Morgunblaðið - 22.08.1978, Síða 20
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 1978
Ósekkjað sem-
ent til Isafjarðar
ísafirði 19. ágúst
SEGJA má að í morgun hafi verið
brotið blað í þróunarsögu bygg-
ingarmála hér á ísafirði, þegar
sementsflutningaskipið Skeiðs-
faxi landaði hér I fyrsta sinn
lausu sementi. Steiniðjan h.f. á
ísafirði hefur reist tanka fyrir
900 tonn af lausu sementi hjá
steypustöð sinni á Stakkanesi. Er
af þessu mikið hagræði fyrir
steypustöðina og verulegur
sparnaður, sem leiða mun til
lækkunar á byggingarkostnaði
steyptra húsa. T.d. sparast um 3
milljónir í gjaldeyri á ári í
bréfpokum, auk þess sem kostn-
aður hefur verið um 150.000.-
krónur á viku undanfarið að
opna pokana og hella í steypusfló-
ið.
Skeiðsfaxi lagðist við festar við
væntanlega hraðbraut milli eyrar-
innar og fjarðarsvæðisins og dældi
sementinu um leiðslu, sem komið
hefur verið fyrir undir götunni.
Gekk dælingin vel og tók um 4
tíma að dæla í land 460 tonnum af
sementi.
Steiniðjan er fyrsta fyrirtækið
utan Faxaflóasvæðisins, sem fær
keypt laust sement frá Sements-
verksmiðju ríkisins.
Úlfar.
Þriðjungur lands-
manna kom á Land-
búnaðarsýninguna
ALtS sóttu 71.246 manns
Landbúnaðarsýninguna á
Selfossi sem lauk sl. sunnu-
dagskvöld. Sýningin hafði þá
staðið yfir í 10 daga og
siðasta daginn sóttu sýning-
una um 10 þúsund manns. —
Við erum ánægðir með sýn-
Ungling-
ar í inn-
brotum
UNGLINGAR gerðu tvær tilraun-
ir til innbrota í gærkvöldi í
Reykjavik en höfðu ekki erindi
sem erfiði. Tveir 14 ára piltar voru
gripnir skömmu eftir að þeir höfðu
skriðið inn um glugga á Ofna-
smiðjunni við Einholt og sást til
þeirra þegar þeir komu þaðan út
og höfðu lítinn peningakassa
meðferðis. Piltarnir voru gripnir
litlu síðar en þeir höfðu ekkert
haft upp úr krafsinu því að
peningakassinn var tómur. Þá náði
lögreglan 12 ára pilti sem hafði
brotizt inn hjá gullsmið í Aðal-
stræti. Var hann staðinn að verki,
þar sem hann var að róta til á
verkstæði gullsmiðsins.
inguna og ég hef ekki heyrt
annað á þeim sýnendum sem
ég hef rætt við. Sýningin
tókst mjög vel og við erum
þakklátir öllum þeim, sem
þátt tóku. Vissulega hefðum
við óskað eftir betra veðri á
meðan sýningin stóð yfir og
sjálfsagt hefðum við þá feng-
ið eitthvað fleiri gesti sagði
Sigurður Jónsson blaðafull-
trúi sýningarinnar er við
ræddum við hann í gær.
Síðdegis í gær voru sýnend-
ur sem óðast að rýma sýn-
ingarsvæðið og búféð var flutt
til síns heima. Þá hefur verið
dregið í happdrætti sýningar-
innar og kom gæðingur með
reiðtygjum á miða nr. 3318,
sólarlandaferð á miða nr. 5973
og litsjónvarpstæki á 6113.
Á sunnudag var greint frá
úrslitum í gæðingakeppni, þar
sem tóku þátt 18 gæðingar frá
9 hestamannafélögum á
‘Suðurlandi. Völdu áhorfendur
besta gæðinginn og varð fyrir
valinu Þytur, rauður, 12 vetra,
eign Sigfúsar Guðmundsson-
ar, Vestra-Geldingaholti,
Gnúpverjahreppi.
Óskiljanlegt hvem-
ig stúlkan komst yf-
ir straumál Krossár
ÞAU.sem fórust þegar Bronco jeppinn valt í Krossá aðfararnótt laugardags, hétui Smári Kristján
©ddsson,-Álfhólsvegi 96, Kópavogi, 22 ára, Eva-Marie Christine Johansson Bandhagen Svíþjóð og
Ralp Coby tæplega 24 ára gamall sjóliði frá Bandaríkjunum. Þau, sem lifðu slysið af, heitai Eve-Lena
Pettersson, tæplega 25 ára frá Danderyd í Svíþjóð og Donald W. Bracke tæplega 19 ára sjóliði frá
Bandaríkjunum.
Eins og kom fram í sunnudagsblaði Morgunblaðsins komst Eve-Lena af eigin rammleik að skála
Ferðafélagsins í Þórsmörk og að sögn kunnugra er talið með ólíkindum að hún skuli hafa komizt
yfir aðalstraumál Krossár á þessum stað og gengið síðan í átt að skálanum.
•Að sögn Eve þá tókst henni að
sparka upp afturhlera jeppans í
þann mund sem honum hvolfdi
og komst þannig út. Bandaríkja-
maðurinn sem slapp út úr
jeppanum, man ekki gjörla
hvernig hann komst út. en talið
er að hann hafi komizt sömu leið
og stúlkan.
Eve-Lena og Donald fengu
bæði taugaáfall og t.d. var ekki
talið ráðlegt að ræða við Banda-
ríkjamanninn í gær, en hann
átti að fara til Bandaríkjanna í
morgun. Eve-Lena fór hinsvegar
þegar á sunnudagsmorgun til
Svíþjóðar.
Þegar slysið varð var mjög
mikið vatn í Krossá og daginn
áður hafði verið 18 stiga hiti í
Þórsmörk auk þess sem mikið
hafði rignt síðustu daga á
undan. Þegar svo háttar til, er
Krossá oft í miklum ham, og
vaðið í ánni breytist þá oft
mikið. Annars er talið að Bronco
jeppanum hafi verið ekið of
neðarlega út í ána og festst
strax í sandbleytu og áin síðan
grafið undan honum, þannig að
hann valt."
Fimmtíu manna langferðabíll
frá Vestfjarðaleið, sem var í
Þórsmörk þegar slysið varð,
skemmdist mikið, þegar bíl-
stjórinn ætlaði að aka honum
yfir til hjálpar við leit að
fólkinu. Langferðabíllinn, sem
er eins drifs flaut bókstaflega
upp, þegar hann var að fara yfir
vaðið og barst síðan niður með
ánni. Þar stöðvaðist hann, og
síðan gróf áin undan honum,
þannig að hann fór á hliðina.
Við það brotnuðu 5 rúður í
bílnum, sætissetur flutu út og
bíllinn hálffylltist af sandi. Um
hádegi á laugardag komu síðan
tveir bílar frá GG í Reykjavík
og tókst þeim að ná langferða-
bílnum upp. Farþegarými hans
var þá orðið hálffullt af sandi og
varð að moka honum út. Annars
er bíllinn mikið skemmdur, auk
þess að fimm rúður brotnuðu þá
komst sandur inn á vél og drif,
en mikið verk er að hreinsa
hvorttveggja.
Langferðabfllinn dreginn til Reykjavíkur á laugardag og eins og sjá má brotnuðu íimm rúður í
honum- Ljósm. Mbl.. Kristján.
Hua þyngir höggin í
garð Sovétstiórnar
Belgrad, Bukarest,
21. ágúst — AP-Reuter
HUA KUO-FENG var fagnað
forkunnarvel við komu sína til
Belgrad í Júgóslavfu f gær, þegar
tíu ár voru liðin frá innrás
Sovétmanna í Tékkóslóvakíu.
Hann hafði þá kvatt Ceausesceau
forseta Rúmenfu eftir velheppn-
aða fimm daga heimsókn, þar
sem rúmenskir hermenn kvöddu
hann með orðunuim Lengi lifi
félagi forseti.
Ljóst er af fréttaskeytum, að
Hua þyngir nú stöðugt höggin í
garð Sovétstjórnarinnar. í Belgrad
í gær sakaði hann Sovétstjórnina
m.a. um að trufla og koma í veg
fyrir með íhlutun sinni, beinni og
óbeinni, að hægt væri að fram-
fylgja hlutleysisstefnu. Jafnframt
lýsti hann Sovétstjórninni sem
heimsvaldasinnum sem stefndu
ljóst og leynt að yfirráðum í
heiminum. Og enn bætti Hua um
betur, er hann sagöi í hádegis-
verðarboði sem Tító hélt honum,
Steiniðjan hf. 20 ára
ísafirði 19. ágúst
UM ÞESSAR mundir eru 20 ár
sfðan Steiniðjan h.f. á ísafirði tók
til starfa. í tilefni þessara tfma-
móta bauð forstjórinn, Jón B.
Þórðarson, ýmsum framámönn-
um byggingariðnaðarins við
Djúp svo og fulltrúum opinberra
aðila, starfsmönnum o.fl. til
veislu í dag. í ræðu, sem Jón hélt
við það tækifæri, kom fram m.a.
að Steiniðjan hóf starfsemi sína f
gömlu hænsnahúsi f fjörunni við
Grænagarð og framleiddi þá
hleðslusteina til húsbygginga.
Síðan hefur fyrirtækið þróast
upp í það, að vera stærsta
fyrirtæki í byggingariðnaðinum
á ísafirði.
Jón Þórðarson hefur staðið fyrir
ýmsum nýjungum á byggingar-
sviðinu hér vestra. Má þar nefna,
byggingu húsa til sölu á seinni
hluta byggingartíma, ákvæðis-
vinnu við uppslátt o.fl., byggingar-
vinnu úti að vetri til, rekstri
steypustöðvar og dælingu steypu-
malar af sjávarbotni.
í dag er áðalstarfssvið steypu-
stöðin. Markaðssvæði hennar eru
byggðirnar við Djúp og allt vestur
í Dýrafjörð. Á síðasta ári var
framleiðslan um 8.000 rúmmetrar
af steypu, en framkvæmdatíminn
er aðeins um 6 mánuðir á ári. Jón
hafði í huga að byggja verksmiðju
til að framleiða húseiningar í
tengslum við steypustöðina, til að
lengja framkvæmdatíma steypu-
stöðvarinnar og treysta atvinnu-
legan grundvöll fyrirtækisins. Lóð
fékkst ekki undir bygginguna og
varð því að hætta við þær
framkvæmdir.
Auk steypustöðvarinnar rekur
Jón trésmiðju, rörsteypu og versl-
un með timbur, steypujárn o.fl.
Starfsmenn fyrirtækisins eru um
40. Úlfar.
að Júgóslavar gætu hæglega átt
von á því hvenær sem væri að
Rússar réðust inn í Júgóslavíu.
Tító hefur einnig lagt sitt af
mörkum til gagnrýni, á Sovét-
stjórnina og undanfarið hefur
hann deilt hart á hana fyrir óbeina
íhlutun ásamt Kúbu og Víetnam.
Opinber blöð í Júgóslavíu og
fréttastofan Tanjug fögnuðu komu
Hua að vonum vel og vörðu
miklum tíma og efni í að skýra frá
batnandi sambúð landanna. Þær
viðtökur sem Hua hefði fengið,
væru einungis vottur þess, að hann
væri fulltrúi vinaþjóðar og koma
hans væri merki þess að þjóðirnar
myndu enn treysta böndin.
Talið er að Hua muni ræða sömu
málefni við Tító og Ceausesceau
Rúmeníuforseta, svo sem vaxandi
átök Kínverja og Rússa, deilur
Víetnam og Kambódíu, málefni
S-Afríku og Mið-Austurlanda.
Vestrænir diplómatar segja
Sovétstjórnina sannfærða um að
för Hua til Balkanlandanna sé
einungis farin til að styrkja áhrif
Kínverja út á við, á tímum
aukinna átaka þeirra og Sovét-
wrmBW.mumwmwwt
wwwwww