Morgunblaðið - 22.08.1978, Blaðsíða 1
44 SÍÐUR
180. tbl. 65. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Tékkóslóvakía:
Kyrrt heima
fyrir — en mót-
mæli erlendis
IÆttingjar látinna við jarðneskar leifar nokkurra aí þeim tæplega 400 manns sem brunnu til bana
í kvikmyndahúsi í íranska bænum Abadan um helgina, er hryðjuverkamenn lögðu eld að húsinu
Sjá fréttina „Hápunktur hryðjuverka trúæsingamanna" — á bls 43.“
ísraelar gerðu
hefndarárásir
Pra({, Vínarbortt. Munchen.
21. áKÚst — Reuter
NOKKRIR stúdcntar skipuiögðu
þögla stund við Wenceslasstyttu
í Prag til að mótmæla innrás
Varsjárbandalagsherja í landið
fyrir tíu árum. Allt var með
kyrrum kjörum í Tékkóslóvakíu í
dag og kom hvergi til áktaka
innanlands. Víða erlendis voru
haldnir fundir og mótmælagöng-
ur til að mótmæla innrásinni.
Hafði enda verið haft í hótunum
við tékkneska andófsmenn ef þeir
Hjartaþegi
varð faðir
Van Nuys, Kaliforntu 21. &K. AP.
TVÍTUGUR piltur, Robert
Dodge, sem hefur tvívegis geng-
izt undir hjartaflutningsaðgerð-
ir, varð faðir í morgun er kona
hans ÓI honum stælta dóttur er
vó um sextán mcrkur. í AP-frétt-
um segir að talið sé að Dodge sé
fyrsti hjartaþegi sem hefur getið
barn. Dodge er einn af yngstu
hjartaþegum f heimi. Aðgerðir á
honum fóru fram á Stanford-
sjúkramiðstöðinni árið 1976.
Kaíró 21. ág. Reuter.
EGYPZKA stjórnin neitaði í
kvöld þrálátum orðrómi þess
efnis að Mamdouh Salem forsætis-
ráðherra hefði lagt lausnarbeiðni
sína fyrir Sadat forseta, en hann
hefði neitað aö taka hana til
greina. Fréttastofan Mena sagði í
kvöld að þessi frétt ætti ekki við
nein rök að styðjast. Flokkur
Salems ákvað í sl. viku að
sameinast Lýðræðislega þjóðar-
flokknum sem Sadat ákvað að
koma á laggirnar f sl. mánuði.
hefðu sig í frammi. Var lögregla
við öllu búin ef út af brygði.
Gustav Husak flokksleiðtogi
sagði í dag að bezta svarið við
and-tékkneskum áróðri, sem hald-
ið væri uppi víða erlendis, væri
hið „hljóðláta og kyrra pólitfska
andrúmsloft“ sem ríkti í landinu.
Fréttastofan Ceteka sagði að
Ilusak hefði ekki beinlínis vikið
að innrásimi en sagt að „um
þessar mundir“ væri Tekkó-
slóvakía milli tannanna á fjand-
samlegum öflum scm sæju ekki,
og vildu ekki sjá hvernig tékk-
neska þjóðin lifði... og skynjuðu
ekki hvernig öllu hefði fleygt
fram í landinu í hverri atvinnu-
grein og hvarvetna sæjust merki
um velmegun og vellíðan.
í fréttum frá Prag segir að
settur hafi verið blómvöndur við
fótstall st. Wenceslasstyttu en
lögreglan hafi gripið vöndinn og
hent í sorptunnu. Ferðamaður,
sem sá hvað gerðist, reyndi að
koma blómunum aftur á stað, en
var handtekinn og yfirheyrður
stutta stund. Hópur stúdenta tók
sér stöðu hjá styttunni. Lögregla
kannaði skilríki en lét þá að öðru
leyti afskiptalausa.
Sjá bls. 42.i Mótmæli víða
utan Tékkóslóvakíu í gær.
Blaðið A1 Ahrar scm skýrði frá
lausnarbeiðni Salems sagði að 24
af áhrifamönnum í flokki for-
sætisráðherrans hefðu lagzt gegn
sameiningunni og þar á meðal
hefði verið ráðherrann sjálfur.
AI Ahrar sagði að Salem hefði
skýrt stjórn- arabíska sósíalista-
flokksins frá ákvörðun sinni eftir
að hann hefði lagt hana fyrir
Sadat og tekið fram að hann
myndi hætta öllum afskiptum af
stjórnmálum.
Beirut, Tel Aviv,
London 21. ág. Reuter AP.
STAÐFEST hefur verið að
þrír Palestínumenn létu
lífið og fjórtán særðust er
ísraelar gerðu árás á stöðv-
ar Palestínuskæruliða
skammt frá Beirut, og var
þetta í hefndarskyni fyrir
atlögu arabískra hryðju-
verkamanna að EL ÁL
bifreið í miðborg London á
sunnudag.
Fréttin um loftárás ísraela var
í fyrstu óljós. Fram kom að í
dögun hefðu ísraelskar orrustuvél-
ar lagt til atlögu við flóttamanna-
búðirnar Bourj E1 Barajneh ekki
ýkja langt frá Beirut. Kom mönn-
um ásamt um að ísraelar þekktu
greinilega til hvar Palestínu-
skæruliðar hefðu stöðvar sínar,
því að á þessum stað væri mjög
mikið af virkum Palestínuskæru-
liðum og jafnvel væri þar eins
konar þjáWunarstöð.
Vélarnar flugu lágflug yfir
Beirut og rufu hljóðmúrinn og lék
allt á reiðiskjálfi í borginni í fimm
mínútur.
Þá bar fréttum ekki saman um
það framan af hvort vélarnar
hefðu varpað sprengjum niður.
Sagði í fréttum frá Beirut í fyrstu
að þær hefðu ekki gert það, og
hefðu loftvarnarskyttur Palestínu
skæruliða hrakið þær á braut og
meira að segja hefði þeim tekizt að
hæfa eina vélina. ísraelar til-
kynntu aftur á móti að árásin
hefði „heppnazt" og nokkru síðar
skýrðu fréttamenn í Líbanon frá
því að yfirstjórn PLO hefði
viðurkennt að manntjón hafi
orðið.
Israelar drógu ekki dul á af
hverju þessi árás hefði verið gerð,
en hermdarverkið í London, þar
sem tveir létu lífið og níu særðust,
hefur vakið mikla ólgu í ísrael.
Hafa flestir forvígismenn orðið til
að fordæma það harkalega og
sagði Begin forsætisráðherra að
Londonarárásin væri villimannleg
og viðurstyggileg.
Þá bendir margt til þess að
Israelar muni nú mjög herða
öryggisvörzlu innanlands og leikur
grunur á því að stjórnin hafi
komizt á snoðir um að Palestínu-
menn hafi ýmis áform á prjónun-
um innan Israels.
Sjá frétt á bls. 42 um
1 árásina f Londom „Átta
létust fjöldi særðist og
flugfreyja liggur enn milii
heims og helju.“
Tekst að
læknaböm
sem væta
rúmið?
Tel Aviv 21. ág. Reuter
ÍSRAELSKIR vísindamenn telja
að í sjónmáli sé nú að veita
lækningu börnum sem hafa
þjáðzt af því að væta rúm um
nætur. Hafa þeir hannað eins
konar eiektróniskar náttbuxur
og í þeim er hárnákvæmur
elektrónískur rakamælir og
nokkurs konar klukka. begar
fyrsti dropinn fer í buxurnar
hefur elektróniskur útbúnaður
inn þau áhrif að vöðvarnir
dragast saman og stöðva rennsl-
ið. Siðan hljómar klukkutækið og
vekur barnið.
Sovézkur kafbátur
í nauð við Skotland
London, 21. ágúst. — ReuterAP
DÖNSK freigáta, brezk og
bandarísk herskip og flugvélar
fylgdu í dag eftir sovézkum
kjarnorkukafbáti undan Skot-
landsströndum, en kafbáturinn
er þar í togi á leið til Mur-
mansk vegna bilunar í vélar
búnaði.
Það var á laugardag að
kafháturinn bilaði og fjöldi
sovézkra herskipa úr norður-
flota Sovétríkjanna umkringdu
hann þegar hann kom upp á
yfirboðið. Á sunnudag kom til
móts við hann sovézkur drátt-
arbátur sem er að jafnaði við
Shetlandseyjar og tók kafbát-
inn í tog, um 100 sjómílur
norðvestur af Wrath höfða á
Skotlandi. í dag var hcrsingin
komin um 100 sjómílur norður
fyrir Shetlandseyjar og þegar
veður leyfði sigldi kafbáturinn
Staða kafbátsins undan Skot-
landsströndum.
með 3ja hnúta hraða fyrir
ncyðarvélum sínum sem knún-
ar eru diesel-olíu.
Sovézki kafbáturinn er af
Echo-II gerð, en sú tegund
kafbáta er með átta skotpalla
fyrir „Shaddock" eldflaugar sem
draga um 400 kílómetra og geta
borið annað hvort öflugar
sprengjur eða kjarnaodda, að
því er brezka varnarmálaráðu-
neytið skýrði frá í dag.
Hópur sovézkra herskipa fylg-
ir kafbátnum og dráttarbátnum
eftir, en meðal þeirra eru skip
sem hafa innanborðs fjarstýrð-
ar eldflaugar, eldflaugnaeyðir,
tundurspillir, birgðaskip og
rannsóknaskip.
Sovézki kafbáturinn á siglingu
undan Skotlandsströndum.
Greinilega má sjá eldflauga-
skotstæðin. •
Ljósm. Varnarliðið.
Hættir Salem eða ekki?