Morgunblaðið - 22.08.1978, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 1978
25
SIGURLAS MEÐ FERNU
ER ÍBV BURSTAÐI KA
ENN SYRTIR í álinn hjá Akureyrarliðinu KA í 1. deildinni eftir slæmt tap fyrir ÍBV í Eyjum á sunnudaginn.
Eyjamenn náðu sér á hinn bóginn loksins á strik og sýndu sitt rétta andlit. Hjá þeim var baráttan og sigurviljinn
í hávegum og enginn barðist betur en Sigurlás Þorleifsson sem skoraði 4 mörk og lagði upp önnur tvö í 6—2
IBV.
sigri
Leikurinn átti að vera á laugar-
daginn og þá voru bæði liðin mætt
til leiks en í annað skiptið í sumar
sátu dómararnir eftir í höfuðborg-
inni, höfðu ætlað að taka síðustu
vél fyrir leik, en þá var orðið ófært
til Eyja. Fyrr um daginn höfðu
verið flognar þrjár ferðir til Eyja.
Leikmenn KA tóku þann kostinn
að bíða um nóttina í Eyjum, enda
komnir um langan veg, og á
sunnudagsmorgun komust dómar-
arnir út í Eyjar og leikurinn gat
loks hafist.
Er skemmst frá að segja, að ÍBV
hafði töluverða yfirburði í leiknum
og stórsigur þeirra því fyllilega
sanngjarn. KA-menn voru þó
mikið með boltann í leiknum en
sókn þeirra ákaflega bitlaus og því
lítið um tækifæri á þeim bæ. Ekki
er ástæða til þess að tína til öll
markfæri sem til féllu í leiknum
heldur skal nú greint frá marka-
súpunni.
1— 0: (38. mín.) Eftir mikinn
darraðardans í vítateig KA náði
Sigurlás Þorleifsson að skalla
boltann laglega aftur fyrir sig og
yfir Þorberg Atlason sem hugðist
grípa boltann.
2— 0: (43. mín.) Örn Óskarsson
„stal“ boltanum af varnarmanni
KA við miðlínu, lék upp að marki
og var í ágætu færi, en kaus heldur
að gefa á Sigurlás Þorleifsson sem
var í enn betra færi og Sigurlás
renndi boltanum snyrtilega fram-
hjá Þorbergi Atlasyni.
3—0: (52. mín.) Gífurlega langt
útspark Páls Pálmasonar barst
inn á miðjan vallarhelming KA og
þar náði Sigurlás Þorleifsson valdi
yfir boltanum, lék að markinu og
skoraði örugglega.
3— 1: (65. mín.) Elmar Geirsson,
lang frískasti sóknarmaður KA,
einlék upp allan völl og gaf
boltann mjög vel fyrir markið
beint á kollinn á Gunnari Gunn-
arssyni, sem nýlega var kominn
inná sem varamaður, og Gunnar
skallaði laglega framhjá Páli
Pálmasyni.
4— 1: (68. mín.) Eyjamenn voru
strax komnir í sóknina og mikil
þvaga myndaðist í vítateig KA.
Einar Friðþjófsson átti loks skot á
markið, Þorbergur Atlason varði
en missti boltann heldur klaufa-
lega frá sér. Sigurlás Þorleifsson
var snöggur að átta sig, skaust
fram sem elding og renndi boltan-
um í netið.
5— 1: (84. mín.) Enn náði Sigur-
lás löngu útsparki Páls frá marki,
lék auðveldlega á tvo varnarmenn
KA og var kominn í hið ákjósan-
legasta færi en gaf þá á Örn
Óskarsson frænda sinn sem skor-
aði með góðu skoti. Hafði Sigurlás
þar með kvittað fyrir sendingu
Arnar í öðru markinu.
5— 2: (87. mín.) Farið var að
gæta nokkurs kæruleysis í vörn
IBV þegar hér var komið sögu.
Friðfinnur Finnbogason var með
boltann og gat gert við hann hvað
sem vera vildi og hann tók það ráð
að senda vita vonlausa sendingu á
Pál markvörð. Óskar Ingimundar-
son komst auðveldlega á milli og
skoraði annað mark KA.
6— 2: (88. mín.) Ekki líkaði
framherjum ÍBV þetta háttalag
félaga sinna í vörninni og enn var
það Sigurlás sem skapaði mikinn
usla í vítateig KA, frá honum
barst boltinn fyrir fætur Gústafs
Baldvinssonar og Gústaf skoraði
af öryggi.
Áhorfendur í Eyjum héldu því
ánægðir heim, þeirra menn höfðu
loksins sýnt það sem allir vissu að
í þeim byggi. Leikur liðsins var
góður, spil og skiptingar á stórum
köflum til fyrirmyndar. Sigurlás
Þorleifsson átti sannkallaðan stór-
leik að þessu sinni, KA-menn réðu
alls ekkert við hann. Þá átti Örn
Óskarsson mjög góðan leik, en
hann lék nú í framlínunni að nýju.
í vörn ÍBV var Þórður Hallgríms-
son mjög öruggur og fljótur að
átta sig á hlutunum. Annars átti
ÍBV-liðið allt þokkalegan leik.
KA berst nú í bökkum í 1.
deildinni og í þessum leik átti liðið
aldrei möguleika á stigi. Vörnin
var mjög slök og markvarslan
nánast engin að þessu sinni.
Langbesti maður liðsins var
Elmar Geirsson og skapaði hann
ávallt hættu er hann nálgaðist
„..........
• Sigurlás borleiísson átti stór-
leik gegn KA.
mark ÍBV. Því miður fyrir Elmar,
nýtur hann ekki þeirrar aðstoðar
frá samherjum sínum sem hann
þarfnast. Haraldur Haraldsson
var fastur fyrir í vörninni en
spilaði á köflum fullgróflega.
I STUTTl) MÁLI,
Vrstmannaoyjavöllur 20. áKÚst 1978. t.
deild.
ÍBV - KA 6-2 (2-0)
MÖRK (BV, SÍKUrlás Þorloifsson á 38. m(n.,
13. mín.. 52. mín.. ok 68. mín. Örn
Óskarsson á 84. mín. Gústaf Baldvinsson á
88. mín.
MÖRK KA, Gunnar Gunnarsson á 65. mín..
Óskar InKÍmundarson á 87. min.
ÁMINNINGAR, EnKÍn.
ÁHORFENDUR, 256.
Vel heppnað ung-
lingamót HSS
IA vann KA
1:Oíminn-
ingarleiknum
AKURNESINGAR unnu KA 1,0 í minningarleik um Jakob
Jakobsson knattspyrnumann á Akureyri á miðvikudag. bað var
Kristinn Björnsson. sem skoraði eina mark leiksins um miðjan
scinni hálíleikinn. Lið KA átti sízt minna í leiknum og Sigbjörn
Gunnarsson fór t.d. illa að ráði sínu er hann komst einn innfyrir
undir lok leiksins, en Jón borbjörnsson varði frá honum. Bæði
lið spöruðu sig greinilega í leiknum, enda eru mikilvægir leikir
framundan hjá þeim í 1. deildinni um helgina. Hátt í 600 manns
fylgdust með leiknum. sem þó fór fram í leiðindaveðri.
4. UNGLINGAMOT Héraðssam-
bands Strandamanna var haldið
að Sævangi sunnudaginn 13. ágúst
síðastliðinn. Náðist þar nokkuð
góður árangur í nokkrum greinum.
Skulu hér nefnd nokkur dæmi:
Örn Halldórsson Umf. Geisla
sigraði í þremur greinum í flokki
pilta 13—14 ára. Hann hljóp 100 m
á 12.5 sek., stökk 5.02 m í
langstökki og 1.45 m í hástökki, en
sömu hæð stökk einnig Bergþór
Þórisson Geisla.
I flokki stráka 11—12 ára hljóp
Valdimar Bragason Geisla 60 m á
8.9 sek. og stökk 3.74 m í
langstökki.
Linda D. Pétursdóttir Geisla
sigraði í 100 m hlaupi meyja
15—16 ára, hljóp á 14.2 sek. Hún
sigraði einnig í langstökki, stökk
4.34 m. I sama flokki sigraði
Valdís Sigurðard. Umf. Hvöt í
hástökki með 1.30 m. Þá kastaði
Elín Ragnarsdóttir Sundf. Gretti
kúlunni 9.17 m og kringlunni 28.36
m sem er Strandamet í kvenna-
flokki.
í flokki telpna 13—14 ára hljóp
Jóhanna Ragnarsdóttir 100 m á
14.3 sek. Jóhanna er aðeins 13 ára,
hefur litlar sem engar æfingar að
baki og þykir mjög efnileg.
I 60 m hlaupi stelpna 10 ára og
yngri sigraði Fjóla Friðriksdóttir
á 10.2 sek. (Bæði Fjóla og Jóh. eru
í Geisla).
Þess má að lokum geta að
árangur Arnar í 100 m hlaupi og
árangur hans og Bergþórs í
hástökki eru ný Strandamet pilta.
Fleiri Strandamet voru sett á
mótinu þótt eigi sé þeirra getið
hér.
• Áhorfendafjöldinn á finskum
frjálsíþróttamótum ber þess
greinilegust merki hversu vinsæl-
ar frjálsíþróttir eru í Finnlandi.
en Finnar hafa lengstum átt
fræknum frjálsiþróttamönnum á
að skipa.
Á finnska meistaramótið í
frjálsíþróttum sem fram fór um
helgina komu 24.400 áhrofendur.
Fyrsta daginn horfðu 5.700 á.
annan daginn 8.500 manns og á
þriðja og síðasta degi mótsins
greiddu um 10.400 manns að-
gang. Mótið fór fram í Karleby að
þessu sinni. en ekki í Helsinki þar
sem tugir þúsunda fylgjast gjarn-
an með stærri mótum sumarsins.
• Norðurlandamet í sleggjukasti
sá dagsins Ijós á finnska
meistaramótinu í frjálsum íþrótt-
um sem fram fór um helgina.
Hannu Polvi bætti eigið met úr
73.12 metrum í 73,84 metra.
Metið kom í fimmtu umferð
kcppninnar.
• Antti Kallimaeki frá Finn-
landi setti nýtt met í
stangarstökki í heimalandi sínu,
er hann vippaði sér yfir 5.58
metra. Þetta
landamet.
er einnig Norður-
Góður árangur
FIMMTI flokkur ÍA í knattspyrnu, íslandsmeistarar sfðasta árs, fóru
nýlcga til Svíþjóðar til þátttöku í alþjóðlegu unglingamóti. sem haldið
var í Gautaborg dagana 16.—21. júlí. Lið frá 20 þjóðum og fjórum
heimsálfum tóku þátt f mótinu. alls um 7000 einstaklingar, bæði
strákar og stelpur.
67 lið voru í þeim aldursflokki,
sem ÍA keppti í og var árangur
Skagamanna góður, en liðið hafn-
aði í 5.-8. sæti. Fyrirkomulag
keppninnar var þannig að fyrst
var liðunum skipt í 5 riðla og tvö
efstu liðin úr hverjum riðli héldu
áfram i lokakeppnina, sem var
útsláttarkeppni. IA vann sinn riðil
og í lokakeppninni unnu þeir
v-þýzkt og sænskt lið með yfir-
burðum, en biðu síðan lægri hlut
í leik við Frankfurt. Þjóðverjarnir
unnu 1:0 í leik þar sem þeir áttu
varla meira en tvö umtalsverð
marktækifæri, en Skagamenn lágu
í sókn allan tímann.
Skagastrákarnir vöktu mikla
athygli fyrir leik sinn. í úrslitaleik
keppninnar sigraði skozka liðið
Hutchinsons Vale mexikanska
liðið Pumitas með 2:0.
Fara Isfirðingar
upp í 1. deildina?
ísfirðingar stigu mikilvægt skref í átt að sæti í 1. deild er lið þeirra
vann Ármann 3,0 á ísafirði á laugardaginn. ísfirðingar réðu gangi
mála allan leikinn og mörk þeirra hefðu hæglega getað orðið fleiri.
Ármenningar eru algjörlega heillum horfnir og nú blasir fall niður
í 3ju deild við liðinu. Til mars um yfirburði ÍBÍ í leiknum á laugardag
má nefna að markvörður ÍBÍ þurfti aðeins einu sinni í leiknum að
leggja sig fram í markvörzlunni.
Strax á 4. mínútu leiksins
skoraði Kristinn Kristjánsson gott
mark með skoti af 20 metra færi.
Fleiri urðu mörkin ekki í fyrri
hálfleik þó ÍBÍ hefði sterkan vind
með sér, en í byrjun seinni
hálfleiksins gerðu bræðurnir Jón
og Örnólfur Oddssynir út um
leikinn. Á 5. mínútu hálfleiksins
stakk Jón varnarmenn Ármanns
af og skoraði gott mark. Fjórum
mínútum síðar var Jón enn á
ferðinni, hljóp vörn Ármanns enn
af sér upp kantinn og renndi síðan
út á Örnólf bróður sinn, sem
skoraði með viðstöðulausu skoti.
Fleiri mörk voru ekki skoruð í
leiknum og ekki er hægt að segja
að lánið hafi leikið við ísfirðinga.
T.d. átti Ómar Torfason tvo skalla
í rammann í leiknum og einnig
gott skot, sem bjargað var á
marklínu. Ómar styrkir lið ÍBÍ
mikið, en hann kom að nýju í liðið
eftir Grikklandsferðina. í heild
áttu ísfirðingar góðan dag, en
Ármenningarnir voru flestir slak-
ir.