar nauð-
synlegar ráðstafanir hefðu verið
gerðar af opinberri hálfu til að
tryggja brottflutning allra belg-
ískra borgara frá Kolwezi. Sam-
kvæmt áreiðanlegum heimildum í
kvöld var ástandið enn óljóst í
Kolwezi. Zairemenn gerðu gagn-
árás í dag, en uppreisnarmenn
segja að stjórnarhermenn séu á
flótta austur af Kolwezi og að
mikið mannfall hafi orðið í liði
þeirra.
Fréttastofa Zaire skýrði frá því
að stjórnin hefði sent fallhlífaher-
menn til Kolwezi og yfir stæðu
víðtækar gagnárásir gegn 4.000
uppreisnarmönnum FNLC.
En samkvæmt öðrum fréttum
virðist sókn uppreisnarmanna
halda áfram. Samkvæmt áreiðan-
legum heimildum láta uppreisnar-
menn mikið að sér kveða í Dilolo
á angólsku landamærunum og í
Kasaji, mikilvægri samgöngumið-
stöð 250 km vestur af Kolwezi.
Samkvæmt heimildunum hafa
fransksmíðaðar Mirageþotur
stjórnarinnar ráðizt á stöðvar
uppreisnarmanna. Flugvélar flytja
liðsauka til höfuðborgar
Shaba-héraðs, Lumumbashi, 300
km austur af Kolwezi, samkvæmt
heimildunum. Þaðan mun þetta lið
sækja landleiðina til námabæjar-
ins.
Bardagarnir í Kolwezi virðast
aðallega hafa geisað umhverfis
flugvöllinn utan við bæinn þar
sem flugvélar og þyrlur stjórnar-
innar hafa verið eyðilagðar sam-
kvæmt heimildunum.
Vaxandi uggs gætir um öryggi
útlendinga í Shaba-héraði vegna
fréttar um að átta Belgar og einn
ítali hafi fallið í bardögunum.
Áður var haft eftir áreiðanlegum
heimildum að fjórir hvítir menn
hefðu fallið, þrír Belgar og einn
ítali.
Uppreisnarmenn sögðu í til-
kynningu sem þeir birtu í Brussel
að þeir hefðu engan Evrópumann
fellt en herlið Mobutus forseta
hefði gert árásir á Kolwezi síðan
á sunnudag. Þeir sögðu að öryggi
væri tryggt.
Belgíska utanríkisráðuneytið
kvaðst standa í nánu sambandi við
stjórnir Bandaríkjanna og Bret-
lands og sagði að áætlanir um
hugsanlegan brottflutning útlend-
inga væri enn í athugun. Meðal
hvítu mannanna sem búa í
Kolwezi og nágrenni eru 2.800
Belgar, 400 Frakkar, 100 Banda-
ríkjamenn og um 20 Bretar.
Flestir útlendinganna starfa í
kopariðnaðinum.
I Lusaka vísaði stjórn Zambíu á
bug fullyrðingu Zaire-stjórnar um
að hún hefði skotið skjólshúsi yfir
uppreisnarmenn og sagði að það
yrði ekki gert. Undirbúningur er
hafinn í Zambíu til að taka á móti
flóttamönnum frá Shaba sam-
kvæmt heimildum í Luska.
— Eritrea
Framhald af bls. 1.
það bil helmingur eþíópíska setu-
liðsins í Asmara — sem alls er
talið skipað 40.000 mönnum —
hefði brotizt út úr höfuðborginni
og sótt í vestur.
I kvöld sagði talsmaður banda-
ríska utanríkisráðuneytisins að
hvers konar þátttaka Kúbumanna
eða annarra utanaðkomandi afla í
síðustu sókn Eþíópíumanna í
Erítreu gæti haft mjög truflandi
áhrif í öllum þessum heimshluta.
Hann gat ekki staðfest hvort
Kúbumenn tækju þátt í bardögun-
um þótt á þá væri minnzt í
eþíópískri tilkynningu um sókn-
ina.
í Beirút skoraði Ahmed Nasser,
yfirmaður ELF-RC, á þjóðir heims
að hjálpa Erítreumönnum að
hrinda sókn Eþíópíumanna. í Róm
sagði talsmaður samtakanna að
Eþíópíumenn hefðu ráðizt á stöðv-
ar uppreisnarmanna meðfram
strönd Rauðahafs milli Assab og
Massawa í sex daga með stuðningi
flugvéla og herskipa. Hann
minntist ekki á Kúbumenn og á þá
var heldur ekki minnzt í frétt
júgóslavnesku fréttastofunnar
Tanjug um átökin.
Seinna sagði ELF að mikið
manntjón og eignatjón hefði orðið
í loftárásum Eþíópíumanna á
bæinn Himberty um 30 km vestur
af Asmara og þorpin Mekerka og
Beda um fimm km lengra í vestri.
Það var fréttastofa ELF-RC í
Damaskus sem skýrði frá því í
gærkvöldi að Eþíópíumenn hefðu
byrjað „geysimikla sókn á landi,
sjó og í lofti til þess að knýja fram
hernaðarlega lausn í Erítreu.
ELF-RC og róttækari aðskilnaðar-
hreyfing, Alþýðufrelsisfylking
Erítreu (EPLF) myriduðu sameig-
inlega herstjórn í síðasta mánuði.
Búizt hefur verið við meiriháttar
sókn Eþíópíumanna í Eritreu
síðan í marz þegar þeir bundu
enda á stríðið við Sómalíumenn í
Ogaden-auðninni og Carter forseti
lét í ljós ugg um pærveru 17.000
kúbanskra hermanna í Eþíópíu er
hann sagði undirbúa stríð í
Eritreu eftir sigurinn í Ogaden.
Talsmaður ELF-RC sagði hins
vegar í dag að ekkert benti til þess
að Kúbumenn tækju þátt í bar-
dögunum eða loftárásum á skot-
mörk umhverfis Asmara og við
Rauðahaf. Hann kvað loftárásirn-
ar beinast að stöðvum skæruliða
milli Rauðahafshafnanna
Massawa og Assab, einu hafna
Eþíópíumanna.
Vestrænir hernaðarsérfræðing-
ar í Beirút telja að án hjálpar
Kúbumanna séu litlar líkur á því
að Eþíópíumenn geti bundið skjót-
an endi á stríðið sem hefur staðið
í 17 ár. Landslagið hentar skæru-
liðum vel að sögn sérfræðinganna.
Næstu fjórar vikur geta ráðið
úrslitum um hvort sókn Eþíópíu-
manna tekst eða ekki. Regntíminn
í Erítreu byrjar venjulega í
annarri viku júní og hann hentar
skæruliðum vel og torveldar her-
flutninga.
Sóknin fylgir í kjölfar heim-
sókna leiðtoga eþíópísku
byltingarstjórnarinnar, Mengistu
Haile Mariam ofursta, til Kúbu og
Sovétríkjanna. Samkvæmt
áreiðanlegum heimildum í Beirút
skoraði Mengistu á Rússa og
Kúbumenn að veita Eþíópíumönn-
um áþreifanlegan stuðning í alls-
herjarsókn gegn skæruliðum í
Erítreu sem ráða yfir nær öllu
héraðinu og öllum bæjum nema
fimm.
Palestínski skæruliðaforinginn
Georg Habash sagði eftir
Kúbuferð í síðasta mánuði að
Fidel Castro, þjóðarleiðtogi Kúbu,
væri hlynntur samningum um
lausn Erítreudeilunnar.
— Stúlka slasast
Framhald af bls. 48
fékk því svo slæmt höfuðhögg að
talið var að hún hefði höfuðkúpu-
brotnað. Var hún flutt með flugvél
til Reykjavíkur og liggur nú í
Borgarspítalanum. Pilturinn slapp
mun betur enda hafði hann hjálm.
Töluverðar annir voru að öðru
leyti hjá lögreglunni í Borgarnesi.
Maður slasaðist nokkuð þegar
hann ók bifreið sinni á brúarstólpa
við Deildargil, skammt frá Húsa-
dal. Maðurinn var einn í bílnum og
kvartaði á eftir yfir meiðslum í
brjóstkassa. Var hann sendur í
sjúkrahús í Reykjavík. Þá valt bíll
við Eskiholtssneið og hlaut fólkið
sem í bílnum var minniháttar
meiðsli. _ ______
— Kosninga-
dagskrá
Framhald af bls. 48
Magnús L. Sveinsson, Páll
Gíslason, Markús Örn Antons-
son og Elín Pálmadóttir. Af
hálfu Alþýðuflokks Sjöfn Sigur-
björnsdóttir, Sigurður
Guðmundsson, Bjarni P.
Magnússon og Helga Möller en
Björgvin Guðmundsson tekur
þátt í hringborðsumræðunum.
Af hálfu Framsóknarflokks-
ins taka þátt í þessum fundi
Gerður Steinþórsdóttir, Helgi
Hjálmarsson, Jónas Guðmunds-
son og Kristján Benediktsson en
Eiríkur Tómasson í hringborðs-
umræðunum. Af hálfu Alþýðu-
bandalags koma fram í þættin-
um Þór Vigfússon, Guðmundur
Þ. Jónsson, Guðrún Ágústs-
dóttir, Þorbjörn Broddason,
Adda Bára Sigfúsdóttir og
Guðrún Helgadóttir.
Fleiri bæjarfélög munu fá
inni í sjónvarpi á næstunni.
Akureyringar verða þar á
laugardag kl. 3, frambjóðendur
úr Hafnarfirði á sunnudag n.k.
kl. 2 og frambjóðendur í Kópa-
vogi kl. 4 sama dag. Á laugardag
fyrir kosningadaginn verður á
ný kosningafundur vegna
borgarstjórnarkosninganna í
Reykjavík og þá í formi hring-
borðsumræðna. Gunnar G.
Schram mun stjórna öllum
þessum umræðum.
— Muzorewa
Framhald af bls. 46.
málum skyldi staðið hvað varðaði
Rhódesíu og væri það merkur
áfangi. Hins vegar vildi Kaunda
ekki útiloka að hann leyfði Kúbön-
um og Sovétum að koma inn í
Zambíu til að aðstoða skæruliða
frá Rhódesíu sem hafa þar bæki-
stöðvar.
í fréttum frá Salisbury í dag
sagði einnig að bráðabirgðastjórn-
in hefði orðið ásátt um að
Zimbawe undir svartra stjórn
myndi verða stýrt af forsætisráð-
herra en ekki forseta með fram-
kvæmdavald eins og í flestum
öðrum blökkumannaríkjum
Afríku. Var birt orðsending þessa
efnis eftir alllangan fund fram-
kvæmdaráðsins. Meðal þeirra sem
sátu á fundinum voru Muzorewa
biskup, Ian Smith forsætisráð-
herra og Ndabaningi Sithole. Var
gerð nokkur grein fyrir því
hvernig að því kjöri skyldi staðið
þegar Zimbawe yrði að veruleika
hinn 31. desember n.k.
Er ákveðið að þingið kjósi
forsetann en samkvæmt sam-
komulaginu frá 3. marz eiga sæti
á þingi 72 svertingjar og 28 hvítir
menn. Sagt var að ákvarðanir um
málið hefðu verið teknar einum
rómi. Svo virðist því að sögn
stjórnmálafréttaritara sem deila
Muzorewa biskups við hina aðild-
armenn stjórnarinnar muni ekki
hafa nein áhrif á framtíðarstarf
bráðabirgðastjórnarinnar.