Morgunblaðið - 22.08.1978, Side 44
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 1978
ÞRENNA
INGA Bl
Á AÐEINS sjö mínútum tókst Injfa Birni Albertssyni að skora þrjú
mörk í leik Vals og Breiðabliks á lauffardag í 1. deildinni og snúa
leiknum Val í hag. I fyrsta skipti í sumar voru Valsmenn undir í leik
og það í heilar 36 mínútur. Botnlið deildarinnar Breiðablik kom þeim
i opna skjöidu með því að skora mark strax á annarri mínútu og leika
eins og þeir sem valdið hafa fyrstu 15 mínútur leiksins. En þá fór
að koma i Ijós festa og reynsla Valsmanna, smátt og smátt náðu þeir
yfirtökum og gerðu út um leikinn á sjö minútna kafla er þeir náðu
að skora þrjú mörk. Eftir það áttu Breiðabliksmenn sér ekki
viðreisnar von þrátt fyrir hctjulega baráttu.
Það var auðséð að Breiðabliks-
menn komu til leiksins ákveðnir í
að selja sig dýrt. Þeir hófu leikinn
af miklum krafti og komu Vals-
vörninni í opna skjöldu strax í
byrjun. Þeir áttu hörkuskot yfir
þverslá og mínútu síðar höfðu þeir
skorað glæsilegt mark og náð
forystu.
Eftir góða sóknarlotu hjá Blik-
unum, hrökk knötturinn út í
vítateigshornið vinstra megin, og
þar var Sveinn Ottósson vel
staðsettur og var hann ekkert að
tvínóna við hlutina heldur skaut
þrumuskoti, sem þandi út net-
möskvana óverjandi fyrir hinn
snjalla markvörð Vals Sigurð
Haraldsson. Voru þetta mistök í
vörn Vals, þeim hefði ekki átt að
vera skotaskuld að vera búnir að
hreinsa frá markinu. Við þetta
mark sló þögn á hina dyggu
aðdáendur Vals, og var sem
leikmenn litu hvor á annan með
spurningarsvip, ætlaði sama sagan
og í fyrra virkilega að endurtaka
sig. Að missa Islandsmeistaratitil-
inn út úr höndunum í síðustu
leikjum mótsins.
En greinilegt var er líða tók á
leikinn að slíkt var ekki í huga
þeirra. Þeir börðust af miklum
krafti, staðráðnir í að sigra.
Breiijabliksmenn sýndu enga
minnimáttarkennd í byrjun og
léku vel, áttu þeir laglega leik-
kafla, og vörn þeirra var vel á
verði. Valsmenn voru hinsvegar
seinir í gang, en þegar líða tók á
fyrri hálfleikinn fóru þeir að
braggast.
Fyrsta hættulega marktækifæri
þeirra kom á 17. mín er Ingi Björn
fær góða sendingu fyrir markið en
skallar beint á markvörðinn.
Skömmu síðar á Ingi hörkuskot
rétt yfir.
Það er svo ekki fyrr en á 36.
mínútu sem Valur jafnar. Átti
milMUWIIIhlH
Valur UBK 4:2
Tcxtii Þórarinn Ragnarsson
Myndi Ragnar Axelsspn
Guðmundur Þorbjörnsson heiður-
inn af því. Hann náði knettinum
af mótherja, brunaði upp kantinn
og sendi vel inn í vítateiginn á
Inga sem var í dauðafæri, þrumu-
skot Inga stefndi í netið, en á
síðustu stundu tókst einum af
varnarmönnum UBK að slá knött-
inn yfir þverslá með hendinni.
Góður dómari leiksins Eysteinn
Guðmundsson dæmdi samstundis
vítaspyrnu og úr henni skoraði
Ingi Björn af öryggi. Sveinn
markvörður flaug í vitlaust horn.
Valsmenn höfðu jafnað og voru
komnir á bragðið. Og það munaði
ekki um það. Aðeins tveimur
mínútum síðar er mikil pressa á
mark Blikana, og af stuttu færi á
Ingi hörkuskot á markið. Var að
sjá að knötturinn stefndi yfir, en
hann fór í bakið á Einari Þórhalls-
syni, breytti stefnu og fór í
markið.
Fimm mínútum síðar á 43.
mínútu (markamínútunni) verður
einum varnarmanni Blikanna á
hræðileg mistök er honum mis-
tekst að hreinsa frá, missir
knöttinn inn fyrir sig og Ingi
Björn er enn á ferðinni, nær
knettinum og brunar upp á auðum
sjó, leikur á markvörðinn og
rennir knettinum í netið. Þrjú
mörk gegn einu. Á aðeins sjö
mínútum skora Valsmenn þrjú
mörk. Þrenna hjá Inga Birni,
glæsilegt framlag.
Það var fljótt að skipast veður
í lofti. Þeir voru óhressir á svipin
• Sveinn Skúlason hefur hér betur í viðureign við sóknarmenn Vals, en Ingi Björn Albertsson er ekki
langt undan.
A sjö mínútum skoraði hann þrjú mörk
og gerði vonir líflegra Blika að engu
Breiðabliksmenn er þeir gengu til
búningsklefa sinna í hálfleik.
Blikarnir voru samt ekki alveg
dauðir úr öllum æðum. Þeir hefja
síðari hálfleikinn af sama krafti
og þann fyrri. Og á 50. mín á
fyrirliði þeirra Þór Hreiðarsson
gott tækifæri er hann kemst í gegn
en mistekst og skot hans fer rétt
utan við stöng. Á 53. mínútu er
Þór í miklum ham; hann einleikur
upp miðju vallarins á mikilli ferð,
og á vítateig Vals lætur hánn
þrumufleyg ríða af og skorar
glæsilegt mark. Hafnaði knöttur-
inn vel út við stöngina niðri.
Breiðablik var aftur komið inn í
leikinn.
Börðust þeir vel og léku vel
saman og veittu Val verðuga
mótspyrnu. Á 58. mínútu á Sigur-
jón Rannversson gott skot sem
Sigurði Haraldssyni rétt tekst að
verja í horn. En sama sagan
skeður og í fyrri hálfleiknum,
Valsmenn taka öll völd og sækja
ákaft. Tvisvar á Albert Guð-
mundsson góð tækifæri á að skora
en mistekst í þeim báðum. Reynd-
ar bjargaði Sveinn með meistara-
legri markvörslu síðara skoti hans.
Valsmenn eiga fjölda tækifæra, en
það er ekki fyrr en á lokamínútu
leiksins sem Atli skorar eftir góða
fyrirgjöf frá Guðmundi Þorbjörns-
syni, og innsiglar sigurinn. Svo
mikill kraftur var í skoti Atla að
skórinn þeyttist á eftir boltanum
og fór hátt yfir markið en boltinn
fór hinsvegar rétta leið.
Sigur Vals var sanngjarn, þeir
léku vel og voru staðráðnir í að
sigra. Erfitt er að gera upp á milli
manna í liðinu, þó á Ingi Björn
hrós skilið fyrir að koma inn eftir
hvíld sem hann varð að taka vegna
meiðsla og sýna góðan leik og
skora þrjú mörk. Tengiliðir Vals
léku vel, voru sívinnandi og hlífðu
sér hvergi. ‘
Bestu menn í liði UBK voru Þór
Hreiðarsson sem var allt í öllu hjá
liði sínu og Sveinn Skúlason
markvörður.
í STUTTM MÁLli
LauKardalsvöllur 19. áKÚst íslandsmótið 1.
defild.
VALUR-UBK 4-2. (3-1).
MÖRK VALS: Ingi Björn Albertsson á 36.
mín, 38. mín og 43. mín.
MÖRK UBK: Sveinn Ottósson á 2. mín og Þór
Hreiðarsson á 53. mín.
Áminning: Sveinn Skúlason gula spjaldid.
Áhorfendur: 1256.
v..#'
» %
v.#'
•'
V
Lið Valsi
Sigurður Ilaraldsson
Grímur Sæmundsson
Guðmundur Kjartansson
Ilörður Hilmarsson
Dýri Guðmundsson
Sævar Jónsson
Ingi Björn Albertsson
Atli Eðvaldsson
Albert Guðmundsson
Guðmundur Þorbjörnsson
Jón Einarsson
Lið UBK.
Sveinn Skúlason 3
Gunnlaugur Helgason 1
Helgi Helgason 2
Benedikt Guðmundsson 3
Einar Þórhallsson 2
Ólaíur Friðriksson 2
Vignir Baldursson 2
Þór Hreiðarsson 3
Valdimar Valdimarsson 1
Sigurjón Rannvcrsson 2
Svein Ottósson 2
Hciðar Breiðfjörð vm 2
Birgir Teitsson 2
Dómarii Eystcinn
Guðmundsson 3
Elnkunnagjöfln
VÍKINGUR.
Diðrik Ólafsson 2
Ragnar Gíslason 2
Magnús Þorvaldsson 2
Gunnar Örn Kristjánsson 3
Róbert Agnarsson 3
Ileimir Karlsson 3
Viðar Elíasson 2
Helgi Ifelgason vm 1
Jóhann Torfason 3
óskar Tómasson 2
Lárus Guðmundsson 3
Jóhannes Bárðarson 3
FRAM.
Guðmundur Baldursson 2
Gústaf Björnsson 3
Rafn Rafnsson vm. 2
Gunnar Guðmundsson 2
Kristinn Atlason 2
Sigurbergur Sigsteinsson 1
Trausti Haraldsson 2
Pétur Ormslev 1
Ásgcir Elíasson 2
Guðmundur Stéinsson 1
Rúnar Gíslason 2
Knútur Kristinsson vm 2
Guðmundur Ilafberg 1
Dómarii Arnþór Óskarsson 3
FII.
Friðrik Jónsson 3
Jón Ilinriksson 2
Benedikt Guðbjartsson 1
Gunnar Bjarnason 3
Janus Guðlaugsson 2
Logi Óiafsson 2
Viðar Ilalldórsson 2
ólafur Danivalsson 3
Leifur Helgason 1
Pálmi Jónsson 1
Þórir Jónsson vm 2
Guðjón Guðmundsson vm 1
ÞRÓTTUR.
Rúnar Sverrisson 3
Guðmundur Gslason 2
Úlfar Hróarsson 2
Jóhann Ilreiðarsson 2
Sverrir Einarsson 2
Baldur Ilannesson 2
Ilalldór Arason 3
Árni Valgeirsson 1
Svcrrir Brynjólfsson 1
Ágúst Hauksson 2
Þorgeir Þorgeirsson 1
Þorvaldur Þorvaldsson vm 2
Daði Ilarðarson vm 1
Dómari. Hreiðar Jónsson 4
ÍBV.
Páll Pálmason 2
Guðmundur Erlingsson 2
Einar Friðþjófsson 2
Þórður Hallgrfmsson 3
Friðfinnur Finnbogason 2
Sveinn Sveinsson 3
Valþór Sigþórsson 2
Óskar Valtýsson 3
Sigurlás Þorleifsson 4
Örn óskarsson 3
Karl Sveinsson 2
Gústaf Baldvinsson (vm.) 2
Ásmundur Friðriksson (vm.) 1
KA.
Þorbergur Atlason 1
Steinþór Þórarinsson 2
Gunnar Gíslason 2
Guðjón Ilarðarson 2
Haraldur Haraldsson 3
Sigbjörn Gunnarsson 2
Óskar Ingimundarson 2
Eyjólfur Ágústsson 2
Gunnar Blöndal 2
Ólafur Haraldsson 2
Elmar Geirsson 3
Gunnar Gunnarsson (vm.) 2
Jóhann Jakobsson (vm.) 1
Dómari. Sævar Sigurðsson 3
V-l#
• ♦
v.#-
Lið ÍBK.
Þorsteinn Ólafsson 3
Guðjón Guðmundsson 2
Óskar Færseth 2
Sigurbjörn Gústavsson 2
Gísli Torfason 2
Sigurður Björgvinsson 3
Einar Á. Ólafsson 3
Ólafur Júliusson 3
Skúli Rósantsson 3
Steinar Jóhannsson 3
ómar Ingvarsson 2
Þórður Karlsson vm 2
Friðrik Ragnarsson vm 2
Dómari. óli Ólsen 3
Lið ÍA.
Jón Þorbjörnsson 2
Guðjón Þórðarson 2
Kristinn Björnsson 2
Jóhannes Guðjónsson 2
Jón Gunnlaugsson 2
Jón Áskclsson 2
Karl Þórðarson 3
Jón Alfreðsson 3
Pétur Pétursson 2
Sigurður Halldórsson 1
Árni Sveinsson 3
Sveinbjörn Hákonarson vm 2
Matthías Hallgrímsson vm 2