Morgunblaðið - 22.08.1978, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 22.08.1978, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 1978 29 Karpov hefur tvo vinninga í forskot ANATOLY Karpov, heims- meistari í skák getur svo sannar- lega verið ánægður með árangur sinn á sunnudaginn. Strax eftir hádegið að staðartíma tókst nonum að snúa óhagstæöri biö- stööu úr Þrettándu skákinni sér í vil og sigra. Síðan fengu meistararnir aöeins hálfrar klukkustundar hlé, en urðu síðan að taka til við framhald fjórtándu skáarinnar Þar sem staða Korch- nois var talin pví sem næst vonlaus. Svo reyndist einnig vera og eftir aðeins 45 mínútna taflmennsku lýsti áskorandinn sig sigraöan í annað skiptið sama daginn. Karpov hefur Því náð tveggja vinninga forskoti í einvíg- inu og hann er nú eftir fimm vikna taflmennsku búinn að vinna helminginn af Þeím skáka- fjölda sem hann Þarf til Þess að halda titlinum. í fjórtándu skákinni fékk Karpov örugga stööuyfirburöi í endatafli eftir byrjunina. Menn hans voru vel staösettir á miöboröinu á meöan liö Korchnois vann illa saman. Engu aö síöur var engin ástæöa til þess aö örvænta fyrir áskorand- ann. Mislitir biskupar minnkuöu mjög sigurlíkur hvíts og greinilegt var aö Karpov þyrfti aö yfirstíga mörg tæknileg vandamál áöur en vinningurinn yrði í höfn. En Korchnoi gætti sín ekki nægilega vel, e.t.v. hefur hann ætlaö sér um of og snjöll skiptamunarfórn heimsmeistarans tættu í sundur stööu hans. Karpov fékk þegar í staö eitt peö fyrir skiptamuninn og skömmu síðar féllu tvö önnur. Eftirleikurinn var þá auöveldur og biðskákin var aðeins formsatriði. Viöhorfin í einvíginu eru nú gjörbreytt frá því fyrir helgina. Karpov hefur náö öruggu forskoti en engum kemur þó til hugar aö baráttan sé töpuö fyrir Korchnoi. í einvíginu 1974 var staöan 3—0 Karpov í vil eftir 17 skákir, en Korchnoi tókst aö vinna í 19. og 21. skákinni og sýndi hann meö því mikinn baráttuvilja. Korchnoi segir reyndar sjálfur aö þaö hafi einungis veriö 24 skáka hámarkiö sem hafi bjargaö Karpov. Nú er skákafjöldinn ótakmarkaöur og Korchnoi hefur tækifæri til þess að sanna þessa fullyröingu sína. Hvítt: Anatoly Karpov Svart: Viktor Korchnoi Spænski leikurinn 1. e4 — e5, 2. Rf3 — Rc6, 3. Bb5 — a6, 4. Ba4 — Rf6, 5. 0—0 — Rxe4 (Opna afbrigðið, sem virðist vera oröið aðalvopn Korchnois með svörtu) 6. d4 — b5, 7. Bb3 — d5, 8. dxe5 — Be6, 9. c3 (í áttundu og tíundu skákinni lék Karpov hér 9 Rbd2 og í tólftu skákinni lék hann 9. De2 í stööunni. Nú hverfur hann hins vegar aftur til þess leiks sem hann beitti í annarri og fjóröu skákinni meö fremur slökum árangri) Bc5, 10. Rbd2 — 0-0, 11. Bc2 — Bf5, 12. Rb3 — Bg4, 13. h3 (Fyrr í einvíginu hefur Karpov jafnan leikið 13. Rxc5 í stöðunni, en nú velur hann öllu hvassari og óljósari leið) Bh5, 14. g4 — Bg6, 15. Bxe4 — dxe4. 16. Rxc5 — exf3 17. Bf4 — Dxd1. (Svartur getur ekki valdaö peðið á f3 fyrr en drottningarnar eru horfnar af borðinu). 18. Haxdl — Rd8. (Nærtækasta lausnin á vanda- málum svarts. Eftir 18... Hfe8 19. Hfe1 — Had8 20. Hxd8 — Rxd8 21. Hf3 vinnur hvítur einfaldlega peð). 19. Hd7 — Re6 20. Rxe6 — fxe6 21. Be3 — Hac8 22. Hfd1 — Be4 23. Bc5 — Hfe8 24. H7d4 — Bd5 25. b3 — a5? (Er Korchnoi lagði grundvöllinn aö þeirri áætlun sem þessi leikur er upphaf á virðist hann algjörlega hafa vanmetiö skipamunarfórn hvíts á d5. Rétt var því 25... Bc6 og þrátt fyrir að stööuyfirburöir hvíts séu greinilega fyrir hendi á hann erfitt aö færa sér þá í nyt). 26. Kh2 — Ha8 27. Kg3 — Ha6 28. h4 — Hc6. Skák Margeir Pétursson skrifar um þrett- ándu og fjórtándu einvígisskákina 29. Hxd5ll (Vinningsleikur. Jafnvel þó að hvítur vinni aöeins f3 peðið til viðbótar tryggja peð hans á e og f línunum honum sigur undir flestum kringumstæðum). exd5 30. Hxd5 — Hce6 31. Bd4 — c6 32. Hc5 — Hf8 33. a4l — bxa4 34. bxa4 — g6 35. Hxa5 — Hee8 36. Ha7 — Hf7 37. Ha6 — Hc7 38. Bc5 — Hcc8 39. Bd6 — Ha8 40. Hxc6 — Hxa4 41. Kxf3 — h5. (Hér fór skákin í bið. Með þrjú peð fyrir skiptamuninn er fram- haldiö aöeins tæknilegt atriöi fyrir hvítan) 42. gxh5 — gxh5 43. c4 — Ha2 44. Hb6 — Kf7 45. c5 — Ha4 46. c6 — Ke6 47. c7 — Kd7 48. Hb8 — Hc8 49. Ke3 — Hxh4. 50. e6+! Svartur gafst upp. Eftir 50... Kxe6 51. Bg3 vinnur hvítur létt. Sigurviljinn varð Korchnoi að falli VOPNIN snerust illilega í höndum Korchnois Þegar Þrettándu ein- vígisskákinni var fram haldið á sunnudaginn. Skákskýrendum bar saman um að áskorandinn hefði töluverðar vinningslíkur í biöstöðunni vegna veikrar peða- stöðu Karpovs. Hins vegar var staða hvíta kóngsins fremur veik og Þegar svo stendur á geta liösyfirburðir eins og skiptamun- ur haft afdrifaríkar afleiðingar. Einnig haföi áskorandinn notað óhóflega mikinn tíma á biðleik sinn og hafði hann Því aðeins tuttugu mínútur á fyrstu fimmtán leikina eftir bið. Engu að síður tefldi Korchnoi djarflega til vinn- ings. Hann flutti kóng sinn yfir á miðborðið til Þess að kóngs- biskup hans kæmist í sóknina. Þrátt fyrir þetta tókst Kapov að koma í veg fyrir að Korchnoi tækist aö bæta stööu sína áþreifanlega, tímahrakiö hrjáöi áskorandann sífellt meira og i 56. leik, síöasta leik fyrir tímamörkin, lék Korchnoi mjög gróflega af sér. Meira þurfti ekki til og fimm leikjum síöar haföi Karpov unnið sinn annan sigur i einvíginu, auk þess sem biöskák hans úr fjórtándu umferð einvigisins virtist auöunnin. Mikil kæti ríkti í herbúöum Karpovs yfir þessum óvænta sigri. Alexander Roshal, kunnur sovézk- ur íþróttablaöamaöur og blaöafull- trúi Karpovs á einvíginu, sagöi aö heimsmeistarinn væri mjög ánægöur meö aö honum heföi loks tekist að notfæra sér tímahrak Korchnois til sigurs. Mikhail Tal, fyrrum heimsmeistari í skák og fréttaritari skákvikublaösins „64“, sagöi aö Karpov heföi greinilega rannsakaö biöstööuna mjög vel og aö undir lokin heföi honum tekist að lokka áskorandann inn í vel undirbúna gildru. Svart: Anatoly Karpov Hvítt: Viktor Korchnoi 41. Ha7 — (Biðleikur Korchnois, en um leikinn hugsaöi áskorandinn sig um í 40 mínútur. Það er óskiljanlegt aö Korchnoi hafi þurft svo mikinn tíma til þess aö finna jafn augljósan leik) Hdf6, 42. Hxf7 — Hxf7,43. d5 — (Hvítur vinnur nú annað peö, en biskup svarts vaknar hins vegar til lífsins) Be5, 44. dxc6 — Kg7, 45. Be4 — Dg5, 46. Kf1 — (Korchnoi var nú þegar kominn ( alvarlegt tímahrak) Bd6, 47. Bd5 — He7, 48. Bf3 — h5, 49. Bd1 — Df5, 50. Ke2I? — (Hvítur vill enn freista þess aö tefia til vinnings þrátt fyrir tímahrakiö. Hann var aö sjálfsögöu engu nær eftir 50. Kg2 — Dg5+) He4, 51. Dc3+ — Df6, 52. Db3 — (Jafntefliö var gulltryggt eftir 52. Dxf6+ — Kxf6, því að svartur hótar bæði 53. . . Hh4 og 53. . . . Hc4. Hugsanlegt er jafnvel að svartur eigi vinningsmöguleika í endataflinu) Df5, 53. Db7+ — He7, 54. Db2+ — Kh7, 55. Dd4 — Bc7. 56. Dh47? — (Hrikaleg mistök, sem jafnast á viö afleikinn í fimmtu skákinni. Eftir 56. Dc5! er engin hætta á því aö hvítur tapi skákinni.) He4l, 57. f4 — Bb6, (Nú fellur peðið á e3, fjöregg hvítu stööunnar og svartur nær mátsókn sem getur aöeins endað á einn veg) 58. Bc2 — Hxe3+, 59. Kd2 — Da5, 60. Kd1 — Da1+, 61. Kd2 — He4l Hvítur gafst upp. Hann á enga vörn viö hótuninni 62... Ba5+. F ær Kor chnoi við reist? rönd AF ÞEIM átta heimsmeistara- einvígjum sem ég heí séð er yfirstandandi einvígi mest vill- andi hvaft snertir stöftuna með tilliti til þess hvernig skákirn- ar hafa þróazt. Hvern skyidi hafa óraft fyrir því eftir elíefu fyrstu skákirnar, þegar staftan var jöfn, að heimsmeistarinn skyldi hafa yfir 3—1 eftir þrjár skákir til viftbótar? Líti maður á þróun skákanna hér þá kemst maftur að þeirri niðurstöðu að áskorandinn hef- ur a.m.k. fjórum sinnum verið með vinningstafl, að undanskil- inni skákinni sem hann vann, og hefði hann skyggnzt nógu vel í stöðuna og vinningsleiðir þær sem stóðu honum til boða væri staðan nú kannski 4—1 Viktor Korchnoi i hag. Þetta er náttúrulega hlut- drægt mat. I því er ekki tekið tillit til þess að Korchnoi á oftast frekar erfitt uppdráttar á fimmtu klukkustund taflsins þegar þreyta sækir að honum, en hann er sem kunnugt er 20 árum eldri en Karpov. Korchnoi ber þó ekki nein þreytumerki utan á sér. Hann virtist einnig hress og af- slappaður í samkvæmi haldið honum til heiðurs i gærkvöldi. Hann lét þá meðal annars þau orð falla um drottningarleikinn sem varð honum að falli í þréttádnu skákinni, að hann hefði í stöðunni aðeins átt að tefla upp á jafntefli. Karpov hefur enn ekki sýnt hér þá taflmennsku sem hann er frægastur fyrir, og ruglar það mann nokkuð þegar staðan er höfð í huga. Hann hefur við og við sýnt góða leiki, en enn hefur hann ekki teflt heila skák sem sæmir heimsmeistara. Og hing- að til hefur það verið K'orchnoi sem hefur sótt og haft frum- kvæðið en heimsmeistarinn ver- ið í stöðugri varnarbaráttu. Beri maður einvígið hér saman við einvígi Spasskys og Fischer í Reykjavík, þá hafði Fischer teflt snilldarlega í sex skákum þegar ellefu umferðir voru búnar. Þau gæði sem sáust í taflmennskunni í einvíginu í Reykjavík eru ofar öllu sem sézt hefur í yfirstandandi einvígi hér. En hefðu Korchnoi ekki orðið á eins margar yfirsjónir hér og raun ber vitni, þá hefði ef til vill verið hægt að líkja honum við Fischer í Reykjavík 1972. Nú er það spurningin hvort Korchnoi eigi eftir að fá rönd við reist þar sem Karpov hefur tveggja vinninga forskot á hann. Maður hefur ekki ástæðu til að halda annað, og má í því tilefni minna á viðureign Korchnois og Karpovs frá 1974 þegar áskorandinn sýndi frábær til- þrif þegar allt mæddi á honum. Iiarrg Golombeck skrifar fgrir Morgunblaðið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.