Morgunblaðið - 22.08.1978, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 22.08.1978, Blaðsíða 36
au<;lVsin<;asíminn ek.- 22480 |H»r0iinbl«bit> Verzlið i aérverzlun með litmjónvörp og hljómtaeki? l^BÚOIN SkiphoÍTTÍ9, sími 29800 ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 1978 Verður forsæt- isráðherrastóll- inn helzti ásteyt- ingarsteinninn? ENDA þótt skipan manna í ráðuneytin sé lítið sem ekkert komin á dagskrá í vinstri viðræðunum, sem nú standa yfir, er þó Ijóst að helzti ásteytingarsteinn- inn í þessum efnum kemur til með að verða sá hver skuli fara með forsætisráð- herraembættið í þeirri stjórn sem út úr viðræð- unum kann að koma. Eftir því sem Mbl. hefur fregnað er mjög ákveðin andstaða gegn því innan þingflokks Alþýðuflokksins að Lúðvík Jósepsson verði forsætisráðherra og gefa Alþýðuflokksmenn í skyn að þeir muni fremur sætta sig við Ólaf Jóhannesson í foj-sætið, þar sem þeir sjálf- ir eigi ekki von á því jað Alþýðubandalagið muni láta Alþýðuflokki eftir þetta sæti. Mjög skiptar skoðanir eru um þetta atriði innan Framsóknarflokksins og jafnvel gert ráð fyrir að þingflokkurinnn mundi klofna í tvær fylkingar um málið, en þó er látið að því liggja að líklega muni framsóknarmenn fremur fallast á Lúðvík sem forsæt- isráðherra en að láta við- ræðurnar springa á því eina atriði. Innan Alþýðubanda- lagsins eru þær raddir einnig orðnar háværari, sem telja að Lúðvík eigi ekki að gefa forsætisráð- herrastólinn eftir. Ljósm. Mhl.: Krístján. Eins og sagt hefur verið frá þá fórst þrennt þegar þessum Bronco jeppa hvolfdi í Krossá aðfaranótt laugardagsins. Jeppinn fór mjög illa í ánni og er talinn að mestu ónýtur. Sjá bls. 28. Samkomulag að nást um lausn átta milljarða efnahagsdæmis Hátekjuskattur, eignaskattsviðauki og veltuskattur meðal tekjuöflunarleiða FLOKKARNIR þrír, Alþýðu- bandalag, Alþýðuflokkur og Fram- sóknarflokkur, sem nú standa í stjórnarmyndunarviðræðum undir forystu Lúðvíks Jósepssonar urðu í gær sammála um ákveðið efna- hagsdæmi, sem lagt var fyrir Bóndinn á Deildará talinn hafa drukknað Skipulagðri leit hefur verið hætt Flókalundi, 21. ágúst. HÆTT hefur verið umfangsmik- illi leit í Breiðafjarðareyjum að öldruðum bónda, Jóni G. Jóns- syni, Deildará á Múlanesi, V-Barðastrandarsýslu, en bátur hans fannst hálffullur af sjó við Ileiðnarey í gærkvöld og í dag fann kafari fatnað af Jóni á svipuðum slóðum. Nánari tildrög voru þau, að í gær, sunnudag, ætlaði piltur frá Patreksfirði að heimsækja Jón til að fá lánað hjá honum dekk en Jón er einbúi á Deildará. Var Jón þá ekki heima en jeppi hans niðri í í'jöru og trillubátur hans horfinn úr fjöru. Þegar piltur spurðist nánar fyrir um Jón á bænum Firði minntist fólk þess þar að bíllinn hefði líka verið í fjörunni daginn áður. Var þá haft samband við Björgunarsveit Patreksfjarðar og SVFI og leit hafin úr lofti, landi og af sjó, þar sem m.a. fjórir froskmenn aðstoðuðu. Seint í gærkvöldi fannst báturinn eins og fyrr getur og einnig ýmis fatnaður, svo sem stígvél og úlpa Jóns. Við frekari leit í gær fann froskmaður síðan buxur af Jóni og var leit þá hætt að öðru leyti en því að eitthvað verður reynt að kafa áfram við Heiðnarey. Deildará er einn fimm bæja á Múlanesi, og eru þeir nýlega komnir í eyði en jarðeigendur eru þar þó flestir á sumrin til að sinna landnytjum, svo sem sel, dúni, fugli og fiski. Jón hafði þó áformað að vera áfram á Nesi í vetur. - Páll. Þjóðhagsstofnun til útreikninga. Á grundvelli þeirra útreikninga mun svo í dag verða tekin ákvörð- un um hvort tilgangur sé í frekari viðræðum flokkanna eða ekki. Enda þótt flokkarnir séu f meginatriðum sammála um „út- viði“ efnahagsdæmisins er nokkur meiningarmunur varðandi einstök atriði tekjuöflunarhliðarinnar, sem mun vera upp á 8 milljarða króna fram til áramóta. Þessi meiningarmunur er þó fremur stigsmunur en eðlismunur þvf f lokkarnir eru sammála um að afla tekna með sérstökum hátekju- skatti, eignarskattsviðauka, auk- inni skattlagningu á fyrirtæki f formi veltuskatts og aukinna neyzluskatta, einnig með sparnaði f ríkisrekstri. Flokkarnir eru sammála um 15% gengisfellingu og að áhrif hennar verði greidd niður. í stað 10% niðurfærslu vcrðlags 1. september er nú rætt um 8% þá og 4% 1. desember og einnig munu flokkarnir á þvf að heppiíegra sé að haga lækkun söluskatts misjafnt eftir vöruteg- undum í stað sömu lækkunar yfir alla lfnuna. Þá er ætlunin að setja á stranga verðstöðvun. Ekki er útrætt með hverjum hætti verður farið að gagnvart launamálum, en Ólafur Jóhannes- son formaður Framsóknarflokksins sagði í samtali við Mbl. í gær, að framsóknarmenn gætu fallizt á „nokkra kauphækkun á lægri laun upp að ákveðnu marki" en þetta mark sagði Ólafur ekki ákveðið þá. Ólafur sagði það sitt mat á stöðunni í gær að flokkarnir þrír ættu að geta komið sér saman „ef ekki eitthvað óvænt kemur upp á“ en benti á að fjölmörg atriði væru enn ófrágengin. Einn af forystu- mönnum Alþýðuflokksins sagði, að enda þótt segja mætti að beinagrind efnahagsmálanna til áramóta lægi fyrir, þá væri ekkert farið að ræða, hvað taka á við á næsta ári né heldur aðra flokka en efnahagsmál- in og því gæti ýmislegt gerzt ennþá. Hvað sem því líður er Lúðvík Jósepsson staðráðinn í að láta draga til úrslita í dag og sagði hann í gær, að ef hann mæti stöðuna neikvæða eftir daginn í dag myndi hann slíta viðræðunum og skila af sér stjórnarmyndunarumboði til forseta Islands. Kanadamenn ógna salt- sfldarmörkuðum okkar Óvíst hvenær reknetaveidar hef jast í haust KANADAMENN ógna nú síldar- mörkuðum íslendinga f Evrópu, en þeir bjóða nú saltsíld á miklu lægra verði en íslendingar geta boðið, að því er Morgunblaðinu hefur verið tjáð. Það scm fyrst og fremst veldur þessu, er að bæði borga Kanadamenn miklu minna fyrir sfldina upp úr sjó og ennfremur er verkunarkostnaður þar í landi mun lægri en á Islandi. Þá hefur verðbólgan mikið að segja f þessu máli og t.d. er talið að verkunarkostnaðurinn hafi hækkað á íslandi um ca 85% frá sfðustu vertfð, og er þá ckki gcrt ráð fyrir hækkuðu verði til sjómanna og útgerðarmanna. Þá er nú alveg óvíst hvenær síldveiðar reknetabáta geta hafizt, þar sem síldin er mjög horuð enn. Þau síldarsýni, sem tekin hafa verið, sýna aðeins 9—10% búkfitu, en til þess að hægt sé að hefja söltun á síld, má fitan helzt ekki vera undir 14—15% Á meðan síldin hefur ekki nálgazt þetta fitumark, er talið vonlaust að hefja síldveiðar, en gert var ráð fyrir að reknetabátar hæfu veiðar kringum 25. ágúst. Stalbflí Reykjavík - Faldihann íÖlfusá... Á LAUGARDAG var lögregl- unni á Selfossi tilkvnnt að jeppabifreið væri í Olfusá, á móts við cnda flugbrautarinn- ar á Selfossi og flæddi yfir dekk bílsins og inn á gólf í honum. Við rannsókn málsins kom f ljós að jeppanum hafði þá um nóttina verið stolið í Reykjavík. Var þar að verki ungur Selfyssingur, sem eitt- hvað hafði verið að skemmta sér í höfuðborginni og þurfti að komast heim. Tók hann jeppann trausta- taki og ók honum austur yfir fja.ll. Þegar þangað kom ætlaði hann að fela hann undir háum bakka í Ölfusá fyrir neðan Selfoss en þurfti að krækja fyrir girðingu sem lá út í Ölfusá. Þegar hann var kominn út fyrir girðinguna drap jepp- inn á sér og sá ökumaðurinn sér þann kost vænstan að vaða í land. Fór hann þá heim og lagðist til svefns. Seinna um daginn var hann vakinn af lögreglunni og viðurkenndi þá verknaðinn og hafði hann verið nokkuð við skál um nóttina. Situr hann enn inni en bíllinn náðist upp og var ekið til Reykjavíkur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.