Morgunblaðið - 22.08.1978, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 1978
3
Það þurfti jeppakerru
undir aflaKekkonens
Kekkonen kveður
KEKKONEN Finnlands-
íorseti hélt heim á sunnu-
dag, hæstánægður eftir
veiðiferð sína í Viðidalsá.
Forsetinn fékk hvorki
meira né minna en 38 laxa
þann tíma, sem hann var
við veiði í ánni, þar á meðal
tvo tuttugu punda fiska.
Veiddi hann annan í
Harðeyrarstreng en hinn í
Ármótum.
Úr Víðidalsá eru nú
komnir alls 1240 laxar á
land það sem af er sumrinu,
en á sama tíma í fyrra voru
1088 laxar komnir á land.
Stærsti laxinn, sem veiðzt
hefur á þessu sumri, var 25
pund á þyngd.
Það þurfti heila jeppakerru undir afla forsetans úr Víðidalsá.
Nú er unnið að stækkun þingflokksherbergis Alþýðuflokksins í
Alþingishúsinu og fæst viðbótarrýmið m.a. með því að færa sfmaklefa
fram fyrir herbergið. bessa mynd tók Ói. K. M. í gær af
iðnaðarmönnum í þingflokkshérberginu.
Iðnaðarmannahúsinu.
HeildarafU 41.400 lest-
um minni en í fyrra
HEILDARAFLI landsmanna var
875.759 lestir um sl. mánaðamót.
en var 917.236 lestir á sama tíma
í fyrra og er aflinn því 41.477
lestum minni það sem af er þessu
ári. Munar hér eingöngu um
loðnuafla, þar sem botnfiskafli er
talsvert meiri en í fyrra. Hann er
nú 325. 510 lestir á móti 322.797
lestum, eða 2.713 lestum meiri.
Af botnfiskafla er afli báta
168.331 lest, en var 177.557 léstir
í fyrra. Á svæðinu Vestmannaeyj-
ar Stykkishólmur hefur bátaflinn
dregizt verulega saman, en
annarsstaðar hefur orðið umtals-
verð aukning eins og t.d. á
Austfjörðum. Togaraaflinn er nú
157.179 lestir en var 145.240 lestir
fyrstu sjö mánuði s.l. árs, og hefur
því aukizt um 11.959 lestir miðað
við síðasta ár.
Loðnuafli var um mánaðamótin
496.841 lest en á sama tíma í fyrra
568.889 lestir. Rækjuafli var um
mánaðamótin 4922 lestir á móti
4430, humarafli 1984 lestir á móti
2770, hörpudiskafli 4505 lestir á
móti 1330, og kolmunnaaflinn var
orðinn 18166 lestir, en fyrstu sjö
mánuði s.l. árs var hann 10.291
lest, þá er spærlingsveiði nú orðin
23.831 lest, en var á sama tíma í
fyrra 6729 lestir.
Þingflokksherber gi Al-
þýðuflokksins stækkað
íslenzki pilturinn, sem fórst
þegar Bronco jeppa hvoldi (
Krossá aðfararnótt laugardags,
hét Smári Kristján Oddsson til
heimilis að Álfhólsvegi 96.
Morgunblaðinu tókst hvorki að
afla mynda af Bandaríkja-
manninum né sænsku stúlkunni,
sem einnig fórust.
Góð sala
hjá Rán
TOGARINN Rán frá Hafnarfirði
seldi 164 lestir af fiski í IIull í
gær fyrir 37,7 millj. ísl. kr.
Meðalverð á kíló var kr. 230.
Þá seldi Aðalvík frá Keflavík
137 lestir í Þýzkalandi í gær fyrir
26,1 millj. kr. og var meðalverð á
kíló kr. 190. 16 tonn af afla
togarans voru dæmd ónýt.
Þá byrjaði togarinn Jón Dan að
landa í Þýzkalandi í gær, en
söluskeyti var ekki komið eftir
hádegi. Markaðurinn í Þýzkalandi
er ekki orðinn góður enn, þar sem
mikill hiti er í Þýzkalandi og er
ekki gert ráð fyrir að markaðurinn
batni verulega fyrr en fer að kólna
í veðri.
Torgsins Iðnaðarmannahúsinu
Hallveigarstíg 1.
GLUGGATJALDAEFNI
STÓRES
ÖNNUR METRAVARA
Flónel
Rifflað flauel
Denim-efni
Léreft köflótt
Garn 190.-
Kvenfatnaður
Kjólar frá kr. 1900
Pils frá kr. 3500
Blússur frá kr. 950
Buxur frá kr. 2900
Gallabuxur frá kr. 1990
Sokkabuxur frá kr. 195
Peysur frá kr. 1750
Mittisblússur frá kr. 2500
Herrafatnaður
Föt frá kr. 17900
Stakir jakkar frá kr. 9900
Skyrtur frá kr. 1450
Terelynebuxur frá kr. 4900
Gallabuxur frá kr. 1990
Peysur frá kr. 2500
Mittisjakkar frá kr. 2500
Nærbolir frá kr. 350
Nærbuxur frá kr. 350
Barnafatnaður
Mittisblússur frá kr. 1900
Peysur frá kr. 1750
Gallabuxur frá kr. 2750
Skyrtublússur frá kr. 1250
Bolir frá kr. 645
Rally jakkar frá kr. 2900
SKÓR \
Kvenskór „ „ 1900 I
Karlmannaskór „ „ 1900
Barnaskór „ „ 1500
Strigaskór „ „ 395
Stígvél „ „ 950
Kuldaskór „ „ 1900