Morgunblaðið - 22.08.1978, Blaðsíða 40
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 1978
NYTTVIKINGSLIÐ
SIGRAÐI FRAM 3:0
— Landsliðsþjálfarinn hef ur gjörbreytt spili og
hugsunarhætti Víkinga eftir aðeins fjórar æfingar
ÞAÐ VAR Kjörbreytt VíkinKalið, sem mætti til leiks á móti Fram í 1. deildinni á sunnudagskvöldið.
Víkingarnir reyndu allan tímann að ieika knattsprynu, en háloftaspyrnur ok langsendingar fram allan
völl sáust nú mun sjaldnar hjá Víkingunum, en í öðrum leikjum sumarsins, að þvi' er vísir menn sögðu.
VíkinKar höfðu einnis árangur sem erfiði í leiknum og unnu öruggan sigur, 3>0.
Youri Ilitchev hcfur greinilega gert góða hluti með Víkingana á æfingum í síðustu viku og mgð þessum
sigri standa Víkingar jafnfætis Keflvíkingum í keppninni um þriðja sætið í deildinni og Evrópukeppni
á næsta ári. Framarar eru stigi á eftir með 16 stig, en ÍBV hefur 15 stig og á leik inni. Spenna er því
enn í deildinni þó svo að úr þessu fái ekkert ógnað veldi Valsmanna á toppi deildarinnar.
Framarar voru óvenju daufir í
leiknum við Víking, gáfu allt of
mikið svæði og einfaldar breyting-
ar á leikskipulagi og uppstillingu
Víkinga komu Frömurum greini-
lega í opna skjöldu. Þá var það
ekki til að bæta úr að Pétur
Ormslev var í strangri gæzlu
Jóhannesar Bárðarsonar allan
leikinn og Ásgeir Elíasson mátti
sín lítils vegna meiðsla og varð að
yfirgefa völlinn í seinni hálfleikn-
um. Víkingar sýndu meiri leikgleði
í þessum leik en áður í sumar og
í ár hafa þeir unnið Fram í báðum
leikjum liðanna í 1. deild, en slíkt
hefur ekki áður gerzt. Víkingur
hefur heldur aldrei unnið Fram
með svo miklum mun í 1. deildinni.
Fyrstu mínútur leiksins var
jafnræði með liðunum, en Víking-
ur náði fljótlega undirtökunum. Á
17. mínútu leiksins tóku Víkingar
horn frá hægri og gefið var út
fyrir teiginn til Gunnars Arnar,
sem skaut þrumuskoti að marki
Framara. Á leiðinni fór knöttur-
inn í hendi eða öxl Kristins
Víkingur
— Fram 3:0
Textii Ágúst I. Jónsson
Myndi Kristinn ólafsson.
Atlasonar og dæmd var víta-
spyrna. Gunnar Örn framkvæmdi
sjálfur spyrnuna, en Guðmundur
Baldursson gerði sér lítið fyrir og
Jóhann Torfason var ekkert að
tvínóna við hlutina, við hlutina. en
sendi boltann rakleiðis í markið
við stöngina nær sér. Vel gert hjá
Jóhanni og staðan 2:0.
Framarar byrjuðu seinni hálf-
leikinn af krafti eins og. gegn FH
fyrir viku, en Víkingar gáfu sig
hvergi. Þeir náðu aftur tökum á
leiknum og á 23. mínútu hálfleiks-
ins lék Lárus Guðmundsson lag-
lega upp hægri kantinn og sendi
knöttinn síðan inn á markteig
Framara. Knötturinn lenti á tám
Gunnars Arnar, sem átti ekki í
erfiðleikum með að negla í netið.
Staðan 3:0 og í raun gert út um
leikinn. Það sem eftir var áttu
Víkingar nokkur dauðafæri til að
skora, en tókst ekki.
Beztu menn Víkinga í þessum
leik voru Róbert, Jóhannes, Gunn-
ar og Lárus, en allt liðið á hrós
skilið fyrir mikla og góða baráttu,
óvenju mikla leikgleði. Leiki Vík-
ingar svona það sem eftir er
mótsins hlýtur þriðja sætið að
verða þeirra. Óskar Tómasson lék
sinn 100. meistaraflokksleik á
móti Fram og hefði hann hæglega
átt að geta haldið upp á áfangann
með þvíað skora mark. Það gerði
hann þó ekki þrátt fyrir góð færi
og í seinni hálfleiknum var hann
of bráður, lét hvað eftir annað
góma sig rangstæðan. Ragnar
Gíslason fékk gult spjald í leiknum
og fer hann líklega í leikbann í
næsta leik.
Enginn leikmanna Fram skar
sig úr að þessu sinni, þó reyndi
Gústaf Björnsson ævinlega að
byggja upp og komast vel frá sínu.
Einnig lék Rúnar Gíslason
ágætlega.
I stuttu máli,
íslandsmótiá 1. deild, Laugardalsvöll.
aðalleikvangur, 20. ágóst.
Víkinitur — Fram 3.0 (2.0)
Mörk Víkings. Lárus Guðmundsson á 19
minútu. Jóhann Torfason á 45. mínútu ok
Gunnar Örn Kristjánsson a' G8 mínútu.
Áhorfendur. 483.
ÁminninK. RaKnar Gislason. VíkinKÍ.
varði skot Gunnars í horn. Eftir
hornspyrnun barst knötturinn til
Róberts Agnarssonar, sem gaf
fyrir þá vinstri og Óskar Tómas-
son skallaði knöttinn í stöng.
Enn sóttu Víkingar og á 19.
mínútunni tók Gunnar Örn auka-
spyrnu nokkuð fyrir utan teig,
hann sendi knöttinn yfir varnar-
vegg Framara og Guðmundur
Baldursson virtist hafa öll tök á að
ná knettinum. I hálu grasinu
missti Guðmundur boltann þó frá
sér og Lárus Guðmundsson, sem
hafði fylgt vel, náði að skjóta yfir
Guðmund liggjandi í markteign-
um.
Á síðustu mínútu fyrri hálf-
leiksins fengu Víkingar enn auka-
spyrnu og Viðar Elíasson sendi í
átt að markinu. Sigurbergur
Sigsteinsson stökk upp og skallaði
knöttinn frá Guðmundi markverði,
sem hafði öll tök á að grípa
boltann. Knötturinn fór út fyrir
teiginn vinstra megin, þar sem
• Youri Uitchev og varamenn Víkings fylgjast með framvindu mála
í leik Víkings og Fram.
• Skagamenn fanga ögurlega er síðara mark þeirra og jafntefli við
ÍA, er næstur stönginni með nr. 9 á bakinu. Lengst í burtu má sjá Árna
Áhorfenc
er gestirn
EKKI var að sjá annað en að það stefndi í 5ta sigur Keflvíkinga í
röð í 1. deild í leiknum við Akurnesinga í Keflavík á laugardaginn,
því þegar leiktíminn var að renna út var staðan 2—0 fyrir
Keflvíkinga. En-margt getur skeð á einni mínútu í knattspyrnuleik.
Á 90. mín. dæmdi Óli Ólsen vítaspyrnu á Þórð Karlsson, en knötturinn
hoppaði í hendi hans innan vítateigs. Pétur Pctursson tók spyrnuna
og skoraði örugglega og bætti þar með markmetið í 1. deild.
Keflvíkingar tóku miðju, misstu knöttinn til Skagamanna, sem Iéku
upp hægra megin, en Keflvíkingar spyrntu út af. Guðjón Þórðarson
kastaði inn, vel inni vitateiginn, þar sem Jón Alfreðsson vippaði
knettinum áfram fyrir markið til Péturs Péturssonar, sem ekki var
seinn ú sér og skoraði sitt 19. mark í 1. dcildar keppninni og jafnaði
metin við Keflvíkinga, 2—2. Ótrúlegt og nokkuð, sem enginn átti von
á.
Þrátt fyrir þessi úrslit léku
Keflvíkingar sennilega sinn besta
leik á sumrinu. Þeir höfðu frum-
kvæðið mest allan fyrri hálfleik-
inn og börðust vel allan tímann,
sem gerði það að verkum að
Skagamönnum tókst aldrei að
byggja upp ve'rulega hættulegar
sóknarlotur.
í síðari hálfleik tóku Skaga-
menn heldur að hressast og var þá
meira jafnræði með liðunum, en
Mikil hlaup, mikil spörk
en engin mörk f Krikanum
Það var feikilega mikið í húfi, er FH og Þróttur mættust á Kaplakrikavelli um helgina, alger úrslitaleikur um
fallið sögðu sumir, þar sem sigurvegarinn myndi líklega halda sæti sínu í fyrstu deild en sá sigraði detta niður
í aðra deild. En er upp var staðið, var engin breyting á þeirri spennu sem ríkti, vegna þes að liðin skildu jöfn.
Málin verða því að bíða með að skýrast þar til í síðustu umferðum mótsins.
Leikurinn fór fram í mígandi
rigningu lengst af og kom það
allmikið niður á leiknum, þar sem
menn runnu oft metrum saman á
afturendunum. I heildina séð, var
leikurinn eins og veðrið, þ.e.a.s.
leiðinlegur, en þokkalegum leik-
köflum brá af og til fyrir hjá
báðum liðum og bæði fengu þau
færi sem hefðu átt að enda með
mörkum. Leikurinn var annars í
jafnvægi og jafntefli sanngjarnari
úrslit heldur en sigur annars
liðsins.
Þróttarar voru sprækari framan
af og bæði Baldur og Sverrir
Brynjólfsson fengu færi sem ekki
nýttust, áður en að Halldór
Arason fékk það besta eftir að
Benedikt Guðbjartssyni bakverði
höfðu orðið á voðaleg mistök, en
skot Halldórs fór naumlega yfir.
Mínútu síðar, eða á 30. mínútu,
fengu FH-ingar sitt fyrsta tæki-
færi, er Leifur var á auðum sjó
eftir fallega sendingu frá Loga. En
skot Leifs var bæði grútmáttlaust
og ónákvæmt og spratt því Þrótt-
urum ekki sviti. Var leikurinn
síðan í jafnvægi allt þar til leikhlé
rann upp.
FH-ingar sýndu dálítil fjörbrot
í byrjun síðari hálfleiks og þá fékk
Leifur Helgason að því virtist
besta færi FH í leiknum, en
áætluð hælspyrna hans gekk ekki
FH— ÞrótturO:0
Guðmundur
Guðjónsson.
upp og því fór annað gott færi í
ræsið. Síðar í hálfleiknum átti
Logi fyrst gott skot utan af velli
sem Rúnar markvörður varði vel
og síðan fékk Logi boltann skyndi-
lega í mjög góðu færi á 72. mínútu,
en hitti hann illa og knötturinn
silaðist fram hjá markinu. Þrótt-
arar áttu aðeins eina umtalsverða
aðför að marki FH í síðari
hálfleik, er Ulfar Hróarsson bak-
vörður átti þrumuskot langt utan
af velli, en Friðrik varði meistara-
lega.
Leikur þessi var fullkomin
meðalmennska og fáir léku svo vel
að athygli vakti. Hjá FH má þó
nefna þá Friðrik, Ólaf og Gunnar,
en hjá Þrótti bar Halldór Arason
af, auk, þess sem Rúnar gerði enga
vitleysu í markinu. Besti maðurinn
á vellinum var Hreiðar dómari
Jónsson, sem dæmdi erfiðan leik
að mestu óaðfinnanlega.
í STUTTU MÁLL Kaplakrikavöllur 1. doild.
FH — bróttur 0—0
ÁMINNINGARi Liikí Ólafsaun ok Þórir
Jónsson FII skoðuðu Kula spjaldið.
ekki tókst þeim að finna leiðina í
mark Keflvíkinga fyrr en á síðustu
mínútunni, eins og áður hefur
verið lýst.
Steinar Jóhannsson skoraði
bæði mörk Keflvíkinga í þessum
leik og kom það fyrra á 10. mín.
Ólafur Júlíusson, sem var besti
maður IBK í þessum leik, lék upp
með knöttinn hægra megin og á
eina þrjá varnarmenn Skaga-
manna, gaf síðan vel fyrir markið
á Steinar, sem fleygði sér fram og
skoraði fallega með skalla.
Þarna var vörn ÍA gjörsamæega
sundurleikin og gerði Jón Þor-
björnsson ekki tilraun til að verja.
Síðara mark ÍBK kom svo á 55.
mín. og var Steinar þá aftur að
verki. Jón Gunnlaugsson var með
knöttinn á sínum vallarhelmingi
og sótti Steinar að honum. Jón
ætlaði að spyrna knettinum frá, en
á einhvern óskiljanlegan hátt hitti
hann ekki knöttinn og náði Steinar
honum og var nú alveg frír fyrir
innan vörn ÍA.
Lék hann að marki ÍA þar sem
Jón Þorbjörnsson markvörður var
einn til varnar, reyndi hvað hann
gat og hálfvarði skotið, en það
dugði ekki til, því knötturinn fór
í markið. Ódýrt mark.