Morgunblaðið - 22.08.1978, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 22.08.1978, Blaðsíða 38
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 1978 ORUGGUR BIKARSIGUR ÍR í 7. SKIPT1 í RÖÐ ÍR-INGAR sigruðu glæsilega í 1. deildar keppni bikarkeppni, Frjálsíþróttasambands íslands sem lauk á Laugardalsvellinum á sunnudag. Sigruðu ÍR-ingar í sameiginlegri keppni karla og kvennav Þá sigruðu þeir einnig í karlakeppninni, en Armann í kvennakeppninni. Sigur ÍR var fyrst og fremst fólginn j því að þeir höfðu nokkuð vel þjálfað afreksfólk í nær allar greinar. En mörg hinna félaganna áttu. mjög misjöfnu liði á að skipa. Það varð hlutskipti HSK að falla niður í 2. deild, og var því dvöl þeirra í 1. deild skammgóður vermir, aðeins eitt ár. Þeir sigruðu í 2. deild í fyrra og falla strax niður aftur. Mikið vantar á að sú mikla gróska sem verið hefur hjá HSK í frjálsum íþróttum sé nú fyrir hendi, hverju svo sem það er nú að kenna. Einkenni þessa móts var fyrst og fremst sú mikla stigabarátta sem var á milli félaganna, og var greinilegt að íþróttafólkið lagði meiri áherslu á að ná í stig og hagstæð sæti en að vinna góð afrek. Þá var mjög mikið álag á sumum keppendum, sem þurftu bókstaflega að hlaupa milli greina. Þrátt fyrir þetta náðist ágætur árangur í mörgum greinum, og í heildina var mótið nokkuð líflegt. Sennilega ber fyrst að nefna kringlukast Oskars Jakobssonar sem kastaði 61.81 metra, og var mjög öruggur í öllum köstum sínum. Hreinn Halldórsson náði sér ekki almennilega á strik í kúluvarpinu, fékk hann einhverja illsku í bakið strax í fyrsta kasti og gat ekki beitt sér sem skyldi. Vilmundur Vilhjálmsson KR vann einnig góð afrek á þessu móti en hann hafði svo sannarlega í mörg horn að líta. Hann vann öruggan sigur í 100, 200 og 400 jnetra hlaupum auk þess sem hann tryggði boðhlaupssveitum KR sig- _ ur bæði í 4x100 og 1000 metra boðhlaupunum. Tími Vilmundar í 200 var 21,5 sek., gott afrek með öllu því álagi sem á honum var. í kvennaflokknum bar mest á Láru Sveinsdóttur Ármanni, og stóð hún svo sannarlega fyrir sínu í keppninni. Keppti Lára í fimm greinum og þar af sigraði hún í fjórum, 100 m, 200 m, 100 m grinda- og langstökki, hún varð svo þriðja í hástökki og svo var hún í sigursveit Ármanns í 4x100 metra boðhlaupi. Sannarlega vel af sér vikið hjá Láru. Elías Sveinsson KR sigraði í þrem greinum, spjótkasti, há- stökki og stöng, þá var hann í boðhlaupssveitum KR. Skemmtilegustu keppnisgrein- arnar á mótinu voru sennilega boðhlaupin. Sveit KR sigraði bæði í 4x100 m og 1000 m boðhlaupun- um og hljóp mjög vel. Athyglisvert er hve sveitin náði góðum tíma þegar að er gáð að í henni voru menn sem æfa ekki neitt eins og Bjarni Stefánsson, sem keppti nú eftir langa hvíld æfingalaus og • Valbjiirn Þorláksson. KR. er enn sprettharður og í 1000 metra hoðhlaupinu náði KR mjög góðum tíma. (Ljósm. Kristinn). Valbjörn Þorláksson sem alltaf virðist jafnléttur og frískur. Með þeim í sveitinni voru svo Vilmund- ur og Elías Sveinsson. Tími þeirra í 1000 metra boðhlaupinu var aðeins 1,5 sek. frá Islandsmetinu sem sveit Ármanns setti árið 1951. Ekki síður var tími þeirra í 4x100 góður eða 43,3. Var alveg undar- legt að sjá hve Bjarni hljóp 400 metra sprettinn vel í 1000 metra boðhlaupinu alveg óæfður. Lilja Guðmundsdóttir kom gagngert heim frá Svíþjóð til að taka þátt í keppninni og sigraði hún örugglega í 800 og 1500 m hlaupunum. Sem fyrr greinir sigruðu ÍR-ing- ar samanlagt í stigakeppninni hlutu 147 stig, í öðru sæti var Ármann með 128 stig, UMSK í þriðja með 114 stig, KR í fjórða með 98 stig, FH í fimmta með 89 stig og HSK rak lestina og féll niður með 71 stig. í karlakeppninni hlaut ÍR 90 stig og höfðu að merja KR sem kom í öðru sæti með 85 stig, Ármann varð í þriðja með 66, UMSK með 65, FH með 53 og HSK með 38 stig. í kvennakeppninni hlutu Ár- manns-stúlkurnar flest stig og sigruðu með 62 stigum, ÍR-stúlk- urnar höfnuðu í öðru sæti með 57 stig, UMSK í þriðja með 50, FH fékk 35 stig, HSK fékk 33 stig og KR-stúlkurnar fengu aðeins 13 stig. Veður var gott báða dagana sem keppt var, og gekk mótið vel fyrir sig og var skemmtilegt, gagnstætt því sem oft vill verða er tafir gera frjálsíþróttamótin dauf og leiðin- leg. - ÞR. ÚRSLIT í EINSTÖKIJ GREIN- UM BIKARKEPPNINNAR. FYRRI DAGUR. 400 METRA GRINDAIILAUP. Þráinn HaLsteinsson Á sek. 55.6 Trausti Sveinbjörnss. UMSK 58.4 Gunnar P. Jóakimss. ÍR 61.5 HÁSTÖKK KVENNA. m Þórdis Gísladóttir ÍR 1,68 (ris Jónsdóttir UMSK 1,68 Lára Sveinsdóttir Á 1,55 SPJÓTKAST KVENNA. m Björk Eiríksd. ÍR 31.90 Ása Halidórsd. Á 31.08 Anna Alíreðsd. HSK 29,74 LANGSTÖKK KARLA, m Friðrik Þór Óskarss. (R 6,99 Sigurður Siifurðss. Á 6.98 Janus GuðlauKsson FH 6.71 KÚLUVARP KARLA. m Ilreinn Ilalldórsson KR 19,37 Óskar Jakobsson ÍR 17,34 Valdimar Gunnarsson FH 13,93 200 M HLAUP KARLA. sek. Vilmundur Vilhj&lmss. 21,5 SÍKurður SÍKurðss. Á 22.0 Guðiaugur Þorsteinss. (R 22,4 100 M HLAUP KVENNA. sek. Lára Sveinsd. Á 11.9 Ásta B. Gunnlauusd. UMSK 12,3 Rut Ólafsdóttir FII 12.6 3000 M HINDRUNAR- IILAUP KARLA. mfn. SÍKfús Jónsson lR 9.43,3 SÍKurður P. SÍKm.ss. FH 10.12,6 Gunnar Snorrason UMSK 10.55,7 SPJÓTKAST KARLA. Elfas Sveinsson KR Ilreinn Jónasson UMSK Snorri Jóelsson IIÁSTÖKK KARLA. Elfas Sveinsson KR Karl West Fredrikss. UMSK Stefán Stefánsson ÍR KÚLUVARP KVENNA. Ása Halldórsd. Á Hulda Ilalldórsd. ÍR Katrfn Vilhjálmsd. HSK 100 M HLAUP KVENNA, SÍKurborK Guðmundsd. Á Lilja Guðmundsd. ÍR Ruth Ólafsdóttir FH 1500M HLAUP KVENNA, Lilja Guðmundsd. (R Guðrún Árnadóttir FH Thelma Björnsd. UMSK 800 M HLAUP KARLA, ÁKÚst ÁsKeirsson ÍR Einar P. Guömundss. FH Bjarki Bjarnason UMSK SLEGGJUKAST. Erlendur Valdimarss. ÍR Óskar SÍKurpálss. Þórður B. SÍKurðss. KR 4x100 M BOÐHLAUP KVENNA, Sveit Ármanns Sveit UMSK Svcit ÍR 4x100 M BOÐHLAUP KARLA, Sveit KR Sveit Ármanns Sveit UMSK SEINNI DAGUR, 100 M GRINDAIILAUP KVENNA, Lára Sveinsdóttir Á • Lilja Guðmundsdóttir kom frá Svíþjóð til þátttöku í bikarkeppn- inni og náði í mörg stig fyrir IR. íris Jónsdóttir UMSK InKÍbjörK (varsd. STANGARSTÖKK, Elfas Sveinsson KR Karl West Fredrikss. EKKert Guðmundss. HSK KRINGLUKAST KARLA, Óskar Jakobsson (R Guðni Halldórsson KR Þráinn Hafsteinss. Á ÞRÍSTÖKK KARLA, Friðrik Þór Óskarss. ÍR IleÍKÍ Hauksson Jason (varss. HSK 110 M GRINDAIILAUP KARLA. Elfas Sveinsson KR Jón Þórðarson ÍR Þráinn Hafsteinss. Á 16.4 17.3 m 4.00 3,90 3.80 m 61.81 48,00 44.32 m 14.82 13,55 13.36 sek. 14.9 15,7 15.9 • Þórdís Gísladóttir 1 hástökkinu. 63.98 1500 M HLAUP KARLA, 60.12 Hafsteinn Óskarss. ÍR 4.00.9 59,88 Sigurður P. Sigm.ss. FH 4.19.9 Bjarki Bjarnason UMSK 4.23,2 1.96 100 M HLAUP KARLA, sek. 1.90 Vilmundur Vilhjálmss. KR 10.7 1,90 SÍKurður SÍKurðss. Á 10.8 Guðlaugur Þorsteinss. ÍR 11,1 11,35 800 M HLAUP KVENNA, mín. 10,82 Lilja Guðmundsd. ÍR 2.11.6 10.81 Sigrún Sveinsdóttir Á 2.19,7 Thelma Björnsd. UMSK 2.20.7 sek. 57.1 KRINGLUKAST KVENNA, m 59,9 Ilulda Halldórsd. 35.29 60.4 SÍRurborK Guðmundsd. Á 30.24 íris Jónsdóttir 28.15 mín. 4.54.1 400 M HLAUP KARLA, sek. 4.59,7 Vilmundur Vilhjálmss. 50.0 4.59.8 Sigurður Sigurðss. Á 50.7 Ágúst Ásgeirsson ÍR 51.6 mín. 1.59.5 LANGSTÖKK KVENNA. m 2.03,2 Lára Sveinsdóttir Á 5.42 2.07,5 Ásta B. Gunnlaugsd. UMSK 5.22 Bryndís Hólm ÍR 5.02 56.20 5000 M HLAUP KARLA, mín. 48.08 Sigfús Jónsson ÍR 15.38.9 42,00 Ilalldór Matthfass. KR 16.46,2 Gunnar Snorras. UMSK 16.51.8 sek. 49.4 200 M HLAUP KVENNA, sek. 51.9 Lára Sveinsdóttir Á 25.4 52,3 Ruth Ólafsdóttir FH 26.0 Kristín Jónsd. UMSK 26.4 sek. 43,3 HMM) METRA 43.7 BOÐHLAUP KAIn.A, mín. 45,2 KR 1.58,8 ÍR 2.00.8 Á 2.02.3 sek. 14.1 ÞR Kenndi ýmissa grasa í bikarkeppni FRÍ NÚ eins og áður var hin mikla stigabarátta félaganna aðaleinkenni bikarkeppni FRÍ, sem að sjálfsögðu er ekki óeðlilegt. Hins vegar vill það brenna við að félögin hafi allar klær úti um að ná sér í menn til að keppa. Og kenndi ýmissa grasa í keppninni að þessu sinni. Margir landskunnir íþrótta- menn voru komnir í gaddaskó. Jón Sigurðsson körfuknatt- leiksmaður kcppti í þrístökki, knattspyrnumaðurinn snjaili Janus Guðiaugsson ták þátt í landstökki og náði ágætum árangri. óskar Sigurpálsson lyftingamaður keppti í sleggju- kasti, Stefán Örn Sigurðsson knattspyrnumaður ór KR keppti fyrir Ármann í iang- hlaupum. skíðamcnnirnir Hail- dór Matthíasson og Haukur Sveinsson létu til sín taka í langhlaupunum og tryggði Ilalldór sér óvænt annað sætið í 5000 metra hlaupinu. Ýmsir sem gert höíðu garð- inn írægan hér áður fyrr í frjálsum lögðu félögum sínum lið með því að draga fram gaddaskóna. Júdókappinn Halldór Guðbjörnsson hljóp 800 metra, Þórður B. Sigurðs- Non var enn einu sinni mættur til keppni í sleggjukasti, Bjarni Stefánsson virtist engu hafa gleymt og hljóp óvcnju vel af óþjálfuðum manni að vera. Borgþór Magnússon KR var líka mættur og stökk þrístökk, Kjartan Guðjónsson FH keppti í 110 m grindahlaupi og spjót- kasti, og svona mætti halda áfram. Það er þó ekki til fyrirmynd- ar að sjá algerlega óþjálfað fólk meðal keppenda Og er það umhugsunarefni fyrir FRÍ, hvort ekki ætti að setja reglur um ákveðinn lágmarksárangur í hverrí grein til þess að hún gefi félögunum stig í keppn- inni. — ÞR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.